NT - 20.09.1985, Qupperneq 23
ÍTp Föstudagur 20. september 1985 23
uJJ Útvarp — sjónvarp Myndbönd
Tónlistarkrossgáta nr. 35
■ Á sunnudaginn kl. 15.00
er Tónlistarkrossgátan á
dagskrá Rásar 2. Stjórnandi
þáttarins er Jón Gröndal.
í Tónlistarkrossgátunni er
hlustendum gefinn kostur á að
svara einföldum spurningum
um tónlist og tónlistarmenn og
ráða krossgátu um leið.
Lausnir sendist til: Ríkisút-
varpsins Rás 2, Efstaleiti 1,
108 Reykjavík í umslögum
merktum: Tónlistarkrossgát-
an.
Sjónvarp, kl 21.
Blómskrúð Kyrra-
hafsstranda
V
Aströlsk heimildarmynd
Blómamyndir Banks
Blómskrúð Kyrrahafsstranda
(Banks Florelegium), heitir
áströlsk heimildarmynd sem
sjónvarpið sýnir kl. 21.10
Árið i 768 lagði JamesCook,
skipstjóri upp í þriggja ára
könnunar- og vísindaleiðangur
umhverfis jörðina. í ferðinni
ar m.a. kannað meginland
Ástralíu í fyrsta sinn.
Fremstur vísindamanna í
leiðangrinum var grasafræð-
ingurinn og íslandsvinurinn
Joseph Banks. Hann safnaði
738 tegundum áður óþekktra
plantna sem aðstoðarmenn
hans teiknuðu síðan og máluðu
af mikilli nákvæmni.
Nú, rúmlega tveimur öldum
seinna hafa þessar rnyndir
loksins verið prentaðar í dýr-
ustu og vönduðustu útgáfu sem
um getur. Um þetta þrennt,
leiðangurinn, jurtasöfnun
Banks og útgáfu blómamynda
hans, fjallar myndin.
Umsjónarmaður er Robert
Hughes. Þýðandi og þulur Ari
Trausti Guðmundsson.
■ Úr Ráninu á neðanjarðarlestinni sem sýnd varöur í sjónvarp-
inu í kvöld.
Sjónvarp, kl. 22.10:
Ránið á neðan-
jarðarlestinni
■ Föstudsmyndin er að þessu
sinni bandarísk bíómynd frá
1974, og heitir Ránið á neðan-
jarðarlcstinni (The Taking of
Pelam One Two Three). Leik-
stjóri er Jopseph Sargent en
með aðalhlutverk fara Walter
Matthau. Robert Shaw og
Martin Balsam.
Myndin fjallar um fjóra
harðsvíraða glæpamenn sem
heita ' þeim óvenjulegu
nöfnum, Blár, Grænn, Grár
og Brúnn, og þeir eru með
mikla áætlun á prjónunum.
Peir ræna neðanjarðarlest í
New York, með sautján far-
þeguni sem þeir halda í gísl-
ingu.
Verkið er að mestu skipulagt
af þeim Bláa, en hann er
kaldrifjaður þorpari sem hugs-
ar ekki um annað en peninga.
Kröfur ræningjanna eru ein-
faldar: Milljón dollarar í
lausnargjald. Yfirvöld hafa
eina klukkustund til að útvega
þessa upphæð, annars munu
ræningjarnir hefja aftökur á
gíslunum, eina á hverri mín-
útu, að klukkustund liðinni.
Föstudagur
20. september
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn
Morgunútvarpið. 7.20 Leikfimi. Til-
kynningar.
7.55 Daglegt mál. Endurtekinn þátt-
ur Sigurðar G. Tómassonar frá
kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.15
Veðurfregnir. Morgunorð - Ásdís
Emilsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Bleiki togarinn“ eftir Ingibjörgu
Jónsdóttur Guðrún Birna Hann-
esdóttir les (4).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For-
ustugreinar dagblaðanna (útdr.).
Tónleikar.
' 10.45 „Mér eru fornu minnin kær“
Einar Kristjánsson frá Hermundar-
felli sér um þátlinn. RÚVAK.
11.15 Morguntónleikar Tónlist eftir
Addinsell, Milhaud og Lutoslawski.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 „A ströndinni“ eftir Nevil
Shute Njörður P. Njarövík byrjar
lestur þýðingar sinnar.
14.30 Miðdegistónleikar
15.15 Létt lög
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Á sautjándu stundu Umsjón:
Hanna G. Sigurðardóttir og Þor-
steinn J. Vilhjálmsson.
17.05 Barnaútvarpið Stjórnandi:
Kristín Helgadóttir.
17.30 Frá Á til B Létt spjall um
umferðarmál. Umsjón: Björn M.
Björgvinsson. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.40 Tilkynning-
ar. Daglegt mál Guðvarður Már
Gunnlaugsson flytur þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg
Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. Þilskipaútgerð
á Norðurlandi Jón frá Pálmholti
flytur sjöunda og síðasta þátt frá-
sagnar sinnar. b. Úr Ijóðum Jó-
hannesar úr Kötlum Gyða Ragn-
arsdóttir les. c. Þáttur af séra Jóni
Norðmann á Barði í Fljótum
Björn Dúason les. Umsjón: Helga
Ágústsdóttir.
21.30 Frá tónskáldum Atli Heimir
Sveinsson kynnir lagaflokkinn „Úr
Ljóðaljóðum Salomons" eftir Pál
ísólfsson.
22.00 Tónleikar
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 Úr blöndukútnum - Sverrir
Páll Erlendsson. RÚVAK.
23.15 Tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands f Háskólabíói 27.
apríl sl.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá RÁS 2 til kl. 03.00.
Föstudagur
20. september
10:00-12:00 Morgunþáttur. Stjórn-
endur: Ásgeir Tómasson og Páll
Þorstejnsson.
14:00-16:00 Pósthólfið. Stjórnandi:
Valdís Gunnarsdóttir.
16:00-18:00 Léttir sprettir Stjórn-
andi: Jón Ólafsson.
Þriggja mínútna fréttir sagðar
klukkan: 11:00, 15:00, 16:00 og
17:00.
HLÉ
20:00-21:00 Lög og lausnir Spurn-
ingaþáttur um tónlist. Stjórnandi:
Sigurður Blöndal.
21:00-22:00 Bergmál Stjórnandi:
Sigurður Gröndal.
22:00-23.00 Á svörtu nótunum
Stjórnandi: Pétur Steinn Guð-
mundsson.
23:00-03:00 Næturvakt. Stjórnend-
ur: Vignir Sveinsson og Þorgeir
Ástvaldsson.
Rásirnar samtengdar að lokinni
dagskrá Rásar 1.
Föstudagur
20. september
19.15 Á döfinni
19.25 Ég heiti Ellen (Jeg heter Ellen)
Sænsk barnamynd um telpukorn
sem fer I sendiferð fyrir mömmu
sína. Þýðandi Baldur Sigurðsson.
(Nordvision - Sænska sjónvarpið)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Grafík í Höllinni Hljómsveitin
Grafík leikur. Þátturinn var gerður
á hljómleikum í Laugardalshöll 17.
júni I sumar. Upptöku stjórnaði
Viðar Víkingsson.
21.10 Blómamyndir Banks -
Blómskrúð Kyrrahafsstranda
(Banks Florilegium) Áströlsk heim-
ildamynd. Árið 1768 lagði James
Cook skipstjóri upp I þriggja ára
vísinda- og könnunarleiðangur
umhverfis jöröina. I ferðinni var
m.a. kannað meginland Ástralíu i
fyrsta sinn. Fremstur vísinda-
manna í leiðangrinum var grasa-
fræðingurinn og Islandsvinurinn sir
Joseph Banks. Hann safnaði 738
áður ókunnum plöntum sem að-
stoðarmenn hans teikn.uðu síðan
og máluðu af mikilli nákvæmni. Nú
að röskum tveimur öldum liðnum
hafa þessar myndir loks verið
prentaðar í dýrustu og vönduðustu
útgáfu sem um getur. Um þetta
þrennt, leiðangurinn, jurtasöfnun
Banks og útgáfu blómamynda
hans fjallar myndin. Umsjónar-
maður Robert Hughes. Þýðandi
og þulur Ari Trausti Guðmunds-
son.
22.10 Ránið á neðanjarðarlestinni
(The Talking of Pelham One Two
Three) Bandarisk biómynd frá
1974. Leikstjóri Joseph Sargent.
Aöalhlutverk: Walter Matthau, Ro-
bert Shawog Martin Balsam. Fjórir
harðsviraðir afbrotamenn ræna
neðanjarðarlest i New York og
krefjast lausnargjalds fyrir farþeg-
ana af borgarstjórninni. Atriði I
myndinni geta vakið ótta hjá ung-
um börnum. Þýðandi Björn Bald-
ursson.
23.40 Fréttir i dagskrárlok.
■ Sean Penn og Timothy Hutton í hlutverkum sínum.
Sannköíluð
tískumynd
Fálkinn og
snjómaðurinn
(The Falcon and
the Snowman)
★★★^
Aðalhlutverk: Timothy
Hutton, Sean Penn, Mady
Kaplan, Lori Singer o.fl.
Leikstjóri: John Schlesinger.
Bandaríkin, 1984
Lengd: 130 mínútur.
■ Chris Boyce og Daulton
Lee eru æskuvinir, en þó þeir
hafi allt til alls að því er virðist,
eru þeir rótlausir. Chris hættir
í skóla t óþökk foreldranna.
Faðir hans útvegar honunr
vinnu í stofnun sem sér um
fjarskipti og gervihnattarsam-
bönd fyrir ríkið. Hann kemst
að því að C.I.A. er að reyna
að hafa áhrif á þingkosningar í
Ástralíu.
Daulton Lee er hinsvegar
orðinn snjómaður, þ.e. verslar
með kókaín. Hann lendir í
mikilli klípu og strýkur til Mex-
íkó. Chris fær hann til að
gerast sendiboði með ríkis-
leyndarmál í rússneska sendi-
ráðið í Mexíkóborg. Daulton
er orðinn langt leiddur í eitur-
lyfjunum og Chris reynir að ná
beinu sambandi við Rússana á
þeirri forsendu að Daulton sé
ekki treystandi. Chris ákveður
að gera lokakaup við Rússa og
fer að hitta Daulton í Mexíkó-
borg.
Rússarnir taka Chris upp á
arma sína en hafna Daulton.
Chris fer heim og skömmu
seinna er Daulton handtekinn
FÁLKIIfH OG
mmmmwmm
fyrir utan sendiráðið með ríkis-
leyndarmál í fórum sínum.
Endalokin virðast augljós...
Fálkinn og snjómaðurinn er
saga um vináttu og ævintýra-
þrá en hún er fyrst og fremst
spennumynd, þó að finna megi
ádeilutóninn ef vill. Hún er
ein af þessum tískumyndum
sem allir eru hrifnir af og
gengið hefur vel bæði hér- og
erlendis. Timothy Hutton í
hlutverki liins einkennilega
Chris er mikið í tísku núna,
enda þrumugóður leikari, eins
og hann sýndi í Ordinary Pe-
ople. Sean Pcnn er ekki síður
góður í hlutverki hins breyska
en leiðigjarna Daulton Lee.
Sem sagt verulega traust
mynd enda er John Schlesinger
enginn meðalleikstjóri (Mid-
night Cowboy, 1969, The Day
of the Locust, 1975, Marathon
Man, 1976 o.fl.). Eini gallinn
við hana er ívið of flókinn
söguþráður. -MJA
arí
1. (1) Karate Kid
2. (3) A Soldiers Story
3. (2) The Falcon ánd the Snowman
4. (6) Starman
5. (5) A Nightmare on Elm Street
6. (4) The Flamingo Kid
7. (7) Runaway
8. (9) Pinocchio
9. (10) The Terminator
10.(13) The Mean Reason
1. (-) City Fleat
2. (1) Karate Kid
3. (2) Police Academy
4. (4) Top Secret
5. (5) Romancing the Stone
6. (3) Tightrope
7. (6) First Blood
8. (9) A Private Function
9. (8) Red Dawn
IO. (12) Bachelor party