Morgunblaðið - 19.09.2004, Page 40
UMRÆÐAN
40 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÞÁ ER komið enn einu sinni að því
að semja við okkur sjómenn. Við
komum til með að boða til verkfalls
og ríkisstjórnin bannar
verkfallið. Svona hefur
þetta verið í tæp 10 ár
og leyfi ég mér að full-
yrða að engin félög
hafa eldri kjarasamn-
ing byggðan á frjálsum
samningum.
Það hefur í langan
tíma verið skoðun mín
að það eigi að leggja
niður sjómannafélögin
eins og þau eru starf-
rækt í dag, þau eru
ekki í takt við tímann
eins og sjá má á ár-
angri síðasta áratugar. Ég veit að
stóran þátt í því á núverandi rík-
isstjórn verkfallsbanna sem hefur
aftrað frjálsum samningum. Þá virð-
ist mér þvergirðingsháttur beggja
samningsaðila vera áberandi sem og
jafnvel persónuleg óvild. En aðal-
ástæðuna tel ég vera fjölbreyttari
fiskveiðiflota í dag en áður fyrr, svo
og mjög svo mismunandi kvótastaða
útgerða. Þannig að sjómannafélögin
verða að semja fyrir svo miklu fjöl-
breyttari flota og útgerðarmynstur,
sem hafa svo mjög mismunandi
hagsmuni.
Ég hefði viljað sjá sjómanna-
félögin breytast í þá veru að sérhæfa
sig í ákveðnum útgerðarmynstrum,
þ.e.a.s. sér fyrir frystitogara o.s.frv.
Þannig teldi ég að betur mætti ná
fram samningum sem væru til hags-
bóta fyrir báða aðila í hverjum út-
gerðarflokki um sig. Einnig er nauð-
synlegt að gera megi
vinnustaðasamninga fyrir hvert skip
því sumar útgerðir eru betri en aðrar
og þeir sem vilja og geta borgað eða
gert betur við sitt starfsfólk eiga að
fá að semja um það. Því það getur
verið hagur skipverja á einu skip að
fórna einu fyrir annað,
sem þegar upp er staðið
gefur betur fyrir það
einstaka skip.
Nú kann það að
hljóma einkennilega í
eyrum einhverra að
greinarhöfundur sem
er sjómaður vilji að 10%
frystiálag sé tekið af á
því skipi sem hann er á.
En ástæðan er einmitt
sú að í því tilfelli er það
hagur skipverja og eyk-
ur launatekjur töluvert.
Útgerðafélagið
Tjaldur (nú Brim) sem gerði út gaml-
an togara sem orðinn var lúinn og
vistarverur allar dimmar og þreyttar
og vinnuaðstaðan léleg, ákvað að
kaupa nýlegt skip til áframhaldandi
grálúðuveiða. Það að kaupa miklu
öflugra skip og vistlegra með það að
markmiði að gera vinnuaðstöðu sem
fullkomnasta og þægilegasta fyrir
starfsmenn gefur skipverjum mögu-
leika á töluverðum kjarabótum,
vegna þess að hægt er að fækka í það
minnsta um 4 menn. Útgerðin vill á
móti þessari fjárfestingu fá 10%
frystiálag fellt niður, en rök þeirra
eru ekki einungis vegna fjárfesting-
arinnar heldur einnig það að um heil-
frystingu er að ræða, en ekki flaka-
frystingu. 10% frystiálagið kom inn í
kjarasamninga þegar farið var að
frysta flök úti á sjó og álagið varð
miklu meira á sjómenn miðað við ís-
fisk. Einhvern veginn festist þetta
álag á alla frystingu, einnig heilfryst-
ingu, en í sumum tilfellum eins og á
grálúðufrystingu er þetta aukna álag
á sjómenn ekki til staðar auk þess
sem hægt verður að minnka álagið
enn meira vegna tæknivæðingar.
Þessi rök get ég alveg skilið, en
sjómannafélögin segja nei, 10% af er
kjararýrnun. En þetta er ekki rétt
hjá þeim og með sömu þvermóðsku-
legu afstöðu eru þeir að rýra kjör
mín eins og sjá má á eftirfarandi út-
reikningi.
Hlutur úr hverri 1.000.000 miðað
við 24 í áhöfn með orlofi og frystiá-
lagi, eins og kjarasamningar gera ráð
fyrir þ.e.a.s eins og sjómannafélögin
vilja.
Hlutur með olíuhlutdeild 70,00%
700.000,00
Skiptaprósenta 31,50% 220.500,00
Fjöldi í áhöfn 24,00
Samtals hlutur 9.188,00
Frystiálag 10,00% 919,00
Orlof 10,17% 1.028,00
Samtals 11.135,00
Hér er það aftur á móti eins og út-
gerðin er tilbúin að gera þetta.
Hlutur úr hverri 1.000.000 miðað
við 20 í áhöfn með orlofi.
Hlutur með olíuhlutdeild 70,00%
700.000,00
Skiptaprósenta 30,50% 213.500,00
Fjöldi í áhöfn 20,00
Samtals hlutur 10.675,00
Frystiálag 0,00%0
Orlof 10,17% 1.086,00
Samtals11.761,00
Mismunur úr hverri milljón er því
626,00 kr. þannig að áætluð kjarabót
sem þetta gæti skilað hverjum skip-
verja sem rær annan hvern túr er um
219,100 á ári, fyrir ekki miklu meiri
vinnu, miðað við 700 milljóna afla-
verðmæti.
Mér er spurn, er þetta kjararýrn-
un eða kjarabót? Eiga félögin ekki að
vinna að hagsmunum umbjóðenda
sinna eða er það markmiðið að halda
öllum niðri. Eigum við ekki að fá að
njóta þess að þetta skip er gert út á
grálúðu, eða á að halda kjörum okkar
niðri af því að sjómannafélögin þurfa
að berjast við lélega útgerð með lé-
legt skip og lítinn kvóta.
Ég krefst þess að fá að njóta þess
að ég vinn hjá góðri útgerð sem hefur
bætt kjörin með betra skipi og að-
búnaði, vinnuaðstöðu svo og loforði
um aukna tæknivæðingu í vinnslu.
Að sjálfsögðu vill hún fá eitthvað í
staðinn fyrir þann kostnað sem hlýst
af, og það er frystiálagið sem að
framan greinir.
Er það kannski markmið sjó-
mannafélaganna að halda niðri end-
urnýjun fiskiskipa og stoppa alla
tæknivæðingu? Er betra að gera
gamla skipið út og hírast þar við
verri aðbúnað, verri vinnuaðstöðu og
jafnvel lægri laun? Ég geri þá kröfu
til sjómannafélaganna að samþykkja
að taka af 10% frystiálagið í okkar til-
felli og færa okkur kjarabót.
Kjararýrnun eða kjarabót?
Arnljótur Arnarson fjallar
um kjarasamninga sjómanna ’ Er það kannski mark-mið sjómannafélaganna
að halda niðri endurnýj-
un fiskiskipa og stoppa
alla tæknivæðingu? ‘
Arnljótur Arnarson
Höfundur er sjómaður.
Vegna rífandi sölu að undanförnu óskum við eftir öllum
gerðum og stærðum atvinnuhúsnæðis á skrá nú þegar.
Erum að vinna fyrir öll sterkustu fasteignafélög landsins.
Hafðu strax samband ef þú vilt selja
Uppl. í gsm 846 2792
Atvinnuhúsnæði
Sími 595 9000
Franz Jezorski
hdl/lgf.
Davíð
Í dag er opið hús í Logafold 80, stórglæsilegu og
frábærlega vel staðsettu einbýlishúsi með sam-
þykktri aukaíbúð. Alls er húsið um 350 fm og stend-
ur innst í botnlanga með mikil og góð græn svæði
fyrir aftan húsið. Eignin er öll vel viðhaldin og í góðu
ástandi, skemmtilegur garður með hlöðnu útigrilli
fyrir gas og kol, hellulögð verönd og bílastæði, góð
garðgeymsla. Gólfefni á íbúðunum er flísar, einnig á
svölum. Alls eru gefin upp 12 herbergi í íbúðunum
samtals þannig að þetta er sannarlega eign sem
býður upp á mikla möguleika. Ásett verð 48 millj.
SÖLUMENN KLETTS TAKA VEL Á MÓTI YKKUR
Miðað við ásett verð og ef tekin eru full lán hjá banka á
þessa eign til 25/40 ára. Miðað við það lán sem kemst á
eignina með 4,2% vöxtum fást um 38,4 millj. Það sem
eftir stendur er því 9,6 millj. Greiðslubyrði á mánuði með
lágmarkskostnaði er því um 206.784 eða 167.155 miðað
við lengd.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 15-17
LOGAFOLD 80 - GRAFARVOGI
SAMÞYKKT AUKAÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ
5. og 6. hæð
í lyftuhúsi í
Austurstræti 17
til leigu
Hentar vel undir skrifstofu- og aðra
atvinnustarfsemi.
Gott útsýni og frábært umhverfi í miðbænum.
560 fm getur leigst í einu lagi eða hlutum.
Upplýsingar í síma 699 6810.
Þrúðvangi 18, 850 Hellu, s. 487 5028, 487 5228.
Eyjafjöll — Landspilda
Til sölu er 24 hektara landspilda úr eyðibýlinu Hörðuskála undir
Austur-Eyjafjöllum. Landið, sem liggur skammt frá þjóðvegi
nr. 1, er grasgefið og hentar vel til beitar. Útsýni er afar fallegt.
Nánari upplýsingar gefnar á skrifstofu Fannbergs ehf.
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð löggiltur fasteignasali
Í þessu virðulega húsi í hjarta miðbæjarins
er til sölu um 300 fm hæð og kjallari. Neðri
hæðin er um 146 fm sem er góð skrifstofu-
hæð. Kjallarinn, um 153 fm, er með mikilli
lofthæð og er innréttaður sem íbúð og
vinnustofa. Sérinngangur í kjallarann.
Þetta er eign sem býður upp á ýmsa
möguleika. V. 36,5 m. 6261
GRÓFIN - MIÐBÆR