Morgunblaðið - 04.10.2004, Page 12
12 MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
stjórnendur fyrirtækja og stofnana, sem bera ábyrgð á vernd
upplýsinga og að móta og innleiða stjórnkerfi upplýsingaöryggis,
starfsfólk sem gegnir lykilhlutverki í að innleiða stjórnkerfi
upplýsingaöryggis og vinna samkvæmt því,
tæknifólk sem kemur að tæknilegri útfærslu stjórnkerfisins,
ráðgjafa á sviði upplýsingaöryggis.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti gert grein fyrir
áherslum og uppbyggingu staðlanna ÍST ISO/IEC 17799 og
ÍST BS 7799-2 og þekki hvernig þeim er beitt við stjórnun
upplýsingaöryggis og mótun öryggisstefnu í fyrirtækjum og stofnunum.
Skráning og nánari upplýsingar á vef Staðlaráðs,
www.stadlar.is eða í síma 520 7150
Örugg meðferð upplýsinga
Stjórnun upplýsingaöryggis
samkvæmt ISO 17799
Námskeið 13. og 14. okt. fyrir
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN lækk-
ar vexti á verðtryggðum bílalánum
hinn 11. október næstkomandi úr
7,0% í 6,0%. Þetta eru lægri vextir
en hjá öðrum tryggingafélögum og
fjármálastofnunum sem veita bíla-
lán. Hjá Vátryggingafélagi Íslands
og Sjóvá-Almennum tryggingum
eru vextirnir 7,5%. Hjá fjármögn-
unarleigunum eru vextirnir á
bilinu frá 7,5% og upp í 7,8%, að
því er fram kemur á heimasíðum
þeirra.
Í frétt á heimasíðu Trygginga-
miðstöðvarinnar segir að lækkunin
á verðtryggðum bílalánum félags-
ins sé tilkomin vegna lækkunar á
meðalvöxtum banka og sparisjóða
á verðtryggðum lánum, samkvæmt
tilkynningu Seðlabanka Íslands frá
27. september síðastliðnum.
TM lækkar vexti
af bílalánum
!"
"#$
%&
' ()
"*%+#
# +#+
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
HÚSASMIÐJAN hefur keypt
rekstur KB Byggingavara í Borg-
arnesi. Stefnt er að því að afhend-
ing rekstrarins fari fram um
miðjan þennan mánuð.
Í tilkynningu frá Húsasmiðj-
unni segir að verslun KB í Borg-
arnesi verði breytt í Húsasmiðju-
verslun með stórauknu vöruúrvali
og fjölbreyttri þjónustu en Húsa-
smiðjan hefur á boðstólum yfir 80
þúsund vörutegundir í verslunum
sínum. Verslunin verður sú átj-
ánda í röð Húsasmiðjuverslana
um land allt. Hún verður staðsett
í verslunarhúsnæði KB Bygg-
ingavara við Egilsholt. Að auki
fylgir versluninni útisvæði og
segir í tilkynningunni að Húsa-
smiðjan muni nýta það til að stór-
auka vöruframboð í timbri og
annarri þungavöru til hagsbóta
fyrir verktaka, fagmenn, sum-
arbústaðaeigendur og aðra við-
skiptavini á svæðinu.
Sama vöruverð alls staðar
Vöruverð í Húsasmiðjuverslun-
inni í Borgarnesi verður það sama
og í öllum öðrum verslunum
Húsasmiðjunnar um land allt,
segir í tilkynningunni.
Allir átta starfsmenn KB
Byggingavara munu halda störf-
um sínum. Rekstrarstjóri versl-
unarinnar verður Valdimar
Björgvinsson, en hann hefur ver-
ið rekstrarstjóri KB Bygginga-
vara.
KB hefur um áratugaskeið rek-
ið byggingavöruverslun í Borgar-
nesi en hættir nú þeirri starfsemi.
Í tilkynningunni segir að KB
muni áfram reka búrekstrarvöru-
deild með sama sniði og verið hef-
ur.
Húsasmiðjan kaup-
ir KB Bygginga-
vörur í Borgarnesi
● LÍFEYRISSJÓÐUR starfsmanna rík-
isins býður nú sjóðfélagalán með
4,3% föstum vöxtum frá 5 til 40 ára.
Eftir sem áður verður boðið upp á lán
með breytilegum vöxtum og eru þeir
nú 4,33%. Heimilt verður að breyta
vöxtum eldri sjóðfélagalána úr breyti-
legum í fasta vexti. Ekki er gerð krafa
um fyrsta veðrétt en veðsetning-
arhlutfall má ekki fara yfir 65% af
verðmæti eignar. Þá eru engin tak-
mörk á fjárhæð sjóðfélagalána og
heimilt er að greiða lán upp að hluta
eða öllu leyti án kostnaðar hvenær
sem er á lánstímanum.
Lán LSR með
4,3% vöxtum
● GREININGARDEILD KB banka spá-
ir 0,6% hækkun á vísitölu neyslu-
verðs á milli september og október-
mánaðar. Greiningardeild
Landsbanka Íslands hefur einnig
spáð 0,6% hækkun en Íslandsbanki
spáir 0,5% hækkun en það er sama
hækkun og mældist á sama tíma í
fyrra.
Spá 0,5–0,6% hækkun
MINNSTAÐUR
● STJÓRN SPRON hefur samið við
verðbréfafyrirtækið H.F. Verðbréf hf.
um að það annist skráningu kaup- og
sölutilboða stofnfjárbréfa og komi á
samningum. Í tilkynningu segir að
stjórn SPRON vonist til þess að við-
skipti með stofnfjárbréf fari í þann
farveg að stofnfjáreigendur geti vel
við unað og að eðlileg verðmyndun
eigi sér stað.
Meðal helstu reglna um stofn-
fjármarkaðinn eru að viðskipti með
stofnfjárbréf á markaði séu háð sam-
þykki stjórnar SPRON, engum sé
heimilt að eiga 10% eða stærri virk-
an hlut í SPRON án samþykkis Fjár-
málaeftirlitsins, enginn megi fara
með meira en 5% atkvæða í SPRON
og að viðskipti með stofnfjárbréf lúti
ekki sömu reglum og í kauphöll,
heldur skuli þau fara fram á lokuðum
markaði.
Stofnfjármarkaður
hjá H.F. Verðbréfum
SÍMINN mun í október og nóv-
ember auka hraðann á öllum
ADSL-tengingum viðskiptavina
sinna án þess að biðja þurfi um
það sérstaklega. Þannig verður
t.d. hraði ADSL-tengingar sem áð-
ur var allt að 256 kb/s nú allt að
1024 kb/s og greiðist fyrir hana
sama mánaðargjald, 2.500 krónur.
Áætlað er að búið verði að stækka
allar tengingar fyrir 1. desember
nk. Þá býður Síminn upp á nýjan
öryggispakka sem inniheldur vír-
usvörn og eldvegg fyrir tölvur. Í
tilkynningu segir að allur póstur
sem fer um póstföng sem fylgja
áskrift hjá Símanum sé undir eft-
irliti.
Hins vegar geti vírusar dreift
sér um önnur netföng, um heima-
síður o.fl. Panta má öryggispakk-
ann á heimasíðu Símans.
Síminn eykur hraða
ADSL-tenginga
● VÁTRYGGINGAFÉLAGIÐ Vörður hef-
ur opnað söluskrifstofu í Hag-
kaupum í Smáralind og fást þar allar
upplýsingar um heimilis- og bílatrygg-
ingar félagsins.
Sigurður Sveinsson, útibússstjóri
Varðar á höfuðborgarsvæðinu, segir
í tilkynningu að með þessu vilji Vörð-
ur auka þjónustu við ört stækkandi
hóp viðskiptavina á höfuðborg-
arsvæðinu.
Söluskrifstofur Varðar eru á Ak-
ureyri og í Reykjavík en auk þess eru
umboðsmenn starfandi í Bolung-
arvík, á Akranesi, Hornafirði, í Kefla-
vík, Þorlákshöfn og Hveragerði.
Vörður í Smáralind
● LÍFEYRISSJÓÐUR Norðurlands
lækkaði vexti sjóðfélagalána í 4,5%
frá og með 1. október. Eiga vaxta-
kjörin bæði við um ný og eldri lán.
Jafnframt hafa hámarkslán hækkuð
úr 4 milljónum króna í 6 milljónir auk
þess sem veðhlutfall er rýmkað og er
nú heimilt að veita lán sem nemur
65% af metnu markaðsvirði fast-
eignar. Ekki er krafist fyrsta veðréttar
til að sjóðfélagar njóti þessara kjara
á lánunum.
Samkvæmt milliuppgjöri Lífeyr-
issjóðs Norðurlands fyrir fyrstu sex
mánuði ársins var nafnávöxtun á árs-
grundvelli 24,7% og raunávöxtun
18,7%. Hrein eign til greiðslu lífeyris
nam í júnílok 36,5 milljörðum króna
og hafði hækkað um 4,1 milljarð frá
ársbyrjun.
Lífeyrissjóður Norður-
lands lækkar vexti
VESTURLAND
Borgarfjörður | Sveitarfélögin fjög-
ur í Borgarfirði, norðan Skarðsheið-
ar, hafa gert samstarfssamning við
eMax ehf. um uppbyggingu þráð-
lauss breiðbandskerfis í sveitar-
félögunum. Samningurinn felur það
í sér að 95% heimila á svæðinu eigi
kost á þjónustunni áður en ár er lið-
ið og Borgarfjörður verður þá orð-
inn best tengda svæði landsins, ut-
an höfuðborgarinnar, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu.
Fyrirtækið eMax ehf. hefur unnið
að uppbyggingu kerfisins í Borgar-
firði á undanförnum mánuðum.
Sveitarfélögin leggja nú fram
ákveðin fjárframlög til uppbygging-
arinnar. Stefán Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri eMax ehf., segir að
það geri fyrirtækinu kleift að hraða
uppbyggingunni og á móti geri
sveitarfélögin kröfu um aukna út-
breiðslu þjónustunnar. Þá geri
samningurinn ráð fyrir að stofn-
gjöld notenda verði lægri en annars
hefði orðið.
Að samningnum við eMax ehf.
standa Borgarbyggð, Hvítársíðu-
hreppur, Borgarfjarðarsveit og
Skorradalshreppur. Samningurinn
var undirritaður á Hvanneyri í
fyrradag.
Þráðlaust breiðbandskerfi nýtist
sem burðarlag fyrir margs konar
þjónustu, svo sem tengingar við
Netið, til mótttöku útvarps- og sjón-
varpssendinga og fyrir eftirlits- og
öryggiskerfi. Er þjónustan að sögn
Stefáns sambærileg við ADSL-net-
þjónustuna en hún hefur ekki verið í
boði utan þéttbýlisstaða. Stefán
segir að notendur hafi tekið þjón-
ustunni vel og séu töluverðar annir
við að tengja. Hann tekur fram að
það séu bæði bændur og eigendur
sumarhúsa sem nýti þjónustuna.
eMax ehf. hefur verið að byggja
upp kerfi sitt víðar á landinu, svo
sem á höfuðborgarsvæðinu og í
Eyjafirði. Einnig í nokkrum smærri
sveitarfélögum og sumarhúsahverf-
um á Suðurlandi og þá með svip-
uðum samningum við sveitarfélögin
og gengið hefur verið frá í Borg-
arfirði.
Sveitarfélögin í Borgarfirði flýta upp-
byggingu þráðlauss breiðbandskerfis
Verður „best
tengda“ svæði
landsins
Stykkishólmur | Það vekur athygli
þegar ungar og dugmiklar konur
hafa kjark og þor til að stofna fyr-
irtæki á ekki stærri stað en í Stykk-
ishólmi. Það á við þær Berglindi
Þorgrímsdótttur og Írisi Sím-
onardóttur. Þær vinkonur hafa
opnað fullkomna líkamsræktarstöð
í íþróttamiðstöðinni í Stykkishólmi.
Húsnæðið sem þær hafa til umráða
er um 160 fermetrar og var áður
notað undir framhaldsdeild við
Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Ár er síðan hugmyndin kviknaði
sem nú er orðin að veruleika. Þær
notuðu tímann í fyrravetur og
kynntu sér rekstrargrundvöll sam-
bærilegra stöðva á landsbyggðinni.
Eftir þá skoðun voru þær ákveðnar
að halda áfram og klára dæmið.
Þær keyptu inn ný tæki frá Techno-
gym á Ítalíu. Síðan hafa þær sótt
námskeið sem gefur þeim réttindi
til að leiðbeina fólki í tækjunum.
Í stöðinni eru tæki fyrir alhliða
líkamsþjálfun, þar sem fólk á öllum
allri getur fengið styrkingarverk-
efni við sitt hæfi.
Þær segja að tilkoma Framhalds-
skóla Snæfellinga í haust hafi ráðið
miklu í að þær fóru af stað. „Nú í
fyrsta skipti sjáum við fram á það
að unglingarnir 16 til 20 ára verða
heima yfir veturinn og það er þessi
hópur sem er duglegur að sækja
líkamsræktarstöðvar til að efla
þrek og heilsu.“
Berglind og Íris eru bjartsýnar á
framhaldið. Þær segjast vilja búa í
Hólminum og á þennan hátt eru
þær að skapa sér atvinnu við það
sem þær hafa áhuga á.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Íris Símonardóttir og Berglind Þorgrímsdóttir hafa stofnað nýja heilsu-
ræktarstöð í Stykkishólmi, en bjartsýni og þor rekur þær áfram.
Hólmarar í líkamsrækt
Grundartangi | Íslenska járn-
blendifélagið og starfsmenn
þess hafa unnið markvisst að
því að fækka vinnuslysum síð-
ustu árin. Nú hefur sá frábæri
árangur náðst að tvö ár eru lið-
in frá því að slys varð sem leiddi
til fjarveru starfsmanns félags-
ins frá vinnu.
Félagið og starfsmenn hafa
náð þessum áfanga með skipu-
lögðu starfi að öryggismálum,
segir í frétt frá félaginu. Þar
má nefna fræðslu, áherslu á
þrif og góða umgengni á vinnu-
staðnum, bættar merkingar,
skráningu á því sem betur má
fara og úrbætur.
Árangrinum hefur verið
fagnað á Grundartanga.
Tvö slysalaus
ár í járn-
blendinu