Morgunblaðið - 20.07.2004, Page 24

Morgunblaðið - 20.07.2004, Page 24
MINNINGAR 24 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ M álverk Emm- anuels Leutzes af George Wash- ington að sigla yfir Delaware- ána í Bandaríkjunum á jólum 1776 er mynd af stórmenni og miklum leiðtoga. Washington stendur í litlum árabát með ann- an fótinn uppi á borðstokknum, sveipaður glæsilegum klæðum og með sverð við mjöðm. Um- hverfis hann er bjartur ljómi sem rýfur óveðursskýin sem hrannast upp á himni. Hann horfir fráneygur fram á við, líkt og hann sjái í hillingum orrustuna við Trenton, sem háð var dagana á eftir og lauk með glæstum sigri Washingtons og bandaríska hersins og markaði þáttaskil í bandaríska frelsisstríðinu. Allt í kringum Washington í bátnum eru menn hans streðandi við að róa í gegn- um íshrönglið á ánni, og að baki honum standa tveir ábúðarmiklir fánaberar sem með erfiðis- munum halda á lofti bandaríska flagginu. („Stars and Stripes“, sem reyndar var ekki til á þess- um tíma, en það, eins og mörg önnur söguleg ónákvæmni í mál- verkinu, skiptir ekki máli fyrir táknrænt mikilvægi þess í bandarískri sögu og þjóðarvit- und.) Leutze var þýskur lýðræð- issinni og málaði myndina í Þýskalandi 1851 þegar vonir byltingarmanna þar voru að engu orðnar. Eflaust hefur inn- blástur hans að einhverju leyti átt rætur að rekja til hugmynd- arinnar um að ef þýsku lýðræð- isbyltingarmennirnir hefðu haft slíkan leiðtoga sem Washington hefði þeim gengið betur, og jafn- vel sigrað. Það eru enn málaðar myndir af stórmennum, en nú eru þau flest jakkafataklædd í hæg- indastól og stórmennska þeirra fólgin í því að stjórna bönkum eða öðrum valdamiklum fyr- irtækjum eða stofnunum. En þær myndir af stórmenn- um nútímans sem máli skipta eru ekki málverk heldur rafræn- ar sjónvarpsmyndir. Stórmenni nútímans birtast á CNN, stund- um fleiri en eitt hlið við hlið, og ræða yfirveguð við fréttamenn um það sem skekur heiminn, sitjandi í mjúkum stólum í helstu valdamiðstöðvum veraldarinnar, eins og til dæmis Hvíta húsinu. Málverk og sjónvarpsmyndir hafa þó þau takmörk að sýna stórmennið einungis utanfrá, en gefa ekki innsýn í þau. Til að skyggnast um innviði þeirra má auðvitað lesa ævisögur, en skáld- skapur getur verið enn aðgengi- legri og gefið gleggri og meitl- aðri mynd. Hér er tilfærð ein sem er að vísu ekki sérlega hugguleg. – En stórmenni eru ekki alltaf sérlega hugguleg, og kannski síst í augum þeirra sem næst þeim standa. Í skáldsögunni Eiginkonan, sem kom út í fyrra (og heitir á ensku The Wife), dregur banda- ríski rithöfundurinn Meg Wolitz- er upp mynd af Joseph Castle- man, frægum rithöfundi sem er á leið með konunni sinni, Joan, til Finnlands að taka á móti bók- menntaverðlaunum. Sagan er sögð frá sjónarhorni eiginkon- unnar, sem í upphafi bókar er búin að ákveða að skilja við þennan fræga eiginmann sinn, eftir langt hjónaband. Joan lýsir stórmenninu sínu svona: „Hann var Joseph Castleman, einn af þessum mönnum sem eiga heiminn. Þið þekkið svona menn: þessar auglýsingar fyrir sjálfa sig, þessa risastóru svefn- gengla sem flakka um heiminn og traðka á öðrum mönnum, konum, húsgögnum, heilu þorp- unum. Hvað varðaði þá um það? Þeir áttu allt, höfin og fjöllin, gjósandi eldfjöllin, fossandi fljót- in. Það eru til margar tegundir af þessari manngerð: Joe var rit- höfundartegundin, lágvaxinn og örlyndur skáldsagnahöfundur með lafandi vömb og svaf eig- inlega aldrei, vissi ekkert betra en mjúka osta, viskí og vín sem hann notaði til að skola niður pillunum sem komu í veg fyrir að blóðið í honum stífnaði eins og gömul steikarfita … “ Nokkrum blaðsíðum seinna ávarpar Joan lesandann aftur: „Þú öfundar okkur kannski – hann af öllum kraftinum sem býr í digrum, sjúskuðum skrokknum, og mig af því að hafa aðgang að honum allan sól- arhringinn, líkt og mikill og frægur rithöfundur sé verslun sem eiginkonan getur brugðið sér í þegar henni sýnist og feng- ið sér nokkra lítra af stórkost- legum gáfum, snilld og skemmti- legheitum.“ Hún Joan er bitur, sár og svekkt, og búin að fá nóg. En hún má eiga það að hún kennir ekki Joe um allt sem aflaga hef- ur farið, heldur veit sök upp á sjálfa sig þótt hún skilji ekki al- veg hvað veldur: „Var ekki bjánalegt að ég skyldi hvað eftir annað láta hann narra mig? Frægja hann, lofsyngja hann. En ég gat ekki fundið hjá mér hvöt til að gera neitt annað.“ Þetta minnir á það sem þýski heimspekingurinn Hegel skrifaði í Heimspeki sögunnar, að það væri mikill sannleikur fólginn í orðtækinu að engin hetja væri hetja í augum skósveins síns, en Hegel bætti svo við, að það væri ekki vegna þess að hetjan væri í rauninni ekki hetja, heldur vegna þess að skósveinninn væri skósveinn. Stórmennið Joe tekur varla eftir því þótt meðalmennið Joan sé orðið biturt og níði niður af honum skóinn. Skal engan undra. Það hefur löngum verið hið dapurlega hlutskipti með- almenna sem ekki geta sætt sig við yfirvald stórmennanna að gera grín að þeim. Dapurlegt (og jafnvel barnalegt) því að á end- anum er brandarinn á kostnað meðalmennanna sjálfra vegna þess að sönn stórmenni taka ekki eftir því þótt þau séu höfð að háði og spotti. Myndir af stórmenni „Þið þekkið þessa menn: þessar auglýs- ingar fyrir sjálfa sig, þessa risastóru svefngengla sem flakka um heiminn og traðka á öðrum mönnum, konum, hús- gögnum, heilu þorpunum.“ VIÐHORF Eftir Kristján G. Arngrímsson kga@mbl.is Meg Wolitzer: Eiginkonan ✝ Elín Sigurðar-dóttir fæddist að Stekk í Garðahreppi 18. nóvember 1915. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Víðinesi 12. júlí síðastliðinn. Hún var dóttir Sigurðar Magnússonar bónda og ráðskonu hans Helgu Eiríksdóttur. Systkini Elínar eru: Ólafía Lilja, Magnús Eiríkur, Guðmundur Ágúst, Kristín Ingi- björg, Sigurveig Fanney, Andrea Guð- rún Ingibjörg, Þorvaldur Axel, Guðbjartur Eðvarð, Guðmundur Diðrik, Guðrún Anna, Guðbjörg Svala, Guðjón Stefán, Jón og Hjalti. Nú er einungis Svala á lífi. Elín giftist 29.6. 1956 Sigurði Jónssyni, f. 7.12. 1897, d. 16.4. 1960. Foreldrar hans voru þau Jón Jónsson og Ragnhildur Sigurðar- dóttir í Raufarfelli í A-Eyjafjalla- hrepp. Sonur þeirra Elínar og Sig- urðar er Sigurður Hjalti, f. 14.1. 1956, kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur, f. 30.12. 1963. Börn þeirra eru Reynir Ari, sonur Guðrúnar, Freyr, Sindri og Elín. Elín dvaldist stór- an hluta ævi sinnar á Vífilsstöðum og á Reykjalundi til lækn- inga á berklum. Hún lærði sauma- skap og fékk meist- arabréf í kjólasaum 1950 og fór svo í framhaldsnám til Danmerkur, ásamt því að leita sér lækninga þar. Hún stjórnaði saumastofu á Reykja- lundi og vann lengi eingöngu við sauma en seinna með öðrum störf- um á Kleppi og Landspítala. Hún bjó lengst af í Reykjavík og dvaldi síðustu árin á Hjúkrunarheimilinu Víðinesi. Útför Elínar fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Mig langar að skrifa nokkur kveðjuorð til Elínar tengdamóður minnar. Saga okkar saman er ekki nema rúmur fjórðungur af ævi henn- ar en rúmur helmingur af minni, hún hefur því haft meiri áhrif á mitt líf en ég hennar. Dagana síðan hún dó höf- um við Siggi verið að fara í gegnum skjöl og myndir og ég hef gert mér grein fyrir því hversu langa og óvenjulega ævi þessi mæta kona hef- ur átt. Áratuga vist á berklahælum í blóma lífsins er eitthvað sem við nú- tíma Íslendingar eigum afskaplega bágt með að sjá fyrir okkur. Á Vífils- stöðum og Reykjalundi voru tugir og hundruð ungra Íslendinga, oft svo árum skipti, við getum kannski best sett okkur í þessi spor ef við ímynd- um okkur að við förum í heimavist upp úr fermingu og séum þar fram yfir fertugt. Ekkert hefðbundið fjöl- skyldulíf, jafnvel hömlur á samgangi við annað fólk vegna smithættu og það sem hefur örugglega verið sér- staklega erfitt að horfa upp á vini og ættingja veika og jafnvel deyjandi og vita sjálfa sig í sömu sporum. Þessi reynsla hlýtur að hafa mótað allt líf Elínar og þeirra sem í þessu lentu. Okkar tími saman einkennist af sam- eiginlegu barnauppeldi, þar sem hún átti stóran þátt í að ala upp börnin mín, sem eiga fyrir vikið þá dýrmætu reynslu að umgangast fullorðna manneskju og læra af henni venjur, siði og gildi sem oft vantar í hröðu nútíma þjóðfélagi. Elínu einkenndi líka líkamlegur styrkur sem sást best á því að hún hristi af sér heilablæðingu sem hún fékk eftir slæma byltu og brjósta- krabbamein. Þetta var eitthvað sem þurfti að klára og svo átti ekki að ræða það meir. Hana einkenndi líka andlegur styrkur og því var það bæði henni og okkur afar erfitt þegar hún greindist með Alzheimer fyrir nokk- urum árum. Þegar á leið og hún var ekki fær um að búa hjá okkur lengur fór hún til vistar í Víðinesi. Þar fannst henni gott að vera og talaði oft um hvað allir væru sér góðir. Ég get tekið undir með henni. Starfsfólk Víðiness á heiður skilinn fyrir umönnun hennar og hlýhug í okkar garð á dánarbeði Elínar. Með virðingu Guðrún. ELÍN SIGURÐARDÓTTIR ✝ Guðrún Guð-mundsdóttir fæddist á Borg í Sandgerði 17. ágúst 1934. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Suð- urnesja í Keflavík 14. júlí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Guðbjörg Sig- ríður Þorgilsdóttir, f. 4. febr. 1904, d. 16. okt. 1964, og Guð- mundur Jónsson bíl- stjóri í Hlíð í Sand- gerði, f. 5. júlí 1897, d. 24. maí 1971. Móðurforeldrar voru hjónin Unnur Sigurðardóttir, f. 16. júní 1886, d. 28. júní 1965, og Þorgils Árnason sjómaður á Þórs- hamri í Sandgerði, f. 21. júní 1878, d. 1. apríl 1927. Föðurforeldrar voru hjónin Þóra Eyjólfsdóttir, f. 10. okt. 1864, d. 25. nóv. 1918, og 1956. Börn Guðrúnar og Finns eru: 1) Guðmundur, framkvæmdastjóri í Keflavík, f. 19. maí 1956, kvæntur Sigríði Aradóttur. Synir þeirra: Finnur Sigurður, f. 6. júní 1984, og Arnar Páll, f. 29. sept. 1987. 2) Þor- valdur bifreiðarstjóri í Keflavík, f. 14. des. 1959. 3) Ævar Már, múrara- meistari í Keflavík, f. 30. jan. 1963, kvæntur Guðrúnu Einarsdóttur. Dætur þeirra: Anna María, f. 21. mars 1987, Helena Ösp, f. 24. jan 1993, og Elva Rún, f. 12. apríl 1998. 4) Guðbjörg Sigríður, íþróttakennari í Kópavogi, í sambúð með Kjartani Hauk Kjartanssyni viðskiptafræð- ingi. Dætur þeirra eru: Guðrún Ísa- bella, f. 27. júní 2000, og Fríða Sylvía, f. 15. sept. 2002. Guðrún og Finnur bjuggu í ára- tugi á Túngötu 15 í Sandgerði en síðustu tvö árin á Aðalgötu 1 í Keflavík. Eftir að börnin uxu úr grasi vann Guðrún úti, fyrst í fisk- vinnslu en síðan lengi í Íþróttahús- inu í Sandgerði. Útför Guðrúnar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Jarðsett verður á Hvalsnesi Jón Jónsson smiður í Eldhúsinu í Keflavík, f. 7. sept. 1861, d. 21. apríl 1930. Albræður Guðrúnar eru Ólafur Þorgils, málarameist- ari í Ytri-Njarðvík, f. 24. júlí 1939, kvæntur Guðlaugu Fríðu Bárð- ardóttur, og Jón, neta- gerðarmaður í Garða- bæ, f. 6. júlí 1940. Hálfbróðir Guðrúnar samfeðra var Einar Vilhelm, verkamaður í Sandgerði, f. 20. maí 1936, d. 10. mars 2003. Hinn 26. des. 1955 giftist Guðrún Finni Þorvaldssyni bifreiðarstjóra, f. 15. apríl 1931 í Hnífsdal. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Guðjóns- dóttir, f. 18. júlí 1896, d. 6. júlí 1996, og Þorvaldur Pétursson, sjómaður í Hnífsdal, f. 12. maí 1897, d. 10. jan. Elsku mamma. Nú ertu búin að kveðja okkur. Mikið var gott að við vorum öll saman hjá þér. Þú kvaddir okkur með svo mikilli reisn. Við gerðum okkur grein fyrir því að þetta var alvarlegt þegar þú greind- ist fyrir 11 vikum en ekki að þetta myndi gerast svona fljótt. Allir eru steinhissa á að þú svona hraust manneskja farir með þessum hætti. En það er ábyggilegt að þú varst ekki vön að láta aðra sjá um þig og kærðir þig ekki um það. Þú varst vön að gera allt sem þú vildir gera og þannig vildir þú hafa það. Það ríkir ró og friður yfir þér. Við höfum ekki áhyggjur, þú ert komin á góðan stað til að gæta okkar ásamt ömmu og afa og Rúnari Bárði. Barnabörnin vita að amma er orðin engill, fallegur engill sem flýgur og sefur á skýi og horfir eftir börnunum sínum, hvar sem þau eru. Minningin um þig lifir. Þú hjálpaðir okkur við heimanámið þegar við vorum lítil og hafðir jafn- mikinn áhuga á því og við ef ekki meiri, sérstaklega landafræði. Þú vissir allt. Öll ferðalögin þegar við vorum krakkar, keyrandi um okkar fallega land með ferðahandbókina við höndina. Þú varst aldrei þreytt og hafðir stjórn á þessu öllu með léttum leik með pabba við hlið þér, örugg- asta bílstjóra í heimi. Þú hafðir alltaf nóg að gera og þekktir ekki annað. Gaman var að sjá og heyra hve mikla unun þú hafðir af öllum ferðalögunum sem þið fóruð utanlands og sáuð listir og menningu annarra þjóða. Þetta hefði þig ekki grunað að eiga eftir að gera á þeim tíma sem þú varst að ala okkur upp. Þú lifðir svo sannarlega lífinu lifandi. Við erum stolt af því að hafa átt þig. Elsku mamma, við eigum eftir að sakna þín og hann pabbi sem elskaði þig svo mikið. Góði guð, þú styrkir okkur í þeirri sorg sem fylgir ást- vinamissi. Við kveðjum þig, mamma, með bæninni „Til mömmu“, eins og þegar við vorum litlu börnin þín. Elskulega mamma mín, mjúk er alltaf höndin þín. Tárin þorna sérhvert sinn sem þú strýkur vanga minn. Þegar stór ég orðinn er, allt það launa skal ég þér. (S.J.J.) Guðmundur, Þorvaldur, Ævar og Guðbjörg. Það er með sorg og söknuði sem ég kveð hana Guðrúnu. Það er margs að minnast þegar litið er til baka þau ár sem við þekktumst. Leiðir okkar Guðrúnar lágu fyrst saman sumarið 1997 skömmu eftir að ég hafði kynnst dóttur hennar Guðbjörgu. Guðrún var alltaf svo góður vinur og gott að vera í návist hennar. Svo var alltaf skemmtilegt að ræða við hana um heimsmálin og þjóðlífið enda kom maður sjaldan að tómum kofunum í þeim efnum og lá Guðrún sjaldan á skoðunum sínum. Það var alltaf svo notalegt og gaman að koma heim til Guðrúnar og Finns í Sandgerði, enda voru þau hjónin afar gestrisin og átt- um við margar góðar stundir þar. Góður vinur er genginn, við sökn- um hennar sárt. Blessuð sé minning um góðan vin og við felum hana góð- um Guði á vald. Megi Guð hugga og styrkja fjölskyldu hennar. Kjartan H. Kjartansson. Ég lifi í Jesú nafni, í Jesú nafni eg dey, þó heilsa og líf mér hafni hræðist ég dauðann ei. Dauði, ég óttast eigi afl þitt né valdið gilt, í Kristí krafti eg segi: Kom þú sæll, þá þú vilt. (Hallgr. Pét.) Ég kveð tengdamóður mína með virðingu og bið henni og okkur öllum blessunar Guðs. Sigríður. GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Guðrúnu Guðmundsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundur er Arnar Páll.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.