Morgunblaðið - 19.09.2004, Page 31
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 31
Um reynslu
Evruþjóða af evrunni
Fundarboð
Þriðjudaginn 21. september, kl. 12:00 - 13:15 flytur dr. Paul van den Noord,
deildarstjóri í hagfræðideild OECD, erindi ,,Um reynslu Evruþjóða af evrunni"
í sal 132 í Öskju, náttúruvísindahúsi Háskóla Íslands. Í erindinu reifar Paul
van den Noord kosti og galla evrunnar og hvað aðildarríkin þurfa að gera til
að njóta ávinnings af henni.
Paul van den Noord er á Íslandi
í boði Samtaka iðnaðarins og
Viðskipta- og hagfræðideildar
Háskóla Íslands. Fundarstjóri
er Gylfi Magnússon dósent
og Þorsteinn Þorgeirsson, hag-
fræðingur SI, kynnir framsögu-
erindið og ræðumann.
Erindið verður flutt á ensku og fundurinn
er opinn öllum á meðan húsrúm leyfir
Paul van den Noord hefur starfað við hagfræðideild OECD frá 1989. Sem deildarstjóri ber
hann ábyrgð á árlegri skýrslu OECD um þróun efnahagsmála á Evrusvæðinu, sem nú nær
til tólf ESB ríkja. Á starfsferli sínum hefur hann öðlast víðtæka reynslu af greiningu efna-
hagsmála og veitt aðildarríkjum OECD, þ.á.m. Ástralíu, Belgíu, Írlandi, Hollandi, Noregi,
Finnlandi og Bretlandi, ráðgjöf um stjórn efnahagsmála. Áður en hann gekk til liðs við
OECD starfaði hann sem ráðgjafi og lektor í þjóðhagfræði við Háskólann í Amsterdam,
þar sem hann hlaut doktorsgráðu. Paul van den Noord nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar
fyrir sérþekkingu og framlag sitt á sviði hagstjórnar.
Gylfi Magnússon Þorsteinn ÞorgeirssonPaul van den Noord
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða glæsilega helgarferð til Vínarborgar í 3 nætur
þann 19. nóvember í beinu
flugi frá Íslandi á hreint
ótrúlegum kjörum. Kynnstu
þessari höfuðborg lista og
menningar um leið og þú
nýtur toppþjónustu fararstjóra
Heimsferða sem kynna þér
borgina og lystisemdir hennar.
Frábær hótel í boði.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
40 viðbótarsæti • Beint flug
Verð kr. 29.990
Flug og skattar.
Verð kr. 39.990
Flug, hótel, skattar, hótel Ananas,
4 stjörnur, 3 nætur.
Verð kr. 43.890
Flug, hótel, skattar, hótel Renaissance,
5 stjörnur, 3 nætur.
Glæsileg helgarferð til
Vínarborgar
19. nóvember
frá kr. 29.990
Úrval-Úts‡n
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600
Selfossi: 482 1666 www.urvalutsyn.is
Madrid er ein fjörugasta og fjölskrú›ugasta borg
Evrópu og i›ar af mannlífi nótt sem n‡tan dag.
Frábært skemmtanalíf, spennandi verslanir,
menning og listir – Madrid er borg fyrir flig.
Madrid
Borgin sem kann að lifa 7.–10. okt.
Beint leig
uflug
netverð á mann í tvíb‡li á Hotel Gran Versalles.
Flugsæti: 29.900 kr. – skattar innifaldir.
44.980* kr.
Ver›dæmi:
* Innifali›: Beint flug, skattar, gisting m/morgunver›i
í 3 nætur og íslensk fararstjórn.
Ekki innifali›: Ferðir til og frá flugvelli,
1.700 kr. fram og til baka.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
59
01
0
9/
20
04
„FÓLK drepur frekar en að finna
fyrir skömm,“ segir Kathleen
Brooks, sálfræðingur frá Bandaríkj-
unum, og áréttar mikilvægi þess að
fólk hlúi að sínu innra barni. Brooks
hélt nýlega fyrirlestur í Stígamótum
en hún kom hingað til lands á vegum
aðstandenda fræðsluverkefnisins
Blátt áfram sem miðast að því að
fræða fólk um kynferðislegt ofbeldi
gagnvart börnum.
Brooks er með starfsemi í San
Diego þar sem hún vinnur með
sjálfshjálparhópum, leiðir hug-
leiðslu, býður upp á ýmis meðferð-
arúrræði og stjórnar eigin útvarps-
þætti í gegnum Netið. Í 25 ár hefur
hún starfað með fólki sem hefur lifað
af kynferðislegt ofbeldi en sjálf var
hún beitt slíku ofbeldi af föður sínum
og afa.
Hugurinn grefur
niður minningar
Brooks segir sérlega mikilvægt að
treysta líkama sínum og tilfinning-
um en ekki bara huganum eða minn-
ingum. „Hugurinn grefur niður
minningar og býr til sögur til þess að
lifa af misnotkun sem líkaminn og til-
finningarnar vilja ekki gleyma,“ seg-
ir Brooks og bætir við að hjá ungum
börnum skorti flæði milli vinstra og
hægra heilahvels sem gerir það að
verkum að þau geta ekki nýtt sér
þær upplýsingar sem þau safna sam-
an.
„Þau hafa ekki sama skilning á
hlutunum og við sem fullorðin eru.
Þau geta t.d. ekki endilega skilið á
milli orsakar og afleiðingar. Vandinn
er sá að tilfinningalegur þroski
barna er ekki virtur. Fullorðna fólkið
hunsar oft tilfinningar barna og refs-
ar þeim jafnvel fyrir þær. Börnin
læra þá að bæla tilfinningar sínar því
ást og athygli foreldra er barninu
mikilvægust.“
Kennir fólki að fullorðnast
Brooks bendir á að þegar barn fær
þau skilaboð að tilfinningar þess séu
slæmar líti það svo á að það sjálft sé
slæmt. „Ef misnotkun bætist ofan á
þetta er vandinn mikill. Vinna mín
gengur út á að kenna fólki að verða
fullorðið.“ Brooks segir að það að
vera ábyrg fullorðin manneskja
byggist á fjórum
þáttum. Í fyrsta
lagi vilji fullorðin
manneskja læra
og menntast. Í
öðru lagi vilji hún
vera hreinskilin
og sannsögul.
„Börn læra mjög
ung að ljúga en ef
þú heldur áfram
að ljúga verður þú alltaf með fólk í
kringum þig sem þú getur ekki
treyst. Fullorðin manneskja lýgur
ekki til þess að láta öðrum líða vel
eða til þess að fá samþykki annarra.“
Brooks segir að í þriðja lagi taki full-
orðnir ábyrgð á eigin andlegri heilsu
og hafi vilja til þess að byggja sjálfa
sig upp og breyta rétt. Í fjórða lagi
segir Brooks að fullorðin manneskja
myndi sambönd og tengsl sem ein-
kennast ekki af meðvirkni eða
ábyrgðarleysi. „Fullorðin mann-
eskja tekur ekki ábyrgð af öðrum
sem þeir eiga að bera sjálfir en er
samt fær um að sýna umhyggju.“
Leika sér án vímuefna
Brooks segir mikilvægt að fólk
hlúi vel að sínu innra barni. Hún hef-
ur þróað tólf spora kerfi til þess að
kenna fólki að hugsa vel um sitt
innra barn en til þess að auðvelda þá
vinnu notast hún við dúkkur eða
bangsa.
„Dúkkan eða bangsinn stendur
fyrir þitt innra barn og hjálpar þér
að upplifa það aðskilið frá sjálfri/
sjálfum þér,“ segir Brooks og bætir
við að það sé sérlega mikilvægt að
hlusta á barnið, vernda það, leyfa því
að tjá tilfinningar sínar og leika sér
án þess að til þess þurfi einhvers
konar vímuefni.
Kathleen Brooks sálfræðingur
Mikilvægt að hlúa
að sínu innra barni
Kathleen Brooks
Doktorsvörn
við læknadeild
Háskólans
DOKTORSVÖRN fer fram í lækn-
isfræði við læknadeild Háskóla Ís-
lands þriðjudaginn 21. september.
Þá ver Ólafur Baldursson læknir
doktorsritgerð
sína, Starfsemi
og gerð stjórnein-
ingar í klór-
íðjónagöngum
slímseigju. And-
mælendur eru
David Sheppard,
prófessor í lífeðl-
isfræði við há-
skólann í Bristol,
og Hákon Hákonarson, læknir og
vísindamaður hjá Íslenskri erfða-
greiningu. Stefán B. Sigurðsson, for-
seti læknadeildar, stjórnar athöfn-
inni sem fer fram í Hátíðasal,
Aðalbyggingu og hefst klukkan 14.
Ritgerð Ólafs lýsir niðurstöðum
rannsókna á jónagöngum (e. cystic
fibrosis transmembrane conduct-
ance regulator, CFTR) sem flytja
klóríð-jónir í gegnum þekjufrumur í
lungum, meltingarfærum, húð og
víðar. Stökkbreytingar í göngunum
valda arfgengum og alvarlegum
sjúkdómi er nefnist slímseigja (e.
cystic fibrosis). Hann kemur hvað
harðast niður á lungnastarfsemi, en
lungnabilun er helsta heilsuvá sjúk-
linga með slímseigju. Við rannsóknir
Ólafs var beitt aðferðum sameinda-
líffræði, prótínefnafræði og raflífeðl-
isfræði til þess að skýra hvernig
klóríðjónagöngin opnast og lokast.
Slík þekking gæti leitt til þróunar
lyfja- eða genameðferðar við þessum
skæða sjúkdómi. Þegar hefur birst
grein um genameðferð sem byggð er
á niðurstöðum ritgerðarinnar.
Leiðbeinandi er Michael J. Welsh,
prófessor í lífeðlisfræði og lyflækn-
ingum við University of Iowa og for-
stöðumaður hjá Howard Hughes
Medical Institute. Hann hefur verið
í fararbroddi í rannsóknum er bein-
ast að flutningi vatns og jóna gegn-
um þekjuvef lungna, jónagöngum og
genameðferð við slímseigju. Þor-
geirsson prófessor, sviðsstjóri lyf-
lækningasviðs I á Landspítala-
Háskólasjúkrahúsi, Guðmundur
Hrafn Guðmundsson, prófessor í líf-
fræði, Magnús Jóhannsson, prófess-
or í lyfjafræði, og Stefán B. Sigurðs-
son, prófessor í lífeðlisfræði og
forseti læknadeildar.