Morgunblaðið - 09.09.2004, Page 16
MINNSTAÐUR
16 FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
EINSTAKT
TÆKIFÆRI
FYRIR
ATHAFNAFÓLK
Sími 594 5000 - Fax 594 5001
Lynghálsi 4//110 Reykjavík//Lögg. fasteignasali Halla Unnur Helgadóttir
Blómaverslun í rúmgóðu, björtu og
vel staðsettu húsnæði. Góð leiga.
Góð staðfest velta og rekstraraf-
koma. Láttu drauminn rætast og
skapaðu listhneigð þinni og sjálf-
stæði glæsilegt tækifæri.
Verð – tilboð.
*NÝTT Á SKRÁ*
Mjög falleg 103,8 fm,
3ja herbergja endaíbúð
á 2. hæð í 3ja hæða
fjölbýli við Fálkahöfða.
Tvö stór svefnherbergi,
sjónvarpshol, stór
stofa, eldhús m/borð-
krók, sérþvottahús og baðherbergi m/kari og sturtu. Rúmgóðar
svalir með miklu útsýni út á Sundin. Lánshæfi m.v. ásett verð og
80% lán, kr. 12.160.000. Eftirstöðvar kr. 3.040.000. Greiðslubyrði
m.v. 40 ára lán með 4,2% vöxtum er ca. kr. 52.445 á mánuði án
verðbóta. Verð kr. 15,2 m.
Fálkahöfði – Mosfellsbæ
HANA dreymir um að komast á Kaldbak. Og
vonar innilega að sá draumur rætist nú í vetur.
Að sitja í snjóbíl alla leið upp á topp og njóta
útsýnisins þegar þangað er komið.
Þetta er draumur Sesselju Benediktsdóttur,
íbúa á Dalbæ á Dalvík. Hún varð 100 ára á
laugardaginn var, 4. september.
Æskuslóðir Sesselju eru á Grenivík og henni
þykir vænt um heimaslóðirnar; horfir gjarnan
þangað yfir, á þorpið sitt og fjallið þar sem
hún situr í matsalnum á Dalbæ. Fylgist með úr
fjarlægð.
Sesselja fæddist að Grímsnesi á Látraströnd,
næst elst fimm barna hjónanna Benedikts Sig-
urðssonar sjómanns og Petreu Oddsdóttur hús-
móður og fiskverkakonu. Elst var Elín, fædd
1902 og lést á níræðisaldri, þá Sesselja, bræður
hennar voru Finnur, látinn og Oddur sem
drukknaði 8 ára gamall en yngst var Anna
María sem dó úr berklum. Fjölskyldan bjó fyrst
í Búð á Grenivík en foreldrarnir byggðu svo
húsið Sæborg og bjó Sesselja þar til 14 ára ald-
urs er hún fór í kaupavinnu í Miðvík. Síðar var
hún kaupakona á Möðruvöllum í Hörgárdal um
5 ára skeið en til Dalvíkur flutti hún ásamt 3ja
ára gömlum syni sínum, Ólafi Níelssyni árið
1943. Son sinn, Pétur Benedikt Einarsson
þurfti hún á láta frá sér, en hann dó 7 ára
gamall úr berklum, árið 1942.
„Ég vann ýmsa vinnu, var í síld og á frysti-
húsinu,“ sagði Sesselja en hún var einstæð
móðir og þurfti að sjá sér og syninum farborða
með þeirri vinnu sem tiltæk var. Mæðginin
bjuggu lengi að Bergþórshvoli, Bergó eins og
húsið var kallað á Dalvík, en keyptu svo rað-
húsíbúð við Brimnesbraut og bjuggu þar. Í
febrúar árið 1998 lærbrotnaði Sesselja og flutt-
ist þá á Dalbæ og hefur verið bundin hjólastól
síðan. „Ég hef alltaf verið hraust og alltaf unn-
ið mikið,“ sagði hún en m.a. skúraði hún í
Kaupfélaginu þar til hún varð 75 ára gömul.
Hætti eftir að hafa tognað í baki. Auk þess að
hafa verið í síld og fiskvinnslu, farið á vertíðar
suður, vann hún við slátrun, heyvinnu, laufa-
brauðsgerð, þvoði þvotta og sá um hreingern-
ingar fyrir fólk í bænum og hafði menn í fæði í
sláturtíð.
Sesselja hefur fótaferð á hverjum degi, fylg-
ist með fréttum og horfir á sjónvarp, hefur
m.a. ánægju af því að horfa á ameríska sápu-
óperu um hádegisbilið. Áður fyrr hafði hún
gaman af því að ferðast um landið og fór í
skemmtiferðir með Slysavarnafélaginu og Ein-
ingu. „Nei, ég hef aldrei komið til útlanda.
Langar ekkert þangað. Vil bara vera á mínu
landi,“ sagði hún.
Hún segir vistina á Dalbæ ágæta, „mér líkar
vel, gott að vera hérna, það eru allir góðir.“ Á
afmælisdaginn var móttaka henni til og barst
henni fjöldi gjafa, blóma og skeyta, m.a. frá
forseta Íslands. „Það var mikið, margt og
gott,“ sagði hún um veisluna og gestina.
Henni hefur líkað vel á Dalvík, en er ekki
frá því að best sé að vera á Grenivík, „svona
nálægt sjónum og sjóköllunum,“ eins og hún
orðaði það. Í fyrrasumar vitjaði hún æskuslóð-
anna og þá var ekið svo langt upp í Kaldbak
sem vegurinn náði. Draumurinn er hins vegar
að komast á toppinn. Á það er stefnt nú í vet-
ur. „Já, ég gæti vel komist, ég er það hress,“
sagði hún.
Sesselja sagðist ekkert vita um hverju hún
gæti þakkað langlífið. Hún hefði samt alltaf
verið hraust, jákvæð, glöð og viljug til verka.
Sesselja Benediktsdóttir á Dalbæ hin sprækasta þrátt fyrir háan aldur
Vill komast á Kaldbak
Morgunblaðið/Kristján
Sesselja Benediktsdóttir: Hundrað ára og þokkalega hress í blómahafi á herbergi sínu á Dalbæ á Dalvík.
Engin illska | Haustið verður
ágætt. Vissulega kominn tími
haustvinda og vætu, næturfrosta og
gráma í fjöllum, „en það verður
engin illska í veðrinu“, segir í nýrri
veðurspá Veðurklúbbsins á Dalbæ
á Dalvík. Spámenn þar á bæ vilja
ekki að svo komnu segja fyrir um
hvernig veturinn veður, fyrst þarf
að sjá hvernig fyrsta vetrartungl
fer að stöfnum. Gera má ráð fyrir
vetrarspánni um miðjan næsta
mánuð. Veðurklúbbsfélagar telja að
haustið verði ágætt, svipað veður
áfram en í næstu viku kviknar nýtt
tungl í suðsuðvestri og þá gætu
veður farið að skipast í lofti. Fram-
haldið fari eftir því hvernig hann
taki tunglinu. Búast megi við
óstilltu veðri, rysjóttu og éljagangi
í fjöllum verði suðvestan áttir
ríkjandi, en meiri rigning og ef til
vill slydda komi hann með norðan-
átt.
Samhygð | Vetrarstarf Sam-
hygðar er að hefjast og byrjar með
fyrsta opna húsinu nk. fimmtudags-
kvöld, 9. september, kl. 20.30 í safn-
aðarsal Akureyrarkirkju. Gestur
fundarins er séra Arnaldur Bárð-
arson.
Neskaupstaður | Halldór Ás-
geirsson í Neskaupstað fær til
sín á verkstæðið gömul eðal-
húsgögn, hlustar eftir sögu
þeirra og myndugleik og
nostrar svo við að bólstra þau
og laga uns líta út eins og ný.
Svo kennir hann ungum Norð-
firðingum að aka bíl þess á
milli.
Hann hefur rekið bólstrun-
arverkstæði í bænum í tuttugu
ár og á fjörur hans rekið allt
milli himins og jarðar í hús-
gögnum. Hann bólstrar skip-
stjórastóla og skipssessur,
gefur gömlum bílsætum yfir-
halningu og núna síðast var
hann uppi í Kárahnjúkum að
klæða og setja saman fínasta
billjarðborð í Landsvirkjunar-
búðunum.
Fiskiðjuverið rekið á saumavél
bólstrarans heila loðnuvertíð
Halldór er Breiðdælingur og fór
suður árið 1975 til að nema bólstrun
hjá Trésmiðjunni Víði. Eftir níu ár
syðra kom hann austur aftur ásamt
konu sinni og ungum syni og settist
að í Neskaupstað.
Síðustu árin hefur Halldór verið
eini bólstrarinn á Austurlandi og hef-
ur nóg að gera. „Ég er aldrei nokk-
urn tímann verkefnalaus, fæ mikið
sent til mín af verkefnum úr fjórð-
ungnum, en heimamenn nota sér
þjónustuna líka.“
Skemmtilegast finnst Halldóri að
gera upp gömul húsgögn. „Geti ég
einbeitt mér að því. Þegar maður er
einyrki í vinnu eru alltaf að koma inn
verkefni sem þarf að klára í snarhasti
og þá verður að leggja annað til hlið-
ar á meðan, sem er stundum trufl-
andi.“
Margur merkisstóllinn hefur farið
um hendur Halldórs og hann segist
sérstaklega muna eftir einum. „Það
var þegar komið var með gamla bæj-
arstjórastólinn hans Bjarna heitins
Þórðarsonar. Það var gaman að fást
við, þó ekki væri hann sérlega verð-
mætur, en hann átti sér merka sögu.
Svo var það nú þegar nýja fiskiðju-
verið opnaði hér í Neskaupstað og
loðnuvertíð hafin, að reimar á pakk-
ara fóru að gefa sig hver af annarri.
Ég var dag og nótt á vaktinni á þeirri
loðnuvertíð við að sauma og líma
reimarnar svo allt stoppaði nú
ekki. Þeir sögðu gárungarnir
að fiskiðjuverið sem kostaði
milljarða, hefði verið rekið á
saumavél bólstrarans þá ver-
tíðina!“
Max hent á haugana en nú
vilja allir eiga slík húsgögn
Halldór er núna að gera upp
gamalt Max-sett sem hann seg-
ir vera eitt það skemmtilegasta
sem hann geri. „Það var karl
sem hét einmitt Max, sem skar
þessi sófasett út í höndunum í
Trésmiðjunni Víði, þar sem ég
lærði, að vísu fyrir minn tíma.
Ég var samt svo heppinn að fá
að búa til tvö síðustu settin úr
grindunum frá Max, sem ég
held að hafi verið þýskur. Þessi
sett eru til nokkuð víða um land
og vilja allir eiga þau. Því miður var
þeim hent í stórum stíl á tímabili,
þegar húsgögn af þessu tagi áttu ekki
upp á pallborðið hjá landanum.
Fólki sem á svona í dag er virki-
lega annt um þetta og vill láta gera
settin almennilega upp. Þá er betra
að gefa sér lengri tíma og gera hlut-
ina virkilega vel.“
Halldór er inntur eftir því hvort
hann sé ekki býsna vandlátur á setin í
sínu húsi. „Þetta er nú eins og með
bifvélavirkjana, þeir eiga alltaf bilað-
ar druslur. Ég segi kannski ekki að
húsgögnin mín séu mikið biluð, en
það er eins og það sé alltaf það síð-
asta á verkefnalistanum,“ segir Hall-
dór og heldur áfram að nostra við
gamla Max-stólinn.
Eini bólstrarinn á Austurlandi og nostrar jafnt við gömul
gæðahúsgögn sem billjarðborð í Kárahnjúkum
Bjargaði loðnuvertíð
með saumavélinni
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Þessu var hent í stórum stíl en nú vilja allir eiga
svona húsgögn: Halldór Ásgeirsson bólstrari við
einn af gömlu öndvegisstólunum frá Max.
AKUREYRI
AUSTURLAND
Skipulag á lóð Baldurshaga | Al-
mennur kynningarfundur um skipu-
lag á lóð Baldurshaga verður hald-
inn í Ketilhúsinu í kvöld,
fimmtudagskvöld, kl. 20. Umhverf-
isdeild boðar til þessa opna fundar
samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar
en á fundinum verður kynnt tillaga
að 12 hæða fjölbýlishúsi við Þórunn-
arstræti norðan Lögreglustöðvar.
Talsverðar umræður spunnust í
bænum um þessa tillögu og því ætti
fundurinn að vekja verðskuldaða at-
hygli og verður vonandi vel sóttur af
bæjarbúum, segir á vef Akureyr-
arbæjar.