Morgunblaðið - 19.09.2004, Page 8

Morgunblaðið - 19.09.2004, Page 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Glæsileg gjöf fylgir öllum lúxus-andlitsböðum í september eða á meðan birgðir endast Láttu dekra við þig á næstu snyrtistofu Reykjavík og nágr. Dekurhornið Faxafeni 14, 108 Rvík S. 567 7227 Paradís Laugarnesvegi 82, 105 Rvík S. 553 1330 Spa Fegurð Laugavegi 96, Rvík S. 511 6660 Snyrtistofan Ágústa Hafnarstræti 5, Rvík S. 552 9070 Snyrtistofa Díu Bergþórugötu 5, 101 Rvík S. 551 8030 Snyrtistofa Helen Hrolfsson Kleppsvegi 150, Rvík S. 865 8161 Snyrtistofan Rós Engihjalla 8, 200 Kóp. S. 554 0744 Snyrtistofan Lipurtá Staðarbergi 2-4, Hafn. S. 565 3331 Snyrtistofan Þema Reykjavíkurvegi 64, 220 Hafn. S. 555 1938 Landið: Snyrti- og nuddstofan Spes Suðurgötu 10, Sandgerði S. 423 7953 Snyrtistofa Jennýjar Lind Borgarbraut 3. S. 437 1076 Snyrtist. Mánagull Aðalstræti 21-23, Bolungarvík S. 456 7590 Snyrtist. Betri líðan Geislagötu 14, Akureyri S. 462 4660 Snyrtistofa Ragnheiðar Dynskógum 4, Egilsstöðum S. 471 1331 Heilsa og útlit Álaugarvegi 7, Höfn S. 487 2474 Snyrtistofa Löllu Heilsust. NLFÍ, Hveragerði S. 483 0273 Snyrtistofa Ágústu Hilmisgötu 2a, Vestmeyjum S. 481 2268 Um 6.000 hand-slökkvitæki meðhaloni eru í um- ferð á Íslandi, en frá síð- ustu áramótum hefur verið bannað að nota þessi slökkvitæki við slökkvi- starf. Þau eru nú flokkuð sem hættulegur úrgangur og ber að skila. Dagur ósonlagsins var á fimmtudag, 16. september, en Sameinuðu þjóðirnar hafa efnt til hans síðastliðin ár og minnst þess að árið 1987 var Montreal-bókunin undirrituð. Alls rituðu 50 þjóðir undir bindandi samning um að vernda ósonlagið með því að draga úr notkun klórflúorkolefna og halona, en þeim hefur nú fjölgað í 190. Montrealbókunin og fram- kvæmd hennar hefur orðið fyrir- mynd annarra alþjóðlegra samn- inga um lausn á umhverfisvanda, t.d. Kyoto-bókunarinnar. Heiðrún Guðmundsdóttir, um- hverfis- og líffræðingur og sér- fræðingur hjá Umhverfisstofnun, segir að með aðgerðum sem gripið var til í kjölfar undirritunar Mont- real-bókunarinnar hafi tekist að draga verulega úr notkun ósoneyð- andi efna, ósoneyðandi áhrif hafi minnkað um 80%. Eyðing óson- lagsins veldur því að útfjólubláir geislar sólar komast að yfirborði jarðar en aukin útfjólublá geislun eykur tíðni húðkrabbameina og blindu af völdum gláku. Alvarleg- ustu áhrifin eru þó uppskerubrest- ur, veiklað ónæmiskerfi manna og dýra og einnig hefur hún skaðleg áhrif á svifið í sjónum. Montreal-bókunin markaði að sögn Heiðrúnar upphafið að því að ósoneyðandi efni voru bönnuð, fyrst freonefni, sem m.a. voru í brúsum með ýmsum efnum, þá voru kælimiðlar bannaðir, en þeir voru m.a. í ísskápum „síðan hefur smátt og smátt tekið gildi bann efna sem eyða ósonlaginu, síðast slökkviefnið halon. Það er ýmislegt gert til að stoppa losun þessara efna,“ sagði Heiðrún en að hennar mati hefur framkvæmd samnings- ins verið vel heppnuð. Úðabrúsar voru bannaðir á Ís- landi 1989, klórflúorkolefni, cfc, sem m.a. var í ísskápum, voru bönnuð árið 1993 og ári síðar, þeg- ar EES-samningurinn tók gildi, var tekin upp reglugerð sem bann- aði notkun ósoneyðandi efna, en enn var heimilt að flytja inn endur- unnin efni. Árið 1997 gekk í gildi bann við að setja upp og smíða nýj- an búnað með ósoneyðandi efnum sem og að flytja þau inn til lands- ins. Tveimur árum síðar var svo sett reglugerð þar sem mönnum var gert að taka niður slökkvikerfi sem innihélt halon. „Það var bann- að að flytja inn handslökkvitæki með haloni árið 1993, en ekkert var gert, tækin sem voru í notkun voru aldrei innkölluð. Fólk er því enn með slík tæki inn á heimilum sínum og þau eru líka í einstaka fyrir- tækjum,“ sagði Heiðrún. Hún sagði mikinn kostnað við að eyða efninu og engir sjóðir til í landinu til að mæta kostnaði við að eyða haloni, en slíku var til að dreifa varðandi kælimiðlana. Um 6.000 handslökkvitæki með haloni eru enn í umferð hér á landi. „Þetta er mikið magn,“ sagði Heið- rún, en hún hvetur fólk til að skila tækjunum inn til spilliefnamóttöku sveitarfélaganna. Einstaklingar geti skilað slíkum tækjum sér að kostnaðarlausu en fyrirtæki þurfi að borga um 700 krónur fyrir hvert kíló, tækið í heild er vigtað þannig að kostnaður við skil þess getur numið nokkur þúsund krónum fyr- ir hvert tæki. Halon er öflugasta ósoneyðandi efnið sem þekkist og er t.d. 200 sinnum öflugra en kæli- miðillinn sem mest er notaður í fiskiskipaflotanum. „Við höldum að fólk geri sér alls enga grein fyrir því hvað það er með í höndunum. Þessi tæki voru keypt í miklu magi fyrir röskum áratug og þau dreifð- ust víða um landið. Þetta er í raun ekkert annað en hættulegt efni sem bannað er að nota.“ Heiðrún sagði Íslendinga eiga sinn þátt í losun ósoneyðandi efna þrátt fyrir að notkunin hafi dregist saman undanfarin áratug. Enn eru flutt inn til landsins yfir 60 tonn af slíkum efnum til notkunar á kæli- og frystikerfi í fiskiskipaflotanum og hefur innflutningur aukist síð- astliðin fjögur ár. „Þetta er mjög slæmt, því við höfum, eins og aðrar þjóðir, skuldbundið okkur til að draga úr innflutningi á þessum efn- um. Það er neikvætt að sjá í op- inberum skýrslum að við höfum aukið okkar innflutning á þessum efnum þegar dregið hefur úr hjá öðrum þjóðum,“ sagði Heiðrún. Skýringar á aukinni notkun efn- anna sagði hún m.a. þær að kerfin leka, þá eru efnin seld um borð í út- lend skip án þess að vera skráð sem útflutningur. Fram til ára- móta 2002–2003 var hægt að fá endurgreitt spilliefnagjald, en það hefur lækkað úr 98 krónum í 2,50, „þannig að mönnum finnst enginn akkur í því lengur að fá endur- greitt, þetta eru smáaurar“. Eins nefndi Heiðrún að ný skip með stórum frysti- og kælikerfum hefðu verið tekin í notkun hér á landi. Fréttaskýring |17 ár liðin frá undirritun samningsins um verndun ósonlagsins Notkun efn- anna minnkað um 80% Þróunarlöndin verða verst úti Skila ber handslökkvitækjum með haloni til spilliefnamóttöku sveitarfélaganna. Enn eru 6.000 halon- slökkvitæki í notkun  Þróunarlöndin verða verst úti vegna aukinnar útfjólublárrar geislunar, en þar er ósonlagið þunnt af náttúrulegum ástæðum. Ástæðan er ekki sú að notkun efnanna sé meiri í þessum lönd- um, heldur að iðnríki heims hafa áratugum saman losað þúsundir tonna af ósoneyðandi efnum út í umhverfið, m.a. halon, klórflúor- kolefni og vetnisklórflúorkol- efni. maggath@mbl.is BÆJARSTJÓRN Austur-Héraðs mótmælir hugsanlegri færslu þjóð- vegar 1 af Skriðdal og um Breiðdals- heiði yfir í Fagradal og um Fáskrúðs- fjarðargöng og Suðurfirði. Var samþykkt ályktun á fundi bæjar- stjórnar þar sem „...bæjarstjórn skor- ar á þingmenn og samgönguyfirvöld að standa gegn slíkum hugmyndum, enda eru þær í andstöðu við þá stefnu sem viðhöfð hefur verið að þjóðvegur 1 sé ávallt stysta hringleið um landið. Slík breyting minnkar ekki þörf fyrir varanlega vegagerð og breiðari brýr í Skriðdal. Öryggi vegfaranda á þeirri leið verður ekki bætt með því að færa til númer þjóðvega, því staðreyndin er að allur megin þungi umferðarinn- ar velur sér stystu leið milli áfanga- staða, eins og kom í ljós þegar vegur yfir Öxi var lagfærður“, segir í álykt- un bæjarstjórnar Austur-Héraðs. Jafnframt var samþykkt að koma á fundi með sveitarstjórn Austur- byggðar hið fyrsta, þar sem leitað verði nánari skýringa og upplýsinga um afstöðu sveitarstjórnar Austur- byggðar. Hugmyndum um tilfærslu þjóðvegar 1 mótmælt AF 98 umsækjendum sem þreyttu inntökupróf í Lögregluskóla ríkisins féllu 32 á þrekprófum og þrír stóðust ekki íslenskupróf. Í fyrra féllu um 27% á þrekprófunum þannig að fall- kandítatarnir voru heldur fleiri en venja er til. „Ég held að við verðum að skella skuldinni á ástandið á fólkinu,“ segir Gunnlaugur Snævarr, yfirlögreglu- þjónn og formaður valnefndar Lög- regluskólans. Hann bendir á að lög- reglustarfið reyni talsvert á þol manna og styrk og því sé ekki annað hægt en að gera kröfur um gott lík- amsástand. Prófin séu raunar ekki ýkja erfið og líklega auðveldari en annars staðar á Norðurlöndunum. Af þeim 150 sem sóttu um skóla- vist töldust 124 vera hæfir en aðeins 98 mættu í inntökuprófin, 20 konur og 78 karlar. Gunnlaugur segir alltaf eitthvað um að menn sem útilokað sé að taka inn í skólann sæki um, m.a. menn með langan sakarferil. Nefndin mun velja 20 hæfustu um- sækjendurna úr hópnum og munu þeir hefja nám við Lögregluskólann í janúarbyrjun 2005. Þriðjungur féll á þrek- prófum UM 65% meira seldist af kindakjöti í júlí í ár en í sama mánuði í fyrra. Í ágúst var söluaukningin rúm 30% og sala síðasta ársfjórðung jókst um tæp 39% miðað við sama tímabil árið 2003. Í tilkynningu frá Markaðs- ráði kindakjöts segir að birgðaaukn- ing hafi verið á kindakjöti undanfar- in tvö ár. „En þar sem salan hefur farið langt fram úr björtustu vonum eru birgðir kjöts frá fyrra ári langt- um minni en menn gerðu ráð fyrir og birgðastaða í lok ágúst orðin ásæstt- anleg. Þessi góða sala ber þess vitni að bændur eru að framleiða úrvals- vöru sem sannast best á sérstaklega góðri umfjöllun og viðtökum á er- lendum mörkuðum en útflutningur á dilkakjöti inn á dýra markaði erlend- is hefur gengið mun betur en áætlað var,“ segir í tilkynningunni. Salan fram úr björtustu vonum ♦♦♦ Farvel Frans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.