Morgunblaðið - 04.09.2004, Blaðsíða 16
ERLENT
16 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SÍRENUR sjúkrabíla vældu og
særð og hálfnakin börn veinuðu af
sársauka og hræðslu í örmum her-
manna sem báru þau út úr skóla bæj-
arins Beslan í Norður-Ossetíu þegar
umsátri um gíslatökumenn lauk þar
með blóðsúthellingum og ringulreið í
gær. Skelfingu lostin börn reyndu að
finna öruggan stað á skólalóðinni
þegar byssukúlur hvinu yfir höfði
þeirra í hörðum skotbardaga milli
sérsveitarmanna og mannræningja
sem haldið höfðu börnunum í gísl-
ingu frá því á miðvikudagsmorgun.
„Við drukkum þvag“
Mörg barnanna voru í litlu öðru en
nærfötum og skulfu, annaðhvort af
hræðslu eða sársauka.
„Þeir skutu á okkur frá þakinu,“
sagði eitt barnanna um gíslatöku-
mennina sem hleyptu af byssum á
gísla sem reyndu að flýja út úr skóla-
byggingunni. „Nei, þeir skutu af
annarri hæðinni,“ sagði annað barn
sem virtist ekki eldra en sex ára.
„Og þeir gáfu okkur ekki vatn,“
sagði þriðja barnið sem virtist á leik-
skólaaldri. „Við drukkum þvag,“
sagði fjórða barnið síðar við frétta-
mann AFP. Átökin stóðu í margar
klukkustundir. Skömmu eftir að
áhlaup sérsveitarmannanna hófst
sáust nokkrir þeirra skríða inn um
glugga vegna þess að talið var að
gíslatökumennirnir hefðu komið fyr-
ir sprengjum í aðalinngangi skólans.
Mikil sprenging varð í bygging-
unni og hluti eins veggjanna hrundi.
Ekki var vitað hvað gerðist, en talið
var að sérsveitarmenn hefðu ákveðið
að eyðileggja vegginn til að búa til
flóttaleið fyrir börnin, foreldra
þeirra og kennarana í skólanum.
„Þau eru á lífi! Þau eru á lífi!“
hrópuðu björgunarmenn til foreldra
sem æptu í geðshræringu og ann-
arra bæjarbúa sem fylgdust með
björgunarmönnum bera börnin að
sjúkrabílum.
Sumir vissu ekki hvar björgunar-
og sjúkrabílarnir voru og hlupu í
hringi, særðir, skelfingu lostnir og
með fáklædd börn í örmunum.
Hvinur í byssukúlum heyrðist yfir
höfði þeirra. Ekkert lát var á skot-
bardögunum og orðrómur komst á
kreik um að nokkrir gíslatökumann-
anna hefðu komist undan.
Kona var borin út úr byggingunni
og hrópaði: „Þið verðið að fara aftur
inn, barnið mitt er þar enn!“
Foreldrar í Beslan
í hefndarhug
Á götu við skólann söfnuðust sam-
an ævareiðir foreldrar í hefndarhug,
sumir vopnaðir byssum. Þeir sáu
skeggjaðan mann og héldu að hann
væri einn af gíslatökumönnunum.
Tugir manna, ef ekki hundruð, réð-
ust á manninn og börðu hann þar til
lögreglumenn komu og björguðu
honum.
„Hann er blaðamaður! Hann er
blaðamaður!“ hrópaði einn lögreglu-
mannanna þegar hann reyndi að
koma manninum í burtu.
Eldur blossaði upp í skólanum.
Fólk flýtti sér að byggingunni en
kastaði sér síðan niður og velti sér
frá henni til að forðast byssukúlur
sem skotið var frá skólanum.
Foreldrar hlupu á milli trjáa og
viku sér undan kúlunum þegar þeir
reyndu að bjarga börnum sínum.
Aðrir bæjarbúar söfnuðust saman á
götunum og ráku upp óp í hvert sinn
sem sprenging heyrðist.
!"##$#%!&'"#%
&'"#%
( %) &* +
,
" # % -
&
%* .
/%!#
#
!
"#
$
&
0
10
*1
$2"#3,
!4
2#3,
!" #$
"%&%
$
5
'
'
'
"
'
(
%
#
&
' AP
Aðstandendur syrgja við lík barna sem létu lífið í árás hryðjuverkamannanna á grunnskólann í Beslan í rússneska
sjálfsstjórnarlýðveldinu Norður-Ossetíu. Ekki var enn fyllilega ljóst síðdegis í gær hve margir létu lífið.
Særð börn flúðu skelf-
ingu lostin úr skólanum
Beslan. AFP.
Reuters
Sjálfboðaliði í Beslan heldur á
særðri stúlku sem var í skólanum.
’Mörg barnanna voruí litlu öðru en nærfötum
og skulfu, annaðhvort af
hræðslu eða sársauka.‘
MENN úr röðum ýmissa upp-
reisnarhópa Tétsena hafa
staðið fyrir mörgum tilræðum
og mannránum í Rússlandi
undanfarinn áratug. Stundum
hefur orðið mikið mannfall.
Júní 1996: Búdennovsk. Yfir
100 manns féllu þegar hermd-
arverkamenn réðust á sjúkra-
hús.
Janúar 1996: Kízlíar. Nokk-
ur hundruð manns tekin í gísl-
ingu á sjúkrahúsi, síðan flutt í
rútu til Pervomajskoje. Marg-
ir gíslar falla þegar sérsveitar-
menn gera gagnárás.
September 1999: Moskva,
Bújanask og Volgodonsk.
Rúmlega 200 manns deyja í
sprengjutilræði í íbúðar-
blokkum.
Júlí 2000: Tétsnía. Fimm
sjálfsmorðsárásir á þrennar
herbúðir Rússa. 54 týndu lífi í
Argun.
Október 2002: Moskva. 129
gíslar og 41 Tétseni falla þeg-
ar sérsveitir ráðast inn í leik-
hús eftir þriggja daga umsát-
ur.
Júlí 2003: Moskva. Tvær
konur sprengja sig og taka
með sér í dauðann 15 manns á
rokktónleikum.
Ágúst 2003: Mozdok. Sjálfs-
morðssprengjumenn ráðast á
bíl inn í herspítala og minnst
50 manns falla.
Desember 2003: Kíslo-
vodsk. 46 deyja og 160 særast
þegar sprengja springur í far-
þegalest.
Desember 2003: Moskva.
Sjálfsmorðingi sprengir sig og
fimm vegfarendur við múra
Kremlar.
Febrúar 2004: Moskva. 39
falla og særast í sjálfsmorðs-
tilræði í jarðlest.
Júní 2004: Ingúsetía.
Minnst 92 falla þegar upp-
reisnarmenn ráðast á og her-
taka innanríkisráðuneytið.
Ágúst 2004: Tvær rússnesk-
ar farþegaþotur sprengdar
nær samtímis, 90 manns láta
lífið.
Ágúst 2004: Moskva. Tíu
manns láta lífið í bílsprengju.
September 2004. Hundruð
manna, þ.á m. fjöldi barna,
tekin í gíslingu í skóla í N-
Ossetíu, mikið mannfall.
Blóðugar
árásir
Tétsena
RÚSSNESKA öryggislögreglan sagði í gær að
áhlaup sérsveitarmanna til að bjarga hundruðum
gísla í skóla í bænum Beslan í rússneska sjálf-
stjórnarlýðveldinu Norður-Ossetíu hefði ekki ver-
ið undirbúið.
Mikið mannfall varð í skólanum á þriðja degi
umsáturs sérsveitarmanna um skólann. Átökin
hófust klukkan eitt eftir hádegi að staðartíma,
klukkan níu um morguninn að íslenskum tíma, og
þau stóðu fram á kvöld.
Valerí Andrejev, yfirmaður rússnesku öryggis-
lögreglunnar í Norður-Ossetíu, sagði að tuttugu
gíslatökumenn hefðu fallið í átökunum, þar af tíu
arabar og einn blökkumaður. Ráðgjafi Vladímírs
Pútíns Rússlandsforseta í málefnum Tétsníu, Asl-
anbek Aslakhanov, sagði einnig að arabar hefðu
verið á meðal gíslatökumannanna sem féllu.
Óljóst var í gær hvers vegna átökin hófust.
Rússneskir fjölmiðlar sögðu að sérsveitarmenn
hefðu ráðist inn í bygginguna eftir að kona úr röð-
um gíslatökumannanna hefði fyrir slysni sprengt
sprengjubelti sem hún hafði vafið um sig. Þak
íþróttahúss skólans, þar sem gíslunum var haldið,
hefði hrunið í sprengingunni.
Hermt var að um þrjátíu konur og börn hefðu
flúið út úr byggingunni áður en sérsveitarmenn
hófu áhlaupið.
Pútín Rússlandsforseti hafði sagt að ekki kæmi
til greina að beita valdi til að frelsa gíslana og
mestu máli skipti að tryggja öryggi þeirra. Rúss-
neska öryggislögreglan sagði eftir áhlaupið að það
hefði verið óundirbúið.
„Ég vil benda á að við höfðum ekki áformað
neina vopnaða aðgerð. Við buðumst til að halda
áfram samningaviðræðum um að gíslunum yrði
sleppt með friðsamlegum hætti,“ sagði Andrejev.
Hann bætti við að átökin hefðu hafist þegar
tvær miklar sprengingar hefðu orðið í skólanum.
„Glæpamennirnir hófu harða skothríð á fullorðna
gísla og börn sem flúðu út úr byggingunni. Til að
vernda líf gíslanna var skotið á glæpamennina.
Vopnaðir bæjarbúar hófu einnig skothríð á glæpa-
mennina.“
Hermt var að gíslatökumennirnir hefðu komið
fyrir sprengjugildrum víða í skólanum. Þeir höfðu
hótað að myrða fimmtíu börn fyrir hvern fallinn í
þeirra liði.
Þingmaður í Norður-Ossetíu, Azamat Kadykov,
skýrði ættingjum gísla frá því að gíslatökumenn-
irnir hefðu líflátið tuttugu karlmenn úr röðum
gíslanna fyrir áhlaupið.
Áhlaup hersins óundirbúið
Beslan. AFP, AP.
Reuters
Rússneskir sérsveitarmenn í Beslan leita skjóls
þegar hermenn gera árás á skólahúsið.
Arabar á meðal gísla-
tökumannanna?