Morgunblaðið - 19.09.2004, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 19.09.2004, Qupperneq 11
vegna hlutafjáraukningar og voru lánin sérstaklega tryggð með skuldabréfum á hluthafana. Hall- varður hafi því getað komizt að sömu niðurstöðu og Sakadómur þremur árum síðar og tekið ákvörðun um að ekkert tilefni væri til ákæru. Þegar ég spyr Lárus, hvort hann telji að Hallvarður hafi hunzað bréfið og hvers vegna hann hafi þá kosið að horfa framhjá þessum upplýsingum, horfir hann stundarkorn út um gluggann á gróskumikil trén í garð- inum. „Ég veit það ekki,“ segir hann svo. „Mér er það algjörlega hulin ráð- gáta, eins og fram kemur í skýrsl- unni.“ Lárus segir, að menn hafi almennt talið það fjarstæðu, að Hallvarður myndi fara með ákæruvaldið í mál- inu, þar sem hann er bróðir Jóhanns Einvarðssonar, þá bankaráðsmanns í Útvegsbankanum. Enda fór svo að Hæstiréttur dæmdi 4. júní 1987 Hallvarð vanhæfan til að sækja mál- ið vegna setu bróður hans í banka- ráðinu og ákærum á hendur stjórn- endum Útvegsbankans og Hafskips var vísað frá dómi. „Það er svo mál út af fyrir sig,“ segir Lárus, „að þetta augljósa van- hæfi Hallvarðs lengdi erfið málaferli á hendur okkur mikið á annað ár.“ Ákæra Hallvarðs kom tveimur dögum eftir stofnfund nýs Útvegs- banka; Útvegsbanka Íslands hf., en gert hafði verið ráð fyrir því að allt starfsfólk ríkisbankans yrði endur- ráðið til hins nýja banka. Starfsfólkið var allt endurráðið, nema banka- stjórarnir fjórir, sem sættu ákæru; Ólafur Helgason, Halldór Guðbjarn- arson, Lárus og Axel Kristjánsson, aðstoðarbankastjóri, en Matthías Bjarnason taldi sér ekki fært vegna ákærunnar að óska eftir því að bankastjórarnir yrðu endurráðnir. „Þar með var ég búinn að missa bæði mannorðið og vinnuna,“ segir Lárus. – En vonina? „Nei. Ég missti hana aldrei, þótt mikið gengi á.“ Eiginkona Lárusar, Guðrún Jóns- dóttir, á leið framhjá okkur og ég spyr hana, hvort þessi mál hafi ekki haft áhrif á aðra í fjölskyldunni? „Við lifðum öll í þessum skugga,“ svarar hún og brosir. „Þetta er tími, sem maður vill helzt gleyma.“ „Það tók mest á að sjá börnin ganga í gegnum þetta,“ segir Lárus. „Ég man þegar yngsta dóttir okk- ar kom utan úr búð eftir að hafa séð forsíðu Helgarpóstsins með ákær- unni á hendur föður hennar,“ segir Guðrún. „Það var henni ólýsanlegt áfall. Auðvitað reyndum við að halda okkar striki. En líf fjölskyldunnar var einhvern veginn undirlagt af þessum ósköpum, meðvitað og ómeð- vitað. Ég skynjaði líka að framkoma fólks við okkur breyttist.“ – Efaðist þú aldrei um sakleysi hans? spyr ég Guðrúnu. Hún horfir fast í augu mér um leið og hún segir: „Nei. Ég vissi alltaf að hann var saklaus. Það var mitt haldreipi.“ Önnur ákæra, ekki betri Nýr saksóknari í Hafskipsmálinu, Jónatan Þórmundsson, lét rannsaka ýmsa þætti upp á nýtt. Lárus segir, að þeir fyrrverandi stjórnendur Út- vegsbakans hafi bundið vonir við það að með þessari síðari rannsókn kæmi í ljós að fyrri ákærur hefðu verið ástæðulausar. „Ég var að vona að hann færi betur í saumana í mála- tilbúnaðinum gegn okkur og félli þá frá því að ákæra.“ En Lárusi og félögum varð ekki að þeim vonum, að málið væri búið hvað þá snerti. Jónatan Þórmundsson gaf 11. nóvember 1988 út ákæru á hend- ur þeim bankastjórum og bankaráði sem stjórnuðu bankanum, þegar Hafskip varð gjaldþrota. „Þetta högg var eiginlega hálfu þyngra en það fyrra. Og var það þó alveg nóg,“ segir Lárus. „Það kom í ljós að ákæra Jónatans var ekki betur grunduð en fyrri ákæran. Hún var byggð fyrst og fremst á skýrslu sérfræðinganefndarinnar og annarri skýrslu, sem endurskoðandi bankans gerði, en kom Hafskipsmál- inu ekki við, eins og kom glöggt í ljós í réttarhöldunum. Þá skýrslu mis- túlkaði Þórður Ólafsson, forstöðu- maður bankaeftirlitsins, en hann var svo sannarlega á hálum ís í þessu máli öllu. Því miður lágu nýjar rannsóknir um raunverulega fyrirgreiðslu bank- ans á starfstíma okkar ekki til grundvallar ákæru Jónatans." Lárus segir þessi vinnubrögð hafa komið ákæruvaldinu í koll. Fimmta júlí 1990 var sýknudómur kveðinn upp yfir stjórnendum Útvegsbank- ans. Tveimur dögum síðar sagði Jón- atan Þórmundsson af sér sem sér- stakur saksóknari í Hafskipsmálinu og þremur dögum síðar var aðstoð- armaður hans, Páll A. Pálsson, skip- aður í hans stað; fjórði saksóknarinn, sem kom að málinu. Páll A. Pálsson ákvað að áfrýja ekki sýknudómnum yfir stjórnend- um Útvegsbankans. Þar með var málaferlunum lokið og Lárus Jóns- son og meðstjórnendur hans stóðu uppi sem sannanlega saklausir menn. Augnablik þegar um allt er efast „Ég á erfitt með að lýsa viðbrögð- um mínum, þegar sýknudómurinn var kveðinn upp og stöðvaði þessa hroðalegu hringekju múgsefjunar- innar. Vissulega var ég glaður og feginn. Það var ákaflega sérstakt að upplifa það á Íslandi, að vera á vissan hátt sekur þjóðfélagsþegn þar til sakleys- ið sannast.“ – Efaðist þú aldrei í öll þessi ár? „Nei. Ég var alltaf sannfærður um það í hjarta mínu að við yrðum sýkn- aðir. Við stjórnendur bankans lögðum nótt við dag í viðleitni okkar; „unnum björgunarstörf“ af fremsta megni. Bankastjórnin var einhuga í því verki og bankaráðið studdi okkur dyggilega. Við gjörþekktum allar að- stæður og svo sannarlega kom eng- um okkar til hugar, að við yrðum taldir vanrækja skyldur okkar. Við vorum því alltaf sannfærðir um sýknu í málinu. Auðvitað komu upp augnablik, þegar ég efaðist um allt. Ég hef lesið frásagnir þeirra, sem lenda saklausir í einhverjum svona hremmingum, að það jaðrar við að þeir trúi hverju sem er. Ég skil þær frásagnir vel. Sem betur fer brotnaði ég aldrei. Bognaði kannski. Ég þurfti oft að stappa í mig stálinu. En ég náði alltaf að rétta úr mér aftur. Ég á líka góða fjölskyldu, sem stóð með mér, hvað sem á dundi. Ég vissi alltaf, að við höfðum ekki gerzt sekir um vanrækslu. Til hins er að líta, að engin fordæmi voru fyrir því að þeir sem stýra opinberum fjármálastofnunum séu taldir sekir um brot á hegningarlögum, þótt til taps komi vegna gjaldþrota við- skiptavina. Það hafa margir opinberir sjóðir tapað meiru fé en Útvegsbankinn tapaði í Hafskipsmálinu. Miklu meiru. Þegar upp var staðið tapaði Útvegsbankinn um 250 milljónum króna á gjaldþroti Hafskips. Árið 1990 töpuðu opinberir sjóðir og rík- isbankar einum og hálfum milljarði króna. Þetta sýnir líka í hnotskurn hversu einstök aðförin að okkur stjórnendum Útvegsbankans var.“ – En hvað með Hafskip? Því hefur verið haldið fram, að það hafi í raun ekki verið gjaldþrota. „Hefði okkur tekizt að selja félagið í rekstri, eins og við reyndum svo mjög, má ef til vill halda því fram að það hefði forðað félaginu frá gjald- þroti. En af slíkri sölu varð ekki. Hama- gangurinn í þjóðfélaginu kom í veg fyrir það. Skipafélagið jók hlutafé sitt í árs- byrjun 1985 en tapaði nær fjórfaldri þeirri upphæð á síðustu starfsárum sínum og áframhaldandi taprekstur var fyrirsjáanlegur. Því fór sem fór, þegar ekki var hægt að selja viðskiptasamböndin með sölu á félaginu í rekstri.“ – Kom til álita að leita eftir skaða- bótum, þegar sýknudómurinn hafði fallið? „Við skrifuðum ríkisstjórn Stein- gríms Hermannssonar, sem sat 1989-91, en Jóni Sigurðsson fór með bankamálin í henni, og óskuðum eftir viðræðum um bætur fyrir meðferð- ina á okkur. Svarið var stutt og laggott: Nei! Það yrði ekki gert öðruvísi en að við sæktum það fyrir dómstólum. Við ræddum við marga lögfróða menn um okkar rétt. Þeir töldu ákæruvaldið hins vegar hafa svo rúmar heimildir, að við gætum ekki sótt bótarétt á þeim forsendum, að ákæra hefði verið óþörf. Í annan stað gátum við ekki hugs- að okkur að fara í skaðabótamál. Til þess vorum við orðnir of þreyttir á málaferlum. Okkur fannst einfald- lega komið nóg.“ Hvað ef …? – Hefur þú velt því fyrir þér, hvert lífshlaup þitt hefði orðið, ef þú hefðir ekki farið í Útvegsbankann? „Stjórnmálin eru engin hæginda- stóll. En auðvitað hefði allt annað orðið upp á teningnum, ef ég hefði haldið þar áfram. Nú eða farið eitt- hvað annað en í Útvegsbankann. Ég hef svo sem hugleitt það. En það þjónar ekki miklum tilgangi, þegar ákvörðunin er tekin, að hugsa ef þetta og ef hitt. Út af fyrir sig lít ég á lífshlaup mitt sem geysilega reynslu sem mann- eskja. Og þegar ég sit hérna núna er ég hreint ekki viss um að ég vildi vera án þessarar reynslu, þótt hún hafi verið dýru verði keypt. Maður verð- ur bara einhvern veginn öðruvísi maður á eftir.“ – Betri maður? „Það skal ég ekki segja. Mér líður að minnsta kosti ekki illa. Ég á til dæmis betra með að setja mig í spor þeirra sem verða fyrir óréttlæti og ofsóknum. “ – Er þessi skýrsla nú einhvers konar uppgjör af þinni hálfu? „Ekki rifja ég þessa hluti upp af hefndarhug. Ég hata ekki nokkurn mann. Ég á heilmikil gögn um þetta mál. Mér fannst rétt úr því sem komið var að taka saman heildstæða skýrslu um staðreyndir málsins, gera auðvit- að hreint fyrir mínum dyrum um leið og skrifa mig frá þessari reynslu. Setja síðan góðan punkt á eftir! Eiginlega ætlaði ég skýrsluna upphaflega vinum og vandamönnum í tilefni sjötugsafmælis míns í fyrra. En svo finnst mér hún eiga erindi víðar. Hún getur kennt mönnum að læra af þeim mistökum og því offorsi sem einkenndi Útvegsbankaþátt Haf- skipsmálsins og þannig stuðlað að því, að við búum við betra réttarríki eftir en áður.“ rannsóknaaðilum og bankaeftirliti og dómhörku alþingismanna og fjölmiðlafári, sem hann segir hafa kynt undir múgsefjun í landinu. í mig stálinu Bankastjórn Útvegsbankans síðustu starfsár hans; Reynir Jónasson aðstoðarbankastjóri, Ólafur Helgason bankastjóri, Lárus Jónsson bankastjóri, Halldór Guð- bjarnarson bankastjóri og Axel Kristjánsson aðstoðarbankastjóri. Þeir voru allir ákærðir í tvígang, nema Reynir, sem hafði ekki með höndum málefni Hafskips. Fjórmenningarnir voru allir sýknaðir í Sakadómi Reykjavíkur 5. júlí 1990 og 17. desember það ár ákvað sérstakur saksóknari að áfrýja ekki þeim dómi. freysteinn@mbl.is ’Skýrslan getur kennt mönnum að læraaf þeim mistökum og því offorsi, sem einkenndi Útvegsbankaþátt Hafskips- málsins, og þannig stuðlað að því, að við búum við betra réttarríki eftir en áður.‘ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 11 Skýrsla Lárusar Jónssonar; Út- vegsbankaþáttur Hafskipsmáls- ins, er birt í heild með frétt á fréttavef Morgunblaðsins; mbl.is Skýrslan á Netinu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.