Morgunblaðið - 19.09.2004, Side 42
MINNINGAR
42 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Gróa SigríðurÞorgeirsdóttir-
Lawrence fæddist á
Lambastöðum í
Garði 13. september
1923. Hún lést á
Englandi 14. júlí síð-
astliðinn. Gróa Sig-
ríður var dóttir
hjónanna Helgu
Jónínu Þorsteins-
dóttur húsmóður
sem ættuð var frá
Finnsbæ í Gerðum
og Þorgeirs Magn-
ússonar útvegs-
bónda frá Garðbæ í
Garði. Gróa Sigríður ólst upp á
stóru heimili á Lambastöðum í
Garði, áttunda í hópi tólf systk-
ina en af þeim eru nú sjö látin,
þau eru: Helga, Þorsteinn, Guð-
rún, Símon, Þorgeir, Einar og
Gróa Sigríður. Eftirlifandi
systkini Gróu eru: Magnea
Rannveig, Guð-
mundur, Rannveig,
Guðmunda Krist-
björg og Valgerður.
Gróa giftist í
ágúst árið 1942
Walter Lawrence.
Börn þeirra eru a)
Raymond Þorgeir,
f. 1946, var kvænt-
ur Guðrúnu Þor-
björgu Steindórs-
dóttur, d. 1988, þau
eiga tvö börn,
Gunnellu og Stein-
dór, og b) Helga
Mary, f. 1951, hún á
tvo syni, Simon James Hughes
og Lawrence Henry Hughes.
Síðustu árin bjuggu Gróa og
Walter á Suður-Englandi. Walt-
er lést fyrir nokkrum árum.
Minningarathöfn var haldin
um Gróu í Útskálakirkju 6. ágúst
síðastliðinn.
Foreldrar Gróu, hjónin Helga og
Þorgeir, ólu börn sín upp að
Lambastöðum. Eins og gefur að
skilja var æði líflegt á Lambastöð-
um og þurft hefur sterk bein til að
koma svo stórum barnahópi á legg.
Gróa naut hefðbundinnar barna-
og ungmennafræðslu sinnar tíðar
og fór ung út á hinn almenna
vinnumarkað – hugur Gróu stefndi
til frekara náms en bágur fjár-
hagur gerði það að verkum að af
því gat ekki orðið.
Á uppvaxtarárum sínum flutti
Gróa til Guðrúnar systur sinnar og
starfaði á veitingastað í Reykjavík
en það var einmitt þar sem hún
kynntist manni sínum, Walter
Lawrence, sem staddur var hér á
landi með breska hernámsliðinu á
stríðsárunum. Walter gekk inn í
verslun með besta vini sínum, sá
Gróu, og sagði „Þarna er konan
sem ég ætla giftast.“ Gróa og
Walter giftust í ágúst árið 1942.
Skömmu eftir að þau voru gefin
saman var Walter kallaður heim til
Bretlands, þar sem honum var gert
að taka þátt í innrásinni í Frakk-
land árið 1944. Eftir að stríðinu
lauk sneri hann síðan aftur til Ís-
lands að sækja eiginkonu sína.
Það voru mikil umskipti fyrir
unga stúlku frá Íslandi að flytjast
búferlum til Bretlands. En Bret-
land var þá í sárum eftir langt og
erfitt stríð og húsnæði var þar af
skornum skammti. Gróa og Walter
hófu því búskap hjá foreldrum
Walters í Vestur-London. Þar
fæddist þeim sonurinn Raymond
Þorgeir árið 1946 og síðar árið
1951 eignuðust þau dótturina
Helgu Mary. Gróa og Walter fengu
síðar hús í sama sveitarfélaginu og
bjuggu þar mest sína hjúskapartíð,
eða í 50 ár.
Þorgeir sonur þeirra fluttist
hingað til Íslands árið 1967 og árið
1969 kvæntist hann Guðrúnu Þor-
björgu Steindórsdóttur og eiga þau
tvö börn, Gunnellu og Steindór.
Helga Mary giftist og á tvo
drengi.
Afkomendur Gróu og Walters
eru því alls 8 talsins.
Heimili Gróu og Walters í Lond-
on var vinsæll viðkomustaður
margra ættingja og vina frá Ís-
landi. Oftar en ekki var þá glatt á
hjalla og þröng á þingi og stundum
svo þröngt að krakkarnir sváfu í
tjaldi en enginn kvartaði því við-
mót þeirra hjóna einkenndist af
gestrisni, hlýju og höfðingsskap í
hvívetna. Gróa og Walter létu mik-
ið til sín taka í félagi Íslendinga
sem búsettir voru í London og ná-
grenni og oft var gleði mikil undir
dulnefninu saumaklúbbur. Gróa
var mikil áhugakona um tónlist og
söng í kór í mörg ár.
Árið 1992 héldu Walter og Gróa
gullbrúðkaup og þar safnaðist stór
hópur vina og vandamanna til að
samfagna þeim á þeim merku tíma-
mótum.
Síðustu árin bjuggu þau á Suð-
ur-Englandi. Walter lést fyrir
nokkrum árum.
Það er alveg ljóst að Gróa Sig-
ríður vissi hver fjársjóður hennar
var, hún sáði umhyggju og kær-
leika í líf ástvina sinna, eigin-
manns, barna og samferðamanna
og uppskar virðingu og ást afkom-
enda sinna og vina sem kveðja
hana með söknuði og trega.
Þorgeir Lawrence.
GRÓA SIGRÍÐUR
ÞORGEIRSDÓTTIR-
LAWRENCE
✝ Eiríkur Óli Ólafs-son, fv. kaupmað-
ur, Kirkjustíg 2,
Eskifirði, fæddist á
Eskifirði 30. júní
1924. Hann lést á
dvalar- og hjúkrun-
arheimilinu Huldu-
hlíð á Eskifirði 12.
sept. síðastliðinn.
Hann var sonur
hjónanna Guðrúnar
Jónínu Halldóru
Guðjónsdóttur og
Ólafs Hermannsson-
ar. Eiríkur átti hálf-
bróður, Gunnar,
samfeðra og uppeldissystur,
Fjólu.
Eiríkur kvæntist Oddnýju
Björgvinsdóttur frá Fáskrúðs-
firði, f. 3.3. 1929, d. 10.12. 1974 og
eignuðust þau sex
börn. Þau eru: Guð-
rún Björg (Búdda), f.
24.8. 1949, d. 13.8.
2002, Ólöf María, f.
7.4. 1951, Björgvin,
f. 15.2. 1954, d.
31.12. 1990, Helga
Ólena, f. 16.3. 1956,
Árný, f. 12.9. 1960
og Lára Elísabet, f.
16.10. 1964. Fyrir
átti Oddný dótturina
Valborgu er ólst upp
hjá móðurforeldrum
á Fáskrúðsfirði.
Barnabörn Eiríks
eru 18 talsins og barnabarnabörn-
in þrjú.
Eiríkur verður jarðsunginn frá
Eskifjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Á kveðjustund leita í huga
manns minningar liðinna ára.
Ferskasta minningin um Eika er
frá sl. sumri, stuttu eftir áttræð-
isafmælið hans er ég þurfti norður
á Þórshöfn að sækja fisk, hringdi í
Eika kvöldið áður og bauð honum
með, við myndum leggja upp fimm
með morgni. Hann var auðvitað
tilbúinn á pallinum þegar ég kom
og hefur efalaust verið það um
nokkurn tíma því ekki lét hann
bíða eftir sér. Þegar af stað var
komið í rjómablíðu var byrjað að
spjalla og hann tók að segja frá
liðnum tímum eins og hann gjarna
gerði ef við vorum einir og var
honum þá tíðrætt um eiginkonu
sína Oddnýju sem lést aðeins 45
ára frá manni og óuppkomnum
dætrum.
Þegar við vorum á leið til baka
var ákveðið að stoppa á Vopnafirði
og taka olíu. Meðan ég dældi fór
hann inn og afgreiðslustúlkan
bauð honum aðstoð sína, svaraði
hann sposkur að hann myndi sjá
til hvort „kallinn“ myndi ekki
splæsa á sig pulsu. Þegar við kom-
um aftur heim hafði verið sett upp
rafdrifið rúm. Hann varð aldeilis
montinn með rúmið og vildi hafa
það með sér á Hulduhlíð.
Eiki var mikill dýravinur og
voru hundar í uppáhaldi. Þegar
hann var fenginn að gæta hvolps-
ins okkar var hann dekstraður,
smurt og skorið ofan í hann kæfu-
brauð og þótt Eiki væri allur blóð-
risa í andliti eftir ærsl hvolpsins
sagði hann að hann hefði verið
agalega góður.
Á áttræðisafmælinu þvertók
hann fyrir að haft yrði fyrir sér,
hann myndi vera að horfa á bolt-
ann. Evrópukeppnin var þá í full-
um gangi. Auðvitað bökuðu dæt-
urnar og beið hans dekkað borð,
það gladdi hann auðvitað. Það
voru erfiðir tímar í fjölskyldunni
þegar eiginkonan féll frá, tók þá
Bakkus ráðin af Eika um skeið.
Hann fylgdi tveimur börnum sín-
um til grafar, Búddu, sem lést 53
ára og Björgvini, er lést 36 ára.
Eiríkur stundaði ýmis störf til
sjós og lands uns hjónin hófu
verslunarrekstur. Síðar fór hann
til sjós á Votaberg með Frissa
tengdasyni sínum. Síðustu árin
sem hann vann var hann í mót-
tökunni í hraðinu og ökukennari í
aukaverkum.
Megi Eiríkur sigla fleyi sínu í
örugga höfn.
Einar Birgir Kristjánsson.
EIRÍKUR ÓLI
ÓLAFSSON
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Halldór Ólafsson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Sími 551 3485 • Fax 551 3645
Áratuga reynsla í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 896 8284
Eyþór Eðvarðsson
útfararstjóri
Sími 892 5057
Vaktsími allan sólarhringinn
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj,
s. 691 0919