Morgunblaðið - 19.09.2004, Síða 44

Morgunblaðið - 19.09.2004, Síða 44
MINNINGAR 44 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Jónasína Bjarna-dóttir fæddist á Alviðru í Dýrafirði 11. september 1908. Hún lést á Höfða, heimili aldraðra á Akranesi, 26. febrúar síðastliðinn. Foreldr- ar Jónasínu voru Bjarni Sigurðsson, f. 27. maí 1868, d. 3. okt. 1951, og síðari kona hans, Sigríður Gunnjóna Vigfús- dóttir, f. 16. sept. 1881, d. 1. nóv. 1964. Bjarni hafði áður verið kvæntur Rannveigu Mar- gréti Sveinsdóttur frá Engidal við Skutulsfjörð, f. 30. okt. 1880, hún lést 25. júlí 1901, eftir fæðingu dótturinnar Rannveigar Sigríðar, f. 19. júlí 1901, d. 11. júní 1987, síðar húsfreyju í Stóru-Sandvík í Flóa. Alsystkin Jónasínu voru þessi í aldursröð: Sigríður Guðrún, f. 15.9. 1907, d. 23.1. 1996, Sigurður, f. 27.8. 1909, d. 13.10. 1988, Guð- mundur Jens, f. 17.10. 1910, d. 5. 6. 1991, Ólöf, f. 25.11. 1911, d. 8.6. 1998, Sæmundur Bjarni, f. 18.5. 1913, d. 25.12. 1944, Vigdís f. 14.6. 1914, d. 24.1. 1999, Jóhannes, f. 10.7. 1915, d. 1.9. 1972, Sig- ur1augur, f. 16.10. 1916, d. 11.2. 1978, Jón, f. 29.9. 1917, d. 27.12. 1999, Vigfúsína, f. 2.11. 1918, hún dvelur nú á Hrafnistu í Reykjavík, Ingibjartur, f. 1. 9. 1921, d. 19.12. 1981, Árný, f. 28.1. 1923, d. 22.9. 1957, og Ingibjörg, f. 22.9. 1926, búsett á Gnúpufelli í Eyjafirði. Vorið 1909 fluttist fjölskylda Jónasínu að Minna-Garði í Dýra- firði og þaðan að Fjallaskaga árið 1912, þar bjuggu þau til vorsins 1926, að þau fluttu að Lambadal í sömu sveit. Jónasína gift- ist hinn 30. maí 1930 Þorsteini Böðvars- syni, f. á Kirkjubóli í Hvítársíðu 9.6. 1902, d. 23. júní 1977. For- eldrar hans voru Böðvar Jónsson og Kristín Jónsdóttir. Bræður Þorsteins voru Guðmundur skáld og bóndi á Kirkjubóli, f. 1.9. 1904, d. 3.4. 1974, kona hans Ingibjörg Sigurðardóttir, f. 20.4. 1911, d. 21.5. 1971, og Jón sem var elstur, f. 5.6. 1901, d. 15.1. 1963, kona hans Salvör Brandsdóttir, f. 22.2. 1905, d. 14.4. 1951. Börn Jónasínu og Þorsteins eru þessi: a) Kristjan Guðmundur, f. 20.10. 1933, kona hans Guðríður Sveinsdóttir, f. 6.6. 1936, búsett í Reykjavík, þau eiga einn son. b) Böðvar Ingi, f. 8.9. 1936, kona hans Ásrún Jóhannes- dóttir, f. 23.10. 1950, búsett á Þyrli, þau eiga þrjú börn og einn fósturson. c) Bjarni Sigfús, f. 26.8. 1940, búsettur í Reykjavík, kona hans Svanlaug Sighvatsdóttir, f. 4.12. 1942, skilin, þau eiga þrjú börn. Einnig á Bjarni dæturnar Steinunni, f. 1977, móðir hennar er Helga Pálsdóttir, f. 1954, og Herdísi Katrínu, f. 1979, móðir hennar er Ágústa Baldursdóttir, f. 1960. d) Sigríður Kristín, f. 10.10. 1943, maður hennar Örn B. Hauksson, f. 15.10. 1941, þau eiga tvær dætur og eru búsett á Hvols- velli. Útför Jónasínu fór fram frá Saurbæ á Hvalfjarðarströnd 6. mars. „Um héraðsbrest ei getur að hrökkvi sprek í tvennt“ sagði einn ljóðasnillinga okkar, þegar hann minntist aldraðrar ekkju, sem þræl- að hafði látlaust frá barnsaldri til elli- ára og lengstaf við kröpp kjör. Þessi orð komu í huga þegar systir mín Jónasína lést hinn 26. febrúar sl. Jón- asína kvaddi eins og hún hafði lifað, æðrulaus, falleg og hljóðlát. Hún var aðeins á áttunda ári þegar foreldrar okkar urðu að lána hana til snúninga og til að passa börn inná sveit, því heimili þeirra var Fjallaskagi yst við útnesgjögur, löng og ógreið leið til næstu bæja, oft strangir sjóar, þar sem björgin skulfu og klettaskorurn- ar supu hveljur við hamagang úthafs- bárunnar. Það átti raunar við um öll elstu systkinin, að þau urðu að fara í lengri eða skemmri tíma, jafnóðum og þau gátu eitthvað gert, á aðra bæi, til að vinna uppí greiða eða smá- skuldir og líka til að létta á fóðrum heima, því oft var knappt um mat- föng. Daglegt líf snerist um að kom- ast af. Enginn sem alinn er upp við þægindi og velsæld nútímans getur sett sig í spor fátækra og barn- margra leiguliða snemma á síðustu öld. Fjölskyldan var dugnaðarfólk, vel verki farið og eftirsóttur vinnu- kraftur. Systkinin voru misjafnlega heppin með húsbændur eins og geng- ur. Jónasína var ekki heppin með sína fyrstu vist. Þó hún hefði þá lífs- reglu að tala aldrei illa um nokkra manneskju, og bera alltaf í bætifláka ef eitthvað gekk úrskeiðis hjá sam- ferðafólkinu, vissi ég að sú lífsreynsla sem hún varð fyrir átta ára telpu- kornið í sinni fyrstu vist, fylgdi henni til hinstu stundar. Jónasína og Þorsteinn maður hennar hófu búskap í Grafardal í Skorradalshreppi vorið 1930 ásamt Jóni bróður Steina og konu hans Sal- vöru Brandsdóttur. Þetta var örreyt- iskot, hátt yfir sjó og úrleiðis, þangað lágu aðeins götutroðningar, en þetta var eina jarðnæðið, sem fáanlegt var í sýslunni á þessu vori og þau urðu að kaupa jörðina, hún fékkst ekki til leigu. Það var tekið til hendinni við að rækta, byggja og breyta, og með tím- anum varð Grafardalur myndarlegt býli. Langur og strangur hefir vinnu- dagurinn verið og mörg ljón í veg- inum. Jón kom í búið með fulla salt- kjötstunnu sem hann þurfti að flytja með sér á hestakerru ofan úr Hvít- ársíðu en vegarslóðinn var svo erf- iður yfirferðar að það þurftu tveir menn að ganga meðfram kerrunni, sinn hvors vegar, til að styðja við farminn svo tunnan ylti ekki af og matbjörgin færi til spillis. Og þegar byggt var, þurfti að flytja allt bygg- ingarefni á reiðingshestum, meira að segja mölin í steypuna, var skröpuð saman meðfram ánni, sett í poka og á klakk og reidd heim, því öngva steyp- umöl var hægt að nálgast á annan hátt. Fjölskyldurnar strituðu enda- laust það var svo harðbýlt þarna. þegar Jónasína fór alfarin úr Dýra- firði vorið 1930 fór hún með bróður sinn Ingibjart tæpra níu ára, með sér til snúninga og ég sem þetta skrifa lá grenjandi af sorg og söknuði út undir kálgarðsvegg, var hugguð með því að hann kæmi aftur um haustið. En það liðu samt tæp tíu ár þar til við systk- inin hittumst aftur. Jónasína var komin yfir nírætt þegar hún sagði mér hvernig kvíði og eftirvænting toguðust á í sál hennar þegar þau þrjú, ungu hjónin og snún- ingastrákurinn létu hestana þræða götuna fram Grafardalinn, en þar átti heimili hennar eftir að standa í fjöru- tíu og sjö ár. Samlyndi fjölskyldna þeirra bræðra var ákaflega gott alla tíð og alltaf þótti sjálfsagt að hlaupa undir bagga ef einhver átti erfitt. Í bókinni Borgfirskar æviskrár, bls. 306, er falleg frásögn um drenglyndi Grafardalsfjölskyldunnar og hljóðar sagan svo. „Þegar Eiríkur í Bakka- koti stóð einn uppi eftir konumissinn, skiptust Grafardalskonurnar á um að dvelja í Bakkakoti til þess að annast börnin. En ekki gat það lengi gengið, því átta voru börnin heima hjá þeim, fjögur hjá hvorum hjónum. Ekki vildu þau Grafardalshjón láta hjálp- ina niður falla heldur tóku til sín öll fjögur börnin til viðbótar hópnum, sem fyrir var. Og ekki ætla þau hjón að skila hópnum af sér, fyrr en faðir þeirra getur fengið einhverja aðstoð til þess að annast börnin. Hér var ekki um frændsemi að ræða, heldur aðeins hinn óeigingjarna bróðurkær- leika“. Frásögn þessi er upphaflega komin frá Kristleifi á Stóra Kroppi. Hjálpsemi og fórnarlund voru sterkir þættir í fari Jónasínu. það kom einnig í hennar hlut að styðja við börn sinn- ar ágætu svilkonu, því Salvör dó 1951 frá hópnum sínum. Og hún Sína hélt áfram eftir mætti að hlú að þeim sem höllum fæti stóðu alveg fram á sinn síðasta dag. Sonurinn Böðvar sem lengi hafði verið stoð og stytta við bú- skapinn í Grafardal, tók við jörðinni og bjó með þeim um hríð en þegar hann var kominn með konuna sína Ásrúnu og fjölskyldan stækkaði, byggðu Þorsteinn og Jónasína sér pínulitið hús sem þau kölluðu Garðs- horn. Þorsteinn lést aðeins 75 ára og að okkur fannst alltof snemma. Hann var hinn prýðilegasti drengur, glað- sinna, fluggreindur og vel hagmælt- ur. Útför hans fór fram í kyrrþey, og var kerinu með ösku hans fundinn staður í hvílu Jóns bróður hans uppi í Hvítársíðunni. Fjölskyldan frá Grafardal flutti í Þyril árið eftir, þaðan var hægara að koma börnunum í skóla og þar var auðveldara með félagsleg samskipti. Jónasína staldraði ekki lengi þar við, en flutti sig til Akraness. Þar var ekki setið auðum höndum, heldur tekið til við allskonar handavinnu, hagleikur- inn var henni í blóð borinn. Hún var skýr í hugsun og stálminnug og þarna fór hún að skrifa niður upplýs- ingar um systkini sín, jafnóðum og nýr einstaklingur bættist við í ein- hverri fjölskyldunni var mánaðar- dagur, kyn og nafn, samviskusam- lega skráð, það þurfti stundum símtöl og eftirgangsmuni til að fá þessar upplýsingar réttar, en það hafðist. Það eru mörg hundruð nöfn komin i þessa skrá, sem frænka hennar Helga Sigríður, setti í tölvutækt form og er merkileg heimild um ættanna kynlega bland. Á Akranesi dvaldi hún allmörg ár, eða þar til þrekið til að sjá um sig sjálf var búið, þá fór hún inn á Öldrunardeildina á Höfða, þar var hún til hinstu stundar vafin um- hyggju og hlýju, og er mér, fyrir hönd allra aðstandenda, bæði ljúft og skylt að þakka þeim sem þar vinna aldeilis frábæra þjónustu. Jónasína Bjarnadóttir og Þor- steinn Böðvarsson voru jafnlynd og samlynd hjón og lánsamar mann- eskjur. Hvorugt þeirra gat á upp- vaxtarárunum aflað sér þeirrar menntunar sem hugur og hæfileikar stóðu til en þau komu sér upp traustu og góðu heimili þar sem börnin uxu úr grasi og þau voru góðir uppalend- ur, fróð, heilsteypt og umhyggjusöm. Þau eiga stóran hóp vel gerðra af- komenda. Í bréfi sem ég fékk eitt sinn frá Steina, lýsti hann ögn dag- legu ferli fjölskyldunnar og segir þar um eitt barna sinna. „Í þessum dreng sé ég svo marga eiginleika sem mér falla vel í geð.“ Ég hef oft hugleitt þessa setningu, hvað er dýrmætara en að sjá eitthvað gott og fagurt í fari afkomenda sinna. Jónasína systir hefur nú lokið sinni jarðvist, og ef marka má kenningu Biblíunnar um að látnir lifi, sem við drögum ekki í efa að sé rétt, þá hafa Grafardalshjónin nú náð saman aft- ur. Blessuð sé minning þeirra, þökk fyrir samfylgdina. Afkomendunum og öllum þeirra ástvinum sendi ég kærleikskveðjur. Ingibjörg Bjarnadóttir. JÓNASÍNA BJARNADÓTTIR Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður minnar, tengda- móður, ömmu, langömmu og langalang- ömmu, VALGERÐAR ÖNNU EYÞÓRSDÓTTUR, (Lóu), Melabraut 10, Seltjarnarnesi. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki líknardeildar Landakotsspítala fyrir einstaka umönnun. Hafdís Eiríka Ófeigsdóttir og aðstandendur. Innilegar þakkir til þeirra sem voru viðstaddir athöfn sem fram fór í Útskálakirkju föstudaginn 6. ágúst um móður okkar, ömmu og lang- ömmu, GRÓU S. ÞORGEIRSDÓTTUR-LAWRENCE. Þorgeir Lawrence og fjölskylda, Helga M. Hughes og synir. Ástkær eiginmaður, faðir, sonur, bróðir, mágur og frændi, GUÐBJÖRN SIGFÚS KRISTLEIFSSON sjómaður, Asparfelli 4, sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi föstudaginn 10. september, verður jarðsunginn frá Fella- og Hólakirkju þriðju- daginn 21. september kl. 13.30. Ósk Reykdal Árnadóttir, Alex Guðbjörnsson, Davíð Árni Guðbjörnsson, Tinna Guðbjörnsdóttir, Kristleifur Trausti Guðbjörnsson, Kristleifur Guðbjörnsson, Margrét S. Ólafsdóttir, Gunnar Ó. Kristleifsson, Þrúður Finnbogadóttir, Unnur S. Kristleifsdóttir, Arnar Þ. Ingólfsson, Hanna M. Kristleifsdóttir og systkinabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, GESTUR GUÐMUNDUR ÞORKELSSON, Suðurgötu 72, Hafnarfirði, sem andaðist sunnudaginn 12. september á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 21. september kl. 13.30. Kristinn Gestsson, Sigríður Gröndal, Ásta Gestsdóttir, Garðar Þorsteinsson, Gunnlaugur Gestsson, Hulda Haraldsdóttir, Helena Rut Gestsdóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES INGIBJÖRN ÓLAFSSON fyrrv. forstjóri Dósagerðarinnar, Einimel 3, Reykjavík, sem andaðist laugardaginn 11. september, verður jarðsunginn frá Neskirkju þriðjudaginn 21. september kl. 13.30. Ingveldur Valdimarsdóttir, Sigurlína Jóhannesdóttir, Donald Ingólfsson, Ingveldur Jóhanna Donaldsdóttir, Hallgrímur I. Valberg, Kristín Donaldsdóttir, Guðmundur Hansson, Jóhannes Ingibjörn Donaldsson, Elísabet Eggertsdóttir, Elín María Donaldsdóttir og langafabörn. www.mosaik.is LEGSTEINAR sendum myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4 - sími: 587 1960 Guðmundur Jóhannsson f. 10. 6. 1932 d. 8. 3. 1989 Minning þín lifir Hvíl í friði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.