Morgunblaðið - 09.09.2004, Side 1
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
YD
D
A
/S
IA
.I
S
/
N
M
1
3
3
3
5
fiÚ fiARFT EKKI
A‹ HAFA ÁHYGGJUR
AFfiVÍ A‹VEXTIRNIR
HÆKKI NÆSTU
40 ÁRIN
KB ÍBÚ‹ALÁN
– kraftur til flín!
Fjölbreytt
útgáfa
Dægurtónlistin blómstrar og fjöldi
platna kemur út fyrir jólin | 38
Viðskipti | Bæta við sig í Tékklandi Michael Treschow í viðtali
KB færir út kvíarnar Úr verinu | Vistvæn veiðistjórnun Hiti og
sýking Íþróttir Körfubolti gegn Dönum Þórey Edda stökk á Ítalíu
Viðskipti, Úr verinu og Íþróttir í dag
MARGIR erlendir starfsmenn óháðra hjálparstofn-
ana í Írak hyggjast yfirgefa landið í kjölfar þess að
vopnaðir menn rændu tveimur ítölskum konum sem
störfuðu fyrir hjálparsamtök í Írak. Mannránið hef-
ur einnig vakið sterk viðbrögð á Ítalíu og hélt Silvio
Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, í gær skyndi-
fund með forystumönnum stjórnarandstöðunnar
vegna málsins.
Mikill ótti hefur gripið um sig meðal starfsmanna
alþjóðlegra, óháðra hjálparsamtaka í Írak og segir
Jean-Dominique Bunel, sem sér um að samhæfa
starf þeirra í landinu, mörg þeirra ætla að hætta
störfum í Írak og segja sínu starfsliði að hafa sig á
brott. Rauði krossinn/Rauði hálfmáninn bregst aft-
ur á móti ekki sérstaklega við þessum fréttum, að
sögn Þóris Guðmundssonar en samtökin hafa sam-
kvæmt Genfar-samningunum formlegt hlutverk á
átakasvæðum. Menn hafi þó miklar áhyggjur af
ítrekuðum mannránum og þess megi vænta að ör-
yggismál verði skoðuð enn á ný.
Vinna að lausn gíslanna
Ítalskir fjölmiðlar sögðu að fundur Berlusconis
með forystumönnum stjórnarandstöðunnar þar í
landi væri sá fyrsti sinnar tegundar. Hrósuðu þeir
honum fyrir að leita eftir stuðningi þeirra vegna
málsins. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar, sem voru
andvígir þátttöku Ítala í Íraksstríðinu, lýstu því yfir
eftir fundinn að þeir myndu vinna með stjórninni að
því að knýja á um að konurnar yrðu leystar úr haldi.
Um tuttugu menn rændu konunum og tveimur
Írökum þegar þeir réðust inn í hús hjálparstofnana
í Bagdad í fyrradag. Hreyfing sem kallaði sig Ansar
al-Zawahri, eða Fylgismenn al-Zawahris, sagðist
hafa staðið fyrir mannráninu. Nafn hreyfingarinnar
var áður óþekkt, en hún kann að vera kennd við
Ayman al-Zawahri, nánasta samstarfsmann Osama
bin Ladens.
Reuters
Fulltrúar „Brúar til Bagdad“, hjálparsamtakanna
sem ítölsku konurnar tvær, Simona Pari og Sim-
ona Torretta, störfuðu fyrir ræða við blaðamenn í
Bagdad í gær. Í forgrunni er mynd af Pari og
Torretta með íröskum börnum.
Óháð hjálp-
arsamtök
frá Írak?
Bagdad, Róm. AP, AFP.
HALLDÓR Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra segir ljóst að hin
sameiginlega fiskveiðistefna
Evrópusambandsins gangi ekki
upp. Hún leiði til ofveiði, slæmr-
ar fjárfestingar, ríkisstyrkja og
brottkasts. Hann hafnar aðild Ís-
lands að Evrópusambandinu,
meðan sú krafa er við lýði að hún
kosti afsal yfirráða yfir fiskimið-
um landsins. Hann segir að af-
staða Evrópusambandsins gagn-
vart fiskveiðiþjóðunum í
Norður-Evrópu líkist mest nú-
tíma nýlendustefnu.
Þetta kom fram í setningar-
ræðu Halldórs á alþjóðlegri ráð-
stefnu Íslandsbanka um sjávar-
útveg sem haldin var á Akureyri
í gær. Halldór segir að nauðsyn-
legt sé að Evrópusam-
bandið taki tillit til
hagsmuna og aðstæðna
okkar, en svo virðist
sem það eigi erfitt með
að skilja það.
„Evrópusambandið
getur hins vegar vel
tekið tillit til aðstæðna
fiskveiðiþjóðanna við
Norður-Atlantshaf ef
fyrir því er pólitískur
vilji. Það er hægt að semja um
leiðir sem báðir málsaðilar geta
sætt sig við og ég hef
bent á þær. ESB hefur
hins vegar verið upptek-
ið af inngöngu þjóða í
Mið- og Austur-Evrópu
inn í sambandið og ekki
tekið tillit til hagsmuna
okkar. Það liggur ljóst
fyrir að undanþágur
verða ekki gerðar frá
hinni sameiginlegu fisk-
veiðistefnu ESB, en það
er hægt að semja um ákveðin
fiskveiðistjórnunarsvæði. En
eins og staðan er í dag kemur að-
ild að ESB ekki til greina,“ segir
Halldór í samtali við Morgun-
blaðið.
„Ég vil ganga svo langt að
segja að afstaða Evrópusam-
bandsins gagnvart fiskveiðiþjóð-
unum í Norður-Evrópu líkist
mest nútíma nýlendustefnu.
Evrópusambandið byggist á því
að nota efnahagsleg verkfæri til
að ná pólitískum markmiðum.
Hin sameiginlega fiskveiðistefna
þess snýr þessum grundvallarat-
riðum við, þegar þau eru notuð til
að ná yfirráðum yfir auðlindum
nýrra aðildarríkja,“ sagði Hall-
dór í ræðunni.
Eins og staðan er kemur
ESB-aðild ekki til greina
Utanríkisráðherra líkir ESB við
nýlenduveldi sem reynir að kom-
ast yfir auðlindir annarra þjóða
Sakar/D1
Halldór
Ásgrímsson
HARALDUR Sig-
urðsson, prófess-
or í eldfjallafræði
við háskólann í
Rhode Island í
Bandaríkjunum,
hefur nýlokið vel-
heppnuðum leið-
angri til eyj-
arinnar
Sumbawa í
Indónesíu. Eftir
áralangar rannsóknir og leit fann
hann þar þorp sem hvarf undir
kviku frá sprengigosi í fjallinu
Tambora árið 1815, mesta eldgosi á
sögulegum tíma þar sem 117 þúsund
manns fórust.
Með Haraldi í för voru tveir vís-
indamenn frá Indónesíu, 20 burð-
armenn, matráðskonur, ljósmyndari
og fimm manna tökulið sem hyggst
gera heimildarmynd um rannsóknir
Haraldar á fjallinu, til sýningar á
sjónvarpsstöðinni Discovery Chann-
el á næsta ári.
Fundurinn á þorpinu hefur ekki
spurst víða út en er samt farinn að
vekja athygli í heimi jarðvísindanna.
Hefur tímaritið National Geograph-
ic falast eftir grein frá Haraldi með
myndum ljósmyndarans úr ferðinni.
Það tók Harald nokkur ár að und-
irbúa og fjármagna leiðangurinn í
sumar en hann mun halda upp-
greftri áfram á næsta ári.
Varla búinn/22–23
Haraldur
Sigurðsson
Fann þorp á eldfjallaeyju
Hvarf í mesta gosi
sögunnar 1815
SKÓLAFERÐALAG 10. bekkinga í
Rimaskóla í Þórsmörk varð heldur
lengra en það átti að vera því vegna
vatnavaxta komust rúturnar ekki yf-
ir árnar á Þórsmerkurleið í gær. Um
70 krakkar og þrír kennarar biðu í
næstum átta tíma á milli Hvannár og
Steinholtsár.
Að sögn Jónínu Ómarsdóttur
kennara, sem var með í för, var aldr-
ei hætta á ferðum. „Þetta var allt í
öruggum höndum. Það var bara
gaman hjá krökkunum. Hugmyndin
á bak við ferðina er að hrista saman
hópinn og nú er hann aldeilis sam-
anhristur. Það var algjör bónus að fá
þetta ævintýri í endann. Krakkarnir
skemmtu sér konunglega. Þau létu
sig fjúka í rokinu, fóru í gönguferðir,
fleyttu kerlingar, sungu og grilluðu
þann mat sem eftir var við mjög
frumstæðar aðstæður. Það verður
seint hægt að toppa þessa ferð,“ seg-
ir Jónína. Seinnipartinn var ákveðið
að leita aðstoðar hjá Flugbjörg-
unarsveitinni á Hellu og Björg-
unarsveitinni Dagrenningu frá
Hvolsvelli. Um einn og hálfan tíma
tók að ferja krakkana yfir ána í rútu
sem beið hinum megin.
Hópurinn var allur kominn yfir
ána um klukkan hálfníu og var þá
brunað til Reykjavíkur. Súpa beið
hópsins í Rimaskóla við heimkomu.
Ljósmynd/Sunna Ösp
Vel gekk að ferja hóp skólakrakka úr Rimaskóla yfir Steinholtsá í dimmviðrinu í gær, en rútur
hópsins komust ekki yfir vegna vatnavaxta. Fimm ferðir þurfti til að koma hópnum yfir ána. Ekki
var hætta á ferðum, en að sögn kennara sem var með í för var Þórsmerkurferðin mikið ævintýri.
„Seint hægt að toppa þessa ferð“
STOFNAÐ 1913 245. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is