Morgunblaðið - 09.09.2004, Page 40

Morgunblaðið - 09.09.2004, Page 40
40 FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 Ísl tal. Þeir hefðu átt að láta hann í friði. EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP KL. 8 OG 10.20. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 14 ára. S.V. Mbl.  HP. Kvikmyndir.com S.V. Mbl.  HP. Kvikmyndir.com Kemur steiktasta grínmynd ársins SÝNIÐ ALDREI SLÆMA LITINN ÞVÍ ÞAÐ VEKUR ATHYGLI ÞEIRRA. I I I I Í I I .  G.E. Ísland í bítið/Stöð 2  Kvikmyndir.com S.K., Skonrokk  Ó.H.T Rás 3.  Ó.H.T Rás 3. Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 5.40. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10.20. b.i. 12 ára KRINGLAN 10. B.i 14 ára. ÁLFABAKKI kl. 8 B.i 14 ára. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. b.i. 14 ára ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.40, 8, og 10.20.  STÓRSKEMMTILEG Ó.H.T Rás 2  O.O.H. DV S.G. Mbl  S.V. Mbl  Ó.Ó.H. DV Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 8. Forsýning kl. 8. Tom Hanks Catherine Zeta-Joness t ri t -J s ALMENN miðasala á tónleika Marianne Faithfull hófst í gær en þessi heimsfræga söngkona mun halda tónleika á Broadway 11. nóvember nk. Einungis eru um 750 miðar í boði en mið- arnir sem fóru í for- sölu á mánudag ruku að sögn út á svip- stundu. Miðasala fer fram á Hard Rock Café og á Concert.is. Faithfull er á leið í Skandinavíutúr og mun heim- sækja Reykjavík, Kaupmannahaöfn, Helsinki og Ósló. Hún varð fyrst fræg árið 1964 fyrir flutning sinn á „As Tears Go By“ eftir þá Mick Jagger og Keith Richards. Samband hennar og Jaggers á sjöunda ára- tugnum varð frægt en þekktasta sóló- plata Faithfull er Broken English frá 1979. Faithfull gaf síðast út plötuna Kissing Time árið 2002 þar sem m.a. komu við sögu og sömdu með henni tónlist þeir Damon Albarn úr Blur, Billy Corgan, fyrr- um Smashing Punpkins-forkólfur, Jarvis Cocker úr Pulp og Beck. Platan fékk fína dóma hjá gagnrýnendum líkt og reyndar flest hennar verk í gegnum tíðina. Gert er ráð fyrir að Faithfull muni taka lög af þessari nýjustu plötu sinni auk eldri og kunnari laga frá 4 áratuga löngum ferli. Tónleikar | Miðasala hafin á Marianne Faithfull Fer vel af stað Marianne Faithfull er í hópi virtustu söngkvenna rokk- sögunnar. NOKKUÐ er um liðið síðan Heimir Björgúlfsson sneri sér að mestu að myndlist en hann er fráleitt hættur í tónlistinni eins og sannast á nýút- komnum plötum, annars vegar nýrri breiðskífu hljómsveitarinnar The Vacuum Boys og hins vegar plötu sem Heimir gerir við þriðja mann. Fleiri útgáfur eru svo í að- sigi. Ný breiðskífa The Vacuum Boys, Space Breakdance Challenge, er tekin upp á tónleikum í Þýskalandi og Hollandi 2002. „Við ákváðum það áður en sú tónleikaferð hófst að spila „breakdance“-tónlist og þess vegna er platan eins og hún er,“ segir Heimir, en gríðarlegur munur er á tónlistinni á þessari plötu sam- anborið við fyrstu plötu hljómsveit- arinnar, The Vacuum Boys Play Songs From the Sea of Love. Eins og fram kemur er nokkuð um liðið síðan upptökur fóru fram, en Heimir segir að útgáfa hafi tafist vegna þess hve eftirvinnsla tók langan tíma. „Það var ákveðinn list- rænn ágreiningur innan hljómsveit- arinnar og svo er erfitt að koma mönnum saman á sama stað og sama tíma, við erum allir svo upp- teknir í ýmsu öðru, hver í sínu horni.“ The Vacuum Boys og Pimmon Ekki er bara að Heimir kemur fram með The Vacuum Boys á nýrri plötu heldur er stutt síðan önnur plata kom út þar sem hann hefur um vélað, Still Important Somekind, sem þeir gera saman hann, Helgi Þórsson, liðsmaður Stilluppsteypu, og ástralski tónlistarmaðurinn Paul Gough sem kallar sig Pimmon. Heimir segir að það eigi sér nokkuð sérstakan aðdraganda. „Sá sem stýrir Earational- hátíðinni í Den Bosch bað Still- uppsteypu að koma fram á hátíðinni 2003 og sem einskonar upphitun bað hann mig og Helga að koma fram á hátíðinni 2002, en þá var hún með minna sniði, einskonar upp- hitun fyrir 2003. Síðan gerðist það að ég hætti í Stilluppsteypu en samt stóð planið um að við Helgi kæmum fram. Við vorum svo settir á sama kvöldið og Pimmon, en þegar nær dró óskuðu skipuleggjendur hátíð- arinnar að við myndum koma sam- an allir þrír, sem okkur leist bara vel á,“ segir Heimir. Þeir Heimir, Helgi og Pimmon fóru í hljóðver kvöldið áður en þeir áttu að koma fram og tóku upp hálf- an þriðja tíma af tónlist og spiluðu síðan í hálftíma daginn eftir, sem einnig var tekið upp. Robert Hamp- son, sem var að spila á sömu hátíð, bauðst svo til að vinna upptökurnar undir útgáfu, klippa þær til og sníða, og Heimir segir að þeir hafi treyst honum fullkomlega fyrir verkinu, hafi ekkert skipt sér af því sem hann gerði. Heimsókn í aðsigi Þess má geta að Robert Hamp- son er svo væntanlegur hingað til lands til tónleikahalds síðar á árinu og þá kemur einnig hingað til lands Jonas Ohlsson, myndlistar- og tón- listarmaður, en Heimir gerði ein- mitt með honum plöturnar Fur Yo- ur Bears Only og Unspoken Word Tour. Þriðja plata þeirra félaga er svo í burðarliðnum, upptökum er lokið og hún kemur út í janúar. Ný Vacuum Boys-plata er svo í vændum, því upptökur frá síðustu tónleikaferð sveitarinnar, sem gekk undir nafninu „Karibu Hatari“, eru nú í vinnslu til útgáfu á næsta ári undir nafninu The Vacuum Boys Safari Adventure, aukinheldur sem hljómsveitin vinnur við leynilegt verkefni sem Heimir segir að felist meðal annars í því að spila á hefð- bundin hljóðfæri. Brotnir taktar, brak og brestir Plata er væntanleg með Heimi Björgúlfs og Vaccum Boys. Tónlist | Heimir Björgúlfsson hefur í nógu að snúast

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.