Morgunblaðið - 04.09.2004, Síða 6

Morgunblaðið - 04.09.2004, Síða 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Áskorun til Seltirninga Söfnun mótmæla 864 2112 • oddnyrosa@hotmail.com Mótmælum skipulagsslysi! PÉTUR Wigelund Kristjánsson tónlistar- maður lést á hjarta- deild Landspítala – háskólasjúkrahúss í gær eftir stutta sjúk- dómslegu, 52 ára að aldri. Pétur var í hópi þekktustu popptónlist- armanna Íslands síð- ustu áratugina. Pétur fæddist í Reykjavík hinn 7. jan- úar 1952. Foreldrar hans eru Kristján Kristjánsson, fyrrver- andi hljómsveitar- stjóri, og Erla Wigelund kaupmað- ur. Pétur hóf tónlistarferil sinn ung- ur að árum. Hann var fjórtán ára þegar hann byrjaði í hljómsveitinni Pops þar sem hann var bassaleikari. Seinna varð hann söngvari í nokkrum hljómsveit- um, m.a. í hljómsveit- unum Paradís, Pel- íkan, Náttúru, Svan- fríði og Start. Pétur hóf störf hjá Steinari Berg plötu- útgefanda á árunum í kringum 1979. Hefur hann selt hljómplötur og geisladiska síðan þá, m.a. undir merkj- um eigin fyrirtækis, Wigelund ehf. Eftirlifandi eiginkona Péturs er Anna Linda Skúladóttir og eiga þau þrjú börn. Andlát PÉTUR W. KRISTJÁNSSON BORIST hefur eftirfarandi at- hugasemd frá fréttastjóra Stöðvar 2: „Á blaðsíðu 2 í Morgun- blaðinu í dag er haft eftir Hjördísi Hákonardóttur að ekki sé rétt sem komið hafi fram í fjölmiðlum að hún hafi höfðað skaðabótamál á hendur dómsmálaráðuneytinu. Fjallað var um Hjördísi Há- konardóttur í fréttum Stöðvar 2 á miðvikudag. Þar var því aldrei haldið fram að hún hefði höfðað skaðabótamál. Þar kom hinsvegar fram að embættisveiting hæstaréttar- dómara nú gæti rennt stoðum undir slíkt mál, því sam- kvæmt skaðabótarétti er þeim sem sækir slíkt mál skylt að leita leiða til að takmarka tjón sitt. Skaðabæturnar sem sótt- ar yrðu með málshöfðun gætu svo numið tugum milljóna króna, eða mismun á lífeyr- isréttindum dómstjóra og hæstaréttardómara. Sam- kvæmt heimildum Fréttastof- unnar væri slíkt mál í farvatn- inu ef samningar við ráðuneytið tækjust ekki. Ef fréttaviðtal Morgun- blaðsins átti við Fréttastofu Stöðvar 2 var því ranglega farið með staðreyndir. Framangreint óskast birt í Morgunblaðinu á sama stað og umrædd frétt í morgun. Sigríður Árnadóttir, frétta- stjóri Stöðvar 2.“ Athuga- semd frá frétta- stjóra Stöðvar 2 BJÖRGÓLFUR Guðmundsson, formaður banka- ráðs Landsbanka Íslands hf., varaði við hug- myndum um að reisa þurfi atvinnu- og viðskiptalíf- inu skorður, í ávarpi, sem hann flutti við upphaf þings Sambands ungra sjálfstæðismanna, SUS, á Selfossi í gærkvöld. „Sú hugsun er varasöm að íslensk fyrirtæki megi ekki verða of stór,“ sagði hann. „Ég er þeirr- ar skoðunar að það sé hverju samfélagi mikilvægt að til séu fjársterkir aðilar og stór fyrirtæki. Útrás íslenskra fyrirtækja er forsenda vaxtar íslenska hagkerfisins. Burðarásar útrásar eru öflug fyr- irtæki og fjársterkir einstaklingar.“ Björgólfur fjallaði í upphafi ávarps síns um þró- un íslensks atvinnulífs og sagði m.a. að allt frá endalokum einokunarverslunar til dagsins í dag hefði stigvaxandi viðskiptafrelsi, aukin samkeppni og alþjóðavæðing stuðlað að verðmætasköpun og aukinni hagsæld. „Ekki hvað síst á síðustu tólf ár- um undir farsælli og markvissri forystu Davíðs Oddssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins,“ sagði hann. Björgólfur sagði að nýjasta dæmið væri að sjálf- sögðu einkavæðing bankanna og aukin alþjóðleg umsvif þeirra. „Nú hafa bankarnir styrk til að bjóða íbúðalán á betri kjörum en áður hafa þekkst hér á landi. Samkeppni banka í einkaeigu er nú að færa landsmönnum kjarabætur sem í sumum til- fellum nemur tugum þúsunda króna á mánuði fyrir hvert heimili.“ Sagði hann síðar að hann gæti ekki dregið aðrar ályktanir en að þróun efnahags hér á landi hefði verið afar farsæl hin seinustu ár. Allt leiti í jafnvægi „Í ljósi þessa hljóma undarlega raddir um að nú sé nóg komið og reisa þurfi atvinnu- og viðskiptalíf- inu skorður. Því er haldið fram að krafturinn í við- skiptalífinu og máttur einstakra fyrirtæki ógni eða ögri samfélaginu og því þurfi stjórnvöld að grípa í taumana og stýra á ný með lagasetningu fram- vindu viðskipta. Hugmyndir eru um að takmarka umsvif banka og að eignarhald á fjölmiðlum þurfi að lögbinda. Einnig sveima hugmyndir um að tak- marka þurfi möguleika stórfyrirtækja til fjárfest- inga. Þessar hugmyndir koma úr ólíklegustu áttum – jafnvel okkar röðum,“ sagði hann. „Ég vara við þessum hugmyndum. Mikilvægt er á tímum breytinga að ekki sé gripið inn í eðlileg þróunarferli. Einkenni frjálsra viðskipta er að allt leitar í jafnvægi. Það kennir sagan okkur. Ef við kynnum að hafa farið offari á einhverju sviði er markaðurinn líklegri og réttari aðili en stjórn- málamenn til að vísa okkur á réttar leiðir með hagsmuni heildar í huga. Markaðsöflin eiga að fá að njóta sín. Þau endurspegla vilja fólksins.“ Björgólfur sagði að yrði svigrúm fyrirtækja þrengt með lagasetningu væri uppbyggingar- og þróunarstarf þeirra í hættu. Frumkvæði og áræði væri drepið í dróma. „Forsenda langtímaáætlana fyrirtækja er stöðugt starfsumhverfi. Það er því ábyrgðarhluti að breyta starfsskilyrðum fyr- irtækja og skapa þannig óvissu um forsendur rekstrar.“ Björgólfur taldi jafnframt, eins og áður sagði, að sú hugsun væri varasöm að íslensk fyrirtæki mættu ekki verða of stór. „Ég er þeirrar skoðunar að það sé hverju samfélagi mikilvægt að til séu fjársterkir aðilar og stór fyrirtæki. Útrás íslenskra fyrirtækja er forsenda vaxtar íslenska hagkerf- isins. Burðarásar útrásar eru öflug fyrirtæki og fjársterkir einstaklingar. Á Íslandi þurfa að vera til fyrirtæki sem eru stór á heimamarkaði til þess að þau hafi þrek og krafta að takast á við verkefni á öðrum mörkuðum, sem kalla á hugvit, útsjón- arsemi, þrautseigju og úthald. Við höfum séð þetta í sjávarútvegi hjá fyrirtækjum á borð við Samherja og Bakkavör, við sjáum þetta í nýsköpunarfyr- irtækjum eins og Marel og Össuri, þjónustufyr- irtækjum eins og Baugi, Actavis og KB banka og við munum sjá sambærilega framvindu hjá öðrum bönkum og fjárfestingarfélögum. Þá vil ég sjá rótgróin fyrirtæki eins og Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna, SÍF [Sölusamband íslenskra fisk- framleiðenda] og Eimskip verða stórfyrirtæki á al- þjóðavísu. Til þess hafa þau alla burði.“ Skattar séu í lægri kantinum Björgólfur sagði, að þegar hann hugsaði um eft- irsóknarvert umhverfi fyrir alþjóðleg fyrirtæki, fyndist sér fjögur atriði skipta mestu máli. Í fyrsta lagi að menntakerfið væri öflugt. Í öðru lagi að menningarlífið væri lifandi. Í þriðja lagi að rekstr- arumhverfi fyrirtækja væri hagstætt í samanburði við nágrannalöndin. Og í fjórða lagi, sagði hann, skipta reglur um skatta miklu máli. „Við búum við frjálst flæði fjármagns og það er staðreynd að það leitar þangað sem beinir skattar eru lágir. Það er sama hvort í hlut eiga fyrirtæki eða einstaklingar. Því skiptir máli að skattar séu í lægri kantinum, annars fer fjármagnað annað. Óvíst er hvort sam- félagið í heild hagnist á háum sköttum því þar sem beinir skattar eru lágir nýtur samfélagið góðs af auknu fjármagni í umferð, bæði í gegnum auknar fjárfestingar og veltuskatta. Ávinningurinn af lág- um sköttum skilar sér því til allra. Ég minni á að flest burðarfyrirtæki í íslensku atvinnulífi eru al- þjóðleg og hafa val um hvar þau skrá sig og greiða skatta. Við eigum að gera þeim valið auðvelt.“ Endurspegli samfélagið Undir lok ávarpsins gerði Björgólfur fjölmiðla og hlutverk þeirra að umtalsefni. „Ég hef alltaf trúað því að frjálsir fjölmiðlar gegni veigamiklu hlutverki í nútímasamfélagi,“ sagði hann. „Fjöl- miðlum er að sjálfsögðu frjálst að hafa hvaða skoð- un sem er, en ég hef fyrir mitt leyti meira álit á fjöl- miðlum, sem reyna að endurspegla það sem fram fer í samfélaginu fremur en að stýra því og stjórna með fyrirmælum og föðurlegum áminningum. Mér hefur t.d. komið verulega á óvart hvernig einstaka fjölmiðlar vilja skrifa stefnuskrár stjórnmálaflokka og segja þeim fyrir um skoðanir. Hvaðan hafa fjöl- miðlar umboð til þess? Lengst ganga fjölmiðlar sem hafa blindast af fortíðarþrá og ögra nú sam- félaginu og eðlilegri þróun þess með nær linnulaus- um ótta við breytingar. Þeir virðast sakna þeirra tíma þegar íslenskt atvinnulíf var einangrað og lok- að klíkusamfélag. Það er einkennilegt nú, þegar viðskiptin eru orðin frjáls, þá reyna fjölmiðlar að nota áhrif sín og segja fyrirtækjum hvar þau eigi að fjárfesta, hvað að kaupa og hvað að selja, og hafa þeir þá sjaldnast í huga hið augljósa, hags- muni hluthafa. Ég vona að þessar raddir hljóðni hið fyrsta því íslenskt efnahagslíf þarf ekki á því að halda nú að snúa aftur til fortíðar.“ Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbanka Íslands „Sú hugsun er varasöm að íslensk fyrirtæki megi ekki verða of stór“ Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbanka Íslands, ávarpaði SUS-þingið sem haldið er í Fjölbrautaskólanum á Selfossi. Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Ungir sjálfstæðismenn fylgjast með ávarpi Björgólfs Guðmundssonar, við upphaf SUS-þingsins. Þinginu lýkur á sunnudag. TVÆR bílveltur urðu með stuttu millibili rétt vestan Þjórsárbrúar í gær. Í bæði skiptin var um að ræða útlend- inga sem misstu vald á bifreið- um sínum í lausamöl vegna vegaframkvæmda. Fyrri veltan varð klukkan 13:10 og var ökumaður þar á ferð ásamt nokkrum farþegum sínum í fólksbifreið. Skemmd- ist hún talsvert en fólkið slapp án meiðsla. Í seinna tilvikinu sem varð klukkan 14:10 var ökumaður einn á ferð í jeppling og slapp hann sömuleiðis án meiðsla og skemmdist bíllinn lítið. Tvær bíl- veltur við Þjórsárbrú

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.