Morgunblaðið - 04.09.2004, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 04.09.2004, Blaðsíða 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 43 Elsku afi. Það eru ekki til nógu mörg falleg orð í heiminum til að lýsa hversu góður afi þú hefur verið okkur. Þegar við vorum yngri og okkur var sagt að við værum að fara uppá Akranes til að heimsækja þig og ömmu fylltumst við svo miklum spenningi að við áttum erfitt með svefn nóttina áður. Fyrir okkur hef- ur það ætíð verið sem paradís á jörðu að koma til ykkar. Yfirleitt stóðst þú á bryggjunni og tókst á móti okkur með þínum hlýja faðmi. Þú tókst okkur alltaf sem jafningj- um og gafst okkur mörg heilræði sem gerðu okkur að betri mann- eskjum. Við munum ávallt minnast þess hversu glaðvær þú varst og sakna þess að heyra þig syngja og tralla, eins og þér einum var lagið. Það vakti alltaf jafn mikla kátínu og færði okkur bros á vör. Þú varst okkur stoð og stytta í gegnum námið okkar og upphófst okkur alltaf þegar við héldum aað allt væri á niðurleið. Við munum alltaf hugsa til þess hversu örlátur þú varst og sá maður sem við litum einna mest upp til. Hversu erfitt sem það er að kveðja þig, elsku afi, þá munntu alltaf lifa með okkur í hjörtum okk- ar og minningum. Þar munntu skipa stóran sess og munum við ávallt gleðjast þegar við hugsum til alls þess sem þú aðhafðist með okkur. Það ættu allir að eiga afa eins og þig. Þín barnabörn, Guðrún Viktoría og Kristín Laufey Björgvinsdætur. Ég vil með nokkrum fátæklegum orðum minnast Helga Ibsen. Helgi var fæddur og uppalinn á Suðureyri við Súgandafjörð. Hann fór ungur HELGI INGÓLFUR IBSEN ✝ Helgi IngólfurIbsen fæddist á Suðureyri við Súg- andafjörð 8. septem- ber 1928. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 28. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akranes- kirkju 3. september. að stunda sjó eins og flestir drengir á Vest- fjörðum, fyrst með föð- ur sínum en síðan á togurum og hvalbát- um. Hann lauk prófi frá Stýrimannaskólan- um og gerðist skip- stjóri hjá HB á Akra- nesi 25 ára gamall, var síðan með báta Sigurð- ar Hallbjarnarsonar h/f þar til hann stofn- aði eigin útgerð og var þar fyrst skipstjóri og síðar framkvæmda- stjóri í landi. Við framkvæmdastjórastöðu út- gerðar Akraborgar tók Helgi um 1980 og var í því starfi þar til rekstri Akraborgar var hætt með tilkomu Hvalfjarðarganga 1998. Sá sem þetta ritar var þar skipstjóri undir stjórn Helga um tuttugu ára skeið og bar aldrei skugga á okkar samstarf. Sterkustu þættirnir í skapgerð Helga voru orðheldni, heiðarleiki og ábyrgðartilfinning. Það sem hann sagði stóð og þurfti ekki að setja á blað. Hann var far- sæll skipstjóri, mikill aflamaður og harður sjósóknari á sínum yngri ár- um og farsæll stjórnandi eigin fyr- irtækis og síðan Skallagríms hf. síð- ar. Ekki var ungum mönnum á Vestfjörðum fremur en annarsstað- ar á Íslandi boðið upp á langa skóla- göngu á uppvaxtarárum Helga, en lífsins skóli veitti honum þá mennt- un sem vel dugði. Sem framkvæmdastjóri Akra- borgar ávann Helgi sér virðingu allra þeirra mörgu sem við fyrir- tækið skiptu. Þess var kappkostað að veita mönnum góða og trausta þjónustu og standa við allar skuld- bindingar. Mér er minnisstætt hversu mjög það olli Helga áhyggj- um ef þjónustuaðilar komu seint með reikninga, hann vildi helst gera upp við menn strax og þeirra vinnu var lokið. Ég mun minnast Helga Ibsen með virðingu og söknuði sem vinar og samstarfsmanns. Hann hafði horft með tilhlökkun til áranna að lokinni langri og farsælli starfsævi, en þá kom sá sjúkdómur sem eng- inn fær við ráðið og hefur nú klippt á lífsgöngu þessa heiðursmanns. Ég sendi Þorbjörgu konu hans og afkomendum þeirra mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Þorvaldur Guðmundsson. Helgi Ingólfur Ibsen hefur nú kvatt okkur. Með ljúfri minningu sitjum við eftir, með söknuð í hjarta og tár á kinn. Samverustundir okk- ar voru allar góðar og eftirminnileg- ar. Helgi hafði gaman af því að segja sögur, enda ævi hans ævintýri líkust. Farsælt líf átti Helgi, bæði á landi og sjó. Yndisleg fjölskylda í landi og velgengni á sjó. Helgi geisl- aði af persónutöfrum og góð- mennsku, hafði gaman af góðu gríni og fyrst og fremst elskaði hann. Þessi tæra sál sem snerti svo marga með góðmennsku og skilningi, er nú vel geymd í faðmi guðs. Það sem ég mun minnast helst um Helga er hversu heitt hann snart hjarta langafastráks síns, Bjarts Snæs. Góðir vinir voru þeir, enda ekki langt að sækja í litla strákinn í honum Helga. Þeir gátu leikið sér saman að bílum og bíla- brautum og aldrei vantaði umhyggj- una og kærleikann á milli þeirra. Þegar Helgi varð veikur og fór á sjúkrahúsið kom ekki annað til greina en að leyfa Bjarti Snæ að heimsækja hann. Hugrakkur gekk Bjartur Snær inn um dyr þínar, með mjúkan bangsa þér til hugg- unar. Með eilítið brostið hjarta og glitrandi augu, færði hann þér bangsann. Bangsinn táknaði mikið í hans augum, enda í hans huga eru það bangsarnir sem veita vellíðan og huggun. Morguninn sem þú kvaddir þenn- an heim kom Bjartur Snær á sjúkrahúsið til að kveðja þig. Langamma hans svo sterk, svo hug- rökk, gekk til hans og færði honum, að ósk Helga, bangsann sem veitti bæði Helga og Bjarti Snæ smáhug- arró. Þennan bangsa mun Bjartur Snær varðveita með öllum þeim yndislegu minningum um langafa sinn og tímana þeirra saman. Í kistulagningunni kom þessi litli hugrakki strákur, strauk þér blítt um vanga og gaf þér sinn hinsta koss. Svo leit hann á mig með sorg í hjarta og kökk í hálsi og sagði með titrandi röddu ,,ég kyssti hann til Guðs“. Þannig var ykkar hinsta kveðja og var hún mjög kær og innileg. Nú ert þú kominn í hendur Guðs og mun hann varðveita þig, líkt og við munum varðveita minninguna um þig í hjarta okkar. Særún Gestsdóttir. Elsku amma, við drúpum höfði í lotningu og virðingu fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Það eru margar minningar sem fara í gegnum huga okkar þegar við sitjum og rifjum upp. Það var svo gaman að hlusta á hlátur þinn, þegar afi var að segja brandara þá hlóstu svo innilega að augu þín ljómuðu. Einnig var svo gott að tala við þig þegar eitthvað var að. Því oft fannstu þegar eitthvað var að og gafst okkur einhver góð ráð eða tókst bara utan um okkur. Þá leið okkur alltaf betur. Þegar við fengum að gista hjá þér, fyrst á Mosabarðinu og seinna í Gull- smáranum. Það var svo gott því þá áttum við hvert okkar sína stund með þér og afa. En það er svo skrýtið að við urðum aldrei of stór til að gista hjá þér. Svo fórum við stundum í göngu á morgnana, þá var oft hlegið og spjall- að mikið. Þegar þú vökvaðir blóminn þín og talaðir við þau. Alveg eins og þau heyrðu til þín. En svona varstu, tal- aðir vel til alls sem lifir. Einnig var gaman til þess að vita hversu vænt þér þótti alltaf um orðin hans Sævars Þórs, þegar hann var lítill og ætlaði að byggja stórt hús. Amma og afi áttu að eiga heima uppi svo amma gæti horft á stjörnurnar, sólina og allt annað fal- legt. En hann ætlaði að búa niðri. Við kveðjum þig, elsku amma okk- ar, og þökkum fyrir alla góðmennsku þína. Sofðu nú vært, elsku amma,við pössum afa fyrir þig. Ein í huga mér lifir þín mynd svo heil og sönn. Sem aðeins lítil stund værir mér liðin hjá síðan þú varst hér enn í faðmi mér. Ein í hjarta mér lifa þín orð, þitt vinarþel, sem aldrei sveik þó ég gæti ei skilið allt sem þú gafst mér þá af hjarta þér. Þó ár og fjarlægð skilji okkur að og enginn geti komið í þinn stað mun samt minning þín lifa á meðan lifi ég á meðan lifi ég. Og ég þakka vil þá dýru gjöf að lífið leit til mín og leiddi mig til þín. (Friðrik Erlingsson.) Við kveðjum þig nú, amma. Sigurlaug Arna, Sævar Þór, Elsa Ösp og Konráð Andri. SIGURLAUG FRIÐGEIRSDÓTTIR ✝ Sigurlaug Frið-geirsdóttir fædd- ist á Grímsstöðum í Þistilfirði 16. ágúst 1926. Hún lést á Landakoti 7. ágúst síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Hafnarfjarðar- kirkju 18. ágúst. Elsku amma, mig langar að minnast þín með nokkrum orðum. Þegar ég bjó í kjall- aranum á Mosabarðinu hjá þér og afa var svo gott að koma heim úr skólanum og fá heitt kakó og meðlæti, því það var alltaf tilbúið handa mér. Síðan sát- um við og spjölluðum um allt og ekkert. Þetta var mjög góður tími. Eftir að við fluttum í Bæjargilið þá fórum við oft á laugardags- og sunnudagsmorgnum í bíltúr sem end- aði svo hjá þér. Alltaf gastu reitt eitt- hvað gott fram handa okkur. En eftir að þú og afi fluttuð í Gull- smárann kom ég ekki eins oft til ykk- ar, voru margar ástæður sem leiddu til þess. En árin líða og stundum þegar maður eldist þá verða breytingar sem við tökumst á við, bæði góðar en einn- ig aðrar sem eru miður góðar, en þroska mann samt. Og alltaf fylgdist þú með mér og sendir góðar kveðjur. Aldrei gafstu upp á mér og þykir mér vænt um það. Svo nú, þegar þú hefur fengið þinn síðasta svefn, þá kveð ég þig, elsku amma, og þakka þér fyrir að vera allt- af til staðar fyrir mig. Syngið, strengir, ennþá einu sinni ykkar dýrðarljóð í sálu minni, fyllið hug minn glöðum söngvaseið! Syngið, strengir, gömlu gleðiljóðin, gamla yndisfagra sólskinsóðinn, svo mér opnist veröld víð og heið! Ennþá getur ykkar huliðskraftur allar sorgir bætt með töfrahreim – söngsins tign og máttur opnar aftur unaðslegan draumaheim. (Jón frá Ljárskógum.) Kveðja frá Thelmu Dögg og Mikael Leó, sofðu vært. Ég kveð þig nú elsku amma. Þinn Anton. Kæri pabbi. Með sátt en söknuði kveð ég þig. Löngu stríði við erfiðan sjúk- dóm er loks lokið, þú hefur fengið hvíldina góðu. Þó að ég hafi ekki alist upp hjá þér þá á ég margar góðar minn- ingar með þér, áður en við mamma flytjumst norður á Strandir, þar sem ég fékk gott heimili og uppeldi. En hugur þinn var aldrei langt und- an. Það fann ég þegar þú hringdir til mín. Í bernskuminningum mínum man ég þegar þú varst að fara með mig heim að Meltungu til afa og ömmu og sýndir mér hitt og þetta og sagð- ir sögur frá þínum prakkastrikum og uppvaxtarárum þar. Ég gleymi aldrei í eitt skiptið er við vorum MAGNÚS EYDÓR SNÆFELLS ÞORSTEINSSON ✝ Magnús EydórSnæfells Þor- steinsson, sjómaður og bifreiðarstjóri, fæddist í Reykjavík 26. apríl 1932. Hann lést á Vífilsstöðum 17. ágúst síðastliðinn og var útför hans gerð frá Kópavogs- kirkju 23. ágúst. þar, þá var ég að leika mér úti og álpaðist til krakkahóps við Kjarr- hólmann. Þá hafðir þú hringt í lögguna og þeir fundu mig þar, komu með mig heim í Meltungu og þú lofaðir þeim að þú myndir taka í lurginn á mér, en þegar þeir fóru gerðirðu bara gaman úr þessu. Þarna leið þér best og þarna átt- irðu alltaf heima. Þó að leiðir okkar skildu, þá heyrðumst við reglulega, og þú hringdir oft til mín í sveitina en komst sjaldan. En kvöld eitt birtist þú skyndilega óvænt með stóra gjöf til mín. Og hvað var það, jú var það ekki bara gamla góða „Toyota Cressidan.“ Þetta var fyrsti bíllinn sem ég eignaðist og átti hann í 2 ár. Ég veit, pabbi minn, að þú áttir erfitt með að tjá tilfinningar þínar við aðra og þá sérstaklega við okk- ur bræðurna, en innst inni varstu rosalega stoltur af okkur og hugs- aðir alltaf hlýtt til okkar. Og innst inni þá er ég mjög stolt- ur að hafa átt svona mikinn mann eins og þig sem föður, því að það er sama hvar ég er þá er allstaðar fólk sem þekkti Magga „Vatnaguð“ eins og þú varst kallaður. Allir sem ég kannast við, og könnuðust við eða þekktu þig af eigin raun bera þér vel söguna. Þú hafir verið ósérhlíf- inn og duglegur með eindæmum, reyndar algjör forkur, sama hverju á gekk. Þegar maður heyrir svona fyllist maður stolti. En svo fóru veikindin að verða verri og verri, og á endanum þurft- irðu að hætta að vinna fyrir aldur fram. Það var rosalega slæmt hvernig sjúkdómurinn lék þig, en samt var alltaf stutt í grínið og glensið hjá þér, en þannig varstu bara, jákvæður og lífsglaður maður. Í apríl héldum við bræðurnir upp á 72 ára afmælið þitt með þér og tengdadætrum, og ég veit pabbi minn að þá varstu stoltur og hrærð- ur yfir því. Það sést á myndinni sem tekin var af okkur öllum sam- an, og það heyrði ég á þér eftir af- mælið. Síðastliðinn vetur fylgdir þú þín- um tveim bestu vinum til grafar, Dedda og Gunna Ísleifs, og það tók mikið á þig, en nú hittist þið aftur. Þó að okkar samverustundir hefðu mátt vera fleiri, pabbi minn, þá mun ég alltaf eiga þær minn- ingar um þig og hafa þær í háveg- um. Ég kveð þig í sátt og samlyndi, því að það er komin værð yfir þig og þú kvaddir sáttur. Með þessum stuttu og fátæklegu orðum kveð ég þig, elsku pabbi minn. Þinn sonur, Steinar Snæfells. Innilegar þakkir færum við öllum þeim er auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður míns, tengdaföður, afa, stjúpföður og frænda, ÓLAFS ODDGEIRS GUÐMUNDSSONAR, Túngötu 18, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja og hjúkrunarheimilinu Garð- vangi, Garði. Guð blessi ykkur öll. Jana Ólafsdóttir Georges, Hubert Georges og barnabörn, Hervör Jakupsson, Bárður Jakupsson Teitur Albertsson, Þorbjörg Hermannsdóttir, Guðmundur Reynisson, Ágústa Jónsdóttir. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðs- ins: mbl.is (smellt á reitinn Morg- unblaðið í fliparöndinni – þá birt- ist valkosturinn „Senda inn minningar/afmæli“ ásamt frekari uppl.). Skilafrestur Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Minningar- greinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.