Morgunblaðið - 20.07.2004, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 8 og 10. Bi 16. Sýnd kl. 3.50. Íslenskt tal
Sýnd kl. 5.15
kl. 5.30, 8.30 og 11.30
3 barnalegir menn - 3 börn
3-falt gaman!
Léttgeggjuð grínmynd
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.Sýnd kl 4 alla virka daga
Norðurljósin
Mynd sem byggir á nýrri
íslenskri tækni til að mynda
norðurljósin.
Loksins er hægt að sjá
þetta stórkostlega
náttúrufyrirbrigði í allri
sinnidýrð ákvikmyndatjaldi.
lj i
ir rri
í l ri t i til
r rlj i .
i r t j
tt t r tl
tt r f rir ri i í llri
i i r i tj l i.
Sýnd kl. 5, 6, 8, 9 og 11.
SV MBL
"Afþreyingarmyndir gerast ekki
betri."“
„Geðveik mynd.
Alveg tótallí brilljant“
.ÞÞ.FBL.
ÓÖH
„Tvímælalaust besta
sumarmyndin...“
29 þúsund gestir á 11 dögum
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 8 og 10.
SV MBL
"Afþreyingarmyndir gerast ekki
betri."“
ÞÞ.FBL.
„Geðveik mynd.
Alveg tótallí brilljant“
ÓÖH
„Tvímælalaust besta
sumarmyndin...“
29 þúsund gestir á 11 dögum
VÍSINDASKÁLDSAGAN I, Robot
hreppti efsta sætið á lista yfir þær
kvikmyndir sem besta aðsókn hlutu í
norður-amerískum kvikmynda-
húsum um helgina. Will Smith leikur
aðalhlutverkið í I, Robot. Tekjur af
sýningu myndarinnar námu 53,3
milljónum dala en kvikmyndin
Köngulóarmaðurinn 2, sem verið
hefur í efsta sæti undanfarnar helg-
ar, aflaði 24,2 milljóna dala um
helgina.
Nútímaútgáfa af ævintýrinu um
Öskubusku fór beint í 3. sætið. Ung-
lingastjarnan Hillary Duff leikur
þar aðalhlutverkið.
I, Robot er gerð eftir sögu Isaacs
Asimovs og fjallar um lögreglumann
árið 2035 sem grunar að vélmenni
hafi framið morð, þrátt fyrir fullyrð-
ingar um að vélmenni geti ekki unn-
ið mönnum mein.
Í fjórða sæti á aðsóknarlistanum
var myndin Anchorman: The Leg-
end of Ron Burgundy, sem er gam-
anmynd með Will Ferrell í aðal-
hlutverki. Í fimmta sæti var myndin
Fahrenheit 9/11 eftir Michael
Moore.
Kvikmyndir | Mest sóttu kvikmyndirnar
í Norður-Ameríku um helgina
Reuters
Will Smith var keikur á blaða-
mannafundi í Sidney á dögunum.
I, Robot
vinsælust
0'1203,
+,-.+,/+!' /0'1203,
+# !
/0'1203,
+,-.+,/+!' /0'120
+# ,
0
(
)
-
/
1
,2
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
! "
#$
%$
&! ' "( !
) + * * - / ) * * * ) *. * )/ * *- )* /* .+ - EINAR BJÖRN Hall-
dórsson er nemandi í ís-
lensku við Háskóla Íslands.
Hann vantaði sumarvinnu
og sótti um styrk hjá Ný-
sköpunarsjóði námsmanna
til vinnslu slangurorða-
bókar og hóf störf nú í
byrjun júlí.
22 ár eru síðan slík bók
leit dagsins ljós hér á landi
í fyrsta og eina sinn og
fannst Einari kominn tími
til að endurnýja slang-
urorðaforðann.
„Þetta er rosalega mikil
vinna og ég næ ekki að
klára hana á þessum tveim-
ur mánuðum sem ég fékk
styrk til,“ segir Einar.
„Hugmyndin er að gefa af-
raksturinn út á Netinu í lok
sumars og þá er hægt að
bæta endalaust við. Slang-
urorðabókin kemur því ekki
út á prenti, allavega ekki til
að byrja með.“
Einar segir vefi af þessu
tagi fyrirfinnast víða er-
lendis. Hann segist þó ætla
að sjá um ritstjórn á vefn-
um svo ekki verði stjórn-
laust flæði inn á hann.
Þar sem rúmir tveir ára-
tugir eru síðan síðasta
slangurorðabók kom út má
búast við að ýmislegt hafi
breyst í slangurorðanotkun,
ekki satt?
„Jú, það er margt í
gömlu bókinni orðið úrelt þó að
sum orðanna séu vissulega enn í
notkun,“ segir Einar.
„Slangur úreldist ansi fljótt og
er í sífelldri endurnýjun. Það má
segja að það bætist við nýtt orð á
hverjum degi.“
Einar segir breytinguna vera
mesta í orðum sem lúta að tölvum,
farsímum og öðrum tækninýj-
ungum.
„Dæmi um orð sem breytt hafa
um merkingu með tækniframförum
er til dæmis orðið „smass“. Fyrir
22 árum var „að smassa“ notað um
að slá fast, til dæmis í badminton
eða tennis. Í dag er þetta sama orð
notað um að senda SMS-smáskila-
boð,“ upplýsir Einar.
Aðspurður um efnisöflun og
hvaðan helstu orðin koma svarar
Einar:
„Í upphafi ætlaði ég að einbeita
mér að blöðum fyrir ungt fólk á
borð við Undirtóna og Orðlaus en
svo komst ég að því að það er
langmest að finna á Netinu, á
spjallrásum og blogg-síðum.
Slangrið er þar í nýju afbrigði af
talmáli þar sem fólk skrifar orðin
eins og þau eru borin fram.“
Einar segist þó ekki notast við
svokölluð SMS-orð þar sem orð
eru stytt niður til hagræðingar
þegar skilaboð eru send. Sem
dæmi um það má nefna orðið
„gegt“ í stað „geðveikt“ og „kadda-
gera“ í stað „hvað ertu að gera“.
Einar safnar þessum orðum
þó og segir aldrei að vita
hvort þau verði einhvern
tíma gefin út með hinu
slangrinu, þegar þau verða
orðin nógu mörg.
Að gúggla og ówna
Slangurorð eiga oft upp-
tök sín í gríni á milli vina
en ná svo að festa sig í
sessi í málnotkun fólks. Það
hljóta því að vera mörg orð
sem rekur á fjörur Einars
sem hann ekki hefur heyrt
fyrr.
„Já, það eru nokkur orð
sem ég er að heyra í fyrsta
skipti,“ segir Einar. „Um
daginn sá ég orðið „ówna“
notað á sama hátt og enska
orðið „own“ eða „að eiga“.
Ég sá fyrirsögn á einhverri
heimasíðu svohljóðandi:
„Metallica ównuðu Egils-
höllina“ og var þá átt við að
Metallica hefðu átt salinn.
Einnig má nefna sögnina að
„gúggla“ en það er notað
þegar einhver er að leita
sér upplýsinga á leit-
arvefnum www.google-
.com.“
Þær gagnrýnisraddir
hafa oftar en ekki heyrst að
slangur sé ófínt mál og eigi
að reyna að varast að festa
það í sessi í íslensku máli.
„Það sést til dæmis vel á
íslenskri orðabók að aðeins
lítið brot af þessum orðum eru tek-
in inn sem góð og gild íslensk orð,“
segir Einar. „Í nýjustu útgáfunni
af íslenskri orðabók eru þó örfá
slanguryrði sem slæðast inn, til
dæmis „sjitt“ og að „eipa“. Nokkur
slangurorð ná svo að festast eins
og til dæmis orðið „gemsi“ sem
upphaflega var slangur en ég tel
að sé búið að festa sig í sessi í mál-
inu.“
Einar segist nú þegar hafa safn-
að 3–400 orðum og vonast til að
þau skipti nokkrum þúsundum
þegar yfir lýkur.
„Allar ábendingar um nýtt
slangur eru rosa vel þegnar,“ segir
Einar og geta þeir sem luma á ein-
hverju slíku sent honum tölvupóst
á netfangið einarma@hi.is.
„Slangrið er alls staðar,“ segir
Einar að lokum. „Þetta er alls ekki
bara bundið við unglinga. Fullorðið
fólk notar slangur alveg jafnmikið.
Sem dæmi má nefna stjórn-
málamenn sem komið hafa á orð-
unum „Baugstíðindi“ þegar átt er
við Fréttablaðið og „Bláskjár“ þeg-
ar átt er við Sjónvarpið.“
Fólk | Einar Björn Magnússon vinnur að slangurorðabók
Slangrið er alls staðar
Morgunblaðið/Sverrir
Einar Björn Magnússon skrásetur slangrið í íslensk-
unni sem töluð er í dag.
birta@mbl.is
Á DÖGUNUM voru veitt verðlaun í
Cocoa Puffs og Skrekks 2-leiknum.
Að sögn Christofs Wehmeiers,
kynningarstjóra Sam-bíóanna, var
mikil þátttaka í leiknum og fengu
allir sem sendu inn strikamerki
Skrekks 2-armbandsúr.
Það var svo Bjarki Jóhannesson
sem hreppti stærsta vinning keppn-
innar, árskort fyrir sig og fjölskyldu
sína á fjölskyldumyndir Sambíó-
anna.
Aðrir vinningar voru árskort í
Húsdýragarðinn fyrir fjóra, 100 bíó-
miðar á Shrek 2, 100 bolir og 500
veggspjöld.
Vinningar verða sendir út til vinn-
ingshafa.
Sigurvegari í Skrekks 2-leiknum
Morgunblaðið/Þorkell
Bjarki Jóhannesson tók við verðlaununum úr hendi Christofs Wehmeiers,
kynningarstjóra Sambíóanna, ásamt félaga sínum.