Morgunblaðið - 04.09.2004, Page 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Árborgarsvæðið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Það styttist í opna íbúaþingið á Akureyri
en það verður haldið í Íþróttahöllinni 18.
september nk. Þar gefst bæjarbúum jafnt
sem öðrum áhugasömum tækifæri til að
hafa áhrif á verkefnið, Akureyri í öndvegi, á
lifandi hátt með ýmsu fagfólki. Eins og
fram hefur komið er þetta verkefni um al-
þjóðlega hugmyndasamkeppni sem haldin
verður um skipulag í miðbænum á Ak-
ureyri. Flestir eru sammála um að það hafi
verið frekar dauft yfir miðbænum til langs
tíma og að nauðsynlegt sé að snúa vörn í
sókn. Verslanir í miðbænum hafa verið að
leggja upp laupana og sjaldan sést þar
margt fólk. Með íbúaþinginu gefst bæj-
arbúum á áþreifanlegan hátt tækifæri til að
hafa áhrif og er ástæða til að skora á alla
áhugasama að mæta í Höllina hinn 18. og
leggja fram sínar hugmyndir í púkkið. Og
því fleiri sjónarmið því betra.
Sumarið sem senn er á enda hefur verið
frekar erfitt fyrir knattspyrnulið KA og
Þórs. KA-menn sitja í fallsæti í efstu deild
sem stendur og eiga eftir erfiða leiki á loka-
sprettinum. KA-liðið er ekki fallið þegar
þetta er skrifað en staðan er langt frá því að
vera góð. KA-menn geta hins vegar enn
hampað bikarmeistaratitlinum. Þórsarar
hafa verið slakir í 1. deildinni í sumar, gert
allt of mörg jafntefli í leikjum sínum og eru
nánast búnir að missa af lestinni um sæti í
efstu deild. Umræða um sameiningu knatt-
spyrnuliða KA og Þórs hefur því enn og aft-
ur skotið upp kollinum og skal engan undra.
Það sem helst hefur verið talað um að komi
í veg fyrir sameiningu, er að það fáist eng-
inn mannskapur til að sitja í stjórn fyrir
sameiginlegt lið. Það getur verið rétt en þar
getur bærinn komið til sögunnar, enda hef-
ur bæjarstjórinn á Akureyri verið helsti
hvatamaður þess að liðin sameinist. Það
sem bærinn þarf að gera er að kosta fram-
kvæmdastjóra í fullt starf, fyrir sameig-
inlegt lið í tvö ár, á meðan verið er að slípa
mannskapinn saman. Á þessum tveimur ár-
um ætti þá líka að koma í ljós hvort grund-
völlur er fyrir því að halda áfram úti sam-
eiginlegu liði félaganna.
Handboltavertíðin er að fara af stað og
senda bæði Þór og KA lið til leiks í efstu
deild karla. KA-menn hafa misst flesta sína
lykilmenn til liða bæði erlendis og hér inn-
anlands. Þórsarar hafa hins vegar verið að
„kaupa“ til sín menn og því hafa margir
spurt sig þeirrar spurningar hvort ekki hafi
verið rétti tímapunkturinn nú fyrir félögin
að senda sameiginlegt lið til keppni.
Úr
bæjarlífinu
AKUREYRI
EFTIR KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMANN
Efnt er til viðamik-illar flugsýningarí Reykjanesbæ í
dag. Sýningin er einn af
hápunktum menningar-
og fjölskylduhátíðarinnar.
Flugsýningin fer fram á
hafnarbakkanum við Æg-
isgötu í Keflavík og stend-
ur frá kl. 13 til 15 í dag.
Undirbúningur hefur
verið töluverður, að því er
fram kemur í frétta-
tilkynningu frá Reykja-
nesbæ, en unnið hefur ver-
ið að sýningunni frá því í
vor. Boðið verður upp á
fjölda atriða og má þar
nefna listflug, fisflug,
þyrluflug, fallhlífarstökk,
módelflug og karamellu-
kast. Eftir flugsýninguna
verða fisflugvélar til sýnis
á flugmódelvellinum við
Gróf.
Flugsýning
Sex bátar hafa verið hífðir upp á bryggjuna áNorðurgarði í Sandgerðishöfn þar sem verið erað gera við þá og mála. Hefði það þótt óvenjuleg
sjón fyrir nokkrum árum því þá var siglt á vertíðarbát-
unum til Keflavíkur og Njarðvíkur þar sem þeir voru
teknir í slipp til viðgerða og málningar. Nú geta sjó-
mennirnir unnið meira sjálfir við viðhaldið og fengið
sérfræðinga til aðstoðar við flóknari tækin.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Sex bátar uppi á bryggju
Húsfyllir var á hag-yrðingakvöldi íStapa í fyrra-
kvöld. Um 300 manns
fylgdust með hagyrðing-
unum fara á kostum undir
stjórn Karls Ágústs Úlfs-
sonar. Baldur Garðarsson
orti:
Yrkja þeir í erg og gríð
uns þar dimma tekur,
eyfirskt klám og einnig níð,
á eftir Kalli rekur.
Steinþór Jónsson, formað-
ur Ljósanæturnefndar,
fræddi hagyrðingana um
Reykjanesbæ í bílferð fyr-
ir kvöldið og rómaði mjög
heimabæ sinn. Pétur Pét-
ursson orti:
Bestu leiðsögn lét í té
laug hann mjög að hagyrðingum,
en ætli Steinþór eitthvað sé
andlega skyldur Þingeyingum?
Friðrik Steingrímsson
orti:
Ekki dugar Steinþórs streð
þó stöðugt noti tímann;
Pétur fylgist miður með
malar bara í símann.
Húsfyllir í Stapa
pebl@mbl.is
Mývatnssveit | Fallegt forystufé er augnayndi en
slíkir gripir eru nú ekki á hverju strái. Vetrarbeit
þar sem þess var áður einna mest þörf er nú víðast
hvar löngu af lögð. Alltaf finnast þó einhverjir
bændur sem halda við forystufé í hjörð sinni sér
og öðrum til ánægju.
Þessar fallegu skepnur sem hér rísa upp við
grindverk Hlíðarréttar í Mývatnssveit skáru sig
sterkt úr hjörðinni á réttinni. Þetta eru ærin Hosa
og sauðurinn Salomon svarti, sonur hennar. Þau
tilheyra fjárhópi Syðstuhúsa í Vogum. Sérstakt
var að sjá hve vel þau fylgdust að í réttinni.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Forystufé í Hlíðarrétt
Sauðfé
NÝ lögreglustöð á Kirkjubæjarklaustri
var formlega tekin í notkun í fyrradag að
viðstöddum Birni Bjarnasyni dómsmála-
ráðherra. Í stöðinni er fangageymsla. Við
sama tækifæri var staðfest sameining al-
mannavarnanefndanna í Vestur-Skafta-
fellssýslu.
Aðstaða lögreglunnar var bágborin á
Kirkjubæjarklaustri. Nýja húsið er hannað
sem lögreglustöð og segir Sigurður Gunn-
arsson sýslumaður í Vík að í raun sé lög-
reglumaðurinn á Klaustri að flytja úr bíl-
skúrnum heima hjá sér í alvöru
lögreglustöð. Tekur þó fram að aðstaðan sé
fyrir allt lögregluliðið í sýslunni sem muni
nota hana eftir þörfum. Þar er meðal ann-
ars fundarsalur, fangaklefi til skammtíma-
vistunar, góð bílageymsla og aðstaða fyrir
almannavarnir.
Húsið var opið almenningi í fyrradag og
komu margir að skoða, að sögn sýslu-
manns.
Við sama tækifæri var staðfest samein-
ing almannavarnanefndanna í Skaftár-
hreppi og Mýrdalshreppi. Er því ein nefnd
fyrir alla Vestur-Skaftafellssýslu. Sigurður
segir að með þessu sé verið að taka upp
nýtt skipulag almannavarna á þessu svæði.
Almannavarnanefndin er nokkurs konar
stjórnsýslunefnd sem á að sjá til þess að
viðbúnaður sé í góðu lagi. Á hennar vegum
starfar síðan aðgerðastjórn sem virkjuð er
þegar áföll verða. Sigurður segir að þetta
skipulag sé einfaldara og bindur vonir við
að það verði skilvirkara.
Ný lögreglu-
stöð og fanga-
geymsla
ÍTREKAÐ er mikilvægi þess að stytta leið-
ir frá kjarnasvæðum til höfuðborgarinnar, í
drögum að ályktum Fjórðungsþings Vest-
firðinga sem haldið er á Ísafirði. Þinginu
lýkur í dag.
Í ályktunardrögunum er vakin athygli á
því að með uppbyggingu vegar um Arn-
kötludal og Gautsdal megi stytta akvega-
samband milli höfuðborgarinnar og allra
þéttbýlisstaða á norðanverðum Vestfjörð-
um um 44 kílómetra. Það samsvari styttingu
vegarins um Hvalfjörð með Hvalfjarðar-
göngum.
Lagt er til að skorað verði á samgöngu-
ráðherra að láta þennan kost njóta forgangs
við endurskoðun vegaáætlunar. Í því sam-
bandi er bent á aukna flutninga á vegunum
og möguleika á lækkun flutningskostnaðar
með styttingu leiða, auk öryggissjónarmiða.
Vilja stytta
leiðina til
Vestfjarða
♦♦♦
Hólmavík | Unnið er að undirbún-
ingi heimildarmyndar um leik-
félag úti á landi. Aðstandendur
verkefnisins heimsóttu Leikfélag
Hólmavíkur en það er eitt þeirra
félaga sem til greina kemur að
vinna með að gerð myndarinnar.
Kvikmyndagerðarmennirnir
Lárus Ýmir Óskarsson og Jón
Karl Helgason komu á fund félaga
í Leikfélagi Hólmavíkur í félags-
heimilinu Sævangi. Fram kom að
hugmyndin um mynd af þessu tagi
vaknaði fyrir nær tveimur áratug-
um en reiknað er með að nú verði
hún að veruleika og tökur fari
fram á komandi leikári. Ætlunin
er að fylgjast með uppsetningu
hjá áhugaleikfélagi frá því að æf-
ingar hefjast og fram yfir frum-
sýningu. Einnig er stefnan að
fylgja þeim sem að sýningunni
koma í daglegu lífi og bregða upp
mynd af lífinu í þorpinu. Myndin á
að vera „byggðavæn heimilda-
mynd með ljóðrænu ívafi“ eins og
Lárus Ýmir komst að orði. Ásamt
þeim Lárusi og Jóni Karli mun
Kristín Erna Arnardóttir vinna
með þeim að myndinni.
Leikfélag Hólmavíkur hefur
vakið athygli fyrir öfluga starf-
semi síðustu áratugina og ekki síst
fyrir ferðagleði félagsins sem sýn-
ir gjarnan hverja uppfærslu á
fimm til tíu stöðum utan Hólma-
víkur. Ekki hefur verið ákveðið
hvaða leikfélag verður fyrir val-
inu, en leikfélag Hólmavíkur er
eitt þeirra félaga sem Bandalag ís-
lenskra leikfélaga benti á og segja
þeir Lárus Ýmir og Jón Karl að
staðsetningin og náttúran ásamt
starfsemi félagsins hafi heillað þá.
Undirbúa heimilda-
mynd um leikfélag
Morgunblaðið/Kristín Sigurrós
Prufa: Lárus Karl Helgason
myndar hugsanlega leikara í
væntanlegri heimildarmynd.