Morgunblaðið - 19.09.2004, Page 6

Morgunblaðið - 19.09.2004, Page 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ K Y N N T U Þ É R S É R F E R Ð I R F E R Ð A Þ J Ó N U S T U B Æ N D A K Ö -H Ö N N U N /P M C Skíðaferð Ferðaþjónustu bænda verður að þessu sinni farin á skíðasvæðið Gastein sem er í Salzburger héraðinu. Brekkurnar eru samanlagt um 80 km langar og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Einnig er mjög stutt í stærri skíðasvæði, s.s. Wagrain og Flachau. Svæðið er snjóöruggt, nokkuð sem er mikilvægt á tímum hlýnandi veðurfars. Hótelið er hreint út sagt frábært og fararstjórinn hefur bæði reynslu og tungumál í farteskinu. Skíðaferð til Austurríkis 19. - 26. febrúar 2005 19. febrúar - 5. mars 2005 Fararstjóri: Sævar Skaptason www.baendaferdir.is s: 570 2790 Valur Ingimundarson sagn-fræðingur sagði í fyrir-lestri í gær að sambandBandaríkjanna og Íslands væri „brothætt og staðnað“, svokall- að „öryggissamfélag“ ríkjanna væri á því stigi að það væri að leysast upp og „eigi að endurnýja það þarf til mun víðtækari pólitíska og efnahagslega skuldbindingu af beggja hálfu en fjórar orrustuþotur“. Valur sagði í fyrirlestrinum, sem hann flutti á ráðstefnu um smáríki í Norræna húsinu í gær, að öryggis- stefna Íslands hefði verið í óvissu allt frá lokum kalda stríðsins. „Hún er byggð á hefðbundnum hugmyndum um landvarnir eins og kveðið er á um í varnarsamningi Bandaríkjanna og Íslands,“ sagði hann. „En hún er einnig undir áhrif- um hins nýja viðhorfs um alþjóðlega neyðarstjórnun, sem komu fram í þátttöku í friðargæslu á Balkanskaga og í Afganistan. Kjarnaþættir utan- ríkisstefnu Íslands – aðildin að Nató og varnarsamningur Bandaríkjanna og Íslands – eru óbreyttir. En vegna utanaðkomandi þrýstings – herfræði- legt gildi Íslands fyrir Bandaríkin er horfið – hefur streita skapast um varnarsamninginn. Íslenskum stjórnvöldum dugar ekki að veita stefnu Bandaríkjamanna í utanríkis- málum skilyrðislausan stuðning til þess að halda því, sem þau telja lág- markslandvarnir: fjórar orrustuþot- ur. Og þrátt fyrir endurnýjaðan áhuga á land- eða heimavörnum í kjölfar 11. september hefur afstaða Bandaríkjamanna ekki breyst.“ Gáfu eftir en upprunalega markmiðið óbreytt Valur sagði að kreppan í samskipt- um Bandaríkjanna og Íslands á síð- asta ári sýndi þetta greinilega. Til- raunir stjórnar George Bush forseta til að fjarlægja þoturnar fjórar án samþykkis Íslendinga hefðu leitt til þess að íslensk stjórnvöld hótuðu að ógilda varnarsamninginn og bætti við að „... þörfin til að fara fram á ystu nöf með þessum hætti sýndi hversu brothætt og staðnað hið tvíhliða sam- band var orðið“. Bandaríkjamenn gerðu sér hins vegar grein fyrir því, að mati Vals, að þeir þyrftu að umgangast banda- menn sína af meiri tillitssemi ef þeir vildu stuðning þeirra í stríðinu gegn hryðjuverkum og öðrum hernaðar- verkefnum: „Af þessari ástæðu gaf stjórn Bush eftir, um sinn að minnsta kosti. En hið upprunalega hernaðar- lega markmið Bandaríkjamanna hef- ur ekki breyst: að draga úr hernaðar- umsvifum í Keflavík og kalla hermennina og fjölskyldur þeirra aft- ur til Bandaríkjanna. Í stað sam- félags hermanna með útibúum frá McDonald’s og annarri þjónustu, er markmiðið að breyta Keflavík í fá- menna stöð, sem er rekin með eins fáum einhleypum hermönnum og unnt er.“ Valur sagði að endalok kalda stríðsins og stríðið gegn hryðjuverk- um hefðu markað breytingar, sem ekki hefðu orðið til að bæta samskipti Bandaríkjanna og Íslands. „Bandaríkjamenn vildu halda í varnarsamninginn án þess að hafa nokkurn hernaðarlegan áhuga á Ís- landi lengur og þar með var „öryggis- samfélagið“ komið á nýtt stig þar sem það hafði greinilega verið sett skör neðar þar sem líkur voru á því að það leystist upp vegna minni sam- skipta,“ sagði hann. „Íslensk stjórn- völd höfðu ekki gert ráð fyrir þessu. Þau treystu á að þau gætu tryggt óbreytt ástand í Keflavík með því að nota pólitísk áhrif sín í alþjóðlegum stofnunum á borð við NATO.“ Valur rakti hvernig Íslendingar hefðu ávallt stutt Bandaríkjamenn að málum frá 1991, allt frá stækkun NATO til innrásarinnar í Írak. „Þau gengu meira að segja í „bandalag hinna viljugu“ til að sýna tryggð sína jafnvel þótt í því væri fólgin mikil pólitísk áhætta í aðdrag- anda þingkosninga og 80% Íslend- inga væru andvíg stríðinu,“ sagði hann. „En íslensk stjórnvöld van- mátu eitt í sambandinu: vilja banda- rískra stjórnvalda til að knýja fram breytingar á alþjóðavettvangi að kalda stríðinu loknu. Það er vissulega ekki nýtt að Bandaríkjamenn vilji kveðja brott orrustuþoturnar. Það nær aftur til sjöunda áratugarins þegar bandaríski flugherinn fyrst vildi gera það. En utanríkisráðuneyt- ið kom alltaf í veg fyrir það vegna þess að þar var talið að það hefði nei- kvæðar pólitískar afleiðingar á Ís- landi. Frá sjónarhóli íslenskra ráða- manna gegndu þoturnar því hlutverki að sýna að stöðin þjónaði ekki aðeins hernaðarhagsmunum Bandaríkjamanna heldur einnig vörnum Íslands. Með öðrum orðum tengdust þær hugmyndum um full- veldi Íslands.“ Valur sagði að stjórn Bills Clintons hefði verið tilbúin að samþykkja að á Íslandi yrðu minnst fjórar þotur, en stjórn Bush hefði verið mun ákveðnari í að kalla þær burt þegar semja átti um endurskoðun samn- ingsins 2001. Stjórn Bush hafi sagt að hún væri áfram skuldbundin til að verja Ísland, en vildi gera það með viðbúnaði annars staðar en á Íslandi. „Til þess að ítreka það voru Ísland, Grænland og Azor-eyjar teknar af listanum yfir þau svæði, sem talið var nauðsynlegt að varnir Bandaríkj- anna næðu til eftir 11. september; herstöðinni í Keflavík er nú stjórnað frá herstjórn Bandaríkjanna í Evr- ópu, en ekki frá Bandaríkjunum sjálf- um,“ sagði hann. „Hið nýja tískuvið- kvæði er að deila byrðum – að Íslendingar beri hluta kostnaðarins af veru Bandaríkjanna.“ Höfnuðu hugmyndum um lofthelgiseftirlit Valur segir að um tíma á þessu ári hefði stjórn Bush greinilega talið að hægt væri að komast að málamiðlun, sem fólgin yrði í því að gera svipað samkomulag við Íslendinga um loft- helgiseftirlit og gert hefði verið við Eystrasaltsríkin og Slóveníu eftir að þau gengu í Atlantshafsbandalagið. „Lofthelgiseftirlit nær til eftirlits í lofti, flugstjórnar og ratsjáreftirlits, en ekki orrustuflugvéla,“ sagði Valur. „Markmið Bandaríkjamanna var greinilega að kveðja orrustuvélarnar frá Íslandi og láta eitthvert annað Nató-ríki sjá um lofthelgiseftirlit í takmarkaðan tíma. En íslensk stjórn- völd höfnuðu þessu af sömu ástæðu og áður: það myndi gera að engu sér- tæka skuldbindingu Bandaríkja- manna til varna Íslands.“ Valur sagði að greinilegt væri að Bandaríkjamenn hefðu ekki verið til- búnir að launa pólitískan stuðning Ís- lands með óbreyttu ástandi í Kefla- vík. „Til dæmis hafði stuðningurinn við stríðið í Írak engin áhrif á ákvörð- un Bandaríkjamanna um að draga orrustuþoturnar til baka á síðasta ári,“ sagði hann. „Það þurfti beina íhlutun framkvæmdastjóra Nató, Robertsons lávarðar, og harðort svar frá Davíð Oddssyni forsætisráðherra til Bush forseta til að fallið væri frá ákvörðuninni tímabundið. Utanríkis- ráðuneytið undir stjórn Powells var öndvert við það þegar kalla átti þot- urnar brott á sjöunda og tíunda ára- tugnum án áhrifa eða jafnvel vilja, að því er virðist, til að koma í veg fyrir það af pólitískum ástæðum.“ Hugmyndir um samstarf í efnahags- og orkumálum Í fyrirlestri Vals kom fram að Bandaríkjamenn beittu nú öðrum að- ferðum, sem ætlað væri að sefa bandamenn þeirra á Íslandi og færa heim sanninn um að draga þurfi úr hernaðarviðbúnaði vegna breyttra herfræðilegra aðstæðna. Fundi Bush og Davíðs í Hvíta húsinu hefði verið ætlað að endurvekja traust og varn- armálaráðuneytið réði ekki lengur gangi mála. Bandarísk stjórnvöld orði það svo að nú vilji þau „útvíkka“ samskiptin með því að einbeita sér að öðrum tvíhliða málum á borð við sam- starf í efnahags- og orkumálum, til dæmis með því að ýta undir fjárfest- ingar einkafyrirtækja á borð við álr- isann Alcoa eða setja peninga í þróun nýrra orkugjafa á borð við vetni. „Varnarmálaráðuneytið hefur sýnt slíkum verkefnum áhuga og senni- lega á samstarf í þessum efnum sem leið til að bætta upp fyrir áætlanir sínar um að kalla mestallt herliðið frá Íslandi,“ sagði hann. „Grundvallar- málin eru hins vegar óleyst og mig grunar að ekki muni nægja að tengja eftirgjöf Íslendinga efnahagssam- starfi eins og Bush stjórnin virðist nú stefna að. Sennilega er það pólitískt ógerlegt fyrir Davíð Oddsson að gefa eftir afgerandi afstöðu sína í þotu- málinu. Minnsti vottur af efnahags- legum og pólitískum skiptum að hætti kalda stríðsins yrði aðeins til að veikja málstað hans.“ Í niðurstöðum sínum sagði Valur að þrátt fyrir það að hernaðarlegu mikilvægi Íslands væri ekki lengur fyrir að fara og Ísland reiddi sig nú í auknum mæli á Evrópusambandið, bæði pólitískt og efnahagslega, hefði ekki orðið breyting á því hvernig Ís- lendingar skilgreindu öryggisstefnu sína. Lögð væri áhersla á sambandið við Bandaríkin, en kreppan í sam- skiptum ríkjanna 2003 sýndi veiluna í þessari nálgun: „Davíð Oddsson var tilbúinn að leggja allan varnarsamn- inginn undir – og þannig óhjákvæmi- lega að opna fyrir evrópska varnar- möguleika – þótt hann á sama tíma gagnrýndi öryggisstefnu Evrópu- sambandsins þrátt fyrir að Ísland væri þáttur í henni.“ Hin fræðilega skilgreining á „ör- yggissamfélagi“ er samkvæmt Karli Deutsch háð því að tvö eða fleiri full- valda ríki verði hvert öðru háð vegna sífellt nánari samskipta, sem muni leiða til alþjóðlegs- eða milliríkjasam- félags, sem byggist á sameiginlegum hugmyndum og gildum og fjölþætt- um samskiptum á borð við varnar- samstarf, viðskipti, flutninga fólks milli þeirra, ferðamennsku og menn- ingar- og menntasamstarfi. Valur sagði að samkvæmt skilgreiningu Deutsch mætti segja að Ísland væri á fyrsta stigi þess að koma á „öryggis- samfélagi“ við Evrópusambandið, bæði vegna efnahagslegra tengsla og þátttöku í alþjóðlegum friðarverkefn- um. Þarf víðtækari skuldbindingu en fjórar orrustuþotur „Íslenskir ráðamenn hafa undan- farna áratugi gætt þess að jafnvægi væri á milli pólitískra og efnahags- legra hagsmuna í Evrópu og öryggis- hagsmuna gagnvart Bandaríkja- mönnum. Í heiti þessa erindis spurði ég hvort komið væri að endalokum hins bandarísk-íslenska „öryggis- samfélags“. Það náði að þróast á tím- um kalda stríðsins, en hefur greini- lega dregist saman þannig að nú er aðeins um að ræða það sem kalla má hreina bandalagapólitík. Ýmis skil- yrði „öryggissamfélags“ vantar, til dæmis hernaðarlegt mikilvægi Ís- lands, umfangsmikinn efnahagsþátt (þar er Evrópa nú aðsópsmest), og hæfnina til að bæta upp fyrir tap hernaðarmikilvægis með pólitískum stuðningi. Samkvæmt kenningunni er það að leysast upp, eigi að end- urnýja það þarf til mun víðtækari pólitíska og efnahagslega skuldbind- ingu af beggja hálfu en fjórar orr- ustuþotur,“ sagði Valur Ingimundar- son. Valur Ingimundarson sagnfræðingur fjallaði um varnarmál og samskipti Íslands og Bandaríkjanna Samband ríkjanna brothætt og staðnað Morgunblaðið/Þorkell Valur Ingimundarson sagnfræðingur fjallaði um varnarmál í fyrirlestri í Norræna húsinu í gær. Valur Ingimundarson sagnfræðingur telur að kreppa sé í samskiptum Bandaríkj- anna og Íslands og víðtækari skuldbindingu þurfi til en samkomulag um fjórar orrustuþotur eigi að blása í þau nýju lífi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.