Morgunblaðið - 09.09.2004, Page 15
MINNSTAÐUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 15
Kópavogur | Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráðherra
leit í heimsókn til krakkanna í 6.Þ. í
Snælandsskóla í gær ásamt fulltrúa
Landverndar og ræddi við þau um
þeirra helsta hugðarefni þessa dag-
ana, leitina að þjóðarblóminu.
Þjóðarblómið verður valið með
skoðanakönnun í október, en 20
plöntur, sem þykja koma til greina,
hafa verið kynntar landsmönnum í
sumar. Krakkar í skólum landsins
hafa einnig sitt að segja, og geta þau
skilað inn sínum tillögum til 15. sept-
ember, og er vonast til að hver skóli
komi sér saman um eitt blóm til að
tilnefna með lýðræðislegum hætti.
Þóra Ragnarsdóttir, umsjón-
arkennari 6.Þ., segir að krakkarnir
hafi verið mjög ánægðir með heim-
sóknina, og þau taki hlutverkið við
að hjálpa til við að velja þjóð-
arblómið mjög alvarlega.
„Þetta var voðalega skemmti-
legur og notalegur fundur,“ segir
Þóra. Krakkarnir hafa mikið rætt
um þjóðarblómið, og m.a. farið í Al-
viðru, fræðslusetur Landverndar,
þar sem þau tíndu sýnishorn af
plöntum og settu á veggspjald.
Kusu blóm innan bekkjarins
„Þau [krakkarnir] voru alveg búin
að mynda sér skoðun um hvaða
plöntu þau myndu velja af þessum
topp 20 plöntum sem eru á vegg-
spjaldinu, en það er engin skylda að
kjósa eina af þeim, auk þess sem
einnig á að velja landshlutablóm,“
segir Þóra. Krakkarnir í 6.Þ. kusu á
milli þeirra 20 blóma sem hafa verið
tilnefnd, og segir Þóra greinilegt að
skiptar skoðanir séu um þetta, þar
sem þau blóm sem fengu flest at-
kvæði, geldingahnappur og æti-
hvönn, fengu ekki nema fjögur at-
kvæði hvort, en 23 krakkar eru í
bekknum. Í öðrum bekkjum segir
Þóra að atkvæði hafi fallið öðruvísi,
þar sem meirihluti hafi yfirleitt valið
gleym-mér-ei.
Þóra segir að lögð sé mikil áhersla
á að þetta sé lýðræðislegt val, svo
þeir krakkar sem myndu helst kjósa
ákveðið blóm sem þjóðarblóm verði
ekki óánægðir ef annað blóm verður
fyrir valinu, heldur ánægð að hafa
fengið að taka þátt í valinu. „Krakk-
arnir í mínum bekk vildu hafa þetta
eins og alvöru kosningar, þegar ver-
ið er að kjósa forseta, þær yrðu í
framboði og svo ætti að búa til fram-
boðshópa í kringum hverja plöntu.
Þannig mætti gera þetta skemmti-
legt og eftirminnilegt,“ segir Þóra.
Spjölluðu við ráðherra
um þjóðarblómið
Morgunblaðið/Golli
Krakkarnir í 6. Þ funduðu með Þorgerði Katrínu menntamálaráðherra.
Breytingum
á greiðslum
frestað
Reykjavík | Líklegt er að fresta
þurfi breytingum sem fyrirhugað
var að gera á fyrirkomulagi á nið-
urgreiðslum Reykjavíkurborgar á
félagslegum leiguíbúðum, en ráðgert
var að taka breyttar reglur í notkun
um næstu áramót. Engar ákvarðanir
hafa þó verið teknar um frestun.
Breytingarnar eiga að felast í því
að borgin hætti að greiða fasta upp-
hæð með hverri íbúð eins og verið
hefur, og greiði frekar viðbót á húsa-
leigubætur fyrir þá sem þurfa að-
stoðina. Svipað kerfi hefur verið í
notkun til að stytta biðlista eftir fé-
lagslegum íbúðum, og hefur gefist
vel. Þar eru greiddar sérstakar
húsaleigubætur fyrir þá sem leigja á
opnum leigumarkaði, og eru þær
1.300 kr. fyrir hverjar 1.000 kr. sem
einstaklingur er með í húsaleigubæt-
ur.
Björk Vilhelmsdóttir, formaður
félagsmálaráðs Reykjavíkur, segir
að þó að ráðgert hafi verið að breyta
kerfinu um næstu áramót sé vinna
við breytingarnar líklega ekki komin
nægilega langt til að það geti gerst.
Hún segir að kynna þurfi breyting-
arnar með góðum fyrirvara og því sé
ólíklegt að það náist fyrir áramót,
enda undirbúningur málsins kominn
of stutt miðað við það sem sam-
þykktir borgarinnar gerðu ráð fyrir.
Róluvöllur um kyrrt | Skipulags-
og byggingarráð Hafnarfjarðar hef-
ur synjað erindi þar sem íbúar húss
við Blikaás fara fram á að róluvöllur
sem stendur bak við hús þeirra verði
fjarlægður vegna mikils ónæðis. Í
fundargerð ráðsins kemur fram að
staðsetning róluvallarins sé í sam-
ræmi við gildandi deiliskipulag sem
hlotið hafi vandaða málsmeðferð og
lögformlega afgreiðslu, auk þess
sem hönnun leiksvæðisins hafi verið
unnin í fullu samráði við nágranna.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
♦♦♦