Morgunblaðið - 19.09.2004, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 19.09.2004, Qupperneq 52
DAGBÓK 52 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Kammermúsíkklúbburinn var stofnaðurárið 1957, með það að markmiði að fáfærustu hljóðfæraleikara sem völ er áhverju sinni til að flytja kamm- ertónlist, nánar tiltekið tríó, kvartetta og kvin- tetta. Hefur klúbburinn starfað óslitið síðan og hefur hann einbeitt sér að flutningi strengja- kvartetta, en það tónlistarform er talið gera hvað mestar kröfur til flytjenda. Mikið er til af strengjakvartettum og hefur klúbburinn beitt sér fyrir því að flytja verk eftir helstu meist- arana. Klúbburinn hefur til þessa notið fjárhagslegs stuðnings hjá ríki og Reykjavíkurborg en að stærstum hluta byggir hann tilveru sína á fé- lögum sem greiða árgjöld í upphafi starfsársins. Að sögn Guðmundar W. Vilhjálmssonar, stofn- anda og formanns Kammermúsíkklúbbsins, hef- ur framboð á tónlist aukist gífurlega á und- anförnum árum og víða má heyra kammertónlist flutta. Þetta segir Guðmundur jákvæða þróun og ekki síst að þakka vel menntuðum og frjóum tónlistarmönnum. Um leið sé þó mikilvægt að viðhalda Kammermúsíkklúbbnum sem nauðsyn- legum burðarás við að koma kammertónlist á framfæri, en tónleikar klúbbsins eru að jafnaði fimm á hverju starfsári. Í því skyni að viðhalda kraftinum í starfi klúbbsins hefur verið ákveðið að efna til sér- staks átaks til að fjölga í klúbbnum og bjóða nýjum áskrifendum inngöngu á tilboðskjörum. Fyrstu tónleikar klúbbsins eru í kvöld klukk- an átta í Bústaðakirkju og segir Guðmundur mikið lagt upp úr metnaðarfullu verkefnavali fyrir árið. „Á fyrstu tónleikunum verður spil- aður afskaplega ljúfur Haydn-kvartett. Síðan kemur verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson sem heitir Heimsókn. Það hefur ekki verið leikið hér áður. Þá verður leikinn Píanókvartett númer þrjú í c-moll eftir Johannes Brahms,“ segir Guð- mundur. „Við erum að reyna að ná fleiri fé- lögum í klúbbinn. Þetta er sæmilega stór klúbb- ur en starfið er dýrt. Reyndar er það góður árangur hjá okkur að um sjötíu og fimm prósent tekna fara í að borga listamönnum.“ Hver er helsti kostur kammertónlistar að þínu mati? „Hver er kosturinn við að lesa góð ljóð? Þetta er nú oft þannig að tónskáldin sömdu sín kjarn- mestu verk í strengjakvartettum. Á öðrum tón- leikunum, í október, kemur hingað þýskur strengjakvartett sem heitir Cuvilliés, sem hefur komið hingað tólf eða fjórtán sinnum og finnst gott að spila hér hjá okkur. Þeim finnst líka gaman að því að fara út á land og spila, jafnvel þó það komi ekki nema um fimmtán til tuttugu manns. Þetta eru sannkallaðir Íslandsvinir.“ Tónlist | Kammermúsíkklúbburinn heldur fyrstu kammertónleika vetrarins Kjarnmestu verk tónskáldanna  Guðmundur W. Vil- hjálmsson er fæddur í Skotlandi árið 1928. Hann tók embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1953. Guðmundur var inn- kaupastjóri hjá Loft- leiðum og síðar for- stöðumaður hjá Flugleiðum en lauk þar störfum árið 1995. Guðmundur var einn af stofnendum Kamm- ermúsíkklúbbsins árið 1957 og hefur alla tíð verið afar virkur innan íslensks tónlistarlífs. Guðmundur er kvæntur Guðbjörgu Vilhjálms- son og eiga þau tvö uppkomin börn. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Reyndu að breyta til í dag og gera eitt- hvað alveg nýtt. Lítil ferð á nýjan stað er tilvalin, því þig vantar ævintýri og ögr- un. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þetta er rétti dagurinn til að krukka í leiðinleg smáatriði varðandi skuldir, skatta, tryggingar og sameignir. Þá veistu a.m.k. hvað er að gerast. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Tunglið er beint á móti merkinu þínu í dag og því ættu vinir að vera í uppáhaldi hjá þér. Þú getur án efa lært eitthvað af einhverjum í dag. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Taktu frá tíma í dag til að koma skipu- lagi á hlutina og raða þeim í snyrtilega bunka. Það þyrfti ekki nema klukku- stund og þú yrðir mjög ánægð/ur með árangurinn. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú verður að skipuleggja afslappandi skemmtun - núna! Daður, prakkarastrik, bjánalæti, leikur með börnum eða góð bíómynd ættu að nægja. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú einbeitir þér að heimili og fjölskyldu í dag. Gott samtal við foreldri eða eldri og reyndari manneskju yrði áhrifaríkt. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Lítil ferð út í sveit myndi gleðja þig í dag. Það væri líka fínt að spjalla við systkini sín, fara í búðir eða á flóamark- að, bæði kaupa og selja. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þetta er fínasti dagur fyrir verslunar- leiðangur, því peningar eiga hug þinn allan. Það er eitthvað sem þig langar að kaupa, líklega tengt útivist eða menntun. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Tunglið er í merkinu þínu í dag. Af þeim völdum ráða tilfinningarnar för. Þú vilt þó ekki láta þær uppi og því ertu alltaf hress á yfirborðinu. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú verður að fá örlitla næðis- og kyrrð- arstund í dag. Einvera og fallegt um- hverfi munu endurnæra þig. Kveiktu á kerti, láttu renna í bað og fáðu þér hvít- vínsglas. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Samtal við góða vinkonu gæti reynst vel í dag. Þú þarft að geta trúað einhverjum fyrir þínum málum. En þú verður líka að hlusta á aðra. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Tekið verður eftir öllu sem þú gerir í dag. Passaðu þig á því. Þú ættir eigin- lega að klæða þig fallega - ef þú ætlar að hafa áhrif hafðu þá góð áhrif. Stjörnuspá Frances Drake Meyja Afmælisbörn dagsins: Hafa mikil áhrif á fólk hvar sem þau koma, því þau eru meðvituð um fram- komu. Þau hreyfa sig glæsilega. Fram- koma þeirra ber vitni um sterkt innra líf. Tíska, skipulag og gott geðlag skipta þau öllu og þau hafa fullkominn smekk. Þau mega vænta einveru á árinu til að geta lært eitthvað mjög mikilvægt. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda.  1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html Lárétt | 1 handsama, 4 kuldi, 7 minnast á, 8 tryllt- ur, 9 víð, 11 lifa, 13 þroska, 14 hæfileiki, 15 bryggjusvæði, 17 viðauki, 20 púka, 22 segir ósatt, 23 selir, 24 harma, 25 skyld- mennisins. Lóðrétt | 1 lítils virði, 2 bor, 3 mjög, 4 óstelvís, 5 snákur, 6 geta neytt, 10 rándýr, 12 beita, 13 sterk löngun, 15 óðalsbónda, 16 fallegur, 18 lagast, 19 nauts, 20 mannsnafn, 21 kjána. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 gloppótta, 8 rafts, 9 tíðar, 10 sóa, 11 skari, 13 Ránar, 15 bliks, 18 salat, 21 vot, 22 garða, 23 aftan, 24 hrokafull. Lóðrétt | 2 lyfta, 3 passi, 4 óætar, 5 taðan, 6 hrós, 7 grár, 12 rok, 14 áma, 15 buga, 16 iðrar, 17 svark, 18 starf, 19 lítil, 20 tonn. Árnaðheilla dagbók@mbl.is 85 ÁRA afmæli.20. september verður 85 ára Ólöf María Guðmunds- dóttir, Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík. Hún tekur á móti gestum sunnudaginn 19. sept- ember kl. 15 í sal þjónustumiðstöðvarinnar að Bólstað- arhlíð 43. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is SÖNGHÓPURINN Reykjavík 5 heldur tvenna tónleika í Salnum í dag, kl. 16:00 og 20:30. Á efnisskránni eru útsetningar Manhattan Transfer og New York Voices ásamt öðrum djassverkum. Tónleikarnir verða hljóðritaðir. Hópinn skipa fimm söngvarar, þau Krist- jana Stefánsdóttir, Hera Björk Þórhalls- dóttir, Gísli Magnason, Þorvaldur Þorvalds- son og Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Hópurinn hélt sína fyrstu tónleika í maí 2004 og hefur haldið tónleika mán- aðarlega síðan, m.a. í Turninum, Hafn- arfirði, Norræna húsinu, Iðnó, og síðast á Menningarnótt í Reykjavík. Reykjavík 5 syngur mestmegnis djass- standarda að hætti Manhattan Transfer og New York Voices, og hefur sótt útsetningar og fleira í smiðju þeirra. Með hópnum starfa þeir Agnar Már Magnússon á píanó, Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Róbert Þórhalls- son á bassa og Eric Qvik á trommur. Þessa dagana er sönghópurinn einnig að undirbúa tónleika sem verða á lokadegi Jazzhátíðar Reykjavíkur 2004, sem haldnir verða sunnudaginn 3. október í Fríkirkjunni í Reykjavík, og munu þar flytja ýmsa sálma í skemmilegum djassútsetningum. Fimmrödduð ævintýraferð í Salnum Leiklist Borgarleikhúsið | Borgarleikhúsið býður til leikhúsveislu í kvöld kl. 20. Leikarar LR og dansarar Íslenska dansflokksins ásamt nemendum Leiklistardeildar LHÍ koma fram og kynna verkefni vetrarins. Brugðið verður upp stuttum atriðum úr væntanlegum sýn- ingum. Allir eru velkomnir. Myndlist Grensáskirkja | Sunnud. 19.sept. opnar Karl Jóhann myndlistarsýningu í anddyri Grens- áskirkju. Verkin eru m.a. unnin í olíu og egg- temperu. Flest þeirra eru portret; fólk, brauð, tré o.fl. Karl á að baki margar sýn- ingar eftir útskrift frá Mynd&hand 9́3. Opið 10–15 alla virka daga og 11–13 sunnud. www.karljohann.com. Tónlist Bústaðakirkja | Fyrstu tónleikar fertugasta og áttunda starfsárs Kammermúsíkklúbbs- ins verða í Bústaðakirkju á sunnudagskvöld kl. 20. Verða þar fluttir strengjakvartettar eftir Haydn og Þorkel Sigurbjörnsson auk píanóverks eftir Brahms. Kl. 20–22. Grand Rokk | Hvíldardagskvöld með Tom Waits: Down By law (1986), Big Time (1988) og óvænt efni. Hefst klukkan 20. Félagsstarf Bólstaðarhlíð 43 | Farið verður á Þingvöll 23. september, lagt af stað frá Lönguhlíð 3 kl. 12.30 og Bólstaðarhlíð 43 kl. 13. Kaffi- hlaðborð í Þrastarlundi. Skráning og greiðsla í síma 535 2760 og 552 4161 fyrir 21. september. Allir velkomnir. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansleikur í Ásgarði, Glæsibæ í kvöld kl. 20. Caprí Tríó leikur fyrir dansi. Námskeið í framsögn byrj- ar 23. september. Fréttir Freemans | Nýr haust- og vetrarlisti Freem- ans er kominn út og er hægt að panta listann í síma 565 3900. Freemans hefur gengið í gegnum endurskipulagningu og er listinn orðinn stærri en fyrr. Þá er úrval af skóm og rúmfatnaði í listanum. Kínaklúbbur Unnar | Kínaklúbbur Unnar heldur kynningu á 22 daga Kínaferð sem farin verður 13. maí til 3. júní nk. M.a. er farið til Beijing, Xian, Guilin, Shanghæ, siglt á Li ánni og eftir Keisaraskurðinum. Kynningin fer fram mánudaginn 20. sept. kl. 20, í Feng Shui húsinu, Laugavegi 42b, inngangur frá Frakkastíg. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Opið hús í Safnaðarheim- ili sunnudag kl. 11.45–13.30. Kynning á vetr- arstarfinu. Skráning á námskeið og í hópa. Léttar veitingar. Kór Akureyrarkirkju syngur. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Brauðs- brotning í dag kl 11.00. Ræðumaður Vörður Leví Traustason. Fyrirlestrar Háskóli Íslands | Miðvikudaginn 22. sept. kl. 17.15–19 flytur Riley E. Dunlap, umhverf- isfélagsfræðingur og prófessor, fyrirlestur við Háskóla Íslands. Dunlap ræðir um að- ferðafræðina á bak við mælingar á umhverf- ishygð almennings, gildi slíkra mælinga o.fl. Fyrirlesturinn fer fram í Odda, stofu 101. MÁL og menning hefur gefið út verðlaunabókina Strákurinn með silfurhjálminn eftir Hanne Kvist í þýð- ingu Sigrúnar Árnadóttur. Fjallar bókin um strákinn Jón, sem eignast litla systur sem honum þykir vænt um og leggur í ferðalag til að bjarga henni þegar hún týnist. Strákurinn með silfurhjálminn bar sigur úr býtum í norrænni barnabóka- samkeppni árið 1999. Börn ÚT ER komin ljóða- bókin „Yfir hæð- ina“ eftir Önnu S. Björnsdóttur. Bók- in skiptist í þrjá kafla, Fjöll, Ham- ingjuvegur og Und- ir norðurhimni og inniheldur 28 ljóð. Þetta er níunda ljóðabók Önnu, en fyrsta bók hennar, „Örugglega ég“, kom út árið 1988. Mynd á bókarkápu er eftir Önnu G. Torfadóttur. Ljóð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.