Morgunblaðið - 09.09.2004, Qupperneq 36
MENNING
36 FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
LAKKRÍSVERK, skúlptúrar og víd-
eóverk, eru meðal þess sem Gjörn-
ingaklúbburinn sýnir á annarri
einkasýningu sinni í Gallerí i8, sem
opnuð verður í dag. „Engir lifandi
gjörningar að þessu sinni,“ segja
þær Eirún Sigurðardóttir og Jóní
Jónsdóttir, en auk þeirra er Sigrún
Hrólfsdóttir félagi í klúbbnum.
Þetta verður þó ekki al-gjörn-
ingalaus sýning, því vídeóverkið
sem þær sýna, er upptaka af gjörn-
ingi sem klúbburinn hefur framið
nokkrum sinnum.
Gjörningaklúbburinn hefur átt
annríkt að undanförnu við sýn-
ingahald erlendis, meðal annars á
Listamessunni í Basel, í Gent, í Berl-
ín og í New York. Í Basel vakti
klúbburinn mikla athygli og voru
verk hópsins seld til þekktra safn-
ara í Evrópu, Bandaríkjunum og
Japan.
„Þetta ár er búið að vera mjög
viðburðaríkt,“ segir Eirún. „Við
höfum verið með ákveðið þema í
gangi í sumar, en með mismunandi
áherslum, og það sem við sýnum hér
er hluti þess sem við sýndum í Ba-
sel,“ segir Jóní. „Gjörninginn erum
við búnar að vera að sýna í ár, en
langaði til að taka hann upp núna og
klippa, til að sýna á þessari sýningu.
Við vildum líka eiga hann í þessu
formi, og þó hann sé ekki sýndur
„live“, þá verður hann alltaf í gangi,
að nóttu sem degi, allan sólarhring-
inn – og um helgar, og verður sýnd-
ur í glugganum, þannig að gang-
andi vegfarendur sjá hann líka. Það
kemur í staðinn fyrir að sýna hann í
lifandi flutningi.“
Sýninguna kalla þær Fjölleikahús
hjartans, og eru verkin ólík. Hekl-
aður sokkabuxnahamur er eitt
þeirra. „Við erum svolítið í verk-
fræði ömmunnar,“ segir Jóní, „og
höfum verið að finna okkur í ákveð-
inni handavinnu sem tengist henni,
okkur til gagns og gamans. Það eru
ákveðin efni sem við erum hrifnar
af og líka ákveðin handavinnubrögð
sem hafa tælt okkur. Þetta er eig-
inlega fljúgandi sýning, loftfim-
leikar í ýmsum skilningi.“ „Loftið
og hraðinn er áberandi í nokkrum
verkanna,“ bætir Eirún við. „Í
lakkrísverkinu erum við á fleygi-
ferð á miklum hraða í app-
ollólakkrís-sportbíl gegnum
stjörnuhimin Van Goghs.“
Eirún segir að nafnið á sýning-
unni, Fjölleikahús hjartans, geti átt
við um allt sem gerist í heiminum,
gleði og sorg, og að það segi þá líka
jafnframt að það sem Gjörn-
ingaklúbburinn geri, komi frá hjart-
anu og ástinni á viðfangsefnunum
hverju sinni. „Kannski er þetta líka
svolítið „lovlí“ óður til fjölleikahús-
anna, sem hafa haft mikil áhrif á
okkur síðasta árið,“ segir Jóní, og
Eirún segir að þar þrífist einmitt
alls konar furður og fyrirbæri, fólk
og dýr, sem séu látin gera alls konar
hluti. „Í fjölleikahúsunum er margt
skrýtið og óraunverulegt, og sýn-
ingin okkar endurspeglar það allt
saman. Í hjartanu búa ekki bara
fagrir, góðir hlutir, heldur líka
skrýtnir hlutir; – öll hjörtu hafa eitt-
hvað að segja og geta gert hluti af
hjartans innlifun, ekki bara hjörtu
Gjörningaklúbbsins,“ segja Eirún
og Jóní.
Gallerí i8 er á Klapparstíg 33 og
er opið miðvikudaga til föstudaga
11–17, laugardaga 13–17 og eftir
samkomulagi.
Myndlist | Gjörningaklúbburinn opnar sýningu í i8 í dag
Verkfræði ömmunnar í
hekluðum sokkabuxnaham
Morgunblaðið/Þorkell
Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir. Á ljósmyndina vantar Sigrúnu
Hrólfsdóttur, sem situr með þeim í appolólakkrísbílnum í baksýn.
Í KETILHÚSINU á Akureyri,
stendur yfir sýning á nýjum verkum
eftir Óla G. Jóhannsson undir yf-
irskriftinni „Smátt og stórt“. Sækir
Óli í smiðju Cobra-hópsins (1948–
1951) sem skartaði listamönnum á
borð við Karel Appel, Asger Jorn og
Corneille. Cobra hópurinn á sér
sterka sögu í danskri, belgískri og
hollenskri myndlistarsögu og er gíf-
urlegt framboð á verkum eftir gömlu
Cobra-málarana og þeirra líka í
þessum löndum, enda eftirspurnin
mikil og aðdáendahópurinn stór. Óli
hefur lengi tileinkað sér þetta mynd-
mál og bætir í sjálfu sér litlu við það.
Reyndar sjáum við nýjar áherslur á
sýningunni í Ketilhúsinu frá síðustu
sýningum hans hér á landi, þ.e. fíg-
úrasjón og teikningu. En þetta eru
ekki nýjar áherslur innan Cobra-
málverksins. Aukin áhersla Óla á
teikningu, þ.e. að teikna með máln-
ingunni, er að skila mun trylltari
verkum en ég hef áður séð frá lista-
manninum. Má vera að aukin teikn-
ing sé til komin vegna aukinnar
framleiðslu. En hún er samt sem áð-
ur að ganga betur upp en annað á
sýningunni.
Óli sýnir mikið magn málverka
sem hanga jafnt innan húss sem ut-
an. Ekki vil ég gera lítið úr vinnu-
semi Óla, hún er svo sannarlega
virðingarverð, en metnaðurinn virð-
ist samt liggja í magni frekar en
mynd. Engin marktæk úttekt virðist
hafa verið gerð á málverkunum og
enga rannsókn að sjá á myndmálinu,
sem er miður þar sem að myndmálið
er þetta viðtekið og margnotað og
raun ber vitni.
Magn frem-
ur en mynd
MYNDLIST
Ketilhúsið
Opið alla daga nema mánudaga frá 13–
17. Sýningu lýkur 12. september.
MÁLVERK – ÓLI G. JÓHANNSSON
Jón B.K. Ransu
Áskriftarkort á 6 sýnigar
Aðeins kr. 10.700
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 12/9 kl 14, Su 19/9 kl 14, Su 26/9 kl 14
CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse
Grímuverðlaunin:
Vinsælasta sýning ársins!
Lau 18/9 kl 20, Lau 25/9 kl 20,
Lau 2/10 kl 20, Lau 9/10 kl 20
THE CONCEPT OF BEAUTY e. Nadiu Banine
WHERE DO WE GO FROM THIS
e. Peter Anderson
Í kvöld kl. 20
NÚTÍMADANSHÁTÍÐ 3/9 - 11/9
MANWOMAN e. Ólöfu Ingólfsdóttur
& Ismo-Pekka Heikenheimo
Fö 10/9 kl 20
Lau 11/9 kl 20
Opnunartími miðasölu: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00-18:00
Mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00
Laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
PARIS AT NIGHT e. Jacques Prévert
í samstarfi við Á SENUNNI
Í kvöld kl. 20, Fö 10/9 kl 20, Lau 11/9 kl 20,
fi 16/9 kl 20, fö 17/9 kl 20
Takmarkaður sýningafjöldi
KVÆÐAMANNAFÉLAGIÐ IÐUNN
SIGURRÓS ofl. Afmælis- og útgáfuhátíð
Mi 15/9 kl 20 - Aðeins einir tónleikar
Frumsýning fös. 8. okt. kl. 20
Sun. 10. okt. kl. 20 • fös. 15. okt. kl. 20 • sun. 17. okt. kl. 20
ATH. Allar sýningar hefjast kl. 20
Miðasala á Netinu: www.opera.is
Símasala kl. 10-18 virka daga: 511 4200
Rakarinn morðóði
Óperutryllir eftir Stephen Sondheim
MIÐASALAN er opin á fame.is,
á þjónustuborði Smáralindar
og í síma 528 8008
JÓNSI
SVEPPI
Fim. 9. sept. kl. 19.30
Fös. 10. sept. kl. 19:30
Sun. 12. sept. kl. 19:30
SÍÐUSTU SÝNINGAR:
ATH. 2 AUKASÝN. Vegna
gríðarlegrar eftirspurnar
Fös. 17. sept. kl. 19.30
Sun. 19. sept. kl. 19.30
Vegna mikils álags á símkerfinu viljum við benda á
að hægt er panta miða með tölvupósti í
miðasala@smaralind.is eða inn á www.fame.is.
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
Lau . 11 .09 20 .00 ÖRFÁ SÆTI
Sun . 12 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
F im . 16 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
Lau . 18 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
Fös . 24.09 20 .00 AKUREYRI
„Massa s tuð , svaka s temning , a l l i r
s tóðu upp í lok in . M i g langa r a f tu r ! "
- B j ö rk Jakobsdó t t i r l e ikkona -
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
BRIM - e. Jón Atla Jónasson gestasýning
Lau 11/9 kl. 18 NOKKUR SÆTI LAUS
Lau 11/9 kl. 21 ÖRFÁ SÆTI LAUS
Sun 12/9 kl. 20 NOKKUR SÆTI
SVIK e. Harold Pinter
frumsýn. fös. 1/10 kl. 20 UPPSELT
2. sýn. sun. 3/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
3. sýn. fim. 7/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
4. sýn. fös. 8/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
HÁRIÐ - sýnt í Íþróttahöllinni
fös 24/9 kl. 20 - sala í fullum gangi
HÁRIÐ
„tryggðu þér miða“
Erich Wolfgang Korngold ::: Robin Hood
Jón Þórarinsson ::: Þrír mansöngvar
Maury Yeston ::: Kyndarasöngurinn úr Titanic
Marlcolm Arnold ::: Tam O´Shanter, op. 51
Jón Leifs ::: Björn að baki Kára úr Sögusinfóníunni
Kurt Weill ::: Mackie Messer úr Túskildingsóperunni
Stephen Sondheim ::: Broadway Baby úr Follies
Richard Strauss ::: Till Eulenspiegels lustige Streiche
HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 9. SEPTEMBER KL. 19.30
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Einsöngvari ::: Maríus Sverrisson
Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
Glæsileg byrjun
Starfsár Sinfóníuhljómsveitarinnar hefst á fimmtudaginn með glæsi-
legum tónleikum þar sem kynnt er til sögunnar ný íslensk söngstjarna
á hraðri uppleið: Maríus Sverrisson. Maríus hefur gert garðinn frægan
í Þýskalandi undanfarið þar sem hann hefur m.a. verið í lykilhlutverki
í verðlaunasöngleiknum Titanic, sem gekk fyrir fullu húsi í 10 mánuði
samfleytt. Tryggðu þér miða og góða byrjun á menningarvetrinum!
Hljómar
um helgina
Leikhúsgestir munið spennandi matseðil S: 568 0878