Morgunblaðið - 20.07.2004, Qupperneq 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
STÆRSTA
MYND ÁRSINS Í
BANDARÍKJUNUM.
STÆRSTA TEIKNIMYND ALLRA
TÍMA.
STÆRSTA GRÍNMYND
ALLRA TÍMA.
STÆRSTA
MYND ÁRSINS Í
BANDARÍKJUNUM.
STÆRSTA TEIKNIMYND ALLRA
TÍMA.
STÆRSTA GRÍNMYND
ALLRA TÍMA.
Kvikmyndir.is
SV.MBL
DV
Sýnd með íslensku
og ensku tali.
Allt er vænt
sem vel er grænt.
KD. Fréttablaðið.
STÆRSTA
MYND ÁRSINS Í
BANDARÍKJUNUM.
STÆRSTA TEIKNIMYND ALLRA
TÍMA.
STÆRSTA GRÍNMYND
ALLRA TÍMA.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6 og 8. Íslenskt tal. / Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Enskt tal.
H.K.H.
kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
Einnig sýnd í Sambíóunum Keflavík kl. 10.
Kvikmyndir.is
Sýnd í stórum sal kl. 9.
Sýnd kl. 10.15.
Sigurvegari CANN
ES og EVRÓPSKU
KVIKMYNDAVERÐ
LAUNANNA,
bráðfyndið meista
rastykki.
STÆRSTA
MYND ÁRSINS Í
BANDARÍKJUNUM.
STÆRSTA TEIKNIMYND ALLRA TÍMA.
STÆRSTA GRÍNMYND ALLRA
TÍMA.
Frábær ný
gamanmynd frá
Coen bræðrunum.
HL Mbl
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd með íslensku
og ensku tali.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Enskt tal.
Sýnd kl. 5 og 7. Íslenskt tal.
„Ansi fyndin
mynd, uppfull af
myndlíkingum og
húmor.“
- Ó.Ö.H., DV
Allt er vænt
sem vel er grænt.
KD. Fréttablaðið.
Ó.H.T Rás 2
SV.MBL
Ó.H.T Rás 2
HL Mbl
Sýnd kl. 5.30.
Ó.H.T Rás 2
SV Mbl
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 8.
H.K.H.
kvikmyndir.com
DV
www.fujifilm.is
2 á vikuÓKEYPISSUMARLEIKUR FUJIFILM
T
he Album Leaf er eins manns sveit
Jimmy Lavalle, Bandaríkjamanns
sem búsettur er í San Diego.
Þriðjudaginn 22. júní kom þriðja
plata Album Leaf, In a Safe Place,
út í Bandaríkjunum á vegum Sub Pop en út-
gáfa í Evrópu verður mánuði síðar á þýska
merkinu City Slang. Sem er svo sem ekki í frá-
sögur færandi utan að platan var öll tekin upp í
Sundlauginni, hljóðveri Sigur Rósar í Mos-
fellsbæ, þar sem Lavalle til aðstoðar voru þeir
Sigur Rósar-liðar Kjartan Sveinsson, Orri Páll
Dýrason og Jón Þór Birgisson og einnig Gyða
Valtýsdóttir, fyrrum múm-ari og María Huld
Markan úr Amina, strengjakvartettinn sem
unnið hefur náið með Sigur Rós síðustu ár. Til-
drög þessa eru þau að Sigur Rósar-liðar báðu
Lavalle um að hita upp fyrir sig í tónleika-
ferðalagi um Bandaríkin haustið 2001 vegna
þess að þeir „fíluðu“ tónlist Lavalle í botn.
Sterk tengsl mynduðust þegar með Lavalle og
Sigur Rós og hafa þeir átt í samstarfi æ síðan, á
sviði jafnt sem utan þess. T.a.m. hélt Album
Leaf hljómleika í Austurbæ í fyrrahaust og
naut þá að stoðar Sigur Rósar-drengja og fleiri
innlendra tónlistarmanna. Í kynningarherferð
vegna plötunnar nýju eru þessar staðreyndir
undirstrikaðar og það verður að teljast pínu
einkennilegt fyrir litla Íslendinginn í manni að
vera allt í einu kominn hinum megin við borðið.
Íslensk tónlist er sem sagt ekki bara að gera
það gott á erlendri grundu heldur er hún farin
að selja erlendu tónlistina líka!
Kolli kinkað
Tónlist Album Leaf er viðkvæmnisleg og
melódísk raftónlist með sveimlegri áferð
(„ambient“). Áður hafa komið út breiðskíf-
urnar An Orchestrated Rise to Fall (’99) og
One Day I’ll Be On Time (’01) og einnig nokkr-
ar stutt-, smá- og deiliplötur („split“).
Lavalle er klassískt menntaður píanóleikari
og hefur leikið með mörgun og ólíkum sveitum.
Lengst af var hann í rokksveitinni Triztesa, en
er hættur þar til að einbeita sér að Album
Leaf. Hann hefur þá leikið med pönksveitinni
The Locust, hinni taktglöðu GoGoGo Airheart
og einnig þunglyndisrokkurunum í The Black
Heart Procession en leiðtogi þeirra, Pall Jenk-
ins, rekur inn nefið á nýju plötunni.
Á In A Safe Place má segja að Lavalle vinni
tónlist sína á aðgengilegri hátt en oft áður, án
þess þó að fórna fyrir það listrænum heil-
indum.
Á In A Safe Place er kolli kinkað til Íslands
og þess umhverfis sem Jimmy starfaði í á með-
an á upptökum stóð. Þetta er t.d. gert með
lagatitlum eins og „Thule“, „Moss Mountain
Town“ og „Streamside“ (Þess má þá geta að
eitt lagið á Seal Beach-stuttskífunni sem út
kom í fyrra heitir „Brennivín“). Blaðamaður
fékk símhringingu frá Lavalle þar sem okkar
maður var staddur í Berlín, í höfuðstöðvum
City Slang. Það fór afslappandi tilfinning um
blaðamann þegar hann hóf viðtalið, bæði hafði
hann rætt áður við Lavalle og vissi að þetta var
sómadrengur en einnig er Lavalle orðinn „inn-
vígður“ og því spjallið þægilega óformlegt.
Ástandið
– Maður heyrir íslensku áhrifin á plötunni
nokkuð greinilega …
„Já, þau eru þarna, ég veit það. Sjálfur á ég
erfitt með að benda nákvæmlega á þau en hún
var tekin upp á Íslandi svo að þau eru óhjá-
kvæmilega yfir um og allt í kring.“
– Þú vísar meðvitað í íslensk örnefni …
„Já, þetta eru skilaboð til Íslendinga, því ég
veit að fæstir erlendis vita af því sem ég er að
vísa í, t.d. með lagatitlinum „Moss Mountain
Town“. Maður er búinn að gleypa þetta land í
sig, ég er núna í bol merktum Íslandi sem ég
keypti í einhverri túristabúðinni (hlær).“
– Hvenær nákvæmlega var platan tekin
upp?
„Ég byrjaði síðastliðinn september, hélt
áfram í kringum síðustu Airwaves-hátíð og svo
að endingu kom ég hingað aftur í janúar til að
binda alla lausa enda. Ég vann hana að mestu
med Kjartani, Orra og Maríu. Ég gisti hjá
Kjartani og Maríu og þar var mikið pælt og
hlustað.“
Þessi öruggi staður sem talað er um í plötu-
titlinum, er það Ísland?
„Já. Reyndar ætlaði ég upphaflega að kalla
plötuna Ísland, með íslenskri stafsetningu. En
það datt upp fyrir. Kannski var það full-
dramatískt. En titillinn sem var valinn á end-
anum vísar í það ástand sem ég er í núna. Ég er
búinn að vera í burtu frá San Diego lengi en
finn fyrir miklu öryggi, þrátt fyrir að vera einn
því ég er umkringdur vinum sem ég hef hitt
hér og er því í raun ekki einn, a.m.k. er ég ekki
einmana.“
– Þetta er þriðja plata þín sem Album Leaf.
Hvernig hafa hlutirnir breyst hjá þér und-
anfarin ár?
„Ég er orðinn eldri og öruggari með tónlist-
ina sem ég er að gera. Ég hef ekki áhyggjur af
því hvað öðrum finnst lengur heldur er ein-
beittur í því að búa til tónlist eins og ég vil hafa
hana. Samstarfið við Sigur Rós hefur líka verið
einkar gefandi.“
Stressið
– Hvað er svona sérstakt við Ísland?
„Landslagið hérna er einstakt. Samfélagið
er vinalegt, að mínu mati alltént, og manni er
tekið opnum örmum. Tónlistarlífið er öflugt og
það þrífast allir geirar hérna. Mér líður bara
mjög vel hérna.“
– Sumir segja að Íslendingar séu frekar
stressaðar manngerðir. Hvað segir þú um það?
„Kannski að því leytinu til að allt er gert á
síðustu stundu. Eins og þegar ég hélt tónleika
hér þá vippaði Kjartan þeim upp tveimur dög-
um fyrir tónleikana. Ég hugsaði „Nú, já, svona
er þetta gert hér,“ því ég átti engan veginn von
á því að þetta myndi reddast. Svo mættu 500
manns og allt var í lukkunnar velstandi. Maður
sjálfur varð stressaður en það er eins og þetta
sé Íslendingum eðlislægt.“
– Hefur það komið þér á óvart hvernig hlut-
irnir hafa þróast hjá þér?
„Algerlega. Þetta er búið að vera dálítið
skrítið. Leiðin hefur verið undarleg en ég er
fullkomlega sáttur við hvert ég er kominn.
Þetta er það sem ég hef stefnt að, að geta gert
tónlist með svipað þenkjandi fólki, vera hvattur
áfram til góðra verka og finna fyrir stuðningi.“
Tónlist | The Album Leaf
Ísland og öryggið
Jimmy Lavalle er Album Leaf. Ætli myndin hafi verið tekin nálægt „Moss Mountain Town“?
Jimmy Lavalle, sem hljóðritar undir nafni Album Leaf,
tók upp þriðju plötu sína hér á landi. Arnar Eggert
Thoroddsen ræddi við Lavalle.
The Album Leaf verður á túr um Ameríku,
Japan og Evrópu fram á haustið.
arnart@mbl.is