Morgunblaðið - 19.09.2004, Síða 12

Morgunblaðið - 19.09.2004, Síða 12
12 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Sigríður Anna Þórðardóttir tók við sætiumhverfisráðherra í ríkisstjórn Ís-lands á miðvikudag. Hún hafði setiðrúman sólarhring í embætti þegarMorgunblaðið átti við hana viðtal. Þrátt fyrir skamma ráðherratíð þekkir hún mæta vel til umhverfismála eftir langa þingsetu og að hafa stýrt umhverfisnefnd Alþingis frá því í fyrra. Sigríður Anna var fyrst spurð að því hvaða verkefni hún teldi vera brýnust í um- hverfismálum hér á landi um þessar mundir. „Mér finnst mjög brýnt að fylgja eftir nátt- úruverndaráætlun sem samþykkt var á Alþingi í vor sem leið. Hún er fyrsta áætlun sinnar teg- undar sem litið hefur dagsins ljós hér á landi,“ segir Sigríður Anna. Hún segir mikið óunnið samkvæmt áætluninni, meðal annars það sem viðkemur málefnum þjóðgarða. Þar á meðal stækkun þjóðgarðsins í Skaftafelli, sem Siv Friðleifsdóttir, þáverandi umhverfisráðherra, kynnti 12. september síðastliðinn. „Það kemur í minn hlut að ganga frá stækkun Skaftafellsþjóðgarðs og reglugerð sem verður sett í kjölfar áformanna um stækkunina. Þegar hún er tilbúin verður gengið formlega frá stækkun Skaftafellsþjóðgarðs.“ Sigríður Anna telur að jafnvel geti orðið af því nú í nóvember. „Síðastliðið vor var skilað skýrslu þar sem settar voru fram hugmyndir um Vatnajökuls- þjóðgarð, norðan Vatnajökuls. Menn sjá fyrir sér í framtíðinni Vatnajökulsþjóðgarð sem nái frá strönd til strandar. Alveg frá þjóðgarðinum í Skaftafelli og norður í Öxarfjörð, meðfram Jök- ulsá á Fjöllum. Þetta viðfangsefni blasir við og þarf að vinna úr þeim hugmyndum sem þegar hafa verið settar fram.“ Aðspurð segir Sigríður Anna að ekki sé kom- in tímaáætlun um stofnun Vatnajökulsþjóð- garðs. Meiri tíma þurfi til að vinna úr hugmynd- unum áður en hægt verður að tímasetja hana. Meðal mála sem langt er komið að undirbúa í umhverfisráðuneytinu er endurskoðun skipu- lags- og byggingalaga. Sigríður Anna segist eiga von á að frumvarp að nýjum skipulags- lögum ásamt nýjum byggingalögum verði tilbú- ið síðar á þessu ári. Ef til vill verði hægt að leggja það fyrir Alþingi öðru hvorum megin við næstu áramót. Aðspurð sagðist Sigríður Anna ekki vera reiðubúin til að greina frá nýmælum í frumvarpinu á þessu stigi málsins. Virkjanir og rammaáætlun Virkjanir á hálendi Íslands hafa vakið hörð mótmæli og ekki hægt að segja að eindræg sátt hafi ríkt um þau mál. Uppi eru áform um frekari framkvæmdir á hálendinu, má þar nefna veit- ingu Skaftár í Langasjó, virkjun í Skjálfanda- fljóti og bryddað á virkjun Jökulsár á Fjöllum. Hvað segir umhverfisráðherra um þessi áform? „Menn eru að varpa fram ýmsum hugmynd- um og mörg þessara áforma eru á algjöru frum- stigi. Mikilvægast er að það sé unnið mjög vel og nákvæmlega að öllum undirbúningi. Síðast- liðinn vetur var tilbúinn fyrsti hluti Ramma- áætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Það er á stefnuskrá ríkisstjórnarinnar að ljúka vinnu við rammaáætlunina á þessu kjörtímabili. Þarna er verið að leggja mat á virkjunarkosti og þeir bornir saman hvað varðar hagkvæmni, um- hverfisáhrif og fleiri þætti. Þetta er mikilvæg vinna og nauðsynleg til að hægt sé að forgangs- raða virkjanakostum af skynsemi.“ Sigríður Anna telur brýnt að hafa slíkar rannsóknir í höndunum þegar teknar eru ákvarðanir í svo stórum málum sem hafa mikil áhrif jafnt á atvinnulíf þjóðarinnar og náttúr- una. „Það er auðvitað skylda okkar að nýta þessar auðlindir á sjálfbæran hátt. Við þurfum að gera það með varúð og horfa til framtíðar – í raun og veru einnig til komandi kynslóða þegar slíkar ákvarðanir eru teknar. Enginn veit betur en við, sem búum í harðbýlu landi, hve brýnt það er að nýta gæði náttúrunnar af virðingu og varfærni. Ég legg áherslu á að náttúruvernd og nýting auðlinda geta farið ágætlega saman. Mér finnst hafa verið rík tilhneiging til að tefla þessu fram sem andstæðum. Ég tel það af og frá að það þurfi að vera svo. Öllum umsvifum mannsins fylgja einhver áhrif. Það er ljóst að við verðum að nýta auðlindir okkar. Það er mikilvægt að það sé gert í góðri sátt. Til þess að við getum lif- að góðu lífi í þessu landi þurfum við að nýta auð- lindir vatnsafls og jarðvarma alveg eins og við nýtum gæði hafsins og fiskistofnana og það sem landið gefur af sér að öðru leyti.“ Umhverfisráðherra og ríkisstjórn Umhverfisráðuneytið hefur verið gagnrýnt fyrir að sýna virkjunaráformum of mikla und- anlátssemi. Í stað fyrir að standa vörð um nátt- úruna skrifi það upp á hverja fórnina á fætur annarri. Er eitthvað til í þessu? „Ég minni á Eyjabakkana,“ segir Sigríður Anna. „Þau virkjanaáform, sem þar voru fyr- irhuguð, voru harðlega gagnrýnd. Það varð ekki úr þeim, fyrst og fremst vegna þess að gagn- rýnin var mjög mikil og ekki hægt að ná þar sáttum. Þess vegna var hugað að öðrum virkj- anakostum.“ Lítur þú þannig á að embætti umhverfisráð- herra sé að standa vörð um náttúruna? Er hann talsmaður náttúrunnar í ríkisstjórn? „Náttúruvernd er eitt af mikilvægum verk- efnum sem falla undir umhverfisráðuneytið og umhverfisráðherra talar sannarlega fyrir þeim málum í ríkisstjórn. En umhverfisráðherra er hluti af ríkisstjórninni. Hún setur sér sáttmála, mótar markmið og stefnu í upphafi síns starfs. Ríkisstjórnin er bundin af því samkomulagi. Umhverfisráðherra hlýtur að vera bundinn af því eins og aðrir ráðherrar.“ Sigríður Anna segist líta á náttúruvernd sem mjög gildan þátt í starfsemi umhverfisráðu- neytisins. „Þau áform sem við höfum verið að ræða í náttúruverndaráætlun og málefnum þjóðgarða eru mjög stórhuga áform um nátt- úruvernd. Þau eru af stærðargráðu sem ekki þekkist í öðrum Evrópulöndum. Skaftafells- þjóðgarður, eftir stækkunina, verður til dæmis einn og sér stærsti þjóðgarður í Evrópu.“ Nauðsyn að það ríki traust Borið hefur á því að samtök náttúruverndar- sinna beri ekki fullt traust til stjórnvalda í nátt- úruverndarmálum. Þarf að efla þetta traust? „Það hefur verið ágætt samstarf við náttúru- verndarsamtök af hálfu ráðuneytisins og í gildi samstarfssamningur milli þessara samtaka og umhverfisráðuneytisins. Hann gengur meðal annars út á að ráðuneytið styrki starfsemi þeirra með fjárframlögum. Ég tel mjög mik- ilvægt að þarna ríki traust samvinna og skiln- ingur, jafnvel þó að menn séu ekki alltaf sam- mála. Ég geri mér grein fyrir því að það koma oft umdeild mál sem lúta að þessum málaflokki. Þess vegna tel ég mjög mikilvægt að eiga góð samskipti við náttúruverndarsamtök.“ Þarf að efla umhverfisvitund almennings? „Mér finnst Íslendingar vera sér mjög með- vitaðir um þau gæði sem felast í því að búa á Ís- landi. Það eru ekki margar þjóðir sem eru jafn- stoltar af landinu sínu og við. Þess vegna held ég að við skiljum mjög vel nauðsyn þess að um- gangast náttúruna af varúð og gæta þess að spilla henni ekki. Hins vegar tel ég að við getum gert heilmikið í því að bæta umhverfisvitund. Það sést vel ef við göngum um götur Reykjavík- ur eða skoðum umgengni í miðbænum um helg- ar. Einnig í sambandi við sorphirðu og flokkun.“ Akstur utan vega hefur verið töluvert í um- ræðunni. Eru áform uppi af hálfu ráðuneytisins um að stemma stigu við honum? „Akstur utan vega finnst mér vera mál sem við eigum að taka mjög föstum tökum. Það get- ur ekki gengið að fólk umgangist landið af þeirri óvirðingu sem í slíkri hegðan felst. Nefnd er að störfum sem meðal annars er falið að koma með tillögur til úrbóta.“ Eru ráðgerðar einhverjar aðgerðir til að draga frekar úr mengun frá samgöngutækjum, ekki síst bílum? „Við þekkjum öll vetnisstrætisvagnana í Reykjavík og Sorpa hefur verið að framleiða metangas til að knýja bíla. Það er heilmikil hreyfing á þessum málum um allan heim. Ný- lega kom sendinefnd frá Bandaríkjunum til að kynna sér orkumál hér á landi. Það sýnir vel að þar eru menn að velta því fyrir sér hvað sé hægt að gera til að bregðast við mengunarvandanum og nýta aðra orkugjafa en bensín og olíu.“ Nýlega var haldin hér ráðstefna norrænna matvælaráðherra þar sem matvæli og lífsstíl bar á góma. Verða þessi málefni áberandi? „Já, það er ég viss um. Þetta lýtur að neyt- endavernd og öryggi matvæla. Það er ákaflega mikilvægt fyrir okkur að þessir hlutir séu í lagi. Það hefur til dæmis vakið athygli erlendis hvernig okkur hefur tekist að ná tökum á cam- pylobacter-sýkingum í matvælum. Þetta kom upp hér á landi og er landlægt alls staðar í kringum okkur. Erlendis er horft til aðferðanna sem við beittum í þeirri baráttu og náðum góð- um árangri.“ Sigríður Anna telur að einnig þurfi að fylgjast vel með því sem er að gerast varð- andi fæðubótarefni og ýmislegt fleira þessu tengt. Hún segir að mikið hafi verið fjallað um þessi mál í Evrópu og á Norðurlöndum. Sú um- ræða snertir okkur með beinum hætti. „Það berst mikið af EES-málum hingað í ráðuneytið. Um 40% af EES-gerðum (reglum og samþykktum) sem við þurfum að ganga frá hér á landi snerta umhverfismál.“ Veiðibann á rjúpu Forveri þinn tók mjög umdeilda ákvörðun um veiðibann á rjúpu. Það vakti athygli að und- irstofnanir ráðuneytisins, Náttúrufræðistofnun og Umhverfisstofnun, greindi á um réttmæti þeirrar ákvörðunar. Hefur þú ákveðið hvað þú gerir varðandi rjúpuna? „Nei, það hef ég ekki gert. Ég mun skoða þessi mál og fara vandlega yfir þau. Ég er ekki reiðubúin á þessari stundu að segja neitt af eða á,“ segir Sigríður Anna. Voru ekki rjúpur á jólunum þegar þú varst að alast upp á Siglufirði? „Nei, ekki á Siglufirði og það var svolítið merkilegt. Heima hjá mér voru mjög oft endur eða gæs á jólaborðinu. Ég er alin upp við að neyta fuglakjöts og ekki síst sjófugla. Faðir minn, Þórður Þórðarson, var svo sannarlega veiðimaður, bæði sjómaður og skytta í bestu merkingu þess orðs. Hann fór að veiðum af mik- illi varfærni. En frá því ég fór sjálf að búa hef ég alltaf haft rjúpur í jólamatinn, þegar ég hef haft tök á að ná í þær.“ Sigríður Anna segist ekki reiðubúin að upp- lýsa hvenær ákvörðunar hennar er að vænta. Segist þurfa tíma til að skoða rjúpnamálið. En hvað um nýtingu annarra villtra fugla og dýra. Þarf að skoða þau mál nánar? „Það liggja fyrir tillögur frá nefndum sem voru að störfum um veiðar á mink og ref og út- breiðslu þessara stofna. Mér finnst mjög mik- ilvægt að við höfum góðar upplýsingar um þessa stofna sem hægt er að byggja á við ákvarðanir um veiðar á þeim. Þó er ólík afstaða til minka og refa. Tilkoma minksins í íslenskri náttúru var umhverfisslys, en refurinn á hér sinn þegnrétt. Það þarf hins vegar að halda hon- um í skefjum.“ Munt þú beita þér fyrir auknum greiðslum til sveitarfélaga vegna eyðingar á ref og mink? „Ég mun taka þau mál til skoðunar.“ Loftslagsbreytingar og hafið Hvað um þátt Íslands í umhverfismálum á heimsvísu, til dæmis varðandi loftslagsbreyt- ingar og verndun hafsins? „Við erum búin að fullgilda Kyoto-bókunina og munum standa við okkar hlut. Það verður unnið heilmikið í þessum efnum hér í ráðuneyt- inu í vetur. Eins verður farið yfir framkvæmd stefnu ríkisstjórnarinnar um sjálfbæra þróun í vetur. Hvað varðar loftslagsbreytingar þá er verið að gera mjög stóra úttekt á loftslagsbreyt- ingum á vegum Norðurskautsráðsins, þar sem Ísland gegnir formennsku. Í ráðinu starfa sam- an átta þjóðir, Bandaríkin, Kanada og Rússland auk Norðurlandanna fimm. Á ráðherrafundi ráðsins, sem haldinn verður hér á landi í nóv- ember, verða niðurstöður þessara rannsókna formlega lagðar fram. Ég vænti þess að þá verði einnig rætt hvernig sé skynsamlegt að bregðast við þróuninni. Einnig verður haldin mjög viða- mikil ráðstefna um loftslagsbreytingar í Reykjavík í nóvember. Þar verður fjallað um efni þessarar skýrslu. Þessir fundir eru síðustu verkefni Íslendinga í formennskutíð okkar, síð- an taka Rússar við formennsku í Norðurskauts- ráðinu næstu tvö árin. Auk þess höfum við unn- ið með öðrum þjóðum í norrænni samvinnu, á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, innan OECD og víðar að þessum málum.“ Hvað varðar málefni hafsins bendir Sigríður Anna á fyrirliggjandi stefnu ríkisstjórnarinnar í þeim málum, sem samþykkt var árið 2003. Um- hverfisráðuneytið og önnur ráðuneyti sem koma að málinu vinni eftir þeirri stefnumörkun. „Síðastliðinn vetur var og samþykkt ný löggjöf um vernd gegn mengun hafs og stranda. Nú er verið að semja ýmsar reglugerðir í kjölfarið á þeirri lagasetningu. Þetta eru mál sem skipta gríðarmiklu fyrir okkur Íslendinga. Við höfum beitt okkur mjög á erlendum vettvangi í þessum efnum og munum halda því áfram.“ Fyrst sjálfstæðismanna Sigríður Anna Þórðardóttir er fyrst úr hópi sjálfstæðismanna til að setjast í stól umhverf- isráðherra og finnst það heilmikil tímamót. „Þetta sýnir að Sjálfstæðisflokkurinn vill beita sér í þessum málaflokki og leggja ríka áherslu á hann. Ég hlakka til að takast á við þau mikilvægu málefni sem eru til umfjöllunar hér í umhverfisráðuneytinu og mun gera mitt besta til að sinna þeim. Þau skipta svo óendanlega miklu máli fyrir velferð þjóðarinnar.“ Með virðingu og varfærni Sigríður Anna Þórðardóttir er fyrst sjálfstæðismanna til að gegna embætti umhverf- isráðherra. Guðni Einarsson ræddi við Sigríði Önnu um það sem efst er á baugi í umhverfismálum. Morgunblaðið/Kristinn „Ég legg áherslu á að náttúruvernd og nýting auðlinda geta farið ágætlega saman,“ segir Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra. gudni@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.