Morgunblaðið - 04.09.2004, Síða 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 39
Hann hafði „lúmskt“ gaman af að
lauma að skorinorðum staðhæfingum
um baráttumál og stöðu kvenna, sem
undantekningalítið kölluðu á tilfinn-
ingaþrungin andsvör „kellinganna“ í
hópnum. Þegar umræður urðu heitar
varð honum verulega skemmt, jafn-
vel svo að hann gat illa dulið stríðn-
isglampann í augunum.
Allar þessar góðu minningar mun-
um við geyma með okkur.
Að leiðarlokum er okkur efst í
huga þakklæti fyrir öll árin, sam-
starfið, glensið og græskulaust gam-
anið sem einkenndi nærveru hans.
Með hlýhug og samúðarkveðjum
til fjölskyldu og ástvina.
Ingunn, Sigurbjörg, Sigríður,
Sigurður, Alfreð, Hreinn,
samstarfsfólk á kennara-
stofunni í „Neðra“.
Um leið og Guðrún Sighvatsdóttir
færði mér þær fréttir að faðir hennar
Sighvatur Torfason hefði látist þá um
daginn leitaði hugurinn ósjálfrátt til
baka.
Sighvatur var kennari að aðal-
starfi, en vann mörg sumur hjá Vega-
gerðinni, fyrst sem flokksstjóri og
síðar sem verkstjóri.
Miklar breytingar hafa orðið á
starfsemi Vegagerðarinnar á liðnum
árum. Verktakar hafa tekið við þeim
störfum sem áður voru unnin af
vinnuflokkum Vegagerðarinnar. Sig-
hvatur var einn af þeim mönnum sem
tóku þátt í þessum breytingum og
gerðist eftirlitsmaður með verktök-
um hjá Vegagerðinni. Eftir að Sig-
hvatur tók við því starfi vorum við
nánir samstarfsmenn.
Sighvatur átti farsæl samskipti við
samstarfsfólk, sem og verktaka. Sig-
hvatur hafði þá eiginleika að eiga
auðvelt með að umgangast fólk og
hans er nú sárt saknað hjá fyrrum
vinnufélögum hans hjá Vegagerðinni
á Sauðárkróki.
Ég mat Sighvat mikils og þakka
honum að leiðarlokum ánægjuleg
kynni sem aldrei bar skugga á. Ég
votta konu hans, börnum og fjöl-
skyldum þeirra mína dýpstu samúð.
Margt er í minninganna heimi,
mun þá ljósið þitt skína.
Englar hjá Guði þig geymi,
við geymum svo minningu þína.
(Höf. ókunnur.)
Einar Gíslason.
Sighvati Torfasyni kynntist ég
fyrst sumarið 1986. Þá hafði fyrir-
tæki mitt Borgarverk hf. verið fengið
til að leggja slitlag á vegi í gamla
Norðurlandskjördæmi vestra. Ég
hafði þá nýlega fjárfest í tækjabúnaði
til slitlagslagnar sem reyndist dýr og
því skipti miklu máli að verkefnið
fyrir norðan gengi vel. Við vorum
hálfgerðir nýgræðingar í faginu en
það var raunar líka eftirlitsmaður
Vegagerðarinnar á Sauðárkróki, Sig-
hvatur Torfason kennari, sem átti að
sjá um að vandað yrði til verka. Hann
hafði þá í mörg sumur unnið hjá
Vegagerðinni en þetta var annað
sumarið hans í slitlaginu.
Slitlagslögnin fyrir norðan gekk
vonum framar og var ekki síst Sig-
hvati að þakka. Framhald varð svo á
samstarfinu mörg sumur eftir þetta
og bar aldrei skugga á. Sennilega
hefur kennarareynslan reynst vel í
sumarstarfinu því hann náði alveg
einstaklega vel til ungu mannanna í
vinnuhópnum og raunar allra. Allir
litu á Sighvat sem sérstakan vin. Það
þýddi þó ekki að Sighvatur gerði ekki
kröfur því hagur Vegagerðarinnar
var alltaf í fyrsta sæti í hans huga.
Hann kom hins vegar inn þeim hugs-
unarhætti hjá mönnum að allir væru
að vinna að sama markmiðinu og var
alltaf sanngjarn. Hann var hjálpsam-
ur og ósérhlífinn og greip oft í kúst
eða skóflu ef hraða þurfti verkum.
Það þurfti hann auðvitað ekki að gera
og fékk ekki borgað fyrir.
Sighvatur var einstakt ljúfmenni í
viðkynningu og mikill húmoristi.
Hann hafði gaman af því að ræða
pólitík og körpuðu margir strákarnir
í vinnuhópnum við hann og gerðu
óspart grín að framsóknarmönnum.
Sighvatur hafði nú samt oftast vinn-
inginn í þeim snerrum.
Aðstandendum sendi ég samúðar-
kveðjur fyrir hönd starfsmanna
Borgarverks. Ég veit að hans verður
sárt saknað þegar kemur að því að
gera við vegina næsta sumar.
Sigvaldi Arason.
Í dag kveðjum við Sighvat Torfa-
son, kennara á Sauðárkróki. Sighvat-
ur lést langt fyrir aldur fram eftir
baráttu við erfiðan sjúkdóm, sem svo
margir hafa þurft að lúta í lægra
haldi fyrir. Það var hins vegar ekki í
eðli Sighvatar að gefast upp eða játa
sig sigraðan. Hann var baráttumað-
ur, ekki fyrir sjálfan sig eða eigin-
hagsmuni, barðist hann fyrir sann-
færingu sinni og hugsjónum,
réttlætismálum og framfaramálum.
Þeir sem þekktu Sighvat vita að
þar fór fjölhæfur maður sem var
margt til lista lagt. Hann hafði gott
vald á íslensku máli, var hagmæltur
og skáldmæltur og átti auðvelt með
að vinna með öðrum og var þá oftar
en ekki valinn til verkstjórnar.
Mannkostir hans nýttust okkur sam-
ferðafólkinu, þó að Sighvatur væri í
eðli sínu heimakær og mikill fjöl-
skyldumaður.
Sighvatur var framsóknarmaður
og gegndi fjölda trúnaðarstarfa fyrir
sinn flokk. Okkur ungu mönnunum
sem stigum á sínum tíma fyrstu
skrefin í pólitísku starfi verður
ógleymanlegur eldhugur hans og
keppnisskap. Þannig menn mynda
kjarnann í félagslegu starfi, hvort
sem um er að ræða stjórnmálaflokk
eða annað hugsjónastarf.
Ég vil þakka Sighvati fyrir sam-
vinnuna í gegnum tíðina og óeigin-
gjarnt starf í þágu Framsóknar-
flokksins og heimabyggðar sinnar.
Eftirlifandi eiginkonu, börnum og
barnabörnum votta ég samúð við frá-
fall góðs drengs.
Árni Gunnarsson.
Í dag er borinn til grafar frá Sauð-
árkrókskirkju Sighvatur Fanndal
Torfason kennari.
Leiðir okkar Sighvatar lágu saman
þegar ég starfaði við Barnaskóla
Sauðárkróks hluta vetrar 1970 og
síðan aftur haustið 1972 og entist sú
samvinna allt til vors 1998. Sighvatur
var kennari í þess orðs fyllstu og
bestu merkingu, sagði vel til og út-
skýrði, en var ekki hvað síst góður
vinur nemenda sinn og þeir sem áttu
á einhvern hátt undir högg að sækja,
hvort sem var í námi eða á einhvern
hátt annan, vissu vel hvar leita mætti
liðsinnis. Sighvatur var kletttraust-
ur, og oftar en ekki voru honum
fengnir bekkir, sem aðrir jafnvel
veigruðu sér við að taka til umsjónar.
Sighvatur var hafsjór af vísum og
kvæðum, átti sjálfur létt með að setja
saman skemmtilegar stökur sem
féllu vel að þeim dægurmálum sem
efst voru á baugi hverju sinni. Hann
mun líka hafa samið ljóð, þó að þau
kæmu fæst fyrir annarra sjónir enda
var honum ekki gjarnt að halda þess-
um hæfileika sínum á lofti, þótt ekki
væri nein ástæða fyrir þeirri hlé-
drægni. Við leiðarlok er góður vinur
til margra ára kvaddur, og þökkuð
eru góð og skemmtileg samstarfsár.
Eftirlifandi eiginkonu, börnum,
tengdabörnum og barnabörnum eru
sendar innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Sighvatar F.
Torfasonar.
Björn Björnsson.
Við fráfall samferðamanns
streyma fram minningarbrot úr ólík-
um áttum. Ánægjuleg kynni mín af
Sighvati Torfasyni teljast kannski
ekki mjög náin en samt meiri en af
mörgum samferðamönnum, allt frá
barnæsku til fullorðinsára.
Fyrstu kynnin voru af Sighvati
sem kennara í Barnaskólanum á
Króknum. Þar bárum við ómælda
virðingu fyrir þessum stóra manni,
sem um leið hafði þá hlýju og hæfi-
leika að bera að gera hann að vinsæl-
um kennara. Sighvatur var radd- og
svipsterkur maður, gekk um skólann
í tréklossum líkt og margir kennarar
og eitt af því sem bekkjarfélagarnir
muna áreiðanlega vel eftir er hinn
innilegi og kraftmikli hlátur, þar sem
stundum fylgdu tilheyrandi bakföll.
Hann gat líka látið frá sér heyra ef
ólætin í okkur keyrðu úr hófi fram.
Minningin af honum með skólabjöll-
una í frímínútunum er einnig sterk,
þar sem hann lét kólfinn svo sann-
arlega finna fyrir því.
Virðingin fyrir Sighvati var ekki
síst af því að hann átti son í bekknum
okkar, hann Gulla, sem fyrir vikið var
svolítið öfundaður af því að eiga
pabba í kennaraliðinu. Þegar Gulli
var fyrst heimsóttur á Suðurgötuna
var ekki laust við að við strákarnir
hræddumst kennarann á heimilinu
en sá ótti reyndist strax óþarfur. Sig-
hvatur var okkur sem fyrr hið mesta
ljúfmenni, sem og eiginkona hans,
Dúa.
Næstu kynni af Sighvati voru síð-
an er við urðum nokkurs konar
starfsfélagar einn vetur, ég þá nýút-
skrifaður stúdent sem fenginn var til
kennslu í Gagnfræðaskólanum. Þó að
hann væri í Barnaskólanum voru
samskiptin nokkur. Sérlega minnis-
stæð er kennaraferð suður yfir heið-
ar þennan vetur. Þar sýndi Sighvatur
nýja hlið á sér, var hrókur alls fagn-
aðar og kom gamla nemanda sínum
skemmtilega á óvart.
Er ég gerðist blaðamaður Dags á
Sauðárkróki leit Sighvatur stundum
við á kontórinn eða stoppaði mig úti á
götu, til að afla frétta og lauma um
leið að mér tíðindum. Eftir á að
hyggja grunar mig að Sighvatur,
þessi gallharði framsóknarmaður,
hafi haft eilitlar áhyggjur af því að
Dagsmenn hefðu ráðið þarna pilt af
íhaldsættum en vonandi hefur maður
ekki valdið honum miklum vonbrigð-
um.
Fjölskyldumanninum Sighvati
kynntist ég svo er við Edda, bróð-
urdóttir Dúu, fórum að búa saman.
Við tækifæri eins og ættarmót sást
vel hve mikill og góður barnakarl
hann var, umvafinn barnabörnum og
öðrum krílum í ættinni. Átti afahlut-
verkið greinilega vel við hann.
Sighvati var ýmislegt til lista lagt
en hann var kannski ekki að flíka
þeim hæfileikum. Hagyrðingur var
hann góður og okkur þótti afar vænt
um vísukorn sem hann samdi í tilefni
af brúðkaupi okkar Eddu sl. vor, þá
orðinn máttlítill vegna hins illvíga
sjúkdóms sem felldi hann að lokum.
Við Edda færum Dúu og fjöl-
skyldu; Gurru og Ása, Palla og
Möggu og Gulla, innilegar samúðar-
kveðjur á erfiðri stund. Minningin lif-
ir um mætan mann.
Björn Jóhann.
Elsku Bubbi frændi, ekki grunaði
mig fyrir ári, þegar við Björk heim-
sóttum ykkur norður, að hér sæti ég
og skrifaði um þig minningargrein
ári seinna. Við vorum að fylgja lömb-
um til slátrunar, eftir kaffi hjá ykkur
Dúu, þú keyrðir um og stoltur sýndir
okkur þennan fallega bæ, að lokum
hvattir þú okkur að skagfirskum sið
til að verzla í kaupfélaginu.
En nú er farið að hausta og stytt-
ast í leitir, ég er hræddur um að það
verði tómlegt í Hvítadal þá helgi, að
hafa þig ekki við stjórnvölinn, þó svo
að þar á bæ hafi orðið mannaskipti og
bróðir minn tekið við. Þú hafðir alltaf
mikinn áhuga á búskapnum og komst
alltaf reglulega til að líta eftir hjá
okkur feðgum, jafnt á álagstímum
sem ekki.
Þar sem ég var oft fremur latur
sem unglingur, hlakkaði ég lítið til
þegar ég frétti að Bubbi væri vænt-
anlegur, en síðar kunni ég að meta
það og sérstaklega þó á haustmán-
uðum árið 2000 þegar faðir minn dó
eftir stutt veikindi, þá var ég einn
heima í Hvítadal og þú komst og
studdir mig í gegnum þetta, síðan
hefur þú verið ómetanlegur félagi og
vinur í ráðleggingum og hjálpsemi.
Árið 2002 eignuðumst við Björk
dóttur sem heillaðist strax af þér og
þegar við heimsóttum þig síðast
fannst henni skrítið að vera að heim-
sækja frænda á spítalann og talaði
síðan mikið um að Bubbi frændi væri
lasinn.
Það var erfið stund að segja henni
að Bubbi frændi væri farinn til Guðs.
Elsku frændi, ég vil þakka fyrir
allar þær góðu stundir sem við höfum
átt saman, við eigum eftir að sakna
þín við eldhúsborðið í Hvítadal.
Að endingu vottum við Dúu, börn-
um og barnabörnum okkar innileg-
ustu samúð á þessum erfiðu tímum.
Saknaðarkveðja.
Torfi, Björk og Steinunn Lilja.
Það var um sólbjart-
an síðsumarmorgun að
ég fregnaði að Kjartan,
fyrrum nágranni minn
frá Rauðkollsstöðum,
væri allur. Mig setti hljóðan þó að
vissu leyti kæmi þetta ekki alveg á
óvart. Ég renndi í huganum nokkra
áratugi aftur í tímann og ósjálfrátt
kom í hugann ljóðið „Ég geng til
skips“ eftir Pál Ólafsson:
Ég geng til skips með veiðarvað,
þá virðar sér til hvílu snúa,
hrindi á flot og fer af stað.
Finn þá hvorki til svefns né lúa.
Hjartað í myrkri vísar veg,
hvar veiði nóg sé borði undir,
svo ég úr minnis djúpi dreg
daga liðinna sælustundir.
Gimsteinum fegri og gulli þá
glóa þær liðnu ævistundir.
Ég dreg og dreg sem mest ég má,
því meir en nóg er borði undir.
Hjartað með tárum þakkar þér,
það hefur ekkert skárra að bjóða.
frá þér minn hjartans auður er,
mitt eina hjartans barnið góða.
Nú er Kjartan genginn en ég sit á
þóttunni með minn veiðarvað og dreg
og dreg, það er á hverjum krók því
nóg er undir af „Gimsteinum og gulli
fegurri, liðnum ævistundum“. Minn-
ingar frá bernsku minni þegar langt
var á milli bæjanna Hrútsholts og
Rauðkollsstaða, ég lítill stubbur
sendur með fjallskilaseðil eða eitt-
hvað álíka mikilvægt, tekið sem full-
orðnum manni, þarna fann ég að ég
átti vin. Einnig frá hinum síðari árum
þegar örskot var þeirra á milli og ég
skaust fullorðinn maðurinn í kulda og
bylskæling erindisleysu í kaffi, þá
fann ég líka sem ætíð fyrr og síðar að
þar átti ég vin. Ég varð þeirrar gæfu
aðnjótandi að vera nágranni þeirra
KJARTAN
HALLDÓRSSON
✝ Kjartan Hall-dórsson fæddist
á Oddastöðum í
Hnappadal 5. mars
1917. Hann lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 11. ágúst
síðastliðinn og var
jarðsunginn frá
Borgarneskirkju 21.
ágúst.
sæmdarhjóna Kjartans
Halldórssonar og
Huldu Tryggvadóttur í
rúm 40 ár. Þeim fer óð-
um fækkandi bændun-
um sem lifðu einhverja
mestu byltingu íslensks
landbúnaðar. Kjartan
var einn þeirra og hann
unni jörðinni sinni,
hann unni búfénaði sín-
um og hann unni sveit-
inni sinni, þó sér í lagi
unni hann hrossunum
sínum. Sérstaklega
hændist að honum fólk
sem átti erfitt með að
fóta sig meðfram öðrum, en á Rauð-
kollsstöðum stóð það styrkum fótum,
eiga þau hjón þakklæti margra sem
nutu leiðsagnar þeirra í gegnum árin.
Í nokkra áratugi var hjá þeim heið-
urshjónum vinur minn Þórður Helgi
Hannesson og stóðu þeir hvor með
öðrum í gegnum áratugina og áttu
hvor öðrum mikið að þakka. Það fór
svo að við yfirgáfum sveitina okkar
báðir, fyrir nokkrum árum, ég á vit
nýrra ævintýra en Kjartan þrotinn
að kröftum til búskapar. Heimsókn-
unum fækkaði en í staðinn tókum við
upp símann og áttum alloft nokkuð
löng kvöldsímtöl. Með þessum fáu
orðum vil ég þakka fyrir mig, þakka
fyrir afskaplega gott nágrenni í ríf-
lega fjörutíu ár, þakka fyrir mikla
greiðvikni og vinsemd alla tíð, stund-
um var glatt á hjalla, þá var tekin
stemman. Nú er dauði og djöfuls
nauð/ er dyggða snauðir fantar/ safna
auð með augun rauð/ en aðra brauðið
vantar – því misrétti var sem eitur í
hans beinum. Stundum var þyngra
yfir eins og gengur í lífinu. Lengir
nóttu, lúta höfði blóm,/laufið titrar
fölt á háum reinum/ vindur hvíslar
ömurlegum óm/ illri fregn að kvíðn-
um skógargreinum. Svo segir í ljóð-
inu HAUSTBROT eftir Grím Thom-
sen. Nú lýtur lífsblóm þessa góða
granna höfði en eftir stöndum við
kvíðnar skógargreinar í skógi lífsins.
Þó gömlu sveitungarnir hverfi hver
af öðrum er ennþá til staðar í huga
mínum hafsjór góðra minninga sem
koma aftur og aftur upp í hugann, því
þær tekur enginn frá mér. Kærar
þakkir fyrir allt og allt.
Magnús Guðjónsson.
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
Í PERLUNNI
Erfidrykkjur
Upplýsingar og pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.250 kr. á mann.
www.mosaik.is
LEGSTEINAR
sendum myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4 - sími: 587 1960
Guðmundur
Jóhannsson
f. 10. 6. 1932
d. 8. 3. 1989
Minning þín lifir
Hvíl í friði
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Minningar-
greinar