Morgunblaðið - 20.07.2004, Blaðsíða 29
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2004 29
✝ GuðmundurMagnússon
fæddist á Hjartar-
stöðum í Eiðaþinghá
6. desember 1922.
Hann andaðist á
sjúkrahúsinu á Eg-
ilsstöðum 13. júlí síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Magnús
Sigurðsson bóndi á
Hjartarstöðum, f.
4.5. 1882, d. 9.4. 1926
og Ólöf Guðmunds-
dóttir frá Bónda-
stöðum, f. 3.8. 1887,
d. 28.8. 1972. Þau
hjónin eignuðust sex börn, Sigurð,
f. 1908, Huldu, f. 1910, Ragnar
Hjört, f. 1911, Ragnhildi Stefaníu,
f. 1916, Guðmund og Steinþór, f.
1924. Systkinin eru nú öll látin.
Guðmundur kvæntist 18.5. 1950
Aðaldísi Pálsdóttur, f. á Skeggja-
stöðum í Fellahreppi 28.5. 1925.
Foreldrar hennar voru Páll Jóns-
son bóndi á Skeggjastöðum, f. á
Þúfu í Dalsmynni í S-Þingeyjar-
sýslu 25. 10. 1898, d. 28.5. 1972 og
kona hans Bjarnheiður Magnús-
dóttir, f. 13.1. 1902 á Hallgeirs-
stöðum í Hlíðarhreppi, N-Múla-
sýslu, d. 9.9. 1981. Börn
1980. 3) Guðmundur Gylfi fram-
kvæmdastjóri Ríkisútvarpinu, f.
28.4. 1957, kvæntur Önnu Maríu
Ögmundsdóttur kennara, f. 12.9.
1956. Dætur þeirra; a) Arndís
Jóna, f. 5.9. 1989 og b) Kristín
Anna, f. 16.5. 1993. 4) Arnheiður
Gígja námsráðgjafi, f. 10.10. 1960,
gift Gissuri Péturssyni forstjóra
Vinnumálastofnunar, f. 2.4. 1958.
Synir þeirra: a) Ísleifur, f. 7.5.
1994 og b) Teitur, f. 10.9. 1996.
Dóttir Gissurar, Sunna Kristín, f.
15.3. 1990.
Guðmundur var í Alþýðuskólan-
um á Eiðum 1938–1940. Hann varð
búfræðingur frá Bændaskólanum
á Hólum 1944, handavinnukennari
frá Handíðaskólanum í Reykjavík
1951 og tók sveinspróf í múraraiðn
á Egilsstöðum 1954. Síðar varð
hann múrarameistari. Guðmundur
var kennari við barna- og ungl-
ingaskólann á Egilsstöðum 1951–
1971 og vann jafnframt við múr-
arastörf á sumrin þar til hann var
kjörinn oddviti Egilsstaðahrepps.
Í hreppsnefnd Egilsstaðahrepps
frá 1954 til 1978, oddviti Egils-
staðahrepps 1966–1974 og sveitar-
stjóri frá 1974–1985. Formaður
stjórnar Hitaveitu Egilsstaða og
Fella frá stofnun hennar til 1994.
Guðmundur var kjörinn heiðurs-
borgari á Egilsstöðum á 50 ára af-
mæli sveitarfélagsins árið 1997.
Útför Guðmundar fer fram frá
Egilsstaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Guðmundar og Aðal-
dísar eru: 1) Ólöf
Magna forstöðumaður
SVMA, f. 31.1. 1951,
gift Bjarna G. Björg-
vinssyni héraðsdóms-
lögmanni, f. 1.2. 1951.
Börn þeirra: a) Björg-
vin Harri, f. 5.4. 1974,
dóttir hans Bergþóra
Huld, f. 11. 12. 1998,
móðir Bergþóru er
Arnrún Halla Arnórs-
dóttir, f. 16.1. 1977. b)
Heiðdís Halla, f. 4.9.
1981, c) Guðmundur
Magni, f. 6.2. 1984, d)
Sólveig Edda, f. 1.8. 1987. 2) Anna
Heiður hússtjórnarkennari, f.
19.1. 1952, gift Reyni Sigurðssyni
vélstjóra og framkv.stjóra, f. 8.10.
1951. Börn þeirra: a) Guðmundur
Gauti, f. 21.11. 1973, kvæntur
Svövu Björgu Harðardóttur, f.
18.7. 1972. Dætur þeirra; Rakel
Anna, f. 29.10. 1995 og Thelma
Rut, f. 12.9. 2002; b) Egill Fannar,
f. 24.12. 1978 sambýliskona Hulda
Rós Hákonardóttir, f. 21.5. 1975.
Dóttir þeirra, Heiður Björg, f.
23.3. 2004; c) Hafdís Hrönn, f.
17.12. 1980, unnusti hennar Bald-
ur Ingimar Aðalsteinsson, f. 12.2.
Faðir minn hefur nú lokið sinni
göngu hér á jörð. Það eru ekki allir
þeim kostum búnir að nýta þá guðs-
gjöf sem þeir fá í vöggugjöf og
miðla orku sinni og getu til ann-
arra, en það má með sanni segja að
faðir minn hafi gert. Hann var ein-
staklega vel þenkjandi um menn og
málefni og hafði djúpan skilning á
aðstæðum fólks þar sem hann hafði
kynnst ýmsu strax í barnæsku.
Pabbi missti föður sinn aðeins fjög-
urra ára gamall og kynntist því
strax er kraftur og viska óx hvað
ábyrgð er, en fjölskyldan á Hjart-
arstöðum ætlaði að standa sig og
halda heimili með styrkri stjórn
móðurinnar.
Við erum öll fædd hér á jörð til að
hafa eitthvert hlutverk og pabbi
fékk sitt hlutverk í vöggugjöf.
Hlutskipti hans var að vera leið-
togi, höfðingi og samstarfsmaður
og gleðigjafi. Það leysti hann vel af
hendi bæði fyrir fjölskylduna og
samfélagið þó stundum væri mót-
byr.
Í vöggugjöf hlaustu heilan hug og haga hönd
er veittu þér mikinn blóma,
þótt verkefnin væru oft löng og ströng,
þau urðu þér ætíð til sóma.
Guð leiði hann nú á nýjan stað í
tilverunni og létti af honum ábyrgð.
Hann tók ábyrgð strax í barn-
æsku með fjölskyldu sinni og hélt
ábyrgð til dauðadags á sinni veiku
konu.
Ég þakka honum gott veganesti
og samfylgd hér á jörð.
Kveðja.
Anna Heiður.
Guðmundur Magnússon, tengda-
faðir minn og fyrrverandi kennari
og sveitarstjóri á Egilsstöðum, hef-
ur lokið sínum annasama starfsdegi
og var hvíldinni feginn. Hann gat
við ferðalok litið stoltur yfir farinn
veg enda átt þátt í að koma mörgu í
verk í ólíkum hlutverkum. Guð-
mundur skipaði þann hóp íslenskra
athafnamanna og frumkvöðla sem
senn týna tölunni sem hófu lífs-
gönguna í torfbæ og hafa upplifað
og átt þátt í að móta þá stórkost-
legu samfélagsbyltingu sem í land-
inu hefur orðið á 20. öldinni. Guð-
mundur bar þess glöggt vitni að
hafa lifað alla þessa miklu umbreyt-
ingartíma. Í öllum verkum sínum
var hann íhugull, vandvirkur og
nærgætinn enda falin margháttuð
trúnaðarstörf af samferðamönnum
sínum. Guðmundur var í forystu-
sveit í félagsmálum í sínu sveitarfé-
lagi í áratugi enda búinn eftirsókn-
arverðum mannkostum til slíkra
starfa. Færi betur ef þeir sem nú á
tímum skipa forystusveit í stjórn-
málum landsins hefðu þó ekki væri
nema hluta af þeirri samstarfs-
hæfni, heiðarleika og framsýni sem
Guðmundur bar með sér.
Fyrir mér var Guðmundur þó
vitaskuld fyrst og fremst afar um-
hyggjusamur fjölskyldufaðir, höfuð
fjölskyldunnar sem ásamt Aðaldísi
tengdamóður minni hélt utan um
hópinn, studdi, veitti ráð, fylgdist
með og lagði til hjálparhönd. Guð-
mundur fylgdist áhugasamur með
öllum athöfnum fjölskyldunnar,
hvort sem var í námi, starfi eða leik.
Hann var sérstaklega áhugasamur
um allar verklegar framkvæmdir
sem í gangi voru, s.s. við húsbygg-
ingar eða lagfæringar á húsnæði
enda verkmaður. Fyrr en varði var
hann mættur til að leggja hönd á
plóg og þá var vandvirkni hans við
brugðið. Slíkar stundir með honum
voru eins og háskóli út af fyrir sig.
Jafnan kemur upp í hugann stór-
skemmtilegur tími sem við áttum
saman þegar við smíðuðum lítið
samkomuhús á hólnum fyrir fram-
an Skeggjastaði til halda í brúð-
kaupsveislu okkar hjónanna. Ofan á
allt annað þá var það gleðin hjá
honum sem var svo smitandi. Gleði
yfir vel unnu verki og góðum degi,
oft fagnað með viðeigandi hætti.
Það liggur í hlutarins eðli að
menn með skaphöfn eins og Guð-
mundur Magnússon biðja ekki um
orðmargar kveðjur. Hann lét verk-
in tala og þannig lifir minningin. Ég
get þó ekki annað en þakkað for-
sjóninni fyrir að fá tækifæri til að
kynnast þessum öðlingsmanni. Ég
mun búa að því alla mína daga.
Guð blessi minningu Guðmundar
Magnússonar.
Gissur Pétursson.
GUÐMUNDUR
MAGNÚSSON
Fleiri minningargreinar um Guð-
mund Magnússon bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Höfundar eru: Reynir Sigurðsson,
Bjarni G. Björgvinsson, Hafdís
Hrönn, Egill Fannar og Guðmundur
Gauti, Heiðdís Halla, Guðmundur
Magni Bjarnason, Una Þóra Stein-
þórsdóttir, Einar Birgir Steinþórs-
son, Hrafnhildur, Margrét, Guð-
björg og Heimir Þór, Erling Garðar
Jónasson, Jón Kristjánsson, Sveinn
Þórarinsson.
Ástkær móðursystir okkar,
RAGNHEIÐUR INGVARSDÓTTIR,
áður til heimilis
í Hraunbæ 32,
verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju miðviku-
daginn 21. júlí kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Edda Einarsdóttir,
Sigurjón Einarsson, Margrét Jónsdóttir,
Ása Einarsdóttir, Ólafur Bjarnason,
Signý Einarsdóttir, Örn Ólafsson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, sonur og afi,
VICTOR BJÖRGVIN INGÓLFSSON
pípulagningameistari,
Ísalind 8,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 20. júlí kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Heimahlynningu Krabbameinsfélags Íslands.
K. Sigrún Halldórsdóttir,
Emelía Victorsdóttir, Hinrik N. Valsson,
Halldór Gunnar Victorsson, Þórdís Rúnars Þórsdóttir,
Victor Björgvin Victorsson, Sigrún Hrefna Arnardóttir,
Ásta Kristín Victorsdóttir, Jón Viðar Viðarsson,
Ásta Kristín Guðmundsdóttir,
Sara Margrét Hinriksdóttir,
Björgvin Þór Halldórsson,
Victor Örn Victorsson
og aðrir aðstandendur.
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður,
afa og bróður,
GUNNARS CHRISTIANSEN,
Prestastíg 11,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar
E6, Landspítala Fossvogi, fyrir einstaka umönnun og alúð.
Guð blessi ykkur öll.
Hólmfríður Kristinsdóttir,
Elísabet A. Christiansen, Svavar Örn Guðjónsson,
Hallfríður Sunna, Tanja Björk, Ísabella Eir,
Judith E. Christiansen.
Innilegar þakkir fyrir hlýjar kveðjur og samúð
við andlát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
JAKOBÍNU HALLDÓRU
ÞORVALDSDÓTTUR,
Gullsmára 11,
Kópavogi.
Þorvaldur J. Sigmarsson, Elín Richards,
Hólmfríður K. Sigmarsdóttir, Eðvald Geirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýjar kveðjur og
vináttu við andlát og útför ástkærs sambýlis-
manns míns, bróður, föður og afa,
BJÖRNS ZOPHANIASAR KETILSSONAR
skipstjóra
og útgerðarmanns,
Vesterled 8,
Hirtshals.
Vigdís Ragnarsdóttir,
Sigurður Ketilsson, Guðrún Hjálmarsdóttir,
Jónína Ketilsdóttir, Snorri Hafsteinsson,
börn og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts
elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
HAFSTEINS JÓNSSONAR
frá Stapakoti,
Innri-Njarðvík.
Eyþór Ómar Hafsteinsson,
Hafsteinn Árni Hafsteinsson, Heiðbjört Ingvarsdóttir,
Herdís Hafsteinsdóttir, Rúnar Þröstur Magnússon,
Magnús Rúnar Hafsteinsson, Sólborg Ingimarsdóttir,
Guðrún M. Hafsteinsdóttir, Jóhannes Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
GUÐBJÖRG GUNNARSDÓTTIR,
Lyngási 2,
Garðabæ,
verður jarðsungin frá Garðarkirkju fimmtu-
daginn 22. júlí kl. 13.30.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en líknarfélög
látin njóta.
Ásgeir Long,
Valdimar Örn Ásgeirsson Long, Ragnheiður Björnsdóttir,
Björg Ásgeirsdóttir Long, Ragnar Rögnvaldsson,
Ásgeir Ingi Jóhannesson Long,
Ásdís Björg Jóhannesdóttir,
Rögnvaldur Ágúst Ragnarsson.