Morgunblaðið - 19.09.2004, Blaðsíða 41
HUGVEKJA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 41
Dansnámskeið hefst
mánudaginn 20. sept. n.k
Kenndir verða gömludansarnir,
sérdansar ofl.
kl. 20 - 21 byrjendur
kl. 21 - 22 framhald
kr. 6.000.-
Barna- og unglinganámskeið
hefst þriðjudaginn 21. sept.
Kenndir verða gömludansarnir ásamt
íslenskum og erlendum þjóðdönsum ofl.
kl. 17.30 - 18 3 - 5 ára kr. 3.000.-
kl. 18 - 18.45 6 - 8 ára kr. 4.500.-
kl. 18.45 - 19.30 9 - 12 ára kr. 4.500.-
kl. 19.30 - 20.15 unglingar kr. 4.500.-
Þjóðdansafélag Reykjavíkur Álfabakka 14 A
LÆRIÐ
AÐ DANSA!
TAKIÐ ÞÁTT Í DANSINUM!
Þjóðdansar verða á
fimmtudögum kl. 20
Dansaðir verða þjóðdansar frá
ýmsum löndum.
Aðgangur ókeypis.
Opið hús verður á
miðvikudögum kl. 20.30
Við dönsum gömludansana annan
hvern miðvikudag.
Aðgangur kr. 600.- kvöldið.
Upplýsingar og skráning í síma 587 1616 og 567 5777
Kennt er í sal félagsins Álfabakka 14Upphafið er rakið tilgreinar, sem breskilögfræðingurinn Pet-er Benenson ritaðihinn 28. maí árið 1961
í Lundúnadagblaðið The Obser-
ver, og bar yfirskriftina „Hinir
gleymdu fangar“. Kveikjan að
þessu skrifi var handtaka og fang-
elsun tveggja portúgalskra náms-
manna, sem það eitt höfðu til saka
unnið að lyfta glösum og skála til
handa frelsinu. Nú beið þeirra fyr-
ir athæfið sjö ára refsivist á bak
við lás og slá. Í umræddri blaða-
grein, sem vakti gríðarlega athygli
um alla jörð, hvatti Benenson les-
endur til að skrifa þarlendum yf-
irvöldum og mótmæla þessari fá-
sinnu. Og viðbrögðin urðu sterk. Í
júlí kemur saman fólk úr Eng-
landi, Bandaríkjunum, Belgíu,
Frakklandi, Írlandi, Sviss og
Þýskalandi og ákveður að stofna
alþjóðlega hreyfingu til varnar
skoðana- og trúfrelsi. Skrifstofa er
opnuð í Mitre Court í Lundúnum,
mönnuð sjálfboðaliðum. Fyrstu
hóparnir verða formlega til á Eng-
landi, í Frakklandi, Hollandi, Ítal-
íu, Sviss og Vestur-Þýskalandi. Og
á miðju ári 1962 höfðu myndast rit-
hópar í enn fleiri löndum. Síðar á
því ári hannaði Diana Redhouse,
ein úr téðum hópum, merkið, sem
upp frá því hefur verið ásjóna sam-
takanna, logandi kerti umvafið
gaddavír.
Um áratug síðar eru hóparnir
orðnir meira en 1.000 talsins og
starfa í 28 löndum, og fimm árum
eftir það 1.874, í 33 löndum. Núna
eru hóparnir um 7.500, félagarnir
rúmlega 1,5 milljónir, í yfir 160
þjóðlöndum og landsvæðum, og
koma úr öllum stéttum þjóðfélags-
ins, og stjórnmálaskoðanir þeirra
og trúarbrögð eru ólík.
Amnesty International (en nafn-
ið merkir „alþjóðleg sakarupp-
gjöf“) horfði í byrjun og vann ein-
ungis út frá 18. og 19. grein
Mannréttindayfirlýsingar Samein-
uðu þjóðanna. En þar segir:
Allir menn skulu frjálsir hugsana sinna,
sannfæringar og trúar. Í þessu felst
frjálsræði til að skipta um trú eða játn-
ingu og enn fremur til að láta í ljós trú
sína eða játningu, einir sér eða í félagi
við aðra, opinberlega eða einslega, með
kennslu, tilbeiðslu, guðsþjónustum og
helgihaldi.
Hver maður skal frjáls skoðana sinna og
að því að láta þær í ljós. Felur slíkt
frjálsræði í sér réttindi til þess að leita,
taka við og dreifa vitneskju og hug-
myndum með hverjum hætti sem vera
skal og án tillits til landamæra.
Síðar voru kvíarnar færðar út
og tekið að berjast fyrir alþjóðlega
viðurkenndum mannréttindum,
hvað sem þau annars nefndust.
Svo er enn í dag. Hið nýjasta er, að
hinn 5. mars 2004 lögðu samtökin
upp í herferð til að binda enda á
helsta mannréttindahneyksli okk-
ar tíma, ofbeldi gegn konum.
Íslandsdeild samtakanna varð
til á fundi í Norræna húsinu 15.
september 1974, eftir kynningu
hjónanna Sigrúnar Sigurjóns-
dóttur og Franks Veneklaas, sem
búsett voru og eru í Rotterdam í
Hollandi. Á upphafsárunum voru
skjólstæðingar deildarinnar hér
aðallega samviskufangar, en 30 ár-
um síðar eru flestir ofsóttir vegna
þjóðernis, uppruna, félagslegrar
stöðu eða litarháttar.
Á www.amnesty.is segir m.a.:
Amnesty International er óháð öllum
stjórnvöldum, stjórnmálastefnum, efna-
legum hagsmunum og trúarbrögðum.
Samtökin hvorki styðja né eru andsnúin
nokkrum stjórnvöldum eða stjórn-
málakerfi, né styðja þau endilega við-
horf þeirra einstaklinga, sem eru við-
fang mannréttindabaráttu samtakanna.
Þetta er m.ö.o. einfaldlega
spurning um kærleika til náung-
ans, þess sem að ósekju er beittur
ofbeldi af ráðandi öflum í ættlandi
sínu og þannig kúgaður og lítils-
virtur.
Þessi merku alþjóðasamtök
hlutu friðarverðlaun Nóbels árið
1977. Þau hafa á rúmlega 40 ára
tímabili komið að málum um
45.000 einstaklinga.
Að endingu er bæði rétt og skylt
að minna á hvatningu Jóhönnu K.
Eyjólfsdóttur, framkvæmdastjóra
Íslandsdeildar Amnesty Int-
ernational, á 30 ára afmælinu á
dögunum, en þar ritaði hún orðrétt
í Morgunblaðið:
Amnesty International þrýstir á yf-
irvöld og vopnaða hópa sem brjóta
mannréttindi og við krefjum yfirvöld um
framfylgd við mannréttindaákvæði.
Rannsóknir og aðgerðir samtakanna
fletta ofan af brotum, sem reynt er að
fela. Mörg mál taka langan tíma og á
stundum virðist hægt miða, enn ljóst er
að aðgerðir Amnesty International
tryggja að fórnarlömb mannréttinda-
brota gleymast ekki og sú vissa getur
veitt birtu inn í líf sem umlukið er
myrkri.
Amnesty International eru sjálfstæð,
óháð samtök og taka ekki á móti op-
inberu fé til starfsins. Starfsemin bygg-
ist á framlögum félaga og þannig er
sjálfstæði samtakanna tryggt. Hver fé-
lagi í Amnesty International velur sjálf-
ur hvernig hann vill styðja samtökin.
Þeir sem hafa tíma og áhuga taka þátt í
ýmsu aðgerðastarfi sem í boði er, aðrir
kjósa að styðja samtökin fjárhagslega.
Allur stuðningur styrkir samtökin til að
þrýsta á stjórnvöld og aðra sem brjóta
mannréttindi. Hver sá sem gerist félagi
í Amnesty International leggur sitt af
mörkum til að opna fangelsisdyr og
bjarga fólki frá pyndingum og aftökum.
Aðgerðir samtakanna leiða oft á tíðum
til almennra mannréttindaúrbóta í lönd-
um þar sem mannréttindum hefur verið
ábótavant. Einnig vinna samtökin mik-
ilvægt eftirlitsstarf með framfylgd
mannréttinda. Á þessum tímamótum er
fólk hvatt til að ganga til liðs við sam-
tökin og stuðla þannig áfram að öflugu
starfi í þágu fórnarlamba mannréttinda-
brota.
Kúgun
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Íslandsdeild Amnesty
International átti 30
ára afmæli í nýliðinni
viku, 15. september. Af
því tilefni fjallar Sig-
urður Ægisson í dag
um þessi virtu og mik-
ilvægu alþjóðasamtök,
sem í rúma fjóra áratugi
hafa barist í þágu fórn-
arlamba mannréttinda-
brota.