Morgunblaðið - 04.10.2004, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 9
FRÉTTIR
ALLT Á EINUM STAÐ
• HEILSÁRSDEKK
• OLÍS SMURSTÖÐ
• BÓN OG ÞVOTTUR
• HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• NAGLADEKK
• RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• BREMSUKLOSSAR
• PÚSTÞJÓNUSTA
SBD, SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
Dragtir,
teinóttar,
einlitar
Stærðir
38-56
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
g Z-brautir og gluggatjöld
Faxafen 14 • 108 Reykjavík • Sími 525 8200 • z@z.is
Gluggatjaldadagar
20% afsláttur
af öllum efnum
aðeins þessa viku
STEINUNN Kristjánsdóttir varði
hinn 28. september 2004 dokt-
orsritgerð sína í fornleifafræði við
Háskólann í
Gautaborg. And-
mælandi var dr.
Anders Andrén,
prófessor við Há-
skólann í Lundi. Í
einkunnanefnd
sátu dr. Britt-
Mari Näsström,
dr. Auður Magn-
úsdóttir og dr.
Lars Ersgård. Aðalleiðbeinandi var
dr. Kristian Kristiansen, prófessor í
Gautaborg.
Ritgerðin ber heitið The Awaken-
ing of Christianity in Iceland. Dis-
covery of a Timber Church and
Graveyard at Þórarinsstaðir in
Seyðisfjörður og fjallar um kristni-
töku Íslendinga út frá sjónarhóli
fornleifafræðinnar. Niðurstaða rit-
gerðarinnar er sú að kristni hafi
borist til Íslands með óskipulögðum
og tilviljanakenndum hætti fyrr og í
ríkari mæli en ætla má af rituðum
heimildum, enda sú mynd sem þar
er dregin fram tengdari uppbygg-
ingu kirkjunnar sem stofnunar.
Grunnur ritgerðarinnar byggir á
fornleifarannsóknum sem fram fóru
á Geirsstöðum í Hróarstungu árið
1997 og Þórarinsstöðum í Seyð-
isfirði árin 1998–1999. Í ritgerðinni
er kristnitakan skoðuð sem langt og
flókið ferli og byggt á skiptingu þess
í tilviljanakennda útbreiðslu kristni
(infiltration), trúboð (mission) og
uppbyggingu kirkju (organization).
Elstu kristnu minjar á Þórarins-
stöðum eru frá því fyrir kristnitöku.
Kirkja var byggð þar með norrænni
tækni en munir og grafsiðir benda
til kristinna áhrifa sunnan af Bret-
landseyjum og Evrópu.
Rannsóknirnar á Geirsstöðum og
á Þórarinsstöðum voru unnar fyrir
fjárstyrki úr Rannís og NorFA.
Steinunn vann auk þess ritgerðina
að hluta til við Háskólann í Ósló
vegna styrks, sem norska ríkið veitti
Íslendingi til náms í fornleifafræði, í
tilefni af 1000 ára afmæli kristni árið
2000.
Steinunn Kristjánsdóttir er fædd
á Patreksfirði 13. október 1965 og
ólst upp í Barðastrandarhreppi.
Hún varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Ísafirði árið 1986, lauk
fil. kand. gráðu í fornleifafræði við
Háskólann í Gautaborg árið 1993 og
fil. mag. gráðu í greininni við sama
skóla árið síðar. Steinunn starfar nú
við fornleifarannsóknir á Skriðu-
klaustri í Fjótsdal með aðstöðu í
ReykjavíkurAkademíunni. For-
eldrar Steinunnar eru Valgerður
Kristjánsdóttir húsmóðir og Krist-
ján Þórðarson fyrrv. oddviti og
bóndi á Breiðalæk á Barðaströnd.
Steinunn á tvö börn, Sigurhjört
Snorrason nema í Verslunarskóla
Íslands og Helgu Valgerði Snorra-
dóttur nema í Kvennaskólanum í
Reykjavík.
Doktor í
fornleifa-
fræði
SJÓBIRTINGSÁRNAR í Vestur-
Skaftafellssýslu hafa yfirleitt gefið
vel í haust og þar tínast nú upp
þessir árlegu risafiskar sem jafnan
krydda tilveru veiðimanna þar
eystra. Nú síðast veiddist t.d. 16
punda sjóbirtingur í Geirlandsá.
Falur Helgi Daðason veiddi stór-
fiskinn í Geirlandsá, en birtingurinn,
sem var hængur, tók spón í Ármót-
unum, þar sem lækurinn Stjórn
rennur út í Geirlandsá. Hollin í Geir-
landsá hafa gert það mjög gott
lengst af í haust og algengt að þau
séu að taka á milli 20 og 30 fiska.
Veiði hefur einnig verið með besta
móti í Fossálum á Síðu og þar veiddi
Kristján E. Jónsson nýverið 15
punda birting á spón í hyl númer 14.
Frá því er greint á vefsíðu SVFK,
að hugsanlega sé þar á ferðinni
stærsti sjóbirtingur sem veiðst hef-
ur í Fossálum fyrr og síðar.
Ofangreindir 15 og 16 punda birt-
ingar eru þó ekki þeir stærstu sem
veiðst hafa á vertíðinni, áður var
kominn a.m.k. einn 16 punda úr
Tungufljóti og í sumar veiddust einn
og sama daginn 18 og 19 punda birt-
ingar á Hólmasvæðinu í Skaftá. Og
ekki má gleyma 23 punda ferlíki
sem veiddist í Litluá í Kelduhverfi í
vor, en það er stærsti birtingur ver-
tíðarinnar 2004, a.m.k. ennþá, en
síðustu ánum verður lokað 20. októ-
ber.
Risabirtingar fyrir austan
Falur Helgi Daðason með 16 punda sjóbirting sem hann veiddi í Geirlandsá.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
LÖGREGLAN í Keflavík lýsir eftir
dökkgráum Renault Megane Scenic
með númerið AX-865, en bifreið-
inni var stolið í Keflavík um klukk-
an 14 á laugardag. Að sögn lög-
reglu brá ökumaður sér í heimsókn
í hús við Vatnsnesveg í um 20 mín-
útur og skildi lyklana eftir í henni.
Þegar hann ætlaði að aka á brott
var bifreiðin horfin.
Þeir sem telja sig búa yfir upplýs-
ingum um bifreiðina eru vinsamleg-
ast beðnir um að hafa samband við
lögregluna í Keflavík í síma 420
2400.
Lögregla lýsir
eftir bifreið
Fréttir á SMS