Morgunblaðið - 04.09.2004, Page 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
BLÓÐUG ENDALOK
Gíslatökunni í bænum Beslan í
Suður-Rússlandi lauk í gær með því
að sérsveitamenn réðust til atlögu
gegn hryðjuverkamönnunum. Óttast
er að meira en 200 manns hafi fallið
og mörg hundruð voru flutt á sjúkra-
hús. Þrír gíslatökumannanna voru
handteknir en aðrir felldir.
Kaupir hlut í Skjá 1
Síminn og eignarhaldsfélagið
Fjörnir gerðu í fyrrakvöld sam-
komulag um kaup Símans á félaginu,
sem á annars vegar félagið Íslenskt
sjónvarp, sem á útsendingarréttinn
á ensku knattspyrnunni hér á landi,
og hins vegar 26,2% hlut í Íslenska
sjónvarpsfélaginu, sem rekur sjón-
varpsstöðina Skjá einn.
Boða verkfall
Forsvarsmenn grunnskólakenn-
ara afhentu Launanefnd sveitarfé-
laganna í gær formlega tilkynningu
um boðun verkfalls í grunnskól-
unum, sem koma á til framkvæmda
20. september. Komi til verkfalls
nær það til um fjörutíu og fimm þús-
und grunnskólanema.
Varasöm hugsun
Björgólfur Guðmundsson, for-
maður bankaráðs Landsbanka Ís-
lands hf., varaði við hugmyndum um
að reisa þurfi atvinnu- og viðskipta-
lífinu skorður, í ávarpi, sem hann
flutti við upphaf þings SUS, Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna, á
Selfossi í gærkvöld.
Y f i r l i t
Kynningar – Með Morgunblaðinu í
dag fylgir blað Sinfóníuhljómsveitar
Íslands 2004–2005.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!
"
#
$
%&' (
)***
Í dag
Sigmund 8 Íslenskt mál 33
Viðskipti 12 Kirkjustarf 33/34
Erlent 16/18 Minningar 36/43
Höfuðborgin 21 Brids 47
Akureyri 22 Myndasögur 48
Suðurnes 22 Dagbók 48/50
Árborg 23 Leikhús 51/53
Daglegt líf 24/25 Fólk 54/57
Ferðalög 26/27 Bíó 54/57
Umræðan 29/33 Ljósvakamiðlar 58
Forystugrein 30 Veður 59
Viðhorf 32 Staksteinar 59
* * *
ELLEFU og hálfs metra hátt Evr-
ópulerkitré, sem talið er vera um
hundrað ára gamalt, hefur verið val-
ið tré ársins af Skógræktarfélagi Ís-
lands. Tréð stendur við svokallað
Litla-Wathnehús á Seyðisfirði.
Formaður Skógræktarfélags Ís-
lands, Magnús Jóhannesson, afhenti
Tryggva Harðarsyni, bæjarstjóra á
Seyðisfirði, sérstakt útnefning-
arskjal undir trénu sl. fimmtudag.
„Þetta er sérstaklega fallegt tré
og ekkert vafamál að því líður vel,“
sagði Magnús í ávarpi. „Skógrækt-
arfélag Íslands hefur undanfarin sjö
ár lagt sig fram um að finna falleg
tré á landinu. Mér er sagt að líklegt
sé að þetta tré, sem stendur við hús
sem kennt er við Otto Wathne, hafi
verið gróðursett snemma á síðustu
öld. Líkur eru á að Wathne hafi
komið með það sjálfur. Það er vitað
að hingað var flutt mikið af fræjum
og plöntum frá Noregi og flutning-
arnir fóru upp í Hallormsstað gegn-
um Seyðisfjörð.“
Magnús sagði ræktun á Seyð-
isfirði standa á gömlum merg og að á
síðustu fimmtán árum hefði orðið
bylting og mikil framför í gróðri.
Mætti m.a. þakka það öflugu starfi
Skógræktarfélags Seyðisfjarðar.
Lerkið var mælt og vegið eftir
kúnstarinnar reglum. Reyndist það
skv. mælingum Einars Gunn-
arssonar skógfræðings rúmlega
11,66 metrar og ummál þess 3,01
metrar. Virðist það því vera með
sverustu trjám landsins. Svokallað
brjóstmál trésins reyndist vera 2,70
metrar, en þá er stofninn mældur í
brjósthæð manns. Lengsta greinin
mældist ögn styttri en tréð sjálft,
eða 11,60 metrar, og sagði Sigurður
Blöndal, fv. skógræktarstjóri, hana
án efa lengstu grein á nokkru tré ís-
lensku. Skógfræðingar tóku og
kjarna og töldu árhringi trésins.
Þeir töldust áttatíu og má þar bæta
við um tuttugu árum. Í kjarnanum
mátti greina mjög þrönga hringi,
sem benda til hafísára og mikils
kulda, og einnig mátti lesa úr ár-
hringjunum húsbruna. Tréð hefur
þá orðið fyrir töluverðu áfalli vegna
mikils hita, sem skemmt hefur
leiðsluvef og hægt á vexti þess. Síð-
ustu tíu árin hefur vöxtur á þverveg-
inn verið hverfandi, en skógarmenn
segja tréð einkar heilbrigt þrátt fyr-
ir það.
Falleg tré bera eigendum sínum og umhirðendum gott vitni
Tré ársins er 100 ára lerki
Seyðisfirði. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Steinunn
Verðlaunatréð á Seyðisfirði. Skógræktarstjórarnir Jón Loftsson og Sigurður Blöndal eru í forgrunni.
ICELANDAIR náði ekki að senda
flugvél til Orlando í gær til að sækja
um 170 farþega sem áttu pantað flug
til Íslands og svo áfram til Evrópu.
Óveðrið í Flórída varð til þess að
flugvellinum þar var lokað og fluginu
þar af leiðandi aflýst.
Um 170 farþegar komu frá Evr-
ópu með vél Icelandair síðdegis í
gær og ætluðu að halda áfram til Or-
lando. Vegna veðursins eru þeir
flestir strandaglópar á Íslandi.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Flugleiða, segir fáeina Ís-
lendinga vera strandaglópa í Or-
lando sökum þessa.
Veðurofsi
raskar flugi
TVEGGJA hreyfla 19 sæta flugvél af gerðinni Twin Ot-
ter í eigu Flugfélags Íslands á leið frá Grænlandi lenti í
hreyfilbilun í flugi í gær og varð að lenda á öðrum hreyfl-
inum á Rifi um kl. 12.40. Fjórir farþegar voru um borð
ásamt tveggja manna flugáhöfn og sakaði engan.
Lögreglan í Ólafsvík fékk tilkynningu frá Flugmála-
stjórn Íslands kl. 12.36 um að vélin væri á leiðinni og að
drepa hefði þurft á öðrum hreyflinum vegna bilunar um
tíu mínútum áður en vélin lenti á Rifi. Lendingin gekk vel
og var ekki hætta talin á ferðum að sögn lögreglunnar.
Fóru farþegar með bíl til Reykjavíkur. Ekki var settur af
stað viðbúnaður á jörðu niðri utan þess að sjúkrabíll var í
viðbragðsstöðu, en fram hafði komið strax í upphafi að
ekki væri mikil hætta á ferð.
Rannsóknanefnd flugslysa telur ekki tilefni að svo
stöddu til að rannsaka atvikið, enda var ekki lýst yfir
neyðarástandi af hálfu áhafnarinnar og hefði vélin lent
athugasemdalaust á Rifi.
Lenti á öðrum
hreyfli á Rifi
Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir
Twin Otter-vélin á Rifi skömmu eftir lendinguna.
LYFJAVERÐ í heildsölu mun lækka um 763
milljónir króna á þessu ári og myndi lyfjaverð í
smásölu lækka um 1.136 milljónir að því gefnu að
smásöluálagning breytist ekki. Þá er stefnt að því
að lyfjaverð í heildsölu á Íslandi verði sambærilegt
við meðalverð í Danmörku, Noregi og Svíþjóð
hverju sinni innan tveggja ára með því að álagning
í heildsölu og smásölu verði lækkuð jöfnum skref-
um.
Þetta eru meðal helstu atriða í samkomulagi
heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins við Félag
íslenskra stórkaupmanna (FÍS) og Actavis um
lækkun lyfjaverðs sem Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra kynnti á fundi með fréttamönnum
í gær.
Fyrsta lækkun samkvæmt samkomulagi við
FÍS, sem samsvarar 200 milljóna króna lækkun á
ársgrundvelli, kom til framkvæmda 1. september
en fyrsta lækkun samkvæmt samkomulaginu við
Actavis, sem samsvarar 80 milljónum á ársgrund-
velli, kemur til framkvæmda 1. október. Fyrr á
árinu höfðu lyf frumlyfjaframleiðenda á heildsölu-
verði lækkað um 300 milljónir á ársgrundvelli og
lyf frá Actavis um 60 milljónir.
Jón Kristjánsson heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra minnir á að í niðurstöðum í skýrslu
Ríkisendurskoðunar um verðmyndun lyfja segi að
lyfjareikningur landsmanna sé of hár miðað við
það sem gerist og gengur annars staðar á Norð-
urlöndum. „Það er ekki verjandi að greiða sjálf-
virkt niður lyf sem keypt eru við svo háu verði –
það er ekki verjandi í ljósi aðhaldsaðgerða sem við
beitum annars staðar í heilbrigðisþjónustunni og
gagnvart skattgreiðendum sem standa undir nið-
urgreiðslum lyfja frá Tryggingastofnun ríkisins,“
sagði ráðherra.
Eftir er að ræða við smásalana
Aðspurður hvort lækkun í heildsölu myndi skila
sér í smásölu sagði Páll Pétursson, formaður nýrr-
ar lyfjagreiðslunefndar, sem tók til starfa um
miðjan ágúst, að enn ætti eftir að ræða við smásal-
ana. Hann sagði álagningu þeirra vera miklu
hærri en í viðmiðunarlöndunum og ekki væri
óeðlilegt að hún færðist eitthvað niður og yrði
svipuð og í Noregi, Danmörku og Svíþjóð. Ljóst
væri að smásöluálagningarstofninn lækkaði með
lægra heildsöluverði að óbreyttri álagningu. Páll
sagði eftirlit vera með smásöluverðinu, gefin væri
út sérstök lyfjaverðskrá og hann sagðist ekki vita
annað en menn færu eftir henni.
Stefnt að liðlega 1,1 millj-
arðs lækkun lyfjaverðs