Morgunblaðið - 20.07.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.07.2004, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Veldu náttúruliti frá Íslandsmálningu Allar Teknos vörur framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli. ÍSLANDS MÁLNING akrýlHágæða málning Íslandsmálning Sætúni 4 Sími 517 1500 Útimálning Viðarvörn Lakkmálning Þakmálning Gólfmálning Gluggamálning Innimálning Gljástig 3, 7, 20 Verð frá kr. 298 pr.ltr. Gæða málning á frábæru verði Veggfóður og borðar Skandinavísk hönnun „ÞAÐ fæli í sér stórsigur fyrir þá sem hafa barist gegn fjölmiðlalög- unum yrðu þau dregin til baka. Um leið væri forsætisráðherra að stað- festa að ákvörðun forsetans, Ólafs Ragnars Grímssonar, um að stað- festa ekki fjölmiðlalögin hefði verið hárrétt. Sömuleiðis væri þar með staðfest endanlega að málskotsrétt- urinn hefur haft afgerandi áhrif í mesta deilumáli síðari ára,“ sagði Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, eftir fund í alls- herjarnefnd í gær. Hann hafði þann fyrirvara á af- stöðu sinni að ekkert lægi fyrir um hver niðurstaðan yrði. Þetta mál væri stjórnarflokkunum svo erfitt að hugsanleg lending væri að draga það til baka. „Ég á eftir að sjá þetta gerast því þetta væri svo mikið áfall fyrir for- ystumenn beggja stjórnarflokkanna og svo mikill sigur fyrir þá sem hafa andæft lögunum að ég trúi því ekki fyrr en ég legg höndina í sárið eins og Tómas forðum,“ bætti hann við. Þriðja tilraunin Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstri-grænna, sagði að í dag yrði líklega kynnt þriðja tilraun rík- isstjórnarinnar til að bregðast við þeirri ákvörðun forseta Íslands að synja lögunum staðfestingar. Júní- mánuður hefði farið í að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu, sunnudag- inn 4. júlí hefði „brellufrumvarpið“ verið lagt fram og nú væri þriðja út- gáfan í vændum. „Stjórnarflokkarn- ir gáfust upp í síðustu viku með að afgreiða sitt stjórnarfrumvarp, a.m.k. óbreytt. Forræði málsins var tekið af nefndinni og ný samninga- lota hófst milli stjórnarflokkanna. Þeir munu svo væntanlega fá grænt ljós á niðurstöðuna á ríkisstjórnar- fundi í dag.“ Steingrímur sagði að ef ríkis- stjórnin gæfist upp og kallaði fjöl- miðlalögin aftur væri það gríðarleg- ur pólitískur sigur fyrir þá sem hefðu andæft þessum málatilbúnaði frá byrjun. „Að sama skapi yrði það herfilegt niðurlag fyrir ríkisstjórn- arflokkana og þá sérstaklega þá per- sónulega Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson.“ Hann biði þó eftir að fá þetta staðfest og hvernig það yrði útfært. Vildu ekki afgreiða frumvarpið Fulltrúar stjórnarandstöðunnar lögðu til á fundi allsherjarnefndar Alþingis í gær að frumvarp þeirra um framkvæmd þjóðaratkvæða- greiðslu 14. ágúst yrði afgreitt út úr nefndinni til annarrar umræðu. Var því hafnað af meirihluta nefndar- manna. Ekki var gerð grein fyrir breytingum á fjölmiðlafrumvarpinu á fundinum. „Með þessu er ljóst að það er ver- ið að ganga á bak yfirlýsinga fimm ráðherra um að þjóðaratkvæða- greiðsla verði haldin í kjölfar synj- unar forseta Íslands. Það eru ákaf- lega sorglegar lyktir á þeim yfirlýsingum,“ sagði Össur Skarp- héðinsson eftir fundinn. Forsætis- ráðherra hefði einnig tilkynnt for- setanum 10. júní að þingið yrði kvatt saman beinlínis til þess að fjalla um lög um þjóðaratkvæða- greiðslu. Ríkisstjórn- in væri svo lafhrædd við úrslit kosning- anna að hún gerði hvaðeina til að sneiða hjá þeim. Engin sameiginleg niðurstaða Bjarni Benedikts- son, formaður alls- herjarnefndar, sagði að þetta hefði verið fundur sem stjórnar- andstaðan óskaði eftir að yrði hald- inn. Fátt nýtt hefði komið fram. Kallað var eftir því hvort þingmenn stjórnarandstöðunnar hefðu fram að færa einhverjar breytingar á stjórn- arfrumvarpinu. „Það kom ekki á óvart að það voru engar hugmyndir í þeirra röðum sem hægt var að kynna í nefndinni. Þetta er í sam- ræmi við þeirra málflutning frá því í vor að þeir hafa ekki viljað fjölmiðla- lög sem ganga út á takmarkanir á eignarhaldi. Eftir þennan fund verð- ur að mínu mati eng- in sameiginleg niður- staða í nefndinni um meðferð þessa frum- varps frá ríkisstjórn- inni.“ Spurður af hverju frumvarp stjórnar- andstöðunnar um þjóðaratkvæða- greiðslu hefði ekki verið afgreitt sagði Bjarni að meirihlut- inn hefði talið það óeðlilegt. Valið stæði á milli tveggja leiða; annars vegar leiðar ríkisstjórnarinnar að fella brott lögin og efna ekki til þjóðaratkvæðagreiðslu og hins vegar leiðar stjórnarand- stöðunnar að efna strax til þjóðarat- kvæðagreiðslu. „Þar sem vinnu nefndarinnar er ekki lokið taldi meirihlutinn óeðlilegt að síðari leiðin yrði afgreidd út úr nefndinni á þessu stigi málsins,“ sagði Bjarni eftir fund í allsherjarnefnd í gær. Hafnað að afgreiða frum- varp um þjóðaratkvæði Staðfestir að ákvörðun forset- ans var hárrétt verði lögin dreg- in til baka, segir Össur Skarphéð- insson Morgunblaðið/Árni Torfason Sigurður K. Kristjánsson, Birgir Ármannsson, Arnbjörg Sveinsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon við upphaf fundar. Össur Skarphéðinsson FORMENN ríkisstjórn- arflokkanna sögðust vera samstiga um með- ferð fjölmiðlafrumvarps- ins eftir stuttan fund í stjórnarráðinu í gær. Niðurstaða þeirra yrði kynnt nefndarmönnum flokkanna í allsherjar- nefnd og í ríkisstjórn klukkan hálftíu í dag. Eftir það gæti allsherj- arnefnd að öllum líkind- um afgreitt stjórnar- frumvarpið frá sér á fundi klukkan tvö. Þeir vildu ekki svara í hverju breytingarnar á frum- varpinu fælust. Það kæmi í hlut allsherjarnefndar að ljúka málinu þótt frumvarpið væri á forræði ríkisstjórnarinnar. Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra sagðist aldrei hafa sett sjálfstæðismönnum úrslitakosti í þessu máli. Þannig væri ekki hægt að vinna í stjórnmálum vildu menn starfa saman að úrlausn mála. Stjórnarsamstarfið stæði sterkum fótum. Stefnt væri að því að nið- urstaðan lægi fyrir á fundi rík- isstjórnarinnar. Davíð sagðist hafa greint Bjarna Benediktssyni, formanni allsherj- arnefndar, frá viðræðum þeirra Halldórs og í nefndinni yrði farið yfir þau sjónarmið, sem þeir hefðu fram að færa. Þegar hann var spurður hvort framsóknarmenn hefðu stillt sjálfstæðis- mönnum upp við vegg sagði hann að enginn hefði stillt neinum upp við vegg og þannig væri ekki unnið í samstarfi þessara flokka. „Það eru vinstristjórnir sem gera það og þess vegna springa þær alltaf.“ Treystu ekki sínu fólki Davíð sagðist hafa heyrt haft eftir Steingrími J. Sigfússyni, formanni Vinstri-grænna, að þeir Halldór hefðu tekið for- ræðið af allsherjarnefnd. „Mér finnst þetta dálítið merkilegt því formenn stjórnarandstöðuflokkanna hafa rutt sínum mönnum öllum út úr nefndinni og hafi einhverjir tekið forræðið af sínum mönnum í nefndinni eru það þessir formenn,“ sagði hann og í þingsköpum segði að hægt væri að setja nýja menn í nefndir í forföllum nefndarmanna. „Þeir bara ruddu þeim út, treystu þeim ekki.“ Formenn stjórnarflokkanna ræddu fjölmiðlafrumvarpið Niðurstaðan kynnt í ríkisstjórn í dag Davíð Oddsson Halldór Ásgrímsson RÓBERT Marshall, formaður Blaðamannafélags Íslands, tekur heilshugar undir áhyggjur Evrópsku blaðamannasamtakanna (EFJ) af samþjöppun á fjölmiðlamarkaði í Frakklandi og segir að almennt styðji hann aðgerðir sem miði að því að draga úr samþjöppun. Hann kveðst þó ekki þekkja ástandið í Frakklandi nægilega vel til að hann geti borið það saman við þróunina á Íslandi. Fyrirtækjasamsteypa í eigu Mar- cel Dassault lagði í síðasta mánuði undir sig meirihluta í Socpresse, einu helsta fjölmiðlafyrirtæki Frakka sem gefur út um 70 dagblöð. TF1, helsti einkarekni ljósvakamið- ilinn, lýsti því nýlega yfir að fyrir- tækið myndi renna inn í fjölmiðla- veldi Dassault. „Ég er almennt sammála því að menn eigi að gjalda varhug við sam- þjöppun á eignarhaldi á fjölmiðlum. Það er ekki æskilegt að eignarhaldið safnist á fáar hendur, segir Róbert. Aðspurður kveðst hann þó ekki þekkja ástandið í Frakklandi nægi- lega vel til þess að hann treysti sér til að segja á hvern hátt ástandið þar sé ólíkt fjölmiðlamarkaðnum á Íslandi. „En ég veit hvað hentar íslenskum fjölmiðlamarkaði og þetta yrði bara eins og að bera saman epli og appels- ínur,“ segir hann. Sú löggjöf um fjöl- miðla sem nú sé í smíðum hér á landi yrði sú strangasta á Evrópska efna- hagssvæðinu. Um þetta hafi gagn- rýni Blaðamannafélagsins að mestu snúist, verið væri að reyna að setja lög sem líti miklu frekar út fyrir að vera árás á tjáningarfrelsið heldur en að vera sett því til varnar. Róbert segir að taka verði mið af aðstæðum í hverju landi fyrir sig. Hann minnir m.a. á að þar sem víxl- eign á dagblöðum og ljósvakamiðlum er bönnuð, t.d. í Ástralíu og Banda- ríkjunum, séu ekki til staðar öflugar ríkisreknar fréttastofur. Það geti því aldrei orðið svo að sami aðili eignist alla öflugustu fréttamiðlana hér á landi. Lög um eignarhald á fjölmiðl- um verði að taka mið af því en svo sé ekki nú. Róbert Marshall, formaður BÍ Deilir áhyggjum af samþjöppun í Frakklandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.