Morgunblaðið - 19.09.2004, Side 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Dubli
n
37.810kr.
Dublin bíður þín
á mann miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman.
Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Bewleys hótelinu,
íslensk fararstjórn og allir flugvallarskattar.
Netverð
4., 11., og 25. nóvember
410 4000 | landsbanki.is
Banki allra landsmanna
Eru n‡ju
íbúðalánin
fyrir mig?
Skráning: fiú getur skrá› flig á kynningarfundinn
me› flví a› hringja í síma 410 4000 e›a
með tölvupósti á kynning@landsbanki.is
Landsbankinn býður „fjármálastjórum heimilanna“
á opinn kynningarfund um nýju íbúðalánin, á Hótel Héraði,
Egilsstöðum, þriðjudaginn 21. september kl. 20.00
og á Ísafirði, í útibúi bankans, miðvikudaginn
22. september kl. 20.00.
AKUREYRINGAR tóku daginn
snemma og fjölmenntu í Íþrótta-
höllina í gærmorgun, þar sem hald-
ið var íbúaþing um framtíð og
skipulag miðbæjarins. Á íbúa-
þinginu gafst bæjarbúum sem og
öðrum áhugasömum kostur á að
leggja fram sínar hugmyndir um
skipulag miðbæjarins. Ragnar
Sverrisson, kaupmaður í JMJ og
helsti hvatamaður verkefnisins
„Akureyri í öndvegi“, sagði að bæj-
arbúar hefðu tekið vel við sér en
strax í gærmorgun komu 350–400
manns í Höllina til að taka þátt í
íbúaþinginu, sem stóð fram eftir
degi. Miðbær Akureyrar hefur átt
undir högg að sækja en markmiðið
með verkefninu er að vinna að
nýrri stefnumörkun fyrir miðbæinn
og miðar að því að koma Akureyri í
öndvegi sem höfuðstað Norður-
lands. Sérstök áhersla er lögð á að
tengja saman skipulagsmál og at-
vinnumál. Niðurstöður íbúaþingsins
verða kynntar næsta miðvikudag,
auk þess sem lokið verður við gerð
keppnislýsingar fyrir alþjóðlega
hugmyndasamkeppni um skipulag
miðbæjarins.
Akureyringar
fjölmenntu á íbúaþing
Morgunblaðið/Kristján
Leitað lausna: Þátttakendur í íbúaþinginu fengu miða til skrifa á sínar
hugmyndir um vandamál, drauma og lausnir í miðbænum á Akureyri og
höfðu þeir ýmislegt til málanna að leggja.
MIKLAR drunur kváðu við í mið-
borg Reykjavíkur og vesturbæ
laust fyrir klukkan tólf í fyrra-
kvöld og var þar á ferð Boeing 757
vél Flugleiða í flugtaki frá Reykja-
víkurflugvelli. Viðmælandi Morg-
unblaðsins lýsti því svo að vélin
hefði flogið mjög lágt yfir íbúða-
byggð og að miklar drunur hefðu
fylgt.
Fremur sjaldgæft er að jafn-
stórar vélar taki á loft frá Reykja-
víkurflugvelli, einkum seint á
kvöldin, eins og í þessu tilviki en
sérstaka undanþágu þarf til að
fara í loftið eftir klukkan 23:30 á
kvöldin.
Að sögn Heimis Más Pétursson-
ar, upplýsingafulltrúa Flugmála-
stjórnar, var þarna á ferð 170
manna hópur á vegum Lands-
banka Íslands sem fyrr um daginn
flaug til Egilsstaða í ferð upp á
Kárahnjúka. Hópurinn sneri aftur
til Reykjavíkur í fyrrakvöld en
þaðan flaug vélin án farþega til
Keflavíkur.
Miklar
drunur í
miðborg-
inni
Boeing 757-vél skilaði
af sér Landsbankafólki
frá Kárahnjúkum
EMILÍA Kofoed-Han-
sen Lyberopoulos,
ræðismaður Íslands í
Grikklandi, lést á
sjúkrahúsi í Kaup-
mannahöfn sl. föstu-
dag, 61 árs að aldri.
Emilía var fædd 1.
maí 1943, en foreldrar
hennar voru Agnar
Kofoed-Hansen flug-
málastjóri og Björg
Sigríður Anna Axels-
dóttir húsmóðir.
Emilía var búsett í
Aþenu í Grikklandi frá
árinu 1971 og gegndi
þar störfum ræðis-
manns Íslands í ára-
tugi. Hún aðstoðaði
fjölda Íslendinga og
núna síðast aðstoðaði
hún Íslendinga sem
tóku þátt í Ólympíuleik-
unum í Grikklandi í
sumar.
Emilía lætur eftir sig
eiginmann, Constantín
Lyberopoulos og tvö
uppkomin börn. Útför
hennar fer fram í
Reykjavík.
Andlát
EMILÍA
KOFOED-HANSEN
LÖGREGLAN í Reykjavík
handtók í nótt mann við Bald-
ursgötu en þá hafði hann brot-
ist inn í sjö bíla í hverfinu. Mað-
urinn var á reiðhjóli til að
komast hraðar á milli bílanna. Í
gærmorgun var ekki ljóst
hversu miklu hafði verið stolið.
Maðurinn var vistaður í fanga-
geymslum.
Hjólaði milli
bíla og
braust inn
TÓLF fyrirtæki frá Íslandi og fjög-
ur frá Möltu tóku þátt í sameig-
inlegri viðskiptasendinefnd Íslands
og Möltu sem sótti Rússland heim í
liðinni viku. Árni M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra fór fyrir
nefndinni.
Heimsóknin var skipulögð af Út-
flutningsráði Íslands í samstarfi við
sendiráð Íslands í Moskvu. Í frétta-
tilkynningu frá sjávarútvegsráðu-
neytinu kemur fram að fyrirtækin
sem tóku þátt starfa m.a. á sviði
sjávarútvegs, bankastarfsemi, fata-
iðnaðar, upplýsingatækni, tónlistar
og verktakastarfsemi. Viðskiptaráð-
stefnur voru haldnar í St. Péturs-
borg og Moskvu og fundir skipu-
lagðir á báðum stöðum. Markmið
ferðarinnar var að efla viðskipta-
tengsl landanna sem hafi aukist á
ný eftir mikla lægð undanfarin ár. Í
tilkynningunni segir að viðskipta-
fundirnir hafi gengið vel fyrir sig
og eru menn vongóðir um árangur.
Þá átti sjávarútvegsráðherra
fund með sjávarútvegsráðherra
Rússlands, Vladimir F. Korielsky, í
Moskvu. Þeir ræddu m.a. um úttekt
sem íslenska sjávarútvegs- og utan-
ríkisráðuneytið vinna að um við-
skiptatækifæri í rússneskum sjáv-
arútvegi. Einnig ræddu
ráðherrarnir ýmsa þætti er snúa að
veiðum þjóðanna úr sameiginlegum
fiskstofnum.
Árni Mathiesen og Vladimir F. Korielsky, sjávarútvegsráðherra Rússlands,
áttu fund í Rússlandi þar sem rætt var m.a. um sameiginlega fiskistofna.
Vilja auka við-
skipti við Rússland
FULLTRÚAR Félags grunnskóla-
kennara og launanefndar sveitarfé-
laga funduðu áfram í húsakynnum
ríkissáttasemjara í gærmorgun og
fram eftir degi. Fundað var til
klukkan 23 á föstudagskvöld og
komu skólastjórar saman um hálf-
níuleytið í gærmorgun og grunn-
skólakennarar um hálftíuleytið.
Engar fregnir voru af gangi við-
ræðna, samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu ríkissáttasemjara.
Grunnskólakennarar hefja verk-
fall að óbreyttu á mánudag, takist
ekki að semja. Um 45 þúsund
grunnskólabörn verða þá án skóla-
fræðslu en verkfallið nær til um
4.300 grunnskólakennara.
Áfram kennsla í einkaskólum
Kennarar þiggja verkfallsbætur
úr Vinnudeilusjóði kennara og
nema eignir hans um 900 milljónum
króna. Á fundi stjórnar sjóðsins í
vor var samþykkt að verkfallsbætur
í hugsanlegu verkfalli yrðu 3.000
krónur fyrir hvern verkfallsdag fyr-
ir félagsmann í fullu starfi og hlut-
fallslega fyrir hlutastarf, eða sem
nemur um 90 þúsund krónum fyrir
kennara í fullu starfi á mánuði.
Bæturnar eru skattskyldar.
Kennsla verður áfram í einka-
skólum á höfuðborgarsvæðinu komi
til verkfalls, sem flestir eru með
sérsamninga við sína kennara. Í Ís-
aksskóla fellur kennsla niður í
nokkrum bekkjardeildum, í Tjarn-
arskóla verður áfram kennt og
sömuleiðis í Barnaskóla Hjalla-
stefnunnar, Suðurhlíðarskóla og
Landakotsskóla, en í þeim síðast-
nefnda verða greidd atkvæði um
hugsanlega verkfallsboðun eftir
helgi.
Viðræður við
kennara halda
áfram í dag
SKJÁVÖRPUM og tölvubúnaði var
stolið í innbroti í verkmenntahús
Fjölbrautaskóla Suðurlands aðfara-
nótt laugardags. Verðmæti ráns-
fengsins var ekki ljóst þegar blaðið
fór í prentun.
Brotist inn
í Fjölbraut
DRAGNÓTABÁTURINN Benni
Sæm GK var dreginn til hafnar í
Keflavík á föstudag af systurskipi
sínu, Sigga Bjarna GK. Skipin voru
bæði að veiðum með dragnót í Faxa-
flóa þegar Benni Sæm fékk drag-
nótina í skrúfuna og varð stjórnlaus.
Fékk nótina
í skrúfuna
♦♦♦