Morgunblaðið - 09.09.2004, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.09.2004, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 11 Morgunblaðið/Ómar Viktoría krónprinsessa heilsaði upp á persónur og leikendur í myndveri Latabæjar í Garðabæ í gærmorgun. Var létt yfir hópnum eins og sjá má. Expressen segir krónprinsessuna hafa slegið nýtt met Heilsaði 500 manns á 40 mínútum HÓPUR sænskra blaðamanna og ljósmyndara auk fréttamanna frá Noregi og Þýskalandi hafa fylgt sænsku konungshjónunum og krónprinsessunni eftir við hvert fótmál í opinberri heimsókn þeirra á Íslandi undanfarna daga. Á vefsíðu sænska síðdegisblaðs- ins Expressen í gær er birt frétt þar sem greint er frá að Viktoría krónprinsessa hafi sett nýtt met í fyrradag þegar hún heilsaði 500 manns með handabandi í 40 mín- útna heimsókn prinssesunnar og sænsku konungshjónanna í Nor- ræna húsið, þar sem þau hittu Svía sem búsettir eru á Íslandi. Óþreytandi og síbrosandi „Í 40 mínútur stóð hún – óþreytandi og síbrosandi – og heilsaði hverjum Svíanum á fætur öðrum. Eftir um hálftíma ætlaði hún að fara að yfirgefa svæðið en herti sig upp og tókst að heilsa 500 manns með handabandi og faðma nokkra,“ segir í fréttinni. LEILA Freivalds, utanríkisráð- herra Svíþjóðar, heimsótti Sólveigu Pétursdóttur, formann utanríkis- málanefndar Alþingis, á heimili hennar í gær og ræddu þær utanrík- ismál þjóðanna. Tjáði hún Sólveigu að ýmis krefjandi mál væru fram undan fyrir Svía meðal annars á vettvangi Evrópusambandsins. Sví- ar hefðu einnig lagt mikla áherslu á að láta gott af sér leiða þar sem slæmt ástand ríkti í heiminum. „Ég kynntist henni vel þegar við vorum báðar dómsmálaráðherrar, en hún kom m.a. á fund norrænna dómsmálaráðherra hér á Íslandi ásamt fjölskyldu sinni,“ segir Sól- veig og það hafi verið mjög ánægju- legt að hitta hana aftur í þessu nýja hlutverki. Það segi sig sjálft að hún sé áhrifamikil kona í sænskum stjórnmálum og heimsókn hennar og konungshjónanna mikilvæg fyrir tengsl þjóðanna. Heimsótti Sólveigu Péturs- dóttur Morgunblaðið/Kristinn Sólveig Pétursdóttir ásamt Leilu Freivalds utanríkisráðherra. Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon Davíð Oddsson forsætisráðherra og Ástríður Thorarensen, eiginkona hans, buðu sænsku konungshjónunum og krónprinsessunni til hádegisverðar í bústað forsætisráðherra á Þingvöllum að lokinni skoðunarferðinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.