Morgunblaðið - 19.09.2004, Qupperneq 53
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 53
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
Byrjendanámskeið:
Hefst 27. september og stendur yfir í
10 mánudagskvöld frá kl. 20—23.
Allir geta lært að spila brids, en það tekur svolítinn tíma að
komast af stað. Á byrjendanámskeiði Bridsskólans er ekki
gert ráð fyrir neinni kunnáttu og ekki er nauðsynlegt að hafa
með sér spilafélaga. Það er fólk á öllum aldri og af báðum
kynjum sem sækir skólann. Láttu slag standa - lærðu grunn-
inn í Standard-kerfinu og skemmtu þér í góðum félagsskap.
Framhaldsnámskeið:
Hefst 29. september og stendur yfir í 10 miðvikudagskvöld
frá kl. 20—23.
Allir spilarar kannast við samræður af þessu tagi:
- þú hnekkir spilinu með því að skipta yfir í tígul í öðrum slag,
makker.
- og hvernig átti ég að vita að þú værir með ás og kóng í tígli:
Það er staðreynd að vörnin er erfið. Og þótt aldrei verði hægt
að vita fyrir víst að „rétt sé að spila tígli í öðrum slag“ þá
hjálpar mikið að beita nútímalegum varnarreglum. Á fram-
haldsnámskeiði Bridsskólans er varnartæknin skoðuð ítarlega,
en þar er líka farið vel yfir Standard sagnakerfið og spila-
mennsku sagnhafa. Örugg leið til skjótra framfara. Þú getur
komið ein (einn) eða dregið makker með.
Kennari á báðum námskeiðum er Guðmundur Páll Arnarson,
Nánari upplýsingar og innritun í síma 564 4247
milli kl. 13 og 18 virka daga.
Námskeiðin eru haldin í húsnæði Bridssambands Íslands,
Síðumúla 37, í Reykjavík.
BRIDSSKÓLINN
Námskeið á haustönn hefjast
27. og 29. september
Menningarhátíð Félags eldri
borgara í Borgarleikhúsinu
9. október 2004 kl. 14.30
Húsið opnað kl. 13.30
Jónas Dagbjartsson og Jónas Þórir sjá um
tónlistina í anddyri leikhússins fyrir sýningu.
DAGSKRÁ:
Margrét Margeirsdóttir,
formaður undirbúningsnefndar býður gesti velkomna.
Ávarp,
borgarstjórinn í Reykjavík, Þórólfur Árnason, setur hátíðina.
Söngfjelagið,
Kór FEB í Reykjavík ásamt Graduale futura barnakór úr
Langholtskirkju, við undirleik Hólmfríðar Sigurðardóttur,
stjórnendur: Kristín Pjetursdóttir og Bjarney I.
Gunnlaugsdóttir.
Ljóðalestur,
Matthías Johannessen, skáld, les eigin ljóð.
Leiklestur,
Félagar úr leikfélaginu Snúð og Snældu, Hugleik og Leikfélagi
Kópavogs flytja leikritið „Hægara um að tala, en í að komast“,
eftir Unni Guttormsdóttur sem einnig er leikstjóri.
Hlé
Einsöngur og dúett,
Jóna Fanney Svavarsdóttir sópran og Erlendur Elvarsson
tenór, Richard Simm leikur með á píanó.
Jólakleinur,
einþáttungur eftir Þórunni Guðmundsdóttur, leikstjóri Þorgeir
Tryggvason, leikarar úr leikfélaginu Hugleik flytja.
Revían í den,
Guðrún Ásmundsdóttir leikari flytur.
Þjóðdansar,
danshópurinn Sporið úr Borgarfirði ásamt undirleikurum
og söngvurum.
Söngfjelagið,
Kór FEB, Ragnar Bjarnason syngur einsöng með kórnum,
Hólmfríður Sigurðardóttir leikur undir á píanó og Kjartan
Jónsson á gítar, stjórnandi: Kristín Pjetursdóttir.
Kynnir Helgi Seljan,
Miðaverð kr. 1.500
Sala aðgöngumiða er hafin í Borgarleikhúsinu,
sími 568 8000 og á skrifstofu FEB, Faxafeni 12,
108 Reykjavík, sími 588 2111, fax 588 2114,
netfang: feb@feb.is
LEIÐSÖGUNÁM
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá, sem vilja kynnast Íslandi í máli og mynd-
um. Námið er opið öllum þeim, sem áhuga hafa á að læra hverning standa skal að
leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland.
Stuðst er við námsskrá menntamálaráðuneytisins um viðurkennt leiðsögunám.
Helstu námsgreinar:
Helstu viðkomustaðir ferðamanna í máli og myndum.
Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
Mannleg samskipti. Skyndihjálp og skipulag.
Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum.
Boðið er uppá dag- og kvöldnám, auk þess sem farið er í vettvangsferðir.
Umsögn:
„Síðasta haust hóf ég leiðsögunám við Ferðamálaskóla Íslands.
Námið fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég hef ferðast mikið
um landið frá barnsaldri, en þrátt fyrir það öðlaðist ég nýja sýn á
landið í skólanum. Námið er hnitmiðað og að auki mjög
skemmtilegt, reyndar svo skemmtilegt að ég vil helst fá framhalds-
nám. Þetta nám kemur mér að miklu gagni í starfi mínu sem
kennari og vonandi sem leiðsögumaður í framtíðinni“.
FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS
Bíldshöfða 18, sími 567 1466,
Opið til kl. 22.00.
Heimasíða: www.menntun.is
Martha Jensdóttir
kennari.
Tvö íslensk leikverk, Selló-fón eftir Björk Jak-obsdóttur og Englabörn
eftir Hávar Sigurjónsson, eru
frumsýnd í dönskum leikhúsum í
Kaupmannahöfn um þessar
mundir. Mammut-leikhúsið frum-
sýnir Englabörn 23. september, í
leikstjórn Bente Kongsbøl, en
Sellófón var frumsýnt í gær-
kvöldi í Hippodromen-leikhúsinu,
í þýðingu og leikstjórn Charlotte
Bøving, sem
hefur búið á
Íslandi um
tíma.
Varla er
hægt að hugsa sér ólíkari leik-
verk, og Dönum því sýndar góðar
andstæður úr íslensku leikhúsi
síðustu ára.
Í Sellófón er staða nútímakon-
unnar á framabraut og í einkalífi
skoðuð í gamansömu ljósi, meðan
Englabörn er alvarlegt drama um
fjölskyldu, þar sem kynferðislegt
ofbeldi hefur sýkt samskipti for-
eldra og barna.
Bæði verkin vöktu mikla at-
hygli hér heima, og þess að
vænta að Dönum líki ekki síður.
Bæði hafa verkin reyndar verið á
nokkru flandri, og verið kynnt og
sýnd á erlendri grund.
Egill Heiðar Anton Pálsson erungur leikstjóri og leikari
sem haslað hefur sér völl á Norð-
urlöndunum undanfarin misseri.
Hann vinnur nú að uppsetningu á
vegum Listaháskólans í Helsinki
á þýska leikritinu Electronic City
eftir Falk Richter. Sýningin er
hluti af listahátíð sem verður í
Helsinki í janúar og ber yf-
irskriftina Norden nu möter Eur-
opa. Egill Heiðar var einn fjög-
urra norænna leikstjóra sem
valinn var til að leikstýra verki
að eigin vali eftir evrópskan sam-
tímahöfund á þessari hátíð. Er
líklegt að uppfærsla Egils Heið-
ars hjá Borgarleikhúsinu í Stokk-
hólmi vorið 2003 á Arabískum
nóttum eftir annað ungt þýskt
leikskáld, Roland Shcimmelphen-
nig, hafi opnað honum ýmsar dyr
enda vakti sú sýning verðskuld-
aða athygli.
En áður en að því kemur verð-
ur Egill Heiðar í sviðsljósinu í
Kaupmannahöfn þar sem hann er
að hefja æfingar í byrjun október
á nýju leikverki eftir sig og tvo
aðra unga leikhúslistamenn, Sim-
on Boberg dramatúrg og Martin
Eriksson leikmyndahönnuð. Þre-
menningarnir hafa verið fengnir
til að vinna sýningu inn í Túrb-
ínusalinn, nýtt svið Konunglega
leikhússins í Kaupmannahöfn, og
er frumsýning fyrirhuguð 19.
nóvember. Verkið ber titilinn
Galskab og er byggt á hug-
myndum franska heimspekings-
ins Foucoult og sérstaklega riti
hans Madness and the Age of
Reason. Egill Heiðar er einn af
þremur ungum leikstjórum sem
hafa verið ráðnir að Túrb-
ínusalnum næstu þrjú árin og
eiga að taka þátt í að móta þá
leiklist sem þar verður í boði.
„Þetta er auðvitað frábært tæki-
færi og skemmtilegt að geta unn-
ið samkvæmt eigin hugmyndum
að leiklistinni, “ segir Egill Heið-
ar.
Nú líður að því að byggingunýs óperuhúss í Kaup-
mannahöfn ljúki, en fyrsta frum-
sýning þar verður 26. janúar. Í
gær birtist í Berlingske Tidende
grein um öll þau undur og stór-
merki sem gefur að líta í nýja óp-
eruhúsinu, en greinarhöfundur,
Lotte Bichel, segir það verða
frumlegasta óperuhús heims, um
leið og það verður stærsta óp-
eruhús á Norðurlöndunum.
Kostnaður við framkvæmdina
hefur tvöfaldast frá því sem áætl-
að var, enda hvergi til sparað að
gera húsið sem glæsilegast úr
garði. Þekktir listamenn hafa
verið fengnir til hönnunar og
skipulagningar á rými og inn-
viðum. Í þeirra hópi er Ólafur
Elíasson myndlistarmaður, sem
hefur gert þrjá ljósaskúlptúra
sem hanga í fimm hæða forsal
óperuhússins. Arkitekt að herleg-
heitunum er Henning Larsen, og
þykir byggingin nú þegar hafa
sett mark sitt á borgina sem eitt
sterkasta kennileiti hennar við
höfnina. Þá má þess geta að ann-
ar Íslendingur verður í sviðsljós-
inu í orðsins fyllstu merkingu
þegar húsið verður formlega tek-
ið í notkun, en það er Kolbeinn
Ketilsson óperuöngvari, sem mun
deila aðalkarlhlutverkinu í Aidu
eftir Verdi, með ekki óþekktari
stjörnu en Roberto Alagna.
Íslenskt í dönskum leikhúsum
Ljósmynd/Rune Feldt-Rasmussen
Ljósaverk Ólafs Elíassonar í dönsku óperunni séð frá gólfi.
’Frábært tækifæri ogskemmtilegt að geta
unnið samkvæmt eigin
hugmyndum. ‘
AF LISTUM
Bergþóra Jónsdóttir
begga@mbl.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn