Morgunblaðið - 19.09.2004, Side 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Laugardalsvelli í dag kl. 16:00
VÍS býður öllum á völlinn
Framarar
Fjölmennum á völlinn og styðjum
strákana í þessum mikilvæga leik
Fram Keflavík–
BLÓÐSÚTHELLINGAR
Mannræningjar í Írak hóta að
drepa tvo Bandaríkjamenn og einn
Breta, sem þeir halda í gíslingu, ef
öllum kvenföngum í landinu verður
ekki veitt frelsi. Þá biðu að minnsta
kosti tuttugu Írakar bana í sjálfs-
morðssprengjuárás í borginni Kirk-
uk í gærmorgun og er þá tala fall-
inna í Írak komin yfir 400 í þessum
mánuði.
Brot á varnarsamningnum
Á sjöunda áratugnum komust lög-
fræðingar Pentagon að því að ekki
væri hægt að kalla orrustuþotur
Bandaríkjahers heim án samþykkis
ríkisstjórnar Íslands. Ef ekki fengist
samþykki hennar jafngilti það broti
á nokkrum greinum samningsins,
einkum þeim sem snúast um stærð
og samsetningu heraflans. Þetta
kom fram í fyrirlestri Vals Ingi-
mundarsonar sagnfræðings á ráð-
stefnu um málefni smáríkja í gær-
morgun.
Stórbruni í Ólafsvík
Hundraða milljóna tjón varð í
stórbruna í Ólafsvík í fyrrinótt en þá
brann fiskvinnsluhús Klumbu til
kaldra kola. Mikill eldur var í húsinu
þegar slökkviliðið kom á staðinn og
ekki fékkst neitt við ráðið enda að-
stæður erfiðar og mikill eldsmatur í
húsinu. Norðanrok gerði illt verra.
Hjá fyrirtækinu vinna 27 manns.
Húsið er nokkuð komið til ára sinna
og nokkrum sinnum hafði verið
byggt við það. Það var enn end-
urbætt í sumar og m.a. settur í það
nýr lausfrystir.
Mengandi slökkvitæki
Um 6.000 slökkvitæki með Haloni,
öflugasta ósoneyðandi efni sem
þekkist, eru í umferð hér á landi.
Bannað er að nota þau við slökkvi-
störf og þau eru flokkuð sem hættu-
legur úrgangur. Mikið af slíkum
tækjum seldist þar til bann var sett
við notkun þeirra árið 1993 en þau
hafa aldrei verið innkölluð.
Virkjun eyðileggur á
Framkvæmdastjóri Hestasports-
Ævintýraferða, sem hefur staðið
fyrir vinsælum flúðasiglingum í
Vestari- og Austari Jökulsá í Skaga-
firði, segir að verði af Skata-
staðavirkjun þýði það dauðadóm yfir
starfsemi fyrirtækisins. Miðað við
frumhönnun virkjunarinnar muni
hún eyðileggja eina af flottustu ám
Evrópu þar sem boðið er upp á
flúðasiglingar.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Auðlesið 46
Fréttaskýring 8 Dagbók 50
Forystugrein 32 Víkverji 50
Reykjavíkurbréf
32
Velvakandi 51
Þjóðlífsþankar 29 Staður og stund 52
Umræðan 34/40 Menning 53/61
Bréf 36/37 Ljósvakamiðlar 62
Hugvekja 41 Veður 63
Minningar 42/45 Staksteinar 63
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
ÓLYMPÍUMÓT fatlaðra, sem fram fer dagana 17.–28.
september, var sett á Ólympíuleikvanginum í Aþenu í
fyrradag. Keppendur eru alls um fjögur þúsund auk
um þrjú þúsund starfsmanna og dómara og fimmtán
þúsund sjálfboðaliða.
Keppendur fyrir Íslands hönd eru sundkonan Krist-
ín Rós Hákonardóttir, sem tekur þátt í sínu fimmta
Ólympíumóti, frjálsíþróttamaðurinn Jón Oddur Hall-
dórsson og borðtennismaðurinn Jóhann R. Krist-
jánsson. Alls er keppt í nítján íþróttagreinum á
mótinu.
Fyrsta Ólympíumót fatlaðra var haldið í Róm 1960
og hefur umfang og glæsileiki mótanna vaxið stöðugt
síðan en mótið í Aþenu er hið tólfta í röðinni. Ísland
tók í fyrsta sinn þátt í Ólympíumóti árið 1980 en þá
var mótið haldið í Arnheim í Hollandi. Hafa íslenskir
íþróttamenn notið mikillar velgengni á mótunum og
unnið til fjölda verðlauna.
Ljósmynd/Ólafur Magnússon
Á mótinu keppa fyrir hönd Íslands Kristín Rós Hákonardóttir, Jón Oddur Halldórsson og Jóhann R. Kristjánsson.
Ólympíumót fatlaðra sett í Aþenu
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úr-
skurðaði í gær karlmann um þrítugt
í þriggja vikna gæsluvarðhald vegna
smygls á miklu magni af LSD til
landsins. Efnið kom með pósti frá
Hollandi.
Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkni-
efnadeildar lögreglunnar í Reykja-
vík, vildi ekki svara því hvort fleiri
hefðu verið handteknir vegna máls-
ins né hversu mikið magnið hefði
verið. Það væri þó umtalsvert og
mun meira en lagt hefði verið hald á
undanfarin ár.
Árið 1997 var lagt hald á um 3.000
skammta. Síðan þá hefur lögregla og
tollgæsla yfirleitt lagt hald á fremur
lítið af efninu og í fyrra fann lögregl-
an í Reykjavík aðeins einn skammt.
Samkvæmt upplýsingum frá SÁÁ
selst skammturinn af LSD á 2.000
krónur. „Það hefur ekki borið mikið
á LSD undanfarin ár og það hefur
heldur dregið úr LSD-neyslu,“ segir
Þórarinn Tyrfingsson, formaður
SÁÁ. Ólíkt flestum öðrum fíkniefn-
um sé fátítt að menn neyti LSD um
langan tíma, neyslan sé yfirleitt
tímabundin og í tilraunaskyni. Með
e-töflubylgjunni í kringum 1997 hafi
neyslan tekið kipp.
Á vef SÁÁ kemur fram að LSD sé
ekki lífshættulegt vegna líkamlegra
einkenna heldur er hætta á því að
sturlaðir notendur efnisins fari sér
að voða.
Þórarinn segir að efnið hafi veru-
leg áhrif á geðslag, menn verði
gjarnan verulega þunglyndir meðan
á neyslu stendur. Þá getur lyfið hrint
af stað geðsjúkdómum hjá þeim sem
veikir eru fyrir.
Þriggja vikna gæsluvarðhald vegna LSD-smygls
Miklu meira en náðst
hefur í mörg ár
JÓNATAN Garðarsson útivist-
armaður leiddi í gær svokallaða
förumannsgöngu frá Hafnarfirði til
Reykjavíkur, og var nokkur hópur
af göngumönnum sem slóst í för
með honum.
Gengið var frá Byggðasafninu í
Hafnarfirði og endað í Skóla-
vörðuholtinu í Reykjavík.
Göngumenn komu við í Minja-
garðinum í Garðabæ, þar sem þeir
nutu leiðsagnar Ragnheiðar
Traustadóttur fornleifafræðings
um sögulegar minjar, en hún stýrði
uppgreftri á svæðinu og gerð
minjagarðsins.
Morgunblaðið/Þorkell
Förumenn skoðuðu fornminjar
Íslandsbanki
opnar fyrr á
morgnana
ÍSLANDSBANKI mun frá og með
mánudegi opna öll sín útibú kl.
8.30, önnur en þau sem staðsett eru
í verslunarmiðstöðvum og hafa því
annan opnunartíma. Jón Þórisson,
aðstoðarforstjóri Íslandsbanka,
segir að nýr opnunartími sé til að
koma til móts við viðskiptavini og
bæta þjónustuna.
„Við höfum fundið fyrir því að
viðskiptavinir vilja gjarnan geta
skotist í banka áður en þeir fara til
vinnu. Það er fyrst og fremst verið
að lengja þjónustutímann sem
þessu nemur, við munum eftir sem
áður loka klukkan fjögur á dag-
inn,“ segir Jón. Hann segir að opn-
un frá klukkan 9:15 sé rúmlega 30
ára gömul hefð sem tók mið af þeim
aðstæðum sem þá voru uppi.
Breyttur opnunartími sé einnig í
anda fjölskyldustefnu bankans og
stefnu um sveigjanlegan vinnutíma.
LANDSBANKI Íslands á nú í við-
ræðum við fjárfesta tengda Norð-
urljósum um sölu á hlut bankans í
Og Vodafone, samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins. Hlutur
Landsbankans í fyrirtækinu er rétt
rúm 15%. Forsvarsmenn Lands-
bankans vildu ekki tjá sig um málið
við Morgunblaðið í gær. Fyrirtækið
er tilkynningarskylt til kauphall-
arinnar svo slík viðskipti þarf að til-
kynna þangað.
Landsbankinn
vill selja í
Og Vodafone
UNGLINGAR á aldrinum 16–17 ára
notuðu einnota myndavél til að gefa
jafnaldra sínum rafstuð í hálsinn á
Selfossi í gærkvöldi, með þeim af-
leiðingum að hann fékk hjartsláttar-
truflanir og var fluttur á Sjúkrahús
Suðurlands á Selfossi. Lögregla seg-
ir að þakka megi fyrir að ekki hafi
farið verr, en drengurinn er nú búinn
að ná sér.
Unglingarnir tengdu flassið á
myndavélinni þannig að hægt væri
að gefa rafstuð. Tekin var skýrsla af
þeim og foreldrar þeirra látnir vita.
Rafstraumur úr svona tækjum er
miklu sterkari en til að mynda úr
stuðkylfum. „Þetta getur verið stór-
hættulegt, ekki síst ef viðkomandi er
veikur fyrir,“ segir varðstjóri.
Gáfu unglingi
rafstuð með
myndavél