Morgunblaðið - 09.09.2004, Page 21

Morgunblaðið - 09.09.2004, Page 21
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 21 borgararnir líta á þá sem samfélag- lega byrði. Ungu fólki sem orðið hefur öryrkjar af völdum geð- sjúkdóma hefur fjölgað á síðustu áratugum. Margir þeirra verja mestum tíma einir og stefna ekki á að komast af örorkubótum. Þeir sem veikjast ungir upplifa fordóma, hafa litla möguleika á menntun, hvað þá vinnu sem höfðar til þeirra. Þrátt fyrir alls konar fræðslu og herferðir t.d. í Bretlandi virðast for- dómar í garð geðsjúkra ekki dvína. Atvinnurekendur vilja ekki ráða þá til vinnu og fólk er enn hrætt við að segja frá því hvað hrjáir það. Ef geðsjúkir fá vinnu þá er hún oft illa launuð og reynir ekki á hæfileika þeirra eða reynslu. Ekki þarf heldur að afla mikilla tekna til að missa ör- orkubæturnar og fólk tekur ekki slíka áhættu. Ef menn eru á annað borð komnir á örorkubætur virðist nær ógerningur að snúa til baka til virkrar þátttöku í atvinnulífinu. Ef sporna á við þessari þróun þarf sameiginlegt átak margra að- ila. Ef við viljum auka atvinnuþátt- töku geðsjúkra verður að skapa breiða fylkingu karla og kvenna. Málefnið er líka á ábyrgð borg- aranna en ekki eingöngu geðheil- brigðisþjónustunnar. Geðheilbrigð- isþjónustan hefur verið einangruð; með eigin markmið, menningu, regl- ur og gildi. Hún er sveipuð dulúð og fáir útvaldir fara með völdin, fjár- magnið, hugmyndafræðina, þekk- inguna, vísindin og sannleikann. Við borgararnir eigum að hætta að firra okkur ábyrgð í málefnum geðsjúkra og fara að horfast í augu við eigin fordóma og sýna að þetta varðar okkur öll og skiptir miklu máli. Stjórnmálamenn, atvinnurekendur, verkalýðsfélög, lífeyrissjóðir, Tryggingastofnun, einkaaðilar, fag- fólk, aðstandendur og geðsjúkir í bata verða að taka þátt í stefnumót- un ef eitthvað á að breytast. Ef auka á þátttöku geðsjúkra í samfélaginu í heild þarf nám, tómstundavinna og vinnustaðir geðsjúkra að flytjast frá geðheilbrigðisþjónustunni yfir í borgaralegt samfélag. Geðsjúkir verða alltaf á meðal okkar og engin lausn felst í því að útiloka þá frá heildinni. Við gætum líka sjálf þurft að berjast við geðræna sjúkleika. Þeir sem starfa við starfsendurhæf- ingu eiga að skapa störf innan síns geira til að sýna í verki að atvinnu- þátttaka er möguleg fyrir geðsjúka. Ef þeir sjálfir geta ekki unnið við hlið geðsjúkra á jafnréttisgrundvelli hvernig er þá hægt að ætlast til að vinnumarkaðurinn sé tilbúinn til þess. Hugarafl er samstarfshópur geð- sjúkra í bata og iðjuþjálfa sem ætla að sýna fram á að geðsjúkir séu van- nýtt vinnuafl. Hópurinn ætlar að skapa atvinnutækifæri fyrir geð- sjúka í verkefnum sem hafa þýðingu og gildi fyrir þá. Hópurinn ætlar m.a. að gera sýnilegt hvað það er í umhverfinu og í einstaklingnum sjálfum sem er batahvetjandi og efl- ir færni fólks, atriði sem atvinnu- markaðurinn og stjórnvöld geta síð- an nýtt sér í framtíðinni. Nauðsynlegt er að fá stuðning yf- irvalda til að gera þetta að veruleika og Nýsköpunarsjóður námsmanna og heilbrigðisráðuneytið sýndu það í verki í sumar með því að styrkja tvo iðjuþjálfanema frá Háskólanum á Akureyri til að verkstýra nýsköp- unarverkefninu „Notandi spyr not- anda“. Markmið verkefnisins var þríþætt og einn þátturinn var að skapa atvinnutækifæri fyrir geð- sjúka sem gæðaeftirlitsmenn fyrir geðheilbrigðisþjónustuna. Sem gæðaeftirlitsmenn könnuðu þeir við- horf geðsjúkra til þjónustunnar og fengu bæði fram það sem vel er gert og einnig það sem betur má fara. Afar mikilvægt er að reglulegar út- tektir séu gerðar á þeim stofnunum sem almenningur heldur uppi með skattfé sínu s.s. þeim sem sjá um þjónustu við geðsjúka. Á það ekki síst við hér á landi þar sem fólk hef- ur lítið sem ekkert val um hvaða þjónustu það getur sótt. Notendaúttektir munu skapa at- vinnutækifæri fyrir geðsjúka og jafnframt koma á gagnvirku sam- bandi milli þjónustuaðila og notenda um það sem er árangursríkt í þjón- ustunni og það sem ekki stenst. ’ Ef við viljum auka at-vinnuþátttöku geð- sjúkra verður að skapa breiða fylkingu karla og kvenna.‘ Höfundur er forstöðuiðjuþjálfi geðsviðs LHS og lektor við HA. tróna efst í hópnum. Þeir kunna að glíma við aðra karlmenn, en hér dugar e.t.v. ekki sama „taktík“. Ein möguleg og mikið notuð lausn á þessu máli í karlahópum (en í dag er það litið hornauga á Vesturlöndum að útiloka konur) er að handvelja konur í hópinn, konur sem þegar hafa lýst yfir aðdáun sinni á leiðtoga karlahópsins og virðingu sinni á goggunarröðinni. Þannig telst hóp- urinn blandaður, en konur eru þar velkomnar fyrst og fremst meðan þær trufla ekki valdastrúktúr/ goggunarröð hópsins, og geta jafn- vel fegrað ímynd hópsins út á við. Kvennahópar hafa aðrar aðferðir við val í goggunarröðina og er valdníðsl- an almennt minni en í mörgum karlahópum. Við skulum ekki gleyma því að mestu glæpaverk sög- unnar, hvort sem um litla hópa eða heilar þjóðir er að ræða, voru fram- kvæmd af karlahópum, þar sem kon- ur voru yfirleitt í aukahlutverkum. Valdníðsla er auðvitað þekkt í kvennahópum, en aðferðirnar eru oftast meira í formi andlegs ofbeldis, s.s. útilokunar, frystingar, baktals og ýmiss konar niðurlægingar. Karl- ar, sem koma inn í kvennahópa, eru einnig líklegir til að breyta valda- strúktúr/goggunarröð kvennahópa og virða konur á „vitlausum stað“ í goggunarröðinni leiðtogunum til skapraunar. Blandaðir hópar almennt heilbrigðastir Það er heilbrigðismerki á hópi að bæði kynin skiptast á leiðtoga- hlutverkinu, eða a.m.k. keppi reglu- lega um það hlutverk. Þeir hópar, þar sem slíkt á sér ekki stað eru skemmra á veg komnir. Sú arfleifð, sem einkenndi (og einkennir enn) marga hreina karlahópa, má kalla „ákvarðanatöku í reykfylltum bak- herbergjum“ virðist henta konum, sem hópi illa. Hugtakið „reykfyllt bakherbergi“ á hér við aðferðir við ákvarðanatöku, sem ekki þola vel ljósið. Þær eru því líklegri en karlar til að „kjafta frá“, eins og kom fram í hneykslismálum í Bandaríkjunum, s.s. Enron, World Com o.fl. Karlar, sem stunda „ákvarðanatökur í reyk- fylltum bakherbergjum“ forðast að hleypa konum of nálægt sér í met- orðastiganum, nema þá helst að þær séu yfirlýstir aðdáendur þeirra og/ eða „sauðtryggar“, en jafnvel það nægir ekki alltaf. Rétt er að minna á að hér er gjarnan um ómeðvituð ferli í hópum að ræða og goggunarröðin sem slík er oftast ekki rædd, heldur verður „einhvern veginn“ til. Það er mikilvægt að hafa of- annefnda þætti í huga þegar reynt er að skilja hvers vegna konum (og körlum) er hafnað þegar um valda- stöður er að ræða þrátt fyrir mennt- un og verðleika. Jafnframt eru les- endur beðnir velvirðingar á því hve hér er stiklað á stóru á svo víðtæku efni. ’Það er heilbrigð-ismerki á hópi að bæði kynin skiptast á leið- togahlutverkinu, eða a.m.k. keppa reglulega um það hlutverk.‘ Höfundur er geðlæknir með sálgreiningu hópa (group analysis ) m.a. sem sérsvið. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Í dag kl.17 er heilsuþátturinn vinsæli á dagskrá útvarps Sögu 99,4 Þátturinn í dag er í umsjá Einars Karls Haraldssonar sem ræðir m.a. við Sigurð Björnsson, yfirlækni og Hákon Hákonarsson, framkvæmdastjóra hjá Íslenskri erfðagreiningu, um ný krabbameinslyf, nýja von fyrir sjúklinga og ný vandamál fyrir heilbrigðiskerfið. Hlustendum er velkomið að senda spurningar og ábendingar til þáttarins með rafpósti á heil@internet.is Misstu ekki af íslenska heilsuþættinum á Útvarpi Sögu 99,4! Dömu öklaskór reimaðir FIMMTUDAGS TILBOÐ Litur: Svört Stærðir: 36-41 Litur: Hvítt og svart Stærðir: 36-41 Suðurlandsbraut 54, sími 533 3109 Verð áður 4.995 kr. Verð nú 2.995 kr. Dömu stígvél reimuð Verð áður 4.995 kr. Verð nú 2.995 kr. GNITAHEIÐI 12A - OPIÐ HÚS Stórglæsilegt 174 fm raðhús með bílskúr á tveim hæðum og risrými. Glæsilegt útsýni. Eignin skiptist í eldhús, gestasnyrtingu, stofu og borðstofu á efri hæð. Þrjú svefnherb., baðherb. og þvottaherb. á neðri hæð. Í risi eitt opið rými tilbúið til innréttinga. Fallegar sérsmíðaðar innréttingar og flísar og parket á gólfum. Áhv. húsbréf 5,6 millj. Verð 27,9 millj. Jón verður á staðnum frá kl. 17-19 í dag. 564 6464 Síðumúla 24 • 108 Reykjavík hof@hofid.is • www.hofid.is Guðm. Björn Steinþórsson lögg. fasteignasali Jón Guðmundsson sölustjórifasteignasala

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.