Morgunblaðið - 19.09.2004, Síða 56
56 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
www.baendaferdir.is s: 570 2790
K Y N N T U Þ É R S É R F E R Ð I R F E R Ð A Þ J Ó N U S T U B Æ N D A
K
Ö
-H
Ö
N
N
U
N
/P
M
C
Skemmtileg blanda af hollri hreyfingu og dekri. Gönguskíðasvæðið
í Seefeld er fyrsta flokks, brautir samanlagt 250 km og henta jafnt
byrjendum sem lengra komnum.
Hótel er í háum gæðaflokki. Þar er fjölbreyttur matseðill og þægileg
herbergi. Örstutt er í glæsilega sundlaug, gufubað, sauna, hvíldar-
herbergi og margt fleira. Gott jafnvægi milli hreyfingar og hvíldar,
en fyrst og fremst ætlum við að hafa gaman af öllu saman.
Göngu-
5. - 12. mars 2005
skíðaferð
Fararstjóri: Íris Marelsdóttir sjúkraþjálfari.
– gætt að heilsunni
DÁVALDURINN Sailesh kemur
fram á tveimur skemmtunum síðar
í þessari viku, 24. og 26. september
á veitingahúsinu Broadway.
Sailesh fæddist á Fiji en ólst upp
í Calgary í Kanada þar sem hann
komst fyrst í kynni við dáleiðslu.
„Ég fékk fyrst áhuga á dáleiðslu
eftir að hafa verið dáleiddur sjálf-
ur. Það var mikil lífsreynsla að
vera dáleiddur en í kjölfarið tók ég
til við að spyrja spurninga um dá-
leiðslu og lesa mér til um hana.
Síðar fór ég að vinna við sýningar
hjá dávaldi þar sem ég starfaði á
bak við tjöldin. Ég lærði mikið á
því og varð betri og betri og að
lokum ákvað ég að halda mína eig-
in sýningu,“ segir Sailesh en hann
stundaði um tveggja ára skeið nám
við The American Institution of
Hypnotherapy í Kaliforníu og út-
skrifaðist þaðan með gráðu í dá-
leiðslu.
Sýningar Sailesh gengu vel í
Kanada og í kjölfarið ákvað hann
að færa út kvíarnar. Árið 2001 tók
hann til við að sýna í Bandaríkj-
unum og nú ferðast hann ellefu
mánuði ársins með sýningu sína
víðs vegar um heiminn.
Kemst nær unga fólkinu
„Ég byrjaði feril minn sem uppi-
standari og því hafa sýningar mín-
ar ávallt einkennst af kímni og því
má segja að ég sé eins konar
gríndávaldur,“ segir Sailesh og
bætir því við að tónlistin skipi einn-
ig stóran sess í sýningunni en um
hana sér plötusnúðurinn Greg
Kusiak.
„Ég er ungur, tónlistin sem ég
nota er vinsæl og í kjölfarið kemst
ég eflaust nær unga fólkinu í dag
en aðrir dávaldar. Sýningin er því
frábrugðin sýningum annarra dá-
valda en því hefur verið fleygt að
þetta sé í senn erótísk, framandi og
geggjuð sýning.“
Klipinn og sleginn
Sagt er að engin sýning hjá Sail-
esh sé eins. Hann sé ávallt með
einhver ný brögð uppí erminni og
nýja brandara. Þá séu viðbrögð
fórnarlamba hans svo fjölbreytileg
að útkoman verði aldrei sú sama.
Dæmi um það sem á sér stað á
sviðinu hjá Sailesh er að hann læt-
ur karla halda að hann sé fönguleg
kona. Aðspurður segist Sailesh
hafa komist í hann krappan í kjöl-
farið á slíkum kúnstum og verið
klipinn og jafnvel sleginn af karl-
mönnum sem hafi staðið í þeirri trú
að hann væri föngulegur kvenmað-
ur.
„Þetta er þó allt í gamni gert og
ég vara mig á því að hafa þetta á
léttu nótunum og forðast að koma
fólki úr jafnvægi,“ segir Sailesh og
tekur það fram að sýningin sé ekki
niðrandi fyrir þátttakendur.
Annað atriði sem hefur vakið
mikla lukku er þegar Sailesh lætur
þátttakendur fá fullnægingu án
mikillar fyrirhafnar, eða með því
einu að snerta hendur viðkomandi.
„Margir hafa viljað læra þetta af
mér og þeir sem hafa séð maka
sinn í slíku ástandi á sviðinu hafa
komið upp að mér eftir sýningu og
spurt hvort ég geti látið þetta
ástand vara lengur en eina kvöld-
stund. Þá hafa sumir sagt mér að
ef þeir hefðu mína hæfileika væru
þeir hættulegir,“ segir Sailesh og
hlær.
Af framangreindum lýsingum að
dæma mætti ætla að fólk myndi
verða miður sín eftir að hafa verið
kallað upp á svið en Sailesh segir
svo ekki vera. „Ég veit hvað ég
kemst upp með og ef ég held að
einhver muni fara hjá sér þá tek ég
viðkomandi ekki upp á svið.“
Mikilvægt að fólk sé opið
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem
Sailesh heimsækir Ísland og tjáði
hann blaðamanni að hann væri full-
ur tilhlökkunar vegna ferðarinnar.
„Ég hef heyrt að Ísland sé mjög
fallegt land og fólkið ótrúlegt en ég
hef aflað mér upplýsinga um næt-
urlífið og er mjög spenntur,“ segir
Sailesh en hann er hvergi banginn
fyrir sýningar sína á Íslandi og
býst ekki við að eiga í vandræðum
með að dáleiða Íslendinga.
„Þetta gæti verið erfitt í fyrstu
en þeir sem eru ekki smeykir við
dáleiðslu munu án nokkurs vafa
verða stjörnur sýningarinnar. Ég
er einungis umsjónarmaður hennar
en þeir áhorfendur sem eru dá-
leiddir eru hinar raunverulegu
stjörnur. Ef sýningin gengur vel þá
mun fólk eflaust verða ófeimnara í
framhaldinu. Því beini ég þeim til-
mælum til sýningargesta að þeir
mæti með opnum huga en því opn-
ari sem viðkomandi er fyrir dá-
leiðslu þeim mun auðveldara er
þetta. Ef fólk vill hins vegar ein-
ungis koma og sjá sýninguna þá er
það einnig gott mál en sýning-
argestir mega búast við einhverju
öðruvísi, ótrúlegu og spreng-
hlægilegu á sýningunni. Ef fólk fer
ekki út að sýningu lokinni með
verk í maganum og kjálkunum sök-
um hláturs þá hef ég misst marks.“
Sailesh ætlar sér að halda áfram
að sýna eins lengi og hann hefur
gaman af að koma fram. „Þetta er
aldrei vinna, þetta er einungis
skemmtun.“
Skemmtun| Dávaldurinn Sailesh væntanlegur
„Erótísk, framandi
og geggjuð sýning“
Sýningar dávaldsins
Sailesh eru um margt
frábrugðnar sýn-
ingum annarra og
„hefðbundnari“ dá-
valda. Þórir Júlíusson
ræddi við Sailesh um
sérstöðu hans sem dá-
valds og væntanlegar
sýningar hér á landi.
Sailesh vill láta kalla sig gríndávald því hann hóf feril sinn sem uppistandari.
thorirj@mbl.is
Sailesh verður á Broadway föstu-
daginn 24. og sunnudaginn 26.
september. Miðasala fer fram í
Skífunni Laugarvegi 26. Sýningin
er bönnuð innan 18 ára.
Fréttasíminn 904 1100