Morgunblaðið - 19.09.2004, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 29
Tillitssemi er eiginleiki semmörgum finnst minna um í
samfélaginu en áður var og styðj-
ast þá væntanlega fremur við til-
finningu en rannsóknir eða mæl-
ingar. En hvað er tillitssemi og
hvers vegna er hún á undanhaldi
að margra mati?
Það má t.d.
segja að tillits-
semi sé sú við-
leitni að hugsa
um hagsmuni
annars fólks
jafnframt því að
huga að sínum
eigin hags-
munum og láta
þá hafa forgang sem verr eru sett-
ir. Hvað langt fólk gengur í þess-
um efnum er mjög misjafnt og lík-
lega bæði háð upplagi og uppeldi.
Þegar ég var fimm ára og í
sveit var ég beðin að fara út og
klemma ullarsokka á girðingu með
stórum klemmum. Ég hafði þá
fáum skyldustörfum að gegna og
varð mjög glöð og stolt þegar mér
var falið þetta verkefni. Veðrið
var blítt og sól skein í heiði. Ég
skundaði nú fram í forstofu með
nokkra vel undna sokka í fötu og
klemmurnar ofan á þeim. En ein-
mitt þegar ég ætla að snarast út
heyri ég sagt: „Æ, Guðrún litla,
hjálpaðu mér nú að tína saman
naglana, ég missti þá úr boxinu.“
Þetta mælti blindur maður, þá á
áttræðisaldri, sem bjó á heimilinu
og fékkst mikið við smíðar, var
reyndar listasmiður þrátt fyrir
fötlun sína. En ég gerði mér enga
grein fyrir sérstöðu þessa manns
né heldur áttaði ég mig á erf-
iðleikum blinds manns við að tína
saman fjölmarga nagla af for-
stofugólfi. Hugur minn var allur
bundinn við hið mikla verkefni –
að klemma fallega sokkana á girð-
inguna á hlaðinu.
„Ég skal gera þetta á eftir,
núna er ég að fara út að klemma
sokka,“ svaraði ég léttri og vin-
samlegri röddu og flýtti mér út
með sokkana. Verkefnið gekk
ágætlega, sokkarnir komust á
girðinguna í nokkuð fallegri röð
fannst mér og ég fór að svo búnu
inn aftur til að segja frá þrekvirki
mínu. En varla var ég komin inn
úr dyrunum þegar mér mætti
fóstra mín á bænum sem sagði
mér strangri röddu að heyra sig
aðeins inni í eldhúsi. Þegar þang-
að kom sagði hún mér nokkuð
hvasslega að þetta skyldi ég aldrei
láta henda mig aftur á lífsleiðinni,
– að neita blindum manni um
greiða sem þennan. „Hann er
blindur Guðrún mín, hann sér ekki
sólina eða grasið og getur ekki
tínt upp nagla eins og þú, sem
hefur heil augu,“ sagði fóstra mín.
„Já, en ég ætlaði að gera þetta á
eftir, þegar ég væri búin að
klemma sokkana,“ sagði ég. „Það
er ekki nóg, í tilvikum sem þessu
á fólk að sýna tillitssemi og hugsa
fyrst um þann sem minni máttar
er, hann er blindur ekki þú, þess
vegna átt þú að hjálpa honum
strax og gera svo það sem þú vilt
og þarft að gera.“ Þannig hljóðaði
boðskapurinn sem innrætti mér
fyrir lífstíð hvað rétt væri í þess-
um efnum. Ég hef aldrei gleymt
þessari ádrepu og er reyndar
mjög fegin að hafa fengið hana á
þeim tíma sem hugur minn var lítt
mótaður. Þetta atvik kenndi mér
að taka tillit til þeirra sem minna
mega sín.
Það þarf sem sagt að kenna
börnum tillitssemi, ef það er ekki
gert þá vita þau ekki hvað þetta
hugtak þýðir. Ef upplag þeirra er
ekki þeim mun betra þá vita þau
ekki lengi vel að þeim beri að
hugsa um hag þeirra sem minni
máttar eru og sumir skilja aldrei
að hagsmunir þeirra eigi ekki
ávallt að vera í fyrirrúmi. Slíkt
fólk fær venjulega það sem það
vill en fær samt sjaldnast það sem
flestir þrá heitast, einlæga vináttu
og kærleika þeirra sem feta lífs-
brautina með þeim.
ÞJÓÐLÍFSÞANKAR/Er tillitssemi
á undanhaldi?
Ég skal gera
þetta á eftir!
eftir Guðrúnu
Guðlaugsdóttur
Kynntu þér tilboð okkar
á bílaleigubílum
Pantaðu AVIS bílinn áður en þú leggur af stað
Það borgar sig – Hringdu til AVIS í síma 591-4000
Við erum í 170 löndum
5000 stöðum
T.d. Reykjavík, London, Kaupmannahöfn,
Frankfurt, Milano, Alicante ...
AVIS Knarrarvogi 2 – 104 Reykjavík – Sími 591 4000 – Fax 591 4040 – Netfang avis@avis.is – Heimasíða www.avis.is
Minnum á Visa afsláttinn
Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
VERÐ FRÁ 12.240 KR. FYRIR 5 TÓNLEIKA,
eða 2.040 kr. á mánuði í sex mánuði í sætaröð 21–28
og 14.280 kr. í sætaröð 1–20 eða 2.380 kr. á mánuði
í 6 mánuði sé greitt með Visa kreditkorti.
23. & 24. SEPTEMBER Það besta af hvíta tjaldinu
28. & 29. OKÓTBER Töfrar óperunnar og tónaljóðsins
5.-8. JANÚAR Vínartónleikar
17. & 18. MARS Galdrar og goðsagnir
6. & 7. MAÍ Philharmonic Rock Night
Græna áskriftarröð Sinfóníuhljómsveitar Íslands er ferðalag vítt og breitt um heim tónlistarinnar, frá háklassík
til poppsins og allt þar á milli. Fáðu þér áskrift að öruggu sæti og betra verði hjá Sinfóníuhljómsveitinni í vetur.
Gallabuxur,
kjól og hvítt
TÖFRAHEIMURTÓNLISTARINNAR
aðeins
2.040 kr.
á mánuði
Græn
tónleikaröð
Einsöngvari: Gary Williams. „Einn besti sveiflusöngvari Breta fyrr og síðar“ – Times
Einsöngvari: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir. „Er á leið á vit mikilla afreka“ – Independent
Það sem Íslendingum finnst skemmtilegast að hlusta á.
Einleikari: Liene Circene. „Einhver besti píanóleikari sem hér hefur komið fram“ – Jónas Sen
Modest Mússorgskíj, Deep Purple, Gustav Mahler, Pink Floyd, Led Zeppelin og Queen.
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á WWW.SINFONIA.IS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
FYRSTUTÓNLEIKARERU ÁFIMMTUDAG
SÍÐASTA INNRITUNARVIKA
Innritun í símum 588-3630 og 588-3730, eða í skólanum að Síðumúla 17, tölvupóstur:
ol-gaukur@islandia.is Í boði er fjölbreytt nám með vönduðu námsefni fyrir alla
aldursflokka, bæði byrjendur og þá sem kunna eitthvað fyrir sér. Nánari upplýsingar
um skólann og námsleiðir er að fá á heimasíðunni:
www.gitarskoli-olgauks.is eða í skólanum á innritunar-
tíma, en innritað er alla virka daga kl. 14:00 til 17:00.
Einnig sendum við upplýsingabækling.
ww
w.g
itar
sko
li-o
lga
uks
.is
Hægt
að fá leigða
HEIMAGÍTARA
INNRITUN DAGLEGA KL. 14-17
G
A
U
K
U
R
–
G
U
T
E
N
B
E
R
G
Heimasíða:
www.gitarskoli-olgauks.is
588-3630
588-3730