Morgunblaðið - 04.09.2004, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 27
FERÐALÖG
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku.
Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgr. gjöld á ugvöllum).
Höfum allar stærðir bíla, 5 – 7 manna
og minibus 9 manna og rútur með/án
bílstjóra.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshver ,
Danskfolkeferie orlofshver
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk GSM símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu;
www.fylkir.is
www.fylkir.is sími 456-3745
Bílaleigubílar
Sumarhús
DANMÖRKU
MIRALE
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 5171020
Opið:
mán. - föstud.11-18
laugard.11-15
Spennandi
gjafavörur og húsgögn
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680
Ný sending
af peysum
Heimsókn í Louisiana-safnið er dásamlegupplifun – þú verður aðfara þangað og vera
helst heilan dag,“ var mér ráðlagt
áður en ég hélt til Kaupmanna-
hafnar í sumar. Louisiana er við
Eyrarsundsströndina, 35 km norð-
an Kaupmannahafnar. Einn góðan
veðurdag vatt ég mér því upp í
lest á Aðalbrautarstöðinni í höf-
uðborginni og þaut með henni á
þetta safn nútímalistar.
Heillandi garður
Louisiana er ekki aðeins safn
heldur heill heimur fyrir fjölskyld-
una. Hægt er að njóta strand-
arinnar í góðu veðri og umhverfis
safnið er listrænn garður, hann-
aður af Ole Nørgaard, Lea Nør-
gaard og Vibeke Holscher.
Út í garðinn liggur ein af álmum
safnsins og er hún helguð börnum.
Þar geta börn fengið útrás fyrir
sköpunargleðina; málað eða smíð-
að listræn verk. Safnið er helgað
nútímalistum og því geta börnin
einnig unnið listaverk á tölvur.
Garðurinn hefur mikið aðdrátt-
arafl því í honum eru útilistaverk
sem hægt er falla í stafi yfir og
önnur sem hægt er að leika sér í,
t.d. völundarhús. Þar er einnig
tjörn með nokkrum öndum og
bekkir til að njóta kyrrðarinnar. Í
garðinum er einnig bátahús sem
reist var árið 1919. Af skúlptúrum
má nefna verk eftir Jean Arp, Max
Bill, Alexander Calder, Max
Ernst, Henri Laurens, Joan Miró
and Henry Moore. Þau njóta sín
vel innan um gróðurinn.
Sex til átta meiriháttar sýningar
eru haldnar árlega í safninu, en
auk þess á safnið málverk eftir t.d.
Arp, Francis Bacon, Calder, Du-
buffet, Max Ernst, Sam Francis,
Giacometti, Kiefer, Henry Moore,
Picasso, Rauschenberg og Andy
Warhol.
Höfundur Óperu-
hússins í Sydney
Núna stendur yfir viðamikil sýn-
ing á æviverki danska arkitektsins
Jørn Utzon (f. 1918) sem þekkt-
astur er fyrir Óperuhúsið í Sydn-
ey. Þessi sýning er mörgum lang-
þráð því Utzon var aldrei spenntur
fyrir slíkri sýningu og gaf afsvar
við fyrstu beiði Louisianasafnsins.
Sýningin opinberar ljóslega að
Utzon er einstakur í sinni röð.
Hann er hugmyndaríkur listamað-
ur sem á mörg afbragðsverk að
baki í flestum heimsálfum. Á
myndbandi með viðtali við hann
taka (glöggir) áhorfendur eftir að
Utzon metur samstarfsmenn sína
mikils og segir aldrei: „Ég gerði
þetta eða hitt, eða mér datt í hug
...“ Heldur segir hann ævinlega:
Okkur datt í hug, við gerðum, við
prófuðum, við fundum þá lausn að
...“. Þannig rænir hann ekki heiðr-
inum af öðrum heldur deilir snilld-
inni. Bragi Ásgeirsson gagnrýn-
andi spáði því að þessi sýning
myndi draga að fólk „með hjarta
fyrir blóðríkum listum“. (Morg-
unblaðið 14. apríl 2004). Sýningin
stendur til 29. ágúst.
Það er reynsla að sjá þessa sýn-
ingu og ákjósanlegt fyrir þá sem
taka þátt í umræðunni um tónlist-
arhús í Reykjavík, því óperuhúsið í
Sydney er sterk fyrirmynd.
Listrænir dagar
Þótt sýningin á æviverki Jørns
Utzons sé viðamikil þá er einnig
önnur mikilsháttar sýning í Louis-
iana. Hún nefnist Smiðja og
dagar og er sýning á sam-
tímaverkum frá árinu 2000–2004
eftir fjöldann allan af listamönn-
um; Bevilacqua, Celmins, Aitken,
Bourgeois, Hirst, Lichtenstein, og
Panamarenko ... Stofnandi
Louisiana sagði á sínum tíma að
ekki væri hægt að reka safn nú-
tímalistar nema með því að festa
kaup á samtímaverkum, og þeirri
stefnu hefur safnið ævinlega
fylgt. Safnið vill vera lifandi safn
og tekst það alveg ágætlega.
Gestir njóta þess að vera á
safninu og snæða þar í hádeginu
rétti dagsins og fá sér einnig kaffi
og ís. Á laugar- og sunnudögum
er bröns á milli 10 og 12 fyrir há-
degi. Ágætt kaffihús og hægt að
snæða inni eða úti að vild. Í
Louisiana er einnig rými fyrir
ráðstefnur og sérstakur tónleika-
salur. Loks má nefna listmuna- og
bókabúð í safninu.
Louisiana er ekki bara safn
heldur einnig útivistarsvæði. Það
dregur til sín gesti hvaðanæva úr
heiminum. Jafnt börn sem full-
orðnir geta svalað áhuga sínum
og jafnvel skapað verk. Ráðlegg-
ingin um að fara í þetta safn
reyndist því vel.
Fallið í stafi yfir listinni
DANMÖRK
Morgunblaðið/Gunnar Hersveinn
Skemmtun: Eyjólfur Ingi rennir á braut. Louisiana-safnið reynist góður staður fyrir alla fjölskylduna.
Skúlptur: Í garði safnsins eru mörg listaverk, t.d. eftir Míró.
Í Humlebæk norðan
Kaupmannahafnar er
listasafnið Louisiana
sem mætir kröfum
barna sem fullorðinna.
Louisiana - Museum for Moderne Kunst var stofnað sem sjálfseign-
arfélag árið 1958 af Knud W. Jensen. Safnið var reist í átta áföngum;
1958, 1966, 1971, 1982, 1991, 1994 og 1998. Safnið spannar samtals
11.500 fm og eru þar af 7.500 sýningarrými. Hönnuðir safnsins eru Jørg-
en Bo og Wilhelm Wohlert ásamt Claus Wohlert sem hannaði álmu ætlaða
börnum.
Louisiana í hnotskurn
guhe@mbl.is
Louisiana Museum for Moderne
Kunst
Gl. Strandvej 13
DK-3050 Humlebæk
Sími: 0045 4919 0719
Símbréf: 0045 4919 3505
Símsvari: 0045 4919 0791
Miðasala: 0045 4919 0720
36 mínútur með lest frá að-
albrautarstöðinni (Hovedbane-
gården) með Kystbanen til Humle-
bæk. Þaðan er 10 mínútna gangur
á safnið.
Inngangseyrir: 74 danskar
krónur fyrir fullorðna, 67 kr. fyrir
lífeyrisþega og 20 krónur fyrir
börn 3ja til 16 ára.
Veffang: http://www.-
louisiana.dk/
Hlé milli sala: Heiðdís Guðbjörg skoðaði safnið vel og tók sér pásur í ljóm-
andi góðum garðinum.