Morgunblaðið - 04.09.2004, Síða 53
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 53
Lið-a-mót
FRÁ
Extra sterkt
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Nr. 1 í Ameríku
-fyrir útlitið
Það er þannig með verk sumramyndlistarmanna að maðurgleymir þeim seint eftir að
maður hefur séð þau. Þannig líður
mér gagnvart verkum Rögnu Ró-
bertsdóttur, en yfirlitssýning á
verkum hennar var opnuð á Kjar-
valsstöðum í gærkvöldi undir heit-
inu Kynngikraftur.
Þessi verk Rögnu sem sitja svona
sterkt í mér eru þau sem hún hefur
unnið á undanförnum áratug eða
svo. Þetta eru tvívíð verk – hraun-
mulningi, glermulningi, skeljamuln-
ingi eða sjálflýsandi plastmulningi
er varpað í kassalaga formum á
vegg. Formið tekur iðulega mið af
umhverfinu
sem þau eru
staðsett í,
stærðir og lög-
un kassanna
kveðast á við
element í arkitektúrnum, til dæmis
glugga, veggi, ljós. Þannig eru verk-
in fyrir utan salinn á Kjarvals-
stöðum í sömu stærð og ljósin í loft-
inu, og fyrir endum salarins sjálfs
eru risastórir flekar sömu stærðar
og milliveggirnir þar inni. Flekarnir
eru annars vegar þaktir hraunmuln-
ingi, hins vegar glermulningi.
Hraunverkið leikur sér að áhorf-
andanum, það er aldrei eins eftir því
hvar staðið er og horft á það. Gler-
verkið glitrar hins vegar eins og
fegursti vetrarmorgunn, hvar sem á
það er litið.
Á sýningunni á Kjarvalsstöðumer einnig að finna eldri og
nýrri verk úr smiðju Rögnu Ró-
bertsdóttur, sum hver þrívíð, og af-
ar fróðlegt er að sjá hvernig míní-
malisminn og náttúran virðast alltaf
hafa fylgt henni á ferlinum, allt frá
fyrstu einkasýningunni í Ný-
listasafninu árið 1986. Útsagað grá-
grýti og upprúlluð torf eru meðal
þess sem prýðir sýninguna, sem er
að sögn listamannsins sjálfs upp-
byggð sem ein heild. „Mér finnst
frábært hvernig öll þessi verk mín
frá þessum langa tíma passa alveg
saman í eina sýningu. Það virðist
vera eitthvert gegnumgangandi stef
í þeim öllum,“ segir Ragna þegar
við göngum saman um sýninguna.
Nýjasta verkið á sýningunni er í
ganginum á Kjarvalsstöðum. Gegnt
glugganum eru 117 kíló af hrauni
bakvið tólf tvöföld gler, sem myndar
einskonar svarta landslagslínu eftir
endilöngum hvítum veggnum.
Fyrsta verkið sem mætir gestumá sýningunni er kassi af rauð-
um vikri í stéttinni fyrir framan
safnið. Þegar ég bið leigubílstjórann
að passa að keyra ekki ofan í möl-
ina, því þarna væri að líkindum um
listaverk að ræða, svarar hann því
til að hann hafi nú áttað sig á því. En
bætir síðan við þegar ég var að stíga
út úr bílnum: „Ég veit ekki með
þessi nútímalistaverk. Ég get ekki
betur séð en þetta sé samskonar möl
og ég hef í garðinum mínum
heima.“
Ragna brosir við þessa sögu.
„Þetta finnst mér einmitt ofsalega
skemmtilegt – þegar fólk veit ekki
hvort um er að ræða listaverk eða
ekki. Ég hrífst af því,“ segir hún.
Að vissu leyti hefur leigubílstjór-
inn rétt fyrir sér. Hins vegar hafa
verkin á sýningu Rögnu allt önnur
áhrif en stéttarnar heima hjá manni
eða brotið glerglas, í einfaldleika
sínum eru þau einfaldlega áhrifa-
mikil.
Ragna Róbertsdóttir notast oft átíðum við grjót úr Heklu í
verkum sínum. Sýning hennar er þó
ekki sú eina sem er opnuð um
helgina þar sem Hekla kemur við
sögu, því danska listakonan Lone
Mertz, sem á heiðurinn af haustsýn-
ingu Gallerís Kambs í ár, tekur fjall-
ið einnig fyrir, þar sem Hekla og
Himalaja-fjöllin mætast að sögn sem
andstæðir pólar á sýningunni.
Innsetningin sem þar er á ferð er
byggð á ferð Mertz til Himalaja-
fjallanna með glerkistu í kjölfar
dauða eiginmanns hennar. Þar sem
glerkistan stóð að lokum á fjalls-
tindinum náði Mertz kaflaskilum í
lífi sínu og nýju upphafi. Efalaust er
afar forvitnilegt að sjá hvernig hún
tvinnar saman erfiða lífsreynslu og
listsköpun, og heyra af því söguna
hvað fyrir henni vakti og hvernig
henni tókst að koma glerkistu í
4.400 metra hæð.
Ort í grjót og gler
’Afar fróðlegt er að sjáhvernig mínímalisminn
og náttúran virðast allt-
af hafa fylgt Rögnu á
ferli hennar.‘
AF LISTUM
Inga María
Leifsdóttir
ingamaria@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Ragna Róbertsdóttir við verkið sem
vakti spurningar hjá leigubílstjóra
um eðli listaverka. „Þetta finnst
mér einmitt ofsalega skemmtilegt –
þegar fólk veit ekki hvort um er að
ræða listaverk eða ekki. Ég hrífst
af því,“ segir hún.
„HVER fílar eiginlega þetta helvítis
norm?“ eða eitthvað í þá veru segir
Blær við Dís vinkonu sína, en sú
fyrrnefnda hefur alltaf eitthvert
spakmæli á borð við þetta á taktein-
um þegar Dís tekur að missa sjónar
á því sem máli skiptir í lífinu, sem
samkvæmt Blævi er það að trúa á
sjálfan sig og taka lífið ekki of alvar-
lega.
Við kynnumst þessari ungu og
sjarmerandi sögupersónu, Dís, þeg-
ar hún stendur á ákveðnum tíma-
mótum í lífi sínu. Tímamót þessi er
ekki hægt að kenna við ákveðinn at-
burð eða viðburði sem almennt eru
taldir marka tímamót í lífi fólks, s.s.
giftingar, barnsburðir, útskriftir eða
búferlaflutningar, en þetta eru engu
að síður tímamót í persónulegri
þroskabraut Dísar. Hún er að ganga
í gegnum sína fyrstu tilvist-
arkreppu, þá sem getur skollið dálít-
ið illilega á hjá ungu fólki þegar það
í fyrsta sinn horfist í augu við að
ekki er endalaus tími til að ákveða
hvað maður ætlar að verða þegar
maður verður stór. Engin ástæða er
þó til að örvænta, Dís er þrátt fyrir
allt aðeins 23 ára gömul, og því eng-
an veginn búin að missa af lestinni,
þótt margir í kringum hana virðist
komnir á hörkusiglingu á hinum
ýmsu framtíðarvænu brautum,
hvort sem það er námspakkinn, fjöl-
skyldupakkinn, fíla-sig-í-erlendri-
stórborg-pakkinn eða skrifstofu-
dragtarpakkinn, og smám saman
missir stúlkan fótanna í samanburð-
inum.
Þetta var kjarninn í samnefndri
skáldsögu þeirra Birnu Önnu
Björnsdóttur, Oddnýjar Sturludótt-
ur og Silju Hauksdóttur sem sögu-
persónan Dís er upprunnin úr. Bók-
in sló eftirminnilega í gegn þegar
hún kom út árið 2000, jarð-
skjálftaárið mikla, en þar tókst sam-
höfundunum þremur að bregða upp
lifandi mynd af veruleika venjulegr-
ar reykvískrar stúlku og rýna um
leið í ýmsar venjur og óskrifaðar
reglur borgaralegs samfélags og ís-
lensks veruleika á lipran og hnyttinn
máta.
Það verður reyndar að viðurkenn-
ast að maður þarf dálítið að fylla upp
í eyðurnar og lesa samhengi bók-
arinnar inn í kvikmyndaútgáfuna til
þess að hún öðlist nægilega mikla
fyllingu. Engu að síður eru helstu
kostir Dísarsögunnar á sínum stað í
myndinni, þó svo að helst vanti einn
þátt, þ.e. það svigrúm sem skáldsag-
an hafði til þess að undirbyggja per-
sónu Dísar og hennar skemmtilega
flókna en um leið hversdagslega
hugarheim. Sú persónusköpun var
nefnilega límið sem tengdi saman
frjálslegt flug söguframvindunnar.
Það er þó margt gott við kvik-
myndina, enda úr nógu að moða þar
sem Dís og hennar ævintýri eru
annars vegar. Hér er t.d. brugðið
upp einkar litríkri og lifandi Reykja-
víkurmynd, um leið og snúið er dá-
lítið skemmtilega upp á þann „land-
kynningarflöt“ sem vill loða við
ímynd borgarinnar út á við. Myndin
hefst með einum af skörpustu fem-
ínísku punktunum úr bókinni, þar
sem pirrast er út í „Dirty Week-
end“-farana sem troðast upp á ís-
lenskt kvenfólk eins og það sé hluti
af pakkanum sem þeir telja sig hafa
greitt fyrir.
Síðan tekur við dálítið brokkgeng
en bráðskemmtileg röð „sitúasjóna“,
þar sem frábær samtöl og sterkar
aukapersónur njóta sín. Hér standa
leikarar sig frábærlega, allt frá aðal-
leikurum til aukaleikara, og styðja
vel við persónu Dísar, sem er bæði
flöktandi í andlegum og handrits-
legum skilningi. Álfrún Örnólfs-
dóttir gæðir Dís hins vegar þeim
sjarma sem er kannski kjarninn í
persónuleika hennar, og aðrir fylgja
fast á hæla hennar, Ilmur Kristjáns-
dóttir, Gunnar Hansson, Árni
Tryggvason og Þórunn Erna Clau-
sen svo nokkrir séu nefndir.
Silja Hauksdóttir er með kvik-
myndinni Dís að stíga sín fyrstu
spor í leikstjórnarstólnum, og má
kannski segja að þar sé hún ennþá
að finna sig, en er gædd bæði krafti
og innsæi sem getur af sér alls kon-
ar skemmtilega hluti. Stundum
bregða þau Silja og tökumaðurinn
Jakob Ingimundarson upp bráð-
fallegum atriðum, eins og t.d. þegar
Dís situr úti í glugga á Hótel Borg
og reynir að gera sjálfa sig upp með-
an flugeldar menningarnætur spegl-
ast í regnvotri rúðunni.
Jóhann Jóhannsson hefur samið
bráðvandaða og einkar Dísarlega
tónlist fyrir myndina, en henni er
laumað skemmtilega inn í framvind-
una, því hún tengir saman og skapar
blæbrigði.
Kvikmyndin Dís er eiginlega eins
og Dís sjálf, uppfull af góðum hug-
myndum en langt frá því að vera á
öruggri siglingu.
Dáldið eins og Dís
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn, Laug-
arásbíó og Borgarbíó.
Leikstjórn: Silja Hauksdóttir. Handrit:
Birna Anna Björnsdóttir, Oddný Sturlu-
dóttir og Silja Hauksdóttir. Aðalhlutverk:
Álfrún Örnólfsdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir,
Árni Tryggvason, Ylfa Edelstein, Þórunn
Erna Clausen og Gunnar Hansson. Leik-
mynd: Sigríður Guðjónsdóttir. Kvik-
myndataka: Jakob Ingimundarson. Bún-
ingar: Bergþóra Magnúsdóttir. Klipping:
Ásta Briem og Viðar Víkingsson. Hljóð-
hönnun Kjartan Kjartansson og Ingvar
Lundberg Jónsson. Tónlist: Jóhann Jó-
hannsson. Sögn ehf / Blueeyes Product-
ions, 2004.
DÍS
„Álfrún Örnólfsdóttir gæðir Dís hins vegar þeim sjarma sem er kannski
kjarninn í persónuleika hennar,“ segir í umsögn um kvikmyndina Dís. Heiða Jóhannsdóttir
Morgunblaðið/Eggert
Í TILEFNI af héraðshátíðinni
Ormsteiti á Fljótsdalshéraði efndu
stjórnendur Ormsteitis og félagið
Ormsskrínið til hugmynda-
samkeppni meðal ungs fólks (18-30
ára) sem búsett er á Austurlandi
um listaverk (skúlptúr) sem hefði
Lagarfljótsorminn að viðfangsefni.
Hugmyndirnar skyldu taka mið af
því að listaverkinu yrði komið fyrir
utandyra og að það yrði varanlegt.
Menningarráð Austurlands styrkti
keppnina.
Þátttaka var ágæt og voru fimm
hugmyndir hengdar upp til sýnis á
Ormsteiti. Þar gafst gestum og
gangandi kostur á að greiða þeirri
tillögu atkvæði sem þeim þótti best.
Þau atkvæði vógu 50% á móti nið-
urstöðu þriggja manna dómnefndar
sem í áttu sæti: Alma J. Árnadóttir
grafískur hönnuður, Ólöf Björk
Bragadóttir myndlistarkona og
Einar Ólafsson byggingafræðingur.
Úrslit urðu þau að hugmynd
Steinrúnar Óttu Stefánsdóttur, 21
árs Egilsstaðabúa, varð hlutskörp-
ust og hlýtur hún að launum
100.000 kr. auk þess sem hún mun
njóta brautargengis við að gera
listaverkið að veruleika.
Verkið sem hún sendi tillögu um
er skúlptúr með notagildi, eins kon-
ar Ormsróla fyrir fullorðna og
börn.
Verðlaunahugmynd
að Ormslistaverki