Morgunblaðið - 09.09.2004, Page 33
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 33
A b d h ð f K li G ð d i Ríkh ði Jó i 925 li ilf k 44 900
ERNA
gull- og silfursmiðja.
Erna gull- og silfursmiðja, Skipholti 3, sími 552 0775.
Opnunartími alla virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-14
1924 2004
Ætla má að hugmyndir Íslendinga umhollenska menningu breytist rót-tækt á næstu dögum, burt frá stað-almyndum um tréklossa og túl-
ípana, en 9.–15. september verða Hollenskir
dagar í Reykjavík með áherslu á listir. Á Hol-
lenskum dögum gefst almenningi kostur á að
kynna sér hollenska tónlist, kvikmyndir, bók-
menntir og vídeólist. Meðal helstu atburða á Hol-
lenskum dögum verður útgáfa bókarinnar Ást-
araldin, sem einnig hefur gerð kvikmynd eftir, en
hún verður sýnd í Regnboganum. Þá verða á
föstudag og laugardag tónleikar með karnival-
hljómsveitinni Van Alles Waat í miðbæ Reykja-
víkur, sem leikur háværa og fjöruga tónlist í lit-
ríkum búningum. Klukkan þrjú á sunnudag verða
í Ráðhúsi Reykjavíkur fjölskyldutónleikar með
Caput-hópnum, þar sem meðal annars verður
flutt verk fyrir kúabjöllur. Þá verður hollenskur
orgelleikari með tónleika í Hallgrímskirkju á
sunnudagskvöldið klukkan átta og er ókeypis að-
gangur fyrir almenning.
Hollenskir dagar eru haldnir í samvinnu við
Listasafn Reykjavíkur, Reykjavíkurborg,
Hallgrímskirkju, Ríkisútvarpið, Eddu,
Regnbogann, SAFN nútímalistasafn og fleiri að-
ila.
Mun sendiherra Hollands á Íslandi, Erik Ader,
sem hefur aðsetur í Osló koma í heimsókn hingað
til lands af þessu tilefni.
Bjarni Finnsson er aðalræðismaður Hollands á
Íslandi og einn aðalskipuleggjandi Hollenskra
daga. Segir hann komu hollenskra listamanna
hingað til lands vera ánægjulegt upphaf að sam-
skiptum sem vonandi muni fara vaxandi í framtíð-
inni.
Hvað finnst þér standa upp úr í atburðum há-
tíðarinnar?
„Það er vissulega erfitt að draga eitthvað eitt út
úr, en útkoma bókarinnar Ástaraldin á íslensku er
svo sannarlega stór viðburður, en höfundurinn
Karel Glastra van Loon verður hér viðstaddur. Þá
verða umræður um bókina og höfundinn. Síðan
verður mjög spennandi að sjá „sögu hollenskrar
videolistar“ í Listasafni Reykjavíkur. Einnig
verður margt afar áhugavert á hvíta tjaldinu hjá
Regnboganum og merkileg sýning á verkum Pie-
ter Holstein, en eins og ég segi verður erfitt að
gera upp á milli atburða.“
Hvernig er menningarsamskiptum þjóðanna
háttað um þessar mundir?
„Menningarsamskipti þjóðanna eru einkum þau
að mikill fjöldi íslenskra listamanna stundar nám í
Hollandi og hefur gert árum saman, þeim fjölgar
frekar en hitt.“
Bjarni segist að lokum vona að þessi umfangs-
mikla kynning verði til að auka hróður hollenskra
bókmennta hér á landi. Dagskrá Hollenskra daga
má nálgast á slóðinni www.holland.is
Menning | Hollenskir dagar haldnir í Reykjavík með tilheyrandi pomp og prakt
Bjarni Finnsson er
fæddur í Reykjavík árið
1948. Hann er mennt-
aður garðyrkjufræð-
ingur og kaupmaður.
Bjarni rak Blómaval í
30 ár, þar til ársins
2000, en hefur síðan
verið í ýmsum störfum,
aðallega tengdum
gróðurhúsarækt. Þá er
Bjarni aðalræðismaður
Hollands á Íslandi. Bjarni er kvæntur Hildi
Baldursdóttur og eiga þau tvö börn og tvö
barnabörn.
Fjölbreytt og fjörug dagskrá í boði
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Léleg þjónusta
ÉG var fór að skoða Gullfoss, ásamt
dóttur og barnabarni, um sl. helgi.
Þegar við vorum búnar að skoða
fossinn ákváðum við að fá okkur
heitt súkkulaði, eins og auglýst var
í þjónustumiðstöðinni á staðnum.
Þegar við komum inn segir af-
greiðslustúlkan við okkur: „Var
ólæst, við erum eiginlega búin að
loka.“ Þegar ég spurði hvenær væri
lokað sagði stúlkan að það væri
þegar „traffíkin“ væri búin. En þeg-
ar við komum þar að var stór rúta
að renna í burtu. Við fengum náð-
arsamlega að kaupa ís handa
barninu en gátum ekki fengið heitt
súkkulaði, ekki einu sinni til að taka
með okkur.
Þetta finnst mér léleg þjónusta
því ekki var auglýstur neinn af-
greiðslutími.
En við enduðum á Hótel Geysi og
fengum þar mjög góðar móttökur.
Helga Árnadóttir.
Voru börnin nafnlaus?
KÆRI Velvakandi, ég horfði á opn-
un Þjóðminjasafns okkar í sjón-
varpinu og sá tvö lítil börn, und-
urfalleg bæði, með þjóðminjaverði
og svo forsetahjónum okkar.
Voru þessi börn nafnlaus eða eru
börn ekki líka menn?
020533-4559.
Gleraugu týndust
í Fossvogi
GLERAUGU týndust í Búlandi í
Fossvoginum sl. sunnudagskvöld.
Skilvís finnandi hafi samband í síma
898 8890.
Kettlinga vantar góð heimili
VEGNA óviðráðanlegra orsaka
þurfum við góð heimili fyrir 6
kassavana, blíða og fjöruga kett-
linga; Tímóteus og Dósóteus eru
steingráir högnar; Blettur, Flekkur
og Skellur eru gráir og hvítir högn-
ar og „Keli“ er svört og hvít læða.
Upplýsingar í síma 690 0048 og
690 0047.
Dylgjur og óhróður Víkverja
VÍKVERJI réðist á dögunum
ómaklega gegn því sem hann nefndi
„metrósexúala“ en má frekar nefn-
ast borgkynhneigð. Hann tók það
upp hjá sjálfum sér að ráðast gegn
snyrtimennsku.
Þessu vil ég mótmæla. Falleg og
slétt húð ber vitni um umhyggju
fyrir sjálfum sér. Hrjúfur karl-
mannleiki virkar aðeins fráhrind-
andi og minnir á forna tíma þegar
það þótti karlmannlegt að þegja.
Ég held að Víkverji sé ekki í nógu
miklum tengslum við sjálfan sig og
finnst hann ætti að setjast niður og
ræða við sjálfan sig á andlegu nót-
unum. Kannski er hann á móti
framförum?
Borgkynhneigð búðarloka.
SÝNING á verkum Höllu Gunn-
arsdóttur verður opnuð í The New
York Academy of Art í New York í
dag. Hún lauk þaðan námi á síðasta
ári og hefur síðan verið styrkþegi við
skólann og starfað þar sem aðstoð-
arkennari. Sýningin er afrakstur
þess árs sem hún hefur notið styrks-
ins. Halla er búsett í New York og
hefur tekið þátt í fjölda samsýninga
þar og unnið til verðlauna, svo sem
The Gerald Mennin Art Award og
The Dahesh Museum Award.
Heiti sýningarinnar er „Limbus“
sem er latneska heitið yfir limbó, og
vísar það að sögn Höllu til fant-
asíuheims, eða þess ástands sem ein-
kennir hugann þegar hann er stadd-
ur í millibilsástandi limbósins. Á
sýningunni eru 25 verk sem saman
mynda fjögur stór verk. Öll eru þau
fígúratífir skúlptúrar, unnir í gifs.
Myndlist | New York Academy of Arts
Sýnir fígúratíva
skúlptúra
Eitt verka Höllu Gunnarsdóttur.
NÝJASTA skáldsaga
Birnu Önnu Björns-
dóttur, Klisjukenndir,
sem kemur út hjá Máli
og menningu í októ-
ber, hefur þegar verið
seld til Þýskalands og
kemur þar út á næsta
ári. „Það er afar
óvenjulegt að óút-
komnar skáldsögur
séu seldar til erlendra
útgáfufyrirtækja en í
kjölfarið á góðri sölu á
þýskri þýðingu skáld-
sögunnar Dís, sem
Birna Anna skrifaði í
félagi við Oddnýju Sturludóttur og
Silju Hauksdóttur, ákvað útgáfu-
fyrirtækið Bastei-Lübbe að gefa
einnig út nýjustu bók Birnu Önnu,“
segir Kristján B. Jónasson útgáfu-
stjóri. „Réttindastofa Eddu útgáfu
gekk frá samningum þess efnis og
nú er ljóst að þýsk þýðing bók-
arinnar, sem hlotið hefur nafnið
Stereotypisch á þýsku, kemur út á
árinu 2005. Bókin greinir frá æv-
intýrum Reykjavíkurstúlkunnar
Báru sem á í afar
stormasömu sambandi
við tvo óvenjulega
menn.“
Kristján segir að
titill sögunnar sé í
nokkru samræmi við
stíl höfundarins.
„Þetta er gamansöm
og írónísk frásögn.
Kenndir aðalpersón-
unnar eru klisju-
kenndar en mennirnir
sem hún er í sambandi
við eru einnig afar
klisjukenndir.“
Skáldsagan Dís eft-
ir Birnu Önnu Björnsdóttur, Odd-
nýju Sturludóttur og Silju Hauks-
dóttur kom út árið 2000 og var ein
af metsölubókum þess árs. Höfund-
arnir þrír skrifuðu einnig handritið
að samnefndri kvikmynd sem Silja
Hauksdóttir leikstýrir og er nú
sýnd í kvikmyndahúsum. Dís kom
út á þýsku árið 2003 undir heitinu
Männer gibt’s wie Fisch im Meer í
þýðingu Colettu Bürling og Betty
Wahl.
Bækur | Óútkomin skáldsaga Birnu
Önnu seld til Þýskalands
„Afar óvenjulegt“
HVAÐA aðferðir eru hentugastar við
varðveislu fornleifa þar sem mark-
miðið er jafnframt að hafa þær sýni-
legar? Hvernig má varðveita hið upp-
runalega hlutverk muna/minja um
leið og þær eru settar í nýtt samhengi
til að auðvelda gestum að sjá fyrir sér
notkun þeirra og sögu? Þessar spurn-
ingar eru meðal þeirra sem settar
verða fram á málþingi um miðlun
fornleifa í Snorrastofu í Reykholti á
morgun, en það hefst um kl. 13.00 og
stendur til 17.00.
Að málþinginu standa Snorrastofa,
Fornleifavernd ríkisins, Þjóðminja-
safn Íslands og Háskólinn á Hólum.
Tilgangur málþingsins er að stefna
saman fulltrúum hérlendra stofnana
sem fást við miðlun menningarminja,
og þá einkum fornleifa, en mikil
gróska hefur verið í fornleifarann-
sóknum hin síðari ár.
Markmiðið er að skapa umræðu
um aðferðafræði og nálgun slíkra
verkefna og verður miðlun skoðuð út
frá ýmsum sjónarhornum. Munu
stjórnendur fornleifarannsókna á
Hólum, Skriðuklaustri og Reykholti
skýra frá aðferðum og umfangi miðl-
unar rannsókna á hverjum stað fyrir
sig, en allir hafa þessir staðir hlut-
verki að gegna í kirkjulegu samhengi.
Allar tengjast rannsóknirnar ís-
lenskri kirkjusögu og þróun þessara
staða allt frá miðöldum. Einnig munu
taka til máls fulltrúar frá stofnunum
á sviði minjavörslu, ferðamálafræða
og fyrirtækis á sviði miðlunar.
Málþingið verður haldið í Skóla-
húsinu í Reykholti og er öllum opið.
Málþing um
miðlun fornleifa
Morgunblaðið/Kristinn
Keldudalskirkjugarður. Við hægri
hlið grafarinnar sem enn geymir
bein má fyrst sjá örlitla gröf ung-
barns og gröf barns sem bein hafa
nú verið fjarlægð úr.