Morgunblaðið - 09.09.2004, Page 27

Morgunblaðið - 09.09.2004, Page 27
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 27 mál væru í lagi. Alla vega skorti aldr- ei hey í búskapartíð Hauks og ávallt lagði hann mikla áherslu á að skepn- urnar hefðu úr nógu að moða. Það var honum mikið kappsmál að dýrin væru vel haldin og sælleg. Haukur hafði gaman af kveðskap og voru stökur honum ofarlega í huga. Þá var hann hafsjór af ýmiss konar alþýðufróðleik og kunni sögur af mönnum og málefnum. Þessari þekkingu miðlaði hann til annarra og oft var glatt í eldhúsinu á Helgafelli þegar var verið að segja sögur og fara með tækifærisvísur. Þennan flóðleik drakk undirritaður í sig og er Hauki ævarandi þakklátur fyrir. Í dag kveð ég Hauk og geri mér grein fyrir að með honum er genginn merkilegur maður sem vildi öllum vel og gerði sitt besta. Nú er hann lagður upp í förina sem við öll förum einhvern tíma eflaust glaður í bragði eins og hann var alltaf þegar hann lagði af stað í ferðalag; fróður um alla áfangastaði langt út fyrir Mosfells- sveitina. Minningin um Hauk lifir. Helgi Sigurðsson. Bóndi er bústólpi, bú er landstólpi því skal hann virður vel. (Jónas Hallgrímsson.) Afi Haukur var sannur sveitamað- ur, unni gróðri og skepnum. Afkom- endur Hauks eiga honum mikið að þakka að Helgafell sé okkar fjöl- skyldureitur. Hann hafði sérstakt dálæti á kindum enda með eindæm- um fjárglöggur. Okkur finnst skrítið að eiga ekki eftir að sjá hann rölta niður túnið með stóran heypoka á bakinu og allar kindurnar hans í halarófu á eftir honum. Já, það eru forréttindi að búa í þéttbýli en þó í sveit og hafa skepnur í nábýli. Sauð- burðurinn, lömbin með sinn sjarma, stelpurnar okkar og við fáum þvílíka upplifun í gegnum þær. Það er verið að hlaupa á eftir kindunum um öll tún, rýja og gefa þeim og svo má nú ekki gleyma þeim ófáu skiptum sem við þurftum að reka þær út úr garð- inum okkar og alltaf hvarf eitthvað, blóm, grávíðir eða fjallafurur og þá var nú ekki brosað. Afi Haukur var nú ekki bara afi heldur var hann vinur okkar allra. Nærvera hans var mjög góð, allir löðuðust að honum. Hann var fróður, skemmtilegur og hafði góða frásagn- argáfu. Við settumst gjarnan við eld- húsborðið hjá honum og ræddum um Mosfellssveitina, pólitíkina og hans uppvaxtarár, þetta voru sögur sem maður fékk aldrei nóg af og dýpkaði skilning okkar á samtíð hans. Einnig rölti hann oft til okkar að tilefnis- lausu, það gladdi okkur mjög, bæði litlu stelpurnar okkar og okkur. Ein- kenni hans komu þá svo glöggt í ljós rósemin og umhyggja hans fyrir öllu lífi. Hann var sannkallaður sælkeri sem passaði vel í okkar húsi. Við nut- um stundanna. Já, árin með afa Hauki eru okkur dýrmæt og við lærðum heilmargt af honum. En nú er þessari samleið lokið. Erfið veik- indi að baki. Eftir stöndum við hnípin og þakklát fyrir öll þessi góðu ár og þökkum af einlægni samfylgdina. Guð blessi þig Halla Karen og Elías. Elsku afi minn, sem við systkinin kölluðum alltaf afa gamla, nú ertu farinn frá okkur eftir slæm veikindi. Alveg frá því ég man eftir mér, man ég hvað það var gott að koma til þín og ömmu þótt ég hafi nú bara verið fimm ára þegar Anna amma dó. Ég man svo lítið eftir henni. Það eina sem ég man er þegar ég var inni í eldhúsi með ykkur og amma var að láta mig drekka nýmjólk en það vildi ég ekki vegna þess að heima hjá mér var aldrei til nýmjólk. Og ég sagði: Mamma mín lætur mig aldrei drekka svona mjólk. Ekki veit ég af hverju ég man eftir þessu. Mér finnst svo leiðinlegt að hafa kynnst henni svona lítið. En frá öllum sem ég þekki hef ég heyrt að hún hafi verið alveg frá- bær í alla staði. Ég er svo ánægð að hafa fengið að kynnast þér svona vel. Þú varst alltaf svo góður við okkur krakkana. Við fengum alltaf kex og kók hjá þér sem þú kallaðir alltaf pissíkóla. Frá því þú veiktist komum við á hverjum degi að gefa kindunum og hjálpa þér að hugsa um þær. Ég naut þess mjög og mér fannst það rosa- lega gaman. Svo þegar lömbin komu, kom ég nánast á hverjum degi að fylgjast með þeim. Ég á eftir að sakna þess mjög að geta ekki rennt við hjá þér og sest inn í eldhús og spjallað við þig um allt milli himins og jarðar. Mér fannst svo notalegt að koma í amstri dagsins og setjast inn hjá þér í rólegheitin og við gátum tal- að saman endalaust. Elsku afi gamli, ég á eftir að sakna þín. Selma Hauksdóttir. Elsku afi minn er dáinn. Hans verður sárt saknað. Við systkinin vorum svo lánsöm að fá að alast upp á sveitabænum Helgafelli og búa öll í sama húsi. Við fjögur systkinin og foreldrar á efstu hæð og þú og amma á miðhæðinni. Alltaf var hægt að fara niður, eins og við kölluðum það, til ömmu og afa að spjalla og fá hlýju og uppörvun á lík- ama og sál. Þú varst bóndi allt þitt líf og tilheyrðir þeirri kynslóð sem upp- lifði að sjá bændasamfélag breytast í bæjarsamfélag. Um tíma ætlaði ég einnig að verða bóndi eins og þú, því stór hluti af bernsku minni fór í að vera með þér úti í fjárhúsum eða inni í fjósinu að hugsa um kindurnar sem ég hafði mestan áhuga á. Ég gleðst mest yfir því að þú gast haft allt eins og þú vildir í kringum þig þar til á síðustu stundu, verið í húsinu þínu og með kindurnar í túninu heima og un- hverfið á Helgafelli næstum eins og þegar þú komst í hlaðið sem lítill drengur. Elsku afi minn, takk fyrir mig og blessuð sé minning þín. Þín sonardóttir, Dís og langafabörn Hilmir, Steinar og Anna Dís.  Fleiri minningargreinar um Hauk Níelsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Anna, Helgi og Steinunn, Högni Snær Hauksson, Arnar, Harpa, Dagbjört Anna og Arndís Eva, Sif og Elva Margrét Elíasdætur, Brynleifur Stein- grímsson, Gylfi Guðjónsson. Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. Baldur Frederiksen, útfararstjóri. Guðmundur Þór Gíslason, útfararstjóri. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR FRÍMANNSSON, Bláhömrum 2, lést á heimili sínu mánudaginn 30. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Dóra María Aradóttir, Olga Ellen Einarsdóttir, Þorleifur Jóhannsson, Ólafur Einarsson, Kaarina Rossi Einarsson, Jóhanna S. Einarsdóttir, Guðfinnur Ólafsson, barnabörn, barnabarnabörn, tengdaforeldrar og aðrir aðstandendur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSTRÓS REGINBALDURSDÓTTIR, lést á heimili sínu sunnudaginn 5. september. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju laugar- daginn 11. september kl. 13.00. Svanur Freyr Hauksson, Baldur Reynir Hauksson, Sólveig María Hauksdóttir, Anna Kristín Hauksdóttir, tengdabörn og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HJÖRDÍS ODDGEIRSDÓTTIR, sem lést miðvikudaginn 1. september, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 14. september kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Félag aðstandenda alzheimerssjúklinga í síma 533 1088 eða 898 5819. Eva G. Þorvaldsdóttir, Björn Gunnlaugsson, Óskar Már Þorvaldsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær bróðir okkar og mágur, NJÁLL GUÐMUNDSSON byggingatæknifræðingur frá Böðmóðsstöðum, Vesturhúsum 2, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstu- daginn 10. september kl. 13.30. Jarðsett verður í Miðdalskirkjugarði, Laugardal. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á líknarstofnanir. Ólafía Guðmundsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir, Árni Sigfússon, Valgerður Guðmundsdóttir, Lilja Guðmundsdóttir, Ingimundur Einarsson, Fjóla Guðmundsdóttir, Ragnheiður Guðmundsdóttir, Árni Guðmundsson, Erla Erlendsdóttir, Herdís Guðmundsdóttir, Vilhjálmur Sigtryggsson, Hörður Guðmundsson, María Pálsdóttir. Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is Erfidrykkjur Salur og veitingar Félagsheimili KFUM & KFUK Holtavegi 28, 104 Reykjavík. Upplýsingar í síma 588 8899. www.kfum.is www.englasteinar.is Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, LAUFEY ÓLAFSDÓTTIR, Skriðustekk 1, lést á heimili sínu mánudaginn 6. september. Ólafur Rúnar Árnason, Ása Ásgrímsdóttir, Guðmundur Árnason, Guðrún Ólafía Samúelsdóttir, Sigurður Árnason, Guðbjörg Skjaldardóttir, Þráinn Árnason, Unnur Vilhjálmsdóttir, Már Árnason, Valdís Axfjörð, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SVEINN VÍÐIR FRIÐGEIRSSON skipstjóri, Kríulandi 15, Garði, lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi mánu- daginn 6. september sl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 14. september kl. 15.00. Nanna Ingólfsdóttir, Þröstur Ingólfur Víðisson, Sigurlaug Hrund Svavarsdóttir, Friðgeir Fjalar Víðisson, Bjarnþór Elís Víðisson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, DÓRA GUÐBJARTSDÓTTIR, Aragötu 13, Reykjavík, sem andaðist föstudaginn 3. september, verð- ur jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 14. september kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Thorvaldsensfélagið. Kristrún Ólafsdóttir, Einar G. Pétursson, Dóra Ólafsdóttir, Ólafur Jóhannes Einarsson, Laurence van Wymeersch, Guðbjartur Jón Einarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.