Morgunblaðið - 04.10.2004, Side 11

Morgunblaðið - 04.10.2004, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 11 FRÉTTIR Kia Clarus W/G GLX F.skráð. 01.2004. Ekinn 36.000 km. Litur: Hvítur. Verð: 990.000 kr. Tilboðsverð: 690.000 kr. Sangyong Musso Wagon F.skráð. 08.2001. Ekinn 62.000 km. Litur: Hvítur. Verð: 2.190.000 kr. Tilboðsverð: 1.890.000 kr. Subaru Legacy W/G GL F.skráð. 02.2004. Ekinn 64.500 km. Litur: Blár. Verð: 1.790.000 kr. Tilboðsverð: 1.490.000 kr. Mercedes Benz C 180 F.skráð. 07.1997. Ekinn 144.300 km. Litur: Blár. Verð: 1.290.000 kr. Tilboðsverð: 990.000 kr. ÚTSALA www.toyota.is framhaldKópavogurSími 570 5070 ReykjanesbærSími 421 4888 AkureyriSími 460 4300 SelfossSími 480 8000 ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 26 02 7 1 0/ 20 04 BETRI NOTAÐIR BÍLAR Það verður mikið að gerast hjá Toyota Betri notuðum bílum í þessari viku. Ekki missa af þessu frábæra tækifæri til þess að eignast góðan bíl á einstöku verði. Skoðaðu úrvalið á www.toyota.is eða komdu í heimsókn á Nýbýlaveginn eða til umboðsmanna okkar á Akureyri, Selfossi og í Reykjanesbæ. TVEIR breskir flugáhugamenn gerðu sér ferð hingað til lands í þeim tilgangi að fara í flugferð með flug- vél Landhelgisgæslu Íslands, sem er ein af síðustu Fokker F27 „Friends- hip“-flugvélum í notkun í heiminum. Þeir félagar Peter Towey og Matt Wise fóru í eftirlitsflug flug með flugvél Landhelgisgæslunnar og sögðu þeir ferðina vel heppnaða. Þeir eru eins konar flugvélasafnarar og ferðast stundum langar vega- lengdir til þess eins að fá að fljúga í gömlum farþegaflugvélum, sér- staklega vélum af tegundum sem þeir hafa ekki flogið í áður. Towey viðurkennir að þetta sé frekar óvenjulegt áhugamál en segir að þetta sé þannig til komið að Wise, sem er æskuvinur hans, hafi alla tíð búið steinsnar frá Heathrow- flugvelli, þar sem faðir hans vann og þeir hafi í raun verið innan um flug- vélar frá barnæsku. „Okkar áhuga- svið hefur alltaf verið flugvélar í far- þegaflutningum, sérstaklega eldri gerðirnar. Það er ástæðan fyrir því að við erum hér í dag, þessi flugvél, Fokker 27-Friendship, er ein af þeim fáu sem enn fljúga með far- þega í heiminum. Ég veit að þetta er ekki beint farþegaflugvél, en nógu nálægt fyrir okkur,“ segir Towey. Þeir félagar eru ekki flugmenn en Towey fékk aðeins að prófa að fljúga vélinni í fluginu og þeir fengu að skiptast á að vera í flugstjórn- arklefanum í flugtaki og lendingu í gær. Þeir segja ferðina hafa verið frábæra, flogið var vestur fyrir land, lent á Ísafirði og flogið yfir Húnafló- ann. Towey segir vissulega heppilegt að Landhelgisgæslan hafi verið með svo gamla vél í notkun, en flugvélin er byggð árið 1976 og kom hingað til lands í nóvember það ár. Það var talsverð fyrirhöfn að finna vél af þessari gerð og segir Towey að hann viti um eina vél í Hondúras, aðra í Ástralíu, og hugsanlega ein- hverjar í Pakistan og Lýbíu. Wise heldur lista yfir eldri flug- vélar sem hann hefur flogið með, en þar má sjá yfir 40 tegundir, margar af þeim flugvélar sem ekki eru leng- ur í notkun í heiminum. Áhugamenn um gamlar flugvélar hrifnir af Fokker-vél Gæslunnar Morgunblaðið/Árni Sæberg Peter Towey og Matt Wise ásamt áhöfninni. Frá vinstri: Birgir Björnsson, Páll Geirdal leiðangursstjóri, Hafsteinn Heiðarsson flugstjóri, Magnús Ein- arsson og Tómas Helgason flugmaður. Ekki margar eftir í heiminum NÝ lög um varnir gegn mengun hafs og stranda sem tóku gildi 1. október, gera yfirvöldum í fyrsta sinn kleift að taka völdin af skipstjórum á van- búnum skipum ef hætta er á að þau valdi mengunarslysi. Aukinn réttur til íhlutunar af þessu tagi í tengslum við bráðamengun er með því helsta sem nýju lögin fela í sér. Um er að ræða meginlagaramma um allt það sem lýtur að mengunar- vörnum sjávar og stranda, hvort sem um er að ræða ofan af landi eða frá skipum. Setning laganna er eitt af þeim skrefum sem stjórnvöld hafa tekið í því skyni að skilgreina ábyrgð almennings, atvinnureksturs, sveit- arfélaga og opinberra stofnana varð- andi umhverfismál sjávar. Undir- búningur lagasetningarinnar hófst í kjölfarið á strandi Vikartinds í Háfs- fjöru árið 1997 en þar kom í ljós að stjórnkerfið og viðbragðsaðilar voru um margt vanbúnir slíku ástandi að sögn Davíðs Egilsonar forstjóra Umhverfisstofnunar. Bannað að losa skólp á hafnarsvæðum Helstu nýmælin í lögunum varða bann við losun skólps á hafnarsvæð- um og innan netlaga, auknar kröfur um móttökuaðstöðu í höfnum fyrir skipaúrgang og gjaldtökuheimildir þar að lútandi. Þá eru ákvæði um að strönduð og sokkin skip verði fjar- lægð og að gerð sé krafa um að mengandi atvinnurekstur verði lát- inn gera viðbragðsáætlanir. Þá krefjast lögin að ákveðin mengandi starfsemi sé með ábyrgðartrygging- ar vegna hugsanlegra bráðameng- unaróhappa og einnig eru lagðar auknar skyldur á aðila varðandi til- kynningar skipa um ferðir sínar, og lögfest réttindi og skyldur allra sem koma að bráðamengun. Þá gera lög- in ráð fyrir að lagning sæstrengja og sæsíma sé háð samþykki Umhverf- isstofnunar. Davíð Egilson segir nýju lögin boða miklar breytingar í þessum málaflokki en með auknum íhlutun- arrétti stjórnvalda sé m.a. unnt að grípa inn í atburðarás sem gæti ann- ars leitt til bráðamengunar. „Þetta felur í sér að við tilteknar aðstæður er hægt að taka völdin af skipstjóra og grípa inn í,“ segir hann. „Ýmsar aðstæður geta leitt til íhlutunar, t.d. þegar grunur er um að vanræksla sé fyrir hendi.“ Það stjórnvald sem fengi aukinn íhlutunarrétt í þessu sambandi er Landhelgisgæslan sem nú er heimilt að taka skip með valdi, en Davíð minnir á að þennan rétt verði að beita með varúð. „Við getum t.a.m. hugsað okkur skip með mikið af olíu um borð sem lendir í vélarbilun og rekur að landi. Skipstjórinn afþakkar aðstoð og vill fá tækifæri til að koma skipinu í gang, því hann veit að björgunar- laun eru há. Við þessar aðstæður væri hægt að grípa inn í og taka skipið út.“ Einnig má nefna allskyns önnur dæmi um beitingu þessa úr- ræðis s.s. vegna vanbúinna skipa. Reglugerðir endurmetnar Til að mæta þeim breyttu aðstæð- um sem skapast hafa við hin nýju lög hefur farið fram endurmat á reglugerðum sem eru settar með stoð í lögum um mengun sjávar frá 1986. Þegar hefur verið hafist handa við að endurskoða þær reglugerðir sem fyrir eru og er einnig þörf á nýj- um. Auk þessa hefur Umhverfisstofn- un opnað ítarlega og endurbætta vefsíðu um málefni hafs og stranda. Þar er finna fræðslu um ástand sjáv- ar, alþjóðlegt samstarf varðandi málefni hafsins og fleira. Ný lög um varnir gegn mengun hafs og stranda veita yfirvöldum auknar heimildir til íhlutunar Geta tekið völdin af skip- stjórum ef stefnir í slys

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.