Morgunblaðið - 04.10.2004, Síða 13

Morgunblaðið - 04.10.2004, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 13 MINNSTAÐUR Mercedes Benz 200 E F.skráð. 10.1994. Ekinn 184.000 km. Litur: Silfur. Verð: 900.000 kr. Tilboðsverð: 590.000 kr. Alfa Romeo 156 S/D T F.skráð. 02.2004. Ekinn 16.900 km. Litur: Rauður. Verð: 2.100.000 kr. Tilboðsverð: 1.690.000 kr. Kia Sportage F.skráð. 08.2001. Ekinn 70.000 km. Litur: Blár. Verð: 1.140.000 kr. Tilboðsverð: 690.000 kr. Hyundai Accent H/B L F.skráð. 01.1998. Ekinn 58.000 km. Litur: Rauður. Verð: 390.000 kr. Tilboðsverð: 190.000 kr. 450.000 www.toyota.is kr. afsláttur Allt að framhaldKópavogurSími 570 5070 ReykjanesbærSími 421 4888 AkureyriSími 460 4300 SelfossSími 480 8000 BETRI NOTAÐIR BÍLAR Það verður mikið að gerast hjá Toyota Betri notuðum bílum í þessari viku. Ekki missa af þessu frábæra tækifæri til þess að eignast góðan bíl á einstöku verði. Skoðaðu úrvalið á www.toyota.is eða komdu í heimsókn á Nýbýlaveginn eða til umboðsmanna okkar á Akureyri, Selfossi og í Reykjanesbæ. VESTURLAND Borgarnes | Símenntunarmiðstöðin á Vest- urlandi er fimm ára á þessu ári og er rækilega búin að festa sig í sessi. Hún var stofnuð með það í huga að auka menntun í dreifðari byggð- um landsins og að henni standa menntastofn- anir, sveitarfélög, stéttarfélög og fyrirtæki á Vesturlandi. Núna þegar haustönnin er að hefjast segja þær Inga Sigurðardóttir fram- kvæmdastjóri og Svava Svavarsdóttir skrif- stofustjóri að þátttaka í námskeiðum sé góð, mun betri en á vorönninni, og er yfirfullt í nokkur námskeið. Símenntunarmiðstöðin er með skrifstofu í Borgarnesi og auk þeirra Ingu sem er í fullu starfi og Svövu sem er í hálfu starfi er Ingi- björg Stefánsdóttir nýlega tekið við sem ráð- gjafi í hálfu starfi, en það er ný staða hjá Sí- menntunarmiðstöðinni. Hennar starf felst í að fara í fyrirtæki og gera þarfagreiningu. Fyr- irtækin geta í rauninni leigt þannig fræðslu- stjóra í tímabundin verkefni. Inga segir að fyr- irtækin mættu vera duglegri við að nýta sér þessa þjónustu. Dekur, línudans og háskólanám í hjúkrun „Vinsæl námskeið hjá okkur núna eru dek- urnámskeið fyrir konur, grunnámskeið í tölvu- notkun, línudans, flókanámskeið, námskeið fyrir starfsfólk dvalarheimila aldraðra, nám fyrir ófaglært starfsfólk í leikskólum og skól- um á Snæfellsnesi og í Dölum, svo dæmi séu tekin. Eglunámskeið í samstarfi við Land- námssetur og Snorrastofu er vinsælt líka. Hins vegar er viðamest námskeið í svæð- isleiðsögn um Vestfirði og Vesturland,“ segir Inga. „Við höfum áður reynt að halda svona námskeið en ekki tekist því við náðum ekki til- skildum fjölda þátttakenda. Nú ákváðum við að fara í samstarf við Fræðslumiðstöð Vest- fjarða og þannig náðum við nægri þátttöku. Byrjað er á grunnámi en síðan verður lögð áhersla á Vestfirði og Snæfellsnes og á loka- önninni verður farið í aðra hluta Vesturlands. Þetta er þriggja anna nám og er sambærilegt náminu í Leiðsöguskóla Íslands enda haldið í samstarfi við hann.“ Fjölbreytt námskeið eru í boði, en fram- boðið er misjafnt eftir stöðum. „Hlutverk Sí- menntunarmiðstöðvarinnar er að efla símennt- un og fullorðinsfræðslu og styrkja tengsl atvinnulífs og menntastofnana. Starfið byggist á áhuga og hugmyndum frá einstaklingum og fyrirtækjum á Vesturlandi. Fólk hefur sam- band við okkur ef það fær hugmynd að nám- skeiði á sínu svæði og við finnum út hvort hægt sé að verða við óskum þeirra. Stundum koma líka hugmyndir frá fólki sem er tilbúið að halda námskeið. Oft sér fólk námskeið auglýst á öðr- um stöðum og fer fram á að sama námskeið sé haldið í heimabyggð þess.“ Símenntunarmiðstöðin hefur verið tengilið- ur milli fólks á svæðinu og háskóla. Nú eru 16 nemendur í fjarnámi á Akranesi, í hjúkrun við Háskólann á Akureyri. Einnig eru leikskóla- kennarar í fjarnámi, nemendur í við- skiptafræði í Stykkishólmi og Búðardal. Þá eru nemendur á Akranesi og Borgarnesi í fjar- námi í íslensku við Háskóla Íslands. Gott samband við fólk og fyrirtæki „Miðstöðin hefur aðgang að skólahúsnæði og tölvuverum um allt Vesturland, einnig að fjarkennslubúnaði á fimm þéttbýlisstöðum sem gerir okkur kleift að bjóða upp á fjöl- breytt nám. Sveitarfélögin hafa verið afar já- kvæð og hafa þau keypt búnað og útvegað lín- ur og greitt götu nemendanna,“ sagði Inga. Mikilvægur þáttur í starfinu er sambandið við fólkið, að sögn Ingu. „Símenntunarmið- stöðvarnar eru stofnaðar af grasrótinni og það þarf að viðhalda því formi. Það koma engar til- skipanir frá okkur sem stjórnum þeim. Við skráum allar hugmyndir upp á töflu og síðan er unnið út frá þeim. Einnig þurfum við að fylgjast með nýjungum. Mér finnst sífellt fleiri, bæði fyrirtæki og einstaklingar, hafa samband. Gott dæmi um slíkt er að fjarnámið í hjúkrun var sett á fót eftir að okkur bárust undirskriftalistar frá áhugasömum þátttak- endum og frá Sjúkrahúsinu á Akranesi sem vantaði hjúkrunarfræðinga til starfa. Núna þurfum við að efla heimasíðuna og helst að koma upp hugmyndabanka þar. Annars nýtist hún ágætlega, því fólk skráir sig á námskeið í gegnum hana og með tölvupósti.“ Áhugi á námskeiðum Símenntunarmiðstöðvarinnar sem hefur fest sig í sessi Þarf að viðhalda grasrótarstarfinu Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Undirbúa námskeið Þátttaka er góð í fjölbreyttum námskeiðum Símenntunarmiðstöðvarinn- ar. Hér eru Svava Svavarsdóttir skrifstofustjóri og Inga Sigurðardóttir framkvæmdastjóri. TENGLAR ................................................................... www.simenntun.is asdish@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.