Morgunblaðið - 19.09.2004, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 39
NÚ er ennþá einu sinni komin til
umræðu hvaða leið á að fara til að
greiða úr umferð á gatnamótum
Miklubrautar og Kringlumýr-
arbrautar. Það virðist vera ljóst að
gatnamótin anni ekki
umferð um þau í um
klukkutíma á hverjum
morgni og svo aftur
síðdegis. Töfralausnin
er að útbúa þarna mis-
læg gatnamót á þrem-
ur hæðum. Þessi lausn
á að greiða úr umferð
og auka umferðarör-
yggi.
Mislæg gatnamót
hafa verið á teikniborð-
inu í áratugi. Af ein-
hverri ástæðu hefur
orðið einhvers konar
múgsefjun fyrir þess-
ari framkvæmd og
engir aðrir kostir kom-
ið til greina. Mig lang-
ar að leggja í þessari
grein fram rök fyrir
annarri leið.
Nokkrar ástæður
eru fyrir því að fara
ekki (a.m.k. á þessari
stundu) út í að útbúa
mislæg gatnamót á
þessum stað. Helstu
ástæður eru:
Erfitt er að koma
mannvirkinu fyrir.
Þau eru dýr og færa
hluta vandans yfir á
aðliggjandi gatna-
mót.
Sundabraut og Hlíðarfótur munu
minnka álag á gatnamótunum.
Framkvæmdin er flókin og mun
valda miklu umferðaröngþveiti.
Aðrar leiðir koma til greina og er
eðlilegt og sjálfsagt að skoða þær.
Fyrst má spyrja sig hvort vanda-
málið sé í raun alvarlegt? Ég bý í
Lindahverfi í Kópavogi og keyri á
hverjum morgni (á háannatíma) í
Stakkahlíð í Reykjavík. Þessi akstur
tekur mig alla jafna á bilinu 12–16
mínútur, saman borið við 9–12 mín-
útur utan háannatíma. Allt í lagi,
þetta lítur öðruvísi út gagnvart þeim
sem búa uppi í Breiðholti eða austan
Elliðaár. En mig langar að benda á
að þeir hafa úr fjórum leiðum að velja
til að komast niður í miðbæ Reykja-
víkur (nema þeir sem eru að fara í
Háskóla Íslands).
Þeir sem þurfa að fara Miklu-
brautina hafa líklega áttað sig á að
umferðarteppan byrjar oftast ekki
fyrr en kemur að því að gatan þreng-
ist úr þremur akreinum í tvær. Fram
að því gengur þetta ágætlega. Það
eru gatnamót Lönguhlíðar og Miklu-
brautar sem ekki anna umferðinni.
Fyrir mig sem ek inn Stakkahlíð, eru
metrarnir frá Kringlumýrarbraut að
Stakkahlíð seinlegasti hluti leið-
arinnar. Mislæg gatnamót munu ekki
breyta þessu nokkurn skapaðan hlut.
Næsta leið og sú, sem mér sýnist
vera ætlunin að prófa, kostar sáralít-
ið, fellur vel að núverandi mann-
virkjum, er ekki íþyngjandi fyrir að-
liggjandi götur og gatnamót og gefur
kost á mjög góðri stjórnun umferðar
á mun stærra svæði. Hvaða lausn er
þetta? Að setja upp fjögurra fasa um-
ferðarljós í stað þriggja fasa á gatna-
mótum þar sem umferðarþungi er
mikill (bæði á Miklubraut og þver-
götum). Í því felst að setja sjálfstæð
beygjuljós í allar akst-
ursstefnur. Með þessari
aðgerð mun flæði um-
ferðar batna umtals-
vert.
Það er mín skoðun að
breyting umferðarljósa
muni skila mun betri
niðurstöðu en mislæg
gatnamót. Vissulega
mun árekstrum ekki
fækka eins mikið, en
það eru fleiri atriði sem
þarf að skoða. Þegar
valið er á milli tveggja
eða fleiri kosta er mik-
ilvægt að setja niður
hvaða atriði það eru
sem nota á við mat á
þessum kostum og hve
mikið hvert atriði vegur
í slíku mati. Ég sé fyrir
mér að þau atriði sem
skipta máli séu (vægi
innan sviga): kostnaður
(25%), umferðarflæði
(20%), umferðaröryggi
(20%), umhverf-
isröskun (10%), skipu-
lagsferli (10%) og fram-
kvæmdartími (15%).
Næst er að gefa hverj-
um þætti fyrir sig ein-
kunn og reikna síðan
vegið meðaltal. Þetta
hef ég gert í meðfylgj-
andi töflu (einkunnir eru á skalanum
0 til 10). Hér er að sjálfsögðu um
huglægt mat mitt að ræða.
Niðurstaðan virðist vera nokkuð
afgerandi. Fjögurra fasa umferð-
arljós fá þokkalega 1. einkunn, með-
an mislæg gatnamót fá falleinkunn.
Nú segja einhverjir, að vægi atriða
sé ekki sanngjarnt. Allt í lagi. Skoð-
um næmni niðurstöðunnar fyrir
breytingu á nokkrum þáttum, með
því að breyta vægi umferðaröryggis í
40% og lækkum síðustu þrjú atriðin í
5% hvert. Meðaleinkunn verður 7,4
fyrir ljósin og mislæg gatnamót
hækka í 5,65. Munurinn er ennþá
mikill ljósunum í hag.
Það góða við fjögurra fasa umferð-
arljósin, er að þau má setja upp með
stuttum fyrirvara og prófa í nokkur
ár á meðan skipulagsferlið vegna
mislægra gatnamóta heldur áfram.
Ef reynslan er ekki eins góð og gerð
er krafa um, þá hafa í mesta lagi ein-
hverjar milljónir farið í súginn. Verði
reynslan góð, hafa sparast milljarðar
á milljarða ofan í kostnað við mislæg
gatnamót ekki bara á mótum Miklu-
brautar og Kringlumýrarbrautar
heldur einnig á öðrum gatnamótum.
Þennan pening má t.d. nota til að
hækka bætur almannatrygginga eða
lækka skatta.
Mislæg gatnamót
– ekki eina lausnin
Marinó G. Njálsson
skrifar um umferðarmál
Marinó G. Njálsson
’Það góða viðfjögurra fasa
umferðarljósin,
er að þau má
setja upp með
stuttum fyr-
irvara og prófa í
nokkur ár á með-
an skipulags-
ferlið vegna mis-
lægra gatnamóta
heldur áfram. ‘
Höfundur starfar við öryggis- og
ákvörðunarráðgjöf og er með
masters- og verkfræðigráðu í að-
gerðarannsóknum frá Stanford-
háskóla, mgn@islandia.is.
!"#$"% &
'
(
*
+
, -
%
.
.
,
/
%
,0 .
% - ,
1 .
2
- ,
, %
+
!
(
3
,
-
% .
.
,
,
4 5
/
+ ' % ' 5
*
%
%
+% 5%
+%
3
/
6 +
-
1
"
!
#
(
$
%
5
'
%
!
&
2
$
7 +1
+
%
. ,%
+1
4 %
,%
/ %,
5 .
'
%
!
* )
. %
$
8 %
%
2
, %9
%.-
'
%
!
&
' /.6
%
.
.6 .
-,
.
7
.- .6
.% .
-
,
1
: ;
5
+
-%
+
%
#(
!
)(
%
!
SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK, • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is
Framnesvegur 62 opið hús
Mjög falleg 113 fm íbúð á tveimur
efstu hæðunum í þessu fallega og
nýlega húsi. Á neðri hæðinni er
rúmgóð stofa með vestursvölum,
stórt eldhús, og gestasnyrting. Á efri
hæð eru 3 stór svefnherbergi, alrými
og flísalagt baðherbergi. Beykiparket
á gólfum. Þvottahús í íbúð. Mikið
útsýni. Stæði í bílskýli fylgir. Stutt í
grunnskóla, verslun og alla þjónustu. Verð 18,5 millj.
Björn og Sigrún sýna íbúðina í dag, sunnudag frá kl. 15 - 17.
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Andarhvarf - glæsilegt útsýni.
Nýjar sérhæðir
Valhöll var að fá í sölu nýjar glæsilegar 3ja og 4ra herbergja íbúðir með sérinngangi af svölum í á frá-
bærum stað við Þórðarsveig. Mjög velskipulagðar íbúðir sem afhendast fullfrág. án gólfefna m. vönd-
uðum innr. og flísal. baðherb. Stæði í bílskýli fylgir íbúðum. Hús afh. fullfrág. að utan og eins öll sam-
eign og bílastæði. Stærðir 3ja herbergja íbúða eru frá 88 - 109 fm og verð er frá 15,3 - 17,9 millj. 4ra
herb. íbúðir eru frá 125-128 fm : Verð 18,9 millj. Í öðru húsinu er sérinng. af svölum og í hinu húsinu
er lyfta. Traustur bygg.aðili GÁ byggingar . Lítið á www.nybyggingar.is
Þórðarsveigur
Glæsilegar 3ja og 4ra herb. með stórum stofum
Þórðarsveigur 16-18
Frábær staðsetning
Vorum að fá í einkasölu nýjar 135 fm glæsilegar sérhæðir í 2ja íbúða húsum ásamt bílskúrum ca 25 fm
á fráb. útsýnisstað. Mjög gott skipulag, 3 rúmgóð svefnherb. Sérinngangur. Sérhiti. Íbúðirnar afhend-
ast fullfrág. að innan án gólfefna. Sérlóð fylgir íb. neðri hæðar en góðar svalir efri hæðum. Traustur og
vandvirkur byggingaraðili Pétur og Kristinn ehf. Verð neðri hæðar er 24,3 millj. fullfrág. íb. með bílskúr.
Verð efri hæðar er 24,5 millj. fullfrág. íb. m. bílskúr. Möguleiki á mjög hagstæðri fjármögnun léttir kaup
á þessum glæsiíbúðum. Lítið á www.nybyggingar.is
Í einkasölu glæsilegar 3ja og 4ra herb. íbúðir á góðum stað í Grafarholtinu. Íbúðirnar afh. fullbúnar án
gólfefna og með stæði í lokuðu bílskýli. Þriggja herb. íb. 87 fm með stæði í bílskýli, verð frá 14,2 m.
Fjögurra herb. 97 fm með stæði í bílskýli, verð frá kr. 15,6 m. Í öðru húsinu er sérinng. af svölum og í
hinu húsinu er lyfta. Allar nánari uppl. hjá sölumönnum. Verð frá 14,2 millj. á 3ja og 15,6 millj. á 4ra.
Traustur byggaðili Breki ehf. Sjá einnig www.nybyggingar.is
Þórarinn M. Friðgeirsson
lögg.fasteignasali /sölumaður.
Gsm 899 1882