Morgunblaðið - 19.09.2004, Page 45
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 45
Hjartans kveðjur og þakklæti til allra sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og
útför okkar kæra bróður og mágs,
NJÁLS GUÐMUNDSSONAR
byggingafræðings
frá Böðmóðsstöðum,
Vesturhúsum 2,
Reykjavík.
Ólafía Guðmundsdóttir,
Aðalheiður Guðmundsdóttir,
Sigríður Guðmundsdóttir, Árni Sigfússon,
Valgerður Guðmundsdóttir,
Lilja Guðmundsdóttir, Ingimundur Einarsson,
Fjóla Guðmundsdóttir,
Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Árni Guðmundsson, Erla Erlendsdóttir,
Herdís Guðmundsdóttir, Vilhjálmur Sigtryggsson,
Hörður Guðmundsson, María Pálsdóttir.
Kæru ættingjar og vinir.
Okkar hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför okkar ástkærrar
eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu,
SOFFÍU MAGNÚSDÓTTUR,
Skúlaskeiði 20,
Hafnarfirði.
Einnig viljum við þakka læknum og starfsfólki
á deild 11-E Landspítala við Hringbraut, heima-
hlynningu og líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Guð blessi ykkur öll.
Björgvin Steinþórsson,
Margrét Björgvinsdóttir, Stefán H. Jóhannesson,
Þórdís Björgvinsdóttir, Stefán I. Guðmundsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför elskulegs bróður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
ÁRNA STEFÁNSSONAR
bifreiðarstjóra,
Víðinesi,
áður til heimilis á
Hringbraut 109.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunar-
heimilinu Víðinesi.
Guðrún Stefánsdóttir,
Auður Stefánsdóttir,
Ágústa Stefánsdóttir,
Rakel Björg Ragnarsdóttir,
Katrín Einarsdóttir,
Ragnar Valur Björgvinsson, Fríður Sólveig Hannesdóttir,
Sigríður Helgadóttir, Guðjón Ingi Eiríksson,
Brynja Helgadóttir, Bergsteinn Gunnarsson,
Helga Helgadóttir
og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna
fráfalls ástkærs föður okkar, afa, langafa og
langalangafa,
HAUKS NÍELSSONAR
bónda,
Helgafelli.
Níels Hauksson og fjölskyldur,
Marta Hauksdóttir og fjölskyldur,
Helgi Sigurðsson og fjölskylda.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför móður minnar, tengda-
móður og ömmu,
SIGRÚNAR SKARPHÉÐINSDÓTTUR,
Stóragerði 5,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar-
heimilisins Skógarbæjar fyrir einstaklega góða
umönnun.
Sigríður Magnea Njálsdóttir,
Björgvin Þ. Valdimarsson,
Sigrún Ósk Björgvinsdóttir,
Helga Þóra Björgvinsdóttir.
Kæru vinir. Þökkum samúð og vinarhug við
andlát og útför okkar ástkæra
VILHJÁLMS S. V. SIGURJÓNSSONAR.
Sérstakar þakkir fyrir einstaka umönnun í
gegnum langvinn veikindi viljum við færa
læknunum Þorsteini Gíslasyni, Jóni Högna-
syni, Birni Guðmundssyni og Eiríki Jónssyni.
Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins eru
færðar sérstakar þakkir fyrir hlýja umönnun og
vinarþel sem styrkti okkur á erfiðum stundum. Innilegar þakkir fær
sr. Hjörtur Magni Jóhannsson fyrir stuðning og alúð.
Guð blessi ykkur öll.
F.h. aðstandenda,
Erla Bergmann Danelíusdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARGRÉT GUÐMUNDA
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Akralandi 3,
Reykjavík,
andaðist á líknardeild Landspítala, Landakoti,
laugardaginn 11. september.
Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 20. september kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Blindrafélagið.
Sigríður Sigurðardóttir,
Erla Jónsdóttir Stensby,
Hilmar Jónsson, Helga Guðjónsdóttir,
Margrét Jónsdóttir, Sigurjón Einarsson,
Guðmundur Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HELGA DAVÍÐSDÓTTIR,
Grenilundi 19,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Kjarnalundi laugardaginn
11. september.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 22. september kl. 13.30.
Baldur Þorsteinsson, Bryndís Baldursdóttir,
Davíð Þorsteinsson,
ömmu- og langömmubörn.
Hún hét Vera og var
mamma mín. Ég
kynntist henni þegar
ég var að vaxa en þá
var ekki mikið um pen-
inga og þurfti því að
fara vel með allt. Það
kunni mamma svo
undrun þætti mörgum í dag. Það fer
ekki hjá því að það hitnar um augun
þegar maður minnist hennar.
Hún eignaðist ekki ísskáp fyrr en
á fimmtugsafmælinu sínu 1963,
samt man ég ekki til að það
skemmdist hjá henni matur, þar var
allt skipulagt áður en til innkaupa
kom.
Hún saumaði allt á okkur krakk-
ana og sjálfa sig og það gerði hún
venjulega á nóttinni því þá var svo
gott næði sagði hún mér síðar.
Hennar aðalsmerki var gæska og
æðruleysi. Hún tók öllu því sem upp
kom á lífsleiðinni með stillingu og
leysti úr því með þeim hætti að sem
best gagnaðist öllum og svo hló hún
og þá sléttaðist úr öllum misfellum
sem hugsanlega voru eftir.
Það var svo skrítið að þegar hún
hló sem kátast þá táraðist hún líka.
Það er hugsanlega vegna þess að
hún vissi að það er svo skammt á
milli hamingju og óhamingju. En
óhamingju átti hún aldrei, aðeins
mismunandi auðvelt líf. Minninga-
brotin eru mörg og sum þannig að
þau skilur enginn nema við mamma.
En það er gaman að minnast hennar
þegar hún var ung kona að sjá um
heimili og leika sér við börnin sín.
Ég man fyrst eftir mér á Þórsgöt-
unni og það var einhverju sinni að
hún hafði bakað fallega litla tertu og
ég var einn í eldhúsinu og beit í
kantinn á henni. En um leið sá ég að
hún var ekki eins jöfn og falleg og
áður, í henni var nú skarð. Ég ákvað
að naga hana bara jafnt allan hring-
inn, þá yrði hún aftur jöfn og falleg.
Þegar mamma kom svo úr þvotta-
húsinu fór hún að hlæja, en sagði
svo: Nei, hefur nú litla músin komist
í tertuna mína? Ég varð allshugar
feginn og sagði langdregið fegin-
samlegt jaá og nú var ég laus allra
mála þar sem músin var orðin söku-
VERA INGIBERGS-
DÓTTIR HRAUNDAL
✝ Vera Ingibergs-dóttir fæddist í
Reykjavík 31. des-
ember 1913. Hún lést
20. júlí síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Grensás-
kirkju 30. júlí.
dólgurinn. En þá spyr
mamma; heldur þú að
músina langi ekki í
meira? Ég var í hálf-
gerðum vandræðum
með svarið því mér
fannst það ekkert snið-
ugt að fara að gefa
músinni af þessari fínu
köku sem mig langaði
svo mikið í. En ég
þurfti ekkert að svara
því mamma var búin að
skera góða sneið og
setja á disk fyrir mig
og mjólkurglas með,
þetta var góður dagur.
Það var erfitt með húsnæði í
Reykjavík þegar ég var barn og við
áttum heima við Hólmsá, ofan Sel-
áss og neðan Geitháls. Hún var ekki
líkamlega stór hún mamma en hún
var enginn aukvisi og hún sótti allt
vatn í Hólmsá í fötum, hvernig sem
viðraði, því vatnslögn var engin í
húsinu. Það var kynt með kolum en
byggt sem sumarhús og því kalt á
vetrum þó að það væri fallegt á góð-
um sumardegi. Það man ég að hún
táraðist stundum á þessum tíma, af
hverju vissi ég ekki og veit ekki enn.
Pabbi átti hesta þegar við vorum
þarna uppfrá og gekk stundum illa
að ná þeim en mamma þurfti ekki
annað en að kalla einu sinni á Sörla,
þá sneri hann umsvifalaust við og
kom til hennar.
Ég fór tiltölulega snemma að
heiman og var á öðru landshorni í
um þrjátíu ár. En einhverju sinni er
ég átti leið til Reykjavíkur með flug-
vél þá labbaði ég frá flugvellinum og
upp í Stóragerði 14. Þegar ég var að
nálgast heimilli foreldra minna, sá
ég gamla konu standa í norðan gjól-
unni með innkaupapoka við ljósin
hjá Austurveri, bíðandi eftir leyfi
sér til handa að ganga yfir. Og það
kemur grænt og hún gengur yfir
með innkaupapokana sína en fer nú
ekki svo rösklega sem forðum með
vatnsföturnar.
Hún er hugsi þarna á gangi með
pokana sína, en það birtir yfir og
brosið kemur svo heillandi og hlýtt
þegar hún sér mig. Ég tek af henni
innkaupapokana og segi að það sé
rofi við staurinn sem flýti fyrir
grænu ljósi. Já, já, ég veit allt um
það, en þetta blessaða fólk er svo
mikið að flýta sér að ég er ekkert að
tefja það. Við litla eldhúsborðið
hennar mömmu ræðum við flýtinn
og stressið og hef ég þar einhver orð
um. Hún lítur á mig yfir kaffibollann
með eilítið kankvísu augnaráði og
spyr; ert þú nokkuð að flýta þér?
Hrólfur Hraundal.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Skilafrestur Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Minningar-
greinar