Morgunblaðið - 09.09.2004, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 23
VLADÍMÍR Pútín, forseti Rúss-
lands, hefur fyrirskipað uppstokkun
á öryggisstofnunum eftir gíslatök-
una blóðugu í grunnskólanum í
Beslan í Norður-Ossetíu. Sérfræð-
ingar eru á hinn bóginn fullir efa-
semda um að rússnesk stjórnvöld
geti komið í veg fyrir frekari að-
gerðir hryðjuverkamanna frá
Tétsníu.
Um liðna helgi ávarpaði Pútín
rússnesku þjóðina og skýrði m.a. frá
því að öryggisstofnanir hefðu
brugðist gagnvart hryðjuverkaógn-
inni. Hét hann því að öll starfsemi
þeirra yrði tekin til endurskoðunar í
því augnamiði að tryggja öryggi
þegnanna.
Yfirmaður lögreglunnar í Norð-
ur-Ossetíu sagði af sér eftir blóðbað-
ið í Beslan en sérfræðingar kveðast
telja að rússneskar öryggisstofnanir
séu trúlega ófærar um að koma í veg
fyrir frekari hryðjuverk. Benda þeir
á nokkrar árásir hryðjuverkamanna
frá Tétsníu á undanliðnum vikum
sem þeir segja einkennast af mikilli
dirfsku. Rússneskar leyniþjón-
ustustofnanir hafi ekki megnað að
koma upp um áform skæruliðanna.
„Starfsemi FSB [rússnesku ör-
yggislögreglunnar, arftaka KGB]
miðast enn við sovét-kerfið. Hún er
ekki fær um að takast á við svo um-
fangsmikla hryðjuverkastarfsemi,“
segir Alexei Malashenko, sérfræð-
ingur í málefnum Tétsníu, sem
starfar við Carnegie-hugveituna í
Moskvu. „FSB ræður hvorki yfir
nauðsynlegum mannafla né reynslu.
Þetta hefur komið á daginn eftir því
sem hryðjuverkin hafa riðið yfir á
undanliðnum vikum,“ segir hann í
viðtali við AFP-fréttastofuna.
Auk blóðbaðsins í Beslan létu tét-
senskir hryðjuverkamenn til sín
taka í Moskvu um mánaðamótin þar
sem þeir myrtu tíu manns í
sprengjutilræði. Nokkrum dögum
áður höfðu hryðjuverkamenn frá
Tétsníu grandað tveimur rúss-
neskum farþegaþotum með 89
manns innanborðs.
Frá því Pútín forseti ákvað að
hefja hernað í Tétsníu á ný árið 1999
hafa hryðjuverkamenn ítrekað
gengist fyrir sprengjuárásum á
Norður-Kákasus-svæðinu og í
Moskvu. Hafa þeir m.a. gert árás á
jarðlestakerfið í höfuðborginni og
staðið fyrir sprengjutilræði á rokk-
tónleikum. Þá tóku hryðjuverka-
menn frá Tétsníu um 800 manns í
gíslingu í leikhúsi í Moskvu í októ-
bermánuði árið 2002. Þeirri árás
lauk með allsherjar blóðbaði þegar
rússneskar sérsveitir réðust gegn
skæruliðunum eftir að hafa dælt inn
í bygginguna gasi sem varð um 130
gíslum að fjörtjóni.
Sjálfboðaliða
virðist ekki skorta
Mörgum virðist sem skæruliðum í
Tétsníu sé ekkert að vanbúnaði að
herða enn frekar á aðgerðum sínum.
Benda sérfræðingar á að hryðju-
verkahópar hafi komið sér fyrir í
Rússlandi og á Kákasus-svæðinu og
svo virðist sem sjálfboðaliða skorti
ekki til að taka þátt í aðgerðum. Þar
ræðir m.a. um konur, „svörtu ekkj-
urnar“ svonefndu, sem vitað er að
framkvæmt hafa margar árásirnar
með því að bera um sig sprengju-
belti og fórna um leið lífi sínu.
„Við stöndum nú frammi fyrir við-
varandi hryðjuverkastríði. Hryðju-
verkamenn hafa látið til skarar
skríða fjórum sinnum í Rússlandi á
tveimur vikum og öryggisstofnanir
okkar eru þess ekki megnugar að
bregðast við,“ segir Pavel Felgen-
hauer í viðtali við AFP en hann er
sjálfstætt starfandi sérfræðingur á
vettvangi hernaðar og öryggismála.
„Spilling er djúpstæð innan örygg-
isstofnana og lögreglu. Stjórnendur
þeirra eru vanhæfir og það hefur
Pútín viðurkennt. En því miður er
líklegast að viðbrögðin felist í auk-
inni kúgun, múlbindingu fjölmiðla
og skertum borgaralegum réttind-
um. Og því meiri sem kúgunin verð-
ur því meiri verður stuðningurinn
við hryðjuverkamennina [í Tétsn-
íu],“ bætir hann við.
Þörf á ráðuneyti heimavarna
Staníslav Lekarev, sem forðum
var háttsettur innan rússnesku
leyniþjónustunnar, telur að stjórn-
völd í Moskvu verði að fara svipaða
leið og Bandaríkjamenn hafa gert í
baráttunni gegn hryðjuverkaógn-
inni. Hann telur að Rússar eigi líkt
og Bandaríkjamenn að koma sér
upp ráðuneyti heimavarna til að
samhæfa starfsemi hinna ýmsu
leyniþjónustu- og öryggisstofnana.
Hann telur þó enn meiri þörf á því að
leyniþjónustan verði efld til að unnt
reynist að afla upplýsinga um áform
hryðjuverkamanna, að því er fram
kemur í viðtali hans við vikublaðið
Moskovskíje Novostí. „Öflun leyni-
legra upplýsinga er mikilvægasti lið-
urinn í hryðjuverkastríðinu. Við
munum aldrei sigra í því ef okkur
tekst ekki að koma upp neti njósn-
ara sem afla upplýsinga en ef marka
má rás atburða á undanliðnum vik-
um í Rússlandi er slíkt net einfald-
lega ekki til.“
Paul Beaver, virtur breskur sér-
fræðingur á sviði varnarmála, telur
öryggisstofnanir Rússa og stjórn-
endur þeirra gjörsamlega hafa
brugðist í Beslan. Ábyrgð þeirra sé
mikil því þeim hafi engan veginn
tekist að benda á möguleg skotmörk
hryðjuverkamanna.
Malashenko sem starfar við
Carnegie-hugveituna telur að hertar
gagnaðgerðir gegn hryðjuverka-
mönnum muni duga skammt. Sú
„harðlínustefna“ sem Pútín fylgi
skapi frjósaman jarðveg fyrir
hryðjuverkamenn á Kákasus-svæð-
inu. Hryðjuverkamenn verði ekki
upprættir nema leitað verði póli-
tískra leiða til að kalla fram eitthvað
sem nefna megi „eðlilegt ástand“
þar syðra.
Fréttaskýring|Hryðjuverkin í Norður-Ossetíu og eftirmál þeirra
Fá Rússar varist nýju ógninni?
!"!#$# %
! "
#$%& '(%&
!
"
#
$
%&'!(
)
*
,
! "
%) *+,
-
#-./$
#$ %&'$''$ ! ( )$*+$ " ( )$,-$./+$) '
, $0.&1'( $1$( ) $$1 &$+ !!$')$ $$ '2
34$1$1') &$ *!$ )$0.&1'$*+$!5 1+$1''(! ( 2
#*0
Margir sérfræðingar telja að rússnesk stjórn-
völd standi nú frammi fyrir viðvarandi stríði
við hryðjuverkamenn. Öryggis- og leyniþjón-
ustustofnanir Rússa eru hins vegar sagðar
ófærar um að bregðast við ógninni.
Stjórnvöld í Moskvu herðanú mjög baráttuna gegnhryðjuverkamönnum ogþeim
sem þau segja að
styðji slík öfl.
Rússneska ör-
yggislögreglan,
FSB, hét í gær
hverjum þeim
sem gæti gefið
upplýsingar er
dygðu til að gera
tétsensku upp-
reisnarleiðtog-
ana Shamil Basajev og Aslan
Maskhadov „óvirka“, 300 milljón-
um rúblna, um 730 milljónum ís-
lenskum krónum. Moskvustjórnin
segir að þeir hafi báðir staðið á
bak við gíslatökuna í Norður-
Ossetíu í liðinni viku sem endaði
með blóðbaði.
Í yfirlýsingu FSB voru gefin
upp símanúmer í Moskvu og
Tétsníu sem fólk gæti hringt í ef
það hefði slíkar upplýsingar og
yrði það hægt allan sólarhringinn.
Þess yrði vandlega gætt að
ljóstra ekki upp um nöfn þeirra
sem hringdu. Basajev hefur á
netsíðu lýst á hendur sér ábyrgð
á árás sem gerð var á lögreglu-
stöðvar og opinberar skrifstofur í
Ingúsetíu, grannhéraði Tétsena, í
júní en alls féllu um 90 manns í
þeim átökum.
Mashkadov hefur með aðstoð
talsmanns síns í London, Ak-
hmeds Zakajevs, gefið út yfirlýs-
ingu þar sem árásin á skólann í
N-Ossetíu er fordæmd. Ekki sé
hægt að réttlæta með nokkrum
hætti „hryðjuverk gegn saklaus-
um borgurum“ og enginn liðs-
manna Mashkadovs hafi tekið
þátt í árásinni. Mashkadov var
kjörinn forseti Tétsníu 1997 eftir
stríðið við Rússa 1994–1996 en
tókst ekki að hafa hemil á ýmsum
vígahópum og gerðu Rússar aftur
innrás í héraðið 1999.
Aðgerðir utan Rússlands?
Forseti rússneska herráðsins,
Júrí Balúevskí, sagði í gærmorg-
un að Rússar myndu ráðast til at-
lögu gegn hryðjuverkamönnum
ekki síður utan landamæra Rúss-
lands en innanlands. Í fyrstu
fréttum af ummælum hans fór It-
ar-Tass-fréttastofan rússneska þó
rangt með þau og notaði orðalag-
ið „á hvaða svæði sem er“. Balú-
evskí mun hafa sagt að ráðist yrði
á stöðvar hryðjuverkamanna á
Kákasussvæðinu, í Mið-Asíu og á
öðrum stöðum í grennd við land-
ið.
Herráðsforsetinn tók fram að
ekki væri ætlunin að beita kjarn-
orkuvopnum í þessum aðgerðum
en ítrekaði fyrri yfirlýsingar rúss-
neskra ráðamanna um að menn
myndu ekki hika við að grípa til
„fyrirbyggjandi aðgerða“.
Mikið fé lagt til höfuðs
uppreisnarmönnum
Moskvu. AFP, AP.
Reuters
Myndbönd af fórnarlömbunum sem gíslatökumennirnir í Beslan skildu
eftir sig hafa vakið óhug. Hér sést ógreinileg mynd sem virðist vera af
vopnaðri konu er gæti verið ein af hinum svonefndu „svörtu ekkjum“ frá
Tétsníu. Þær munu hafa staðið fyrir blóðugum hermdarverkum.
Júrí Balúevskí
hitinn var
Við svona
gjóskuflóð
mdi flóð af
. Þetta er
óskuflóð-
fer á 100
á klukku-
tir. Svona
di öllu og
egir Har-
rifum eld-
um.
ð óneitan-
ilfinningu
grafa það
agrindur.
í slíkum
Árið 1982
á fjórum
í eldgosi í
na fórust,
s og fleiri
dið heilan
uta til er
ki nóg að
að velta
er undir.
m um æv-
árangur.
og ég er
varla búinn að átta mig enn á þessu,“
segir Haraldur.
Dýrmætur fundur
fyrir eldfjallafræðinga
Næsta skref hjá Haraldi er að
halda áfram skipulögðum rannsókn-
um og uppgreftri á Tambora og
varðveita þær rústir sem finnast.
Ætlar hann að fara aftur til Indónes-
íu í apríl á næsta ári, þegar regntím-
anum lýkur, en það byrjaði að rigna
á eldfjallinu síðasta dag leiðangurs-
ins í síðustu viku. Að sögn Haraldar
er þó ekki ætlunin að grafa allt þorp-
ið upp, enda yrði það gríðarlegt
verk, og bendir hann á að enn sé ver-
ið að grafa upp Pompei, 200 árum
eftir að sú borg fannst.
„Mikið er eftir að rannsaka.
Þarna hefur varðveist heil menning
frá 1815 og dýrmætt fyrir eldfjalla-
fræðinga að kanna nánar hvað gerð-
ist í þessu gosi og hver áhrifin urðu,“
segir Haraldur, sem hefur notið
mikillar velvildar heimamanna við
rannsóknir sínar. Eru þeir bæði
hrifnir og spenntir yfir fundi ís-
lenska vísindamannsins. Áhugi er
fyrir því að varðveita rústir úr bæn-
um og koma m.a. upp aðstöðu fyrir
ferðamenn. Þá hefur Haraldur hitt
nokkra afkomendur þeirra eyjar-
skeggja sem lifðu gosið af og hafa
sumir afhent honum muni sem fund-
ist hafa í fjallinu.
Haraldur segir íbúa þorpsins hafa
verið vel stæða á þessum tíma, í upp-
hafi 19. aldar. Fluttu þeir inn skraut-
muni frá Kína og Japan og stunduðu
m.a. útflutning á timbri og hestum.
„Þetta gat ég eftir allt saman“
Árangur Haraldar nú er ekki síst
merkilegur fyrir þær sakir að fyrir
tæpu ári var honum vart hugað líf.
Lá hann meðvitundarlaus á spítala í
Bandaríkjunum í rúman mánuð, eft-
ir að hafa fengið eitrun í kjölfar að-
gerðar þar. Í sjúkralegunni missti
hann 22 kíló, þessi annars granni
maður.
„Þegar ég kom út af spítalanum
með göngugrind hefði enginn spáð
því að ég ætti eftir að fara aftur á
Tambora, erfiðasta eldfjall heims,
fara ofan í gíginn og upp úr aftur, og
finna bæinn. Ég er því enn ánægðari
með að hafa afkastað þessu. Þetta
gat ég eftir allt saman, þótt gamall
sé,“ segir Haraldur og brosir stoltur.
osi sögunnar árið 1815
rian Breier
m grafn-
15.
bjb@mbl.is