Morgunblaðið - 20.07.2004, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.07.2004, Blaðsíða 17
MINNSTAÐUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2004 17 Borgartúni 28 • símar 520 7901 & 520 7900 Draumavél heimilanna! Vegleg brúðargjöf! Ísaumuð svunta með nöfnum og brúðkaupsdegi fylgir! ARTISAN 5 gerðir - 7 litir stærri skál, hveitibraut fylgir Yfir 60 ára frábær reynsla HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI Sílamáfar á förum | Bæjarráð Garðabæjar hefur samþykkt að kanna hvaða leiðir séu færar til að halda fjölda sílamáfa í Garðahrauni og nágrenni í skefjum, en brögð eru að því að fuglinn geri aðsúg að fólki sem á leið um hraunið að sumri til og valdi ónæði í íbúðahverfum. Áætlað er að á bilinu 100 til 150 sílamáfspör hafi verpt í Garðahrauni í sumar, en einnig eru stór vörp síla- máfa stutt frá. Heilbrigðiseftirlitið leitaði ráða hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, en þar telja menn það tíma- spursmál hvenær mávarnir hætti að verpa í hrauninu, þar sem uppbygg- ing á svæðinu muni neyða fuglinn til að finna annað varpsvæði. Í bréfi Náttúrufræðistofnunar er bent á að ef grípa eigi til aðgerða þurfi þær að vera samstilltar og með vel skilgreind markmið, og að skot- mennska sé vænlegasta leiðin til að fækka fuglinum.    Vesturbæ | Breyttar þarfir kirkjunnar kalla á safnaðarheimili sem hægt er að nýta á sem fjöl- breytilegastan hátt, og verður nýtt safnaðar- heimili Neskirkju, sem og kirkjan sjálf, opið alla daga fyrir gesti og gangandi. Verktakar sem unnið hafa að byggingu nýs safnaðarheimilis Neskirkju í rúmt ár afhentu í gær sóknarnefnd kirkjunnar húsnæðið, en stefnt er að því að taka það formlega í notkun 12. sept- ember nk. Guðmundur K. Magnússon, formaður sóknar- nefndar Neskirkju, segir að þetta nýja safnaðar- heimili verði nýtt með talsvert öðrum hætti en önnur safnaðarheimili. Stefnan er að hafa hús- næðið opið alla daga svo fólk geti litið inn, fengið sér kaffisopa, litið í blöð og bækur og jafnvel á Netið. Kirkjuskipið sjálft verður einnig opið þannig að fólk getur átt rólega stund og beðist fyrir þegar því hentar. Á kvöldin verða svo jafn- vel ýmsar uppákomur í safnaðarheimilinu, en Guðmundur tekur fram að ekki sé ætlunin að leigja húsnæðið út. Þessa starfsemi segir Guðmundur lýsandi fyr- ir breytt hlutverk safnaðarheimilisins, og segir hann viðeigandi að kirkja sem kölluð var fyrsta nútímakirkjan á landinu fái fyrsta nútímasafn- aðarheimilið. Í raun verður safnaðarheimilið eins konar félagsmiðstöð fyrir unga sem aldna í söfnuðinum. Nýja safnaðarheimilið er samtals um 820 fer- metrar með kjallara. Á jarðhæð er stór, bjartur salur sem þilja má niður eftir þörfum í þrjá minni sali. Þar verða einnig vinnuherbergi og skrifstofur fyrir presta, auk eldhúss. Guðmundur segir að kostnaðurinn við bygg- inguna muni ekki verða söfnuðinum erfiður. Heildarkostnaður er um 180 milljónir króna. Þar af þurfti að taka lán fyrir 40 milljónum, en 140 milljónir voru til í sjóðum. Safnaðarheimilið styðji við kirkjuna Richard Briem arkitekt hefur haft umsjón með byggingu hússins, en hönnuðir voru VA arkitektar. Richard segir að hugsunin á bak við skipulag hússins hafi verið að hafa það mjög opið og bjart, sem sést m.a. með glerveggjum og ljósu gólfi og veggjum. Þannig myndar safn- aðarheimilið nokkurs konar andstæðu við kirkj- una, sem þykir nokkuð lokuð af. Richard segir að lagt hafi verið upp með að safnaðarheimilið dragi ekki að sér athygli fólks á kostnað kirkjunnar, sem verði í aðalhlutverki. Safnaðarheimilið eigi þess í stað að styðja við hana og vera hvetjandi fyrir starfsemi hennar. Nýtt safnaðarheimili opið alla daga Morgunblaðið/Þorkell Ánægja: Sr. Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur, Hanna Johannessen og Guðmundur Magnússon, formaður sóknarnefndar Neskirkju, fyrir miðri mynd ásamt fólki úr sóknarnefnd, arkitekt og verktökum fyrir framan nýja safnaðarheimilið. Nýr leikskóli | Leikskólinn Stekkj- arás í Hafnarfirði verður opnaður í september, en leikskólinn Krumma- kot við Hrafnistu hefur verið lagður niður, svo segja má að Stekkjarás sé nokkurs konar arftaki hans. Um 100 börn munu fá pláss á Stekkjarási á fjórum deildum. Í leikskólanum verður áhersla á að búa börnunum námsumhverfi í anda félagslegrar hugsmíðahyggju, þar sem góð umönnun og sjálfráðaréttur vekur virkni og námsvilja barnanna, að því er fram kemur á vef Hafnarfjarðar. Með í vinnuna | Dagur fjölskyld- unnar verður haldinn í Vinnuskóla Garðabæjar á miðvikudag, en þá eru forráðamenn starfsmanna Vinnu- skólans hvattir til að koma með krökkum sínum í vinnuna og eiga með þeim ánægjulegan dag við leik og vinnu. Tekið verður til hendinni fram eftir morgni, en að því loknu verður brugðið á leik og fylgst með skemmtiatriðum frá unglingunum, ásamt því sem boðið verður upp á grillaðar pylsur.    BLÓMASKÁLINN Vín í Eyja- fjarðarsveit er 20 ára í dag og verður haldið upp á daginn að sögn Hreiðars Hreiðarssonar sem rekur skálann ásamt fjöl- skyldu sinni. „Við ætlum að selja ís á sama verði og hann var á þegar við opnuðum,“ sagði hann, en í þá daga kostaði stór ís 50 krónur og lítill 30 krónur. „Við erum búin að birgja okkur vel upp,“ sagði hann en búist er við að fjöldi gesta leggi leið sína í Vín og fagni tímamótunum. Um 10 kílómetrar eru frá Akureyri fram í Vín og sagði Hreiðar að bæjarbúar væru duglegir að sækja staðinn. „Þetta er mest fólk frá Akureyri og nágrenni,“ sagði hann en þá teygði hann sig um allan fjörð og allt austur á Húsavík í þeirri skilgrein- ingu. „Það er hefð hjá mörgum fjölskyldum að hittast hérna, sumar fjölskyldurnar eru með sinn dag, þá mæta allir sem geta og spjalla saman yfir kaffi eða ís,“ sagði Hreiðar. Tvítugur blómaskáli Ísinn á 50 kall ÞAÐ var líf og fjör í Kjarnaskógi í gær, þar sem foreldrar stúlku- barna sem ættleidd voru frá Kína árið 2002 komu saman með börn sín. Alls komu 10 stúlkur frá Kína í maí þetta ár, í þessum fyrstu ætt- leiðingum íslenskra foreldra á kín- verskum börnum. Tvær stúlkn- anna eru búsettar á Akureyri en hinar á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari VMA, og kona hans, Svanhvít Magnúsdóttir, eiga dótt- urina Jóhönnu Lan og þau voru með hópnum í Kjarnaskógi. Hjalti Jón sagði að stúlkurnar væru táp- miklar og frískar. Allar eru þær komnar í leikskóla og una hag sín- um vel. Stúlkurnar 10 eru orðnar þriggja ára gamlar, fæddar á tíma- bilinu janúar til júní árið 2001 og koma allar frá sama barnaheimili í Suður-Kína. Hjalti Jón sagði að foreldrarnir, sem fóru saman út, hefðu reynt að hittast tvisvar á ári með stúlkurnar sínar en að þessu sinni vantaði eina fjölskyldu í hóp- inn. „Stelpurnar ná vel saman og hafa mjög gaman af því að hittast. Þær eru aðeins farnar að skilja uppruna sinn en hafa aðlagast vel hér á landi.“ Hópurinn dvelur sam- an í nokkra daga og skoðar sig m.a. um á Akureyri og næsta ná- grenni. Morgunblaðið/Kristján Stúlkurnar gáfu sér tíma til þess að stilla sér upp fyrir myndatöku. Aftari röð f.v. Jóhanna Lan, Áslaug Rún, Hild- ur Björg, Lára og Ragnhildur. Fremri röð f.v. Sunna Líf, Tinna, Líney Rut og Stella Tong. Skemmtu sér vel í Kjarnaskógi Vatnshaninn heillaði stúlkurnar. Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.