Morgunblaðið - 19.09.2004, Side 50

Morgunblaðið - 19.09.2004, Side 50
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Lalli lánlausi © LE LOMOMBARD ÞÚ ERT SVO GÓÐUR KÖTTUR NALLI! NALLI, MÁ ÉG NOKKUÐ EIGA VIÐ ÞIG EITT ORÐ ÞAÐ ER EINS GOTT FYRIR ÞIG AÐ VERA EKKI BETRI KÖTTUR EN ÉG EF ÞÚ VILT EKKI ENDA Í RUSLINU FRÆGI TENNIS- LEIKARINN GENGUR INN Á VÖLLINN ÉG ÞOLI EKKI ERFIÐAR UPPGJAFIR NEI, ÉG ÞARF EKKERT AÐ FARA Í BAÐ! ÉG GET HALDIÐ MÉR HREINUM! SJÁÐU! ÉG SLEIKI MIG BARA TIL ÞESS AÐ HREINSA MIG. ÞETTA ER ÞAÐ SEM HOBBES GERIR, ÉG ÞARF EKKERT AÐ FARA Í BAÐ! KÆRAR ÞAKKIR ÓTRÚLEGT HVAÐ ÞÚ GETUR FITNAÐ MIKIÐ DAGINN FYRIR PRÓF ÞETTA ER ÁN EFA ÚT AF ALLRI ÞEKKINGUNNI SEM ÉG ÞURFTI AÐ INNBYRÐA MEINARÐU EKKI AÐ ÞETTA SÉ ÚT AF ÖLLUM SYND- UNUM SEM ÍÞYNGJA ÞÉR NEI, HVAÐ ER ÞETTA? KANNSKI BARA FLASA! FARÐU ÚT!! MISKUNN! ÉG VAR FLEIRI DAGA AÐ SKRIFA ALLA ÞESSA MIÐA STUNDUM SPYR ÉG MIG, HVORT ÞÚ LEGGIR EKKI OF MIKLA VINNU Á ÞIG FYRIR EKKI NEITT SVONA ER ÞETTA ÞEGAR MAÐUR STUNDAR ÍÞRÓTTIR SEM ÞESSA Dagbók Í dag er sunnudagur 19. september, 263. dagur ársins 2004 Fréttamenn Íslenskaútvarpsfélagsins eru fallnir í sömu gryfju og starfsmenn RÚV um árið – það er að hætta allt í einu að segja hlustendum sín- um frá úrslitum leikja í ensku knattspyrn- unni, eins og að enska knattspyrnan hafi ver- ið lögð niður. Starfs- menn RÚV gerðu þetta þegar þeir misstu ensku knatt- spyrnuna yfir til Ís- lenska útvarpsfélags- ins um árið. Eftir áratuga langa þjónustu við hlust- endur, var þeirri þjónustu hætt. Þá létu starfsmenn Íslenska útvarps- félagsins óánægju sína og undrun á þróun mála í ljós – skildu ekkert í starfsmönnum RÚV frekar en aðrir landsmenn. Nú hafa starfsmenn Ís- lenska útvarpsfélagsins fallið í sömu gryfjuna og starfsmenn RÚV á sín- um tíma og af sömu ástæðum. Það er eins og enska knattspyrnan sé ekki lengur til eftir að Skjár einn fékk réttinn til að sýna leiki í ensku úr- valsdeildinni. Víkverja finnst þessi hegðun væg- ast sagt móðgun við hlustendur út- varps- og sjónvarpsstöðvanna. Það er eins og íþrótta- fréttamenn Íslenska útvarpsfélagsins haldi að ær og kýr knatt- spyrnuunnenda séu sýningar á leikjum frá Ítalíu og Spáni, en þegar RÚV missti sýningarréttinn á ensku knattspyrnunni varð þýska knatt- spyrnan nafli al- heimsins þar á bæ. Eru starfsmenn RÚV og Íslenska út- varpsfélagsins svo dómgreindarlausir, að þeir telji að þeir geti útilokað ensku knattspyrnuna, sem er og hefur lengi verið ein vin- sælasta íþróttagreinin á Íslandi, eins og í mörgum öðrum löndum víðs vegar um heim? Hraðinn og spennan hefur gert ensku knattspyrnuna svo vinsæla, að leikir frá Englandi eru sýndir beint um allan heim á laugardögum, sunnudögum og mánudagskvöldum. Víkverji telur – eða eins og gam- alkunnur útvarpsmaður sagði: það er næsta víst!, að Íslenska útvarps- félagið myndi fjalla miklu meira um ensku knattspyrnuna, ef Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráð- herra, kæmi eitthvað nærri henni. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is       Borgarleikhúsið | Söngleikurinn sívinsæli Chicago kom aftur upp á fjalir Borgarleikhússins í gærkvöldi eftir sumarfrí, en nokkrar sýningar eru áformaðar í viðbót. Í kvöld klukkan sjö opnar Borgarleikhúsið upp á gátt og býður öllum velunnurum til leikhúsveislu sem hefst klukkan átta. Þá munu leikarar Leikfélags Reykjavíkur og dansarar Íslenska dansflokksins ásamt nemendum leiklistardeildar Listaháskólans koma fram og kynna verkefni vetrarins eins og þeim einum er lagið. Einnig mun hópur ungra leikstjóra sem verða í samstarfi við Borgarleikhúsið í vetur koma fram. Brugðið verður upp stuttum atriðum úr væntanlegum sýningum og sagt frá því sem fær Borgarleikhúsið til að iða af lífi langt fram á næsta sumar. Einhverjir munu sýna á sér óvæntar hliðar og von er á óvenjulegum sviðslistamanni sem stíga mun sín fyrstu spor á fjölunum. Allir eru velkomnir, en eftir kynningu verður boðið upp á kaffi og spjall. Morgunblaðið/Eggert Leikhúsveisla í kvöld MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Halt þú þeirri trú, sem þú hefur með sjálfum þér fyrir Guði. Sæll er sá, sem þarf ekki að áfella sig fyrir það sem hann velur. (Rm. 14, 22.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.