Morgunblaðið - 20.07.2004, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2004 11
Álfkonuhvarf 63-67
- Sérinngangur af svölum
- Frábært útsýni
- Frábær staðsetning með óbyggðu svæði í nánd við blokkina.
- Náttúrukyrrð
- Glæsilegar íbúðir með vönduðum innréttingum.
- Traustur byggingaraðili = Vandaðar íbúðir
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
www.borgir.is
LANDVERÐIR og skálaverðir
flögguðu í hálfa stöng á nokkrum
stöðum á hálendinu í gær en 19.
júlí fyrir tveimur árum undirrit-
uðu forsvarsmenn Alcoa og stjórn-
völd viljayfirlýsingu um byggingu
álvers í Reyðarfirði.
Að sögn Sigríðar Óladóttur,
skálavarðar í Kverkfjöllum, var
tilgangurinn að minna fólk á þau
óafturkræfu náttúruspjöll sem
Kárahnjúkavirkjun hefur í för
með sér. Flaggað var í Kverk-
fjöllum og Snæfelli og var þetta
þriðja árið í röð sem flaggað er í
hálfa stöng á þessum stöðum.
Eigin flaggstangir
Skálaverðir í Herðubreið-
arlindum og Öskju voru ekki með
áform um að flagga og fór skála-
vörður úr Kverkfjöllum í býtið í
gærmorgun og hugðist reisa eigin
flaggstangir við þessa staði og í
Hvannalindum.
Ferðafélög Fljótsdalshéraðs og
Húsavíkur reka skála í Kverk-
fjöllum og gerðu að sögn Sigríðar
ekki athugasemdir við uppátæki
skálavarðanna. Ferðafélag Fljóts-
dalshéraðs rekur einnig skála í
Snæfelli. Sigríður sagði að ekki
væru gerðar athugasemdir við að
fólk kæmi með eigin flaggstangir
og flaggaði í hálfa stöng við
Herðubreiðarlindir og Öskju.
Að sögn hennar vakti það at-
hygli ferðamanna að sjá íslenska
fánann dreginn í hálfa stöng við
komuna í Kverkfjöll í gær og
spurðu margir hvort einhver hefði
dáið. Þegar skálaverðir útskýrðu
hvers vegna fáninn væri dreginn í
hálfa stöng hefðu flestir haft
skilning á sjónarmiðum skálavarð-
anna.
Ljósmynd/Auður Elva Kjartansdóttir
Skálaverðirnir Elísabet Kristjánsdóttir og Agnes Brá Birgisdóttir und-
irbúa mótmælaaðgerðir við Einarsskála við Grágæsavatn.
Land- og skálaverðir flögguðu í hálfa
stöng á nokkrum stöðum á hálendinu
Ferðamenn
spurðu hvort ein-
hver hefði dáið
NÁTTÚRUVAKTIN, baráttuhópur
fyrir náttúruvernd og virkara lýð-
ræði, kom saman fyrir utan stjórn-
stöð Landsvirkjunar við Bústaðaveg í
gærdag og dró fjóra fána í hálfa stöng
til að mótmæla virkjanaframkvæmd-
um stjórnvalda og Landsvirkjunar
við Kárahnjúka. Þá tilnefndu við-
staddir daginn 19. júlí sérstakan há-
lendisdag en þann dag fyrir tveimur
árum undirrituðu Alcoa og stjórnvöld
viljafirlýsingu um byggingu álvers í
Reyðarfirði.
Þegar Elísabet Jökulsdóttir, rit-
höfundur og ein af forsvarsmönnum
Náttúruvaktarinnar, hafði lokið máli
sínu mætti forstjóri Landsvirkjunar,
Friðrik Sophusson, á staðinn og féllst
á að hlýða á erindi Þorleifs Hauks-
sonar en minnti viðstadda jafnramt á
að sækja þyrfti um leyfi til að draga
fánana að húni. Tveir fánanna til-
heyrðu raunar lóð Veðurstofu Ís-
lands.
Límdu flaggstangir og stungu
veifu í handarkrika Kristjáns IX
Mótmælendur létu engan bilbug á
sér finna og límdu fánaböndin með
einangrunarlímbandi til að erfiðara
yrði að losa þau og blöktu fánarnir við
hún á meðan mótmælendurnir voru á
staðnum. Kveikt var á rauðum blys-
um og Friðrik fékk afhenta táknræna
gjöf, fjóra fána í hálfa stöng á birki-
undirstöðu.
Af Bústaðavegi hélt hópurinn í um-
hverfisráðuneytið og kom sams konar
gjöf á framfæri við umhverfisráð-
herra og þaðan í Stjórnarráðið þar
sem Davíð Oddsson forsætisráðherra
var á leið til fundar við Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra. Við-
staddir stungu fjórum fánum í gras-
svörðinn fyrir framan lóð
Stjórnarráðsins og báru forsætisráð-
herra þau skilaboð að þeir væru ósátt
við virkjanaframkvæmdir á hálend-
inu. Lítill drengur í hópnum klifraði
upp á styttuna af Kristjáni níunda
Danakonungi, „manninum með fjar-
stýringuna [stjórnarskrána]“ eins og
hann nefndi hann, og stakk einum
fána til viðbótar í vinstri handarkrika
Kristjáns.
Náttúruvaktin mótmælti virkjanaframkvæmdum
Drógu fána í hálfa stöng
við hús Landsvirkjunar
Morgunblaðið/Þorkell
Á bilinu 20–30 manns komu saman framan við stjórnstöð Landsvirkj-
unar til að mótmæla virkjunarframkvæmdum stjórnvalda við Kára-
hnjúka. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, mætti á staðinn
og hlýddi á erindi gesta.
Ljósmynd/Herdís Helga
Náttúruvaktin afhendir Davíð Oddssyni forsætisráðherra mótmæli gegn
virkjanaframkvæmdum á hálendinu norðan Vatnajökuls.
Drykkjarvöruframleiðandinn Vífil-
fell hefur sent Morgunblaðinu eftir-
farandi yfirlýsingu:
„Að gefnu tilefni vill drykkjarvöru-
framleiðandinn Vífilfell taka fram að í
júnímánuði urðu mistök við fram-
leiðslu á nokkru magni af Svala og
Trópí appelsínusafa. Vegna bilunar í
kjölfar flutnings tækjanna milli verk-
smiðjuhúsa tókst gerilsneyðing ekki
nægilega vel á framleiðslu á þremur
blöndum þessara drykkja, sem leiddi
til gerjunar í takmörkuðu magni af
drykkjarfernum.
Öllum birgðum þessara drykkja
var eytt og óseldar vörur innkallaðar
um leið og mistökin komu í ljós. Strax
var kallað á sérfræðing frá Tetra Pak
í Svíþjóð, sem heitir Mathias Jo-
hannsson, til að fara yfir framleiðslu-
ferlið. Hann kom til landsins daginn
eftir útkallið og aðstoðaði Vífilfell við
að laga það sem úrskeiðis hafði farið í
tækjabúnaði verksmiðjunnar.
Ávaxtadrykkir, eins og Svali og
Trópí, hafa verið hitaðir upp í 90
gráðu hita í 15-20 sek. í drykkjarvöru-
iðnaði til gerilsneyðingar. Eftir lag-
færinguna í verksmiðju Vífilfells eru
þeir nú hitaðir í 95 gráður af öryggis-
ástæðum. Ýmsar tæknilegar lagfær-
ingar hafa einnig verið gerðar á
tækjabúnaðinum samkvæmt fyrir-
byggjandi ráðleggingum Tetra Pak.
Þó að nú ætti að vera búið að eyða
umræddum birgðum þá fer gæðaeft-
irlit Vífilfells fram á að fólk kanni
hvort það eigi í fórum sínum Svala
appelsín sem merkt er „Best fyrir
12.6.2005 “ eða „Best fyrir 19.6.2005 “
eða Tróbí appelsínusafa merkt „Best
fyrir 14.10.2004“. Þeir sem eiga fern-
ur með þessum dagsetningum eru
beðnir að hafa samband við Pétur
Helgason hjá Vífilfelli í síma 525 2500
sem fyrst.
Vífillfell hefur áratuga reynslu í
framleiðslu fyrsta flokks drykkjar-
vara og hefur ætíð notið mikils
trausts viðskiptavina sinna. Vífilfell
biður viðskiptavini sína innilega fyr-
irgefningar á þessum framleiðslumis-
tökum.“
Yfirlýsing
frá Vífilfelli