Morgunblaðið - 04.10.2004, Qupperneq 16
16 MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
BESTA VERÐIÐ?
Það er gaman að eyða peningum
en það er líka gaman að spara
Sá sem gerir hvort tveggja hefur
tvöfalda ánægju af peningunum..
FjÁRMÁL HEIMILANNA . . . .
- Ný hugsun í heimilisrekstri
" Auka frjálsar ráðstöfunartekjur heimilisins
" Greiða hratt niður skuldir
" Fjárfesta í sparnaði óháð skuldastöðu
" Meta áhrif viðhorfa og hegðunar á fjármálin
Námskeið þar sem kennt verður að:
Námskeiðsgögn og 3 mánaða frí áskrift að
heimilisbókhaldi og veltukerfi sem er fljótvirk
aðferð til að greiða niður skuldir.
Upprifjunarnámskeið eftir 6 mánuði.
Innifalið í námskeiðinu er:
Næsta Námskeið:
Skráning:
Staður:
Leiðbeinandi:
Skoðaðu heimasíðuna www.spara.is Það borgar sig !
ÞúÞú átt nóg af peningum.
Finndu þá!
12. og 14. október kl 18:00 - 21:00
16. og 18. nóvember kl 18:00 - 21:00
www.spara.is eða í síma 587 2580
Háskóli Íslands, stofa 101 í Odda
Ingólfur H. Ingólfsson, félagsfræðingur
HÚS & HEIMILI
LANDSVIRKJUN, sem er í
eigu ríkisins (50%), Reykjavík-
urborgar (45%) og Akureyrarbæjar
(5%) hefur mikilsverðu hlutverki
að gegna sem eigandi nánast allra
vatnsaflsvirkjana landsins, auk
Kröfluvirkjunar. Þannig framleiðir
Landsvirkjun yfir 90% þeirrar raf-
orku, sem framleidd
er í landinu. Ætla
mætti af ofanskráðu
að miklu gilti fyrir
Landsvirkjun að
njóta trúverðugleika
og trausts þjóð-
arinnar, eigenda fyr-
irtækisins.
Ímyndaráróður
Núverandi forstjóri
Landsvirkjunar hef-
ur greinilega til-
einkað sér nútíma
tækni í að skapa fyr-
irtækinu jákvæða ímynd gagnvart
almenningi, með endalausum aug-
lýsingum um boð til að heimsækja
orkustöðvarnar, þar sem boðið er
upp á veitingar og listviðburði. Til
viðbótar kemur árlegur og vel aug-
lýstur stuðningur við Þjóðminja-
safnið.
Hlutverk
Landsvirkjunar
Telst eðlilegt að forsvarsmenn
Landsvirkjun taki mjög einhæfa
afstöðu í hápólitísku deilumáli um
atvinnuþróun í einstökum lands-
hlutum, undir því yfirskini að verið
sé að ráðast í mjög arðbært verk-
efni? Forsvarsmenn Landsvirkj-
unar fullyrða að þeirra hlutverk sé
ekki að efla atvinnulíf í einstökum
landshlutum, heldur ráðast í sem
ábatasamastar framkvæmdir
hverju sinni. Lá í því sambandi
ekki beinast við að undirbúa bygg-
ingu Urriðafoss- og Núpsvirkjunar
til að mæta fyrirsjáanlegri þörf ál-
bræðslanna í Straumsvík og Hval-
firði? Samkvæmt nýútgefinn yf-
irlýsingu Landsvirkjunar um
markmið, er boðað hlutverk
Landsvirkjunar að bjóða við-
skiptavinum sínum bestu lausnir í
orkumálum og tryggja með því nú-
tíma lífsgæði. Þessu markmiði er
lýst í nýopnaðri vefsíðu samstarfs-
hóps Landsvirkjunar og Alcoa,
www.sjalfbaerni.is
Kárahnjúkavirkjun – efna-
hagsleg áhrif
Erlendum sérfræðingum, sem
greinarhöfundur hefur haft sam-
band við, ber saman um að þeim sé
ekki kunnugt um nokkurt annað
land, efnahagslega samanburð-
arhæft við Ísland, sem léti sér
detta í hug að bjóða orku á jafn
stórlega niðurgreiddu verði og í til-
felli Kárahnjúkavirkjunar. Fullyrð-
ingar æðstu stjórnenda
Landsvirkjunar um að
þeir væru nokkuð
öruggir um endanlegan
virkjunarkostnað við
Kárahnjúka, hafa frá
upphafi ekki virst trú-
verðugar. Um að ræða
lang stærstu og flókn-
ustu framkvæmd sem
ráðist hefur verið í á Ís-
landi. Þar ber hæst,
annars vegar risastíflan
við Kárahnjúka, sem ef
af verður, mun verða
stærsta stífla sinnar
tegundar í Evrópu og með allra
hæstu stíflum sinnar tegundar í
heiminum. Hins vegar nærfellt 70
km. löng neðanjarðargöng (sam-
svarar vegalengdinni Reykjavík-
Borgarnes um Hvalfjarðargöng).
Þeir sérfræðingar sem skoðað hafa
þessar áætlanir, undrast mjög
hversu umfangsmikil og flókin og
þar með kostnaðarsöm og óviss
framkvæmdin er á orkueiningu. Þó
að 690 MW teljist risavaxin virkjun
á íslenskan mælikvarða, er um
hreina smávirkjun að ræða í al-
þjóðlegum samanburði.
Kárahnjúkavirkjun –
umhverfisleg áhrif
Nýjasta útspil Landsvirkjunar og
Alcoa er að lýsa því yfir að Kára-
hnjúkavirkjun, álbræðslan í Reyð-
arfirði og línulagnirnar þar á milli,
flokkist undir að verða “sjálfbærar!
Hvert eru menn komnir í hug-
arspunanum? Einna helst má líkja
þessu við “hrollvekju“ Georgs Or-
wells, 1984, þar sem öllum hug-
tökum var snúið á haus. Tilgang-
urinn helgaði þar meðalið.
Fulltrúar Landsvirkjunar hafa
frá upphafi reynt að gera sem
minnst úr neikvæðum áhrifum
væntanlegra virkjanaframkvæmda
við Kárahnjúka á umhverfið. Um-
hverfisstofnun var á öndverðu máli
og úrskurðaði gegn verkefninu
sakir viðamikilla neikvæðra um-
hverfisáhrifa. Þessum úrskurði var
síðan snúið við af fyrrverandi um-
hverfisráðherra, sem samþykkti
framkvæmdina með margvíslegum
skilyrðum. Í kjölfarið voru síðan
gerðir samningar við nýjan aðila,
Alcoa, í miklu flaustri og afleitri
samningsstöðu í aðdraganda al-
þingiskosninga, þar sem Fram-
sóknarflokkurinn hafði heitið íbú-
um Austurlands að þetta mál yrði
knúið í gegn fyrir kosningar. Af-
staða til Kárahnjúkavirkjunar varð
aldrei að kosningamáli á landsvísu.
En hvað segja fulltrúar Lands-
virkjunar nú um þessi óleystu
vandamál ? Verkfræðingurinn sem
hefur verið falið að finna lausn á
fokvandamálunum úr Hálslóni,
segir að um sé að ræða að hindra
fok á 100 tonnum af leir úr lón-
stæðinu (samsvarandi 2-3 “bú-
kolluhlössum“!), þegar vatnsstaðan
er hvað lægst á vorin og fram eftir
sumri! Náttúrufræðingar þeir sem
unnu að umhverfismati vegna fyr-
irhugaðrar Kárahnjúkavirkjunar
áætla að leirfok, á vorin við aust-
anvert Hálslón verði gríðarleg, sem
illgerlegt verði að hefta. Þetta
samsvarar að 50 – 60 þúsund tonn
af leir nái að fjúka yfir Vest-
uröræfin í átt til Fljótsdalshéraðs,
ár hvert. Þar með myndi auðn
blasa við stórum hluta þeirra gróð-
ursælu heiða, sem fyrrverandi um-
hverfisráðherra kynnti sem mögu-
lega viðbót við væntanlegan
Vatnajökulsþjóðgarð. Treystum við
aðilum, sem bera ekki meira skyn-
bragð en að framan greinir? Nýj-
asta útspil Landsvirkjunar og Al-
coa, segir Sveinn Aðalsteinsson, er
að lýsa því yfir að Kárahnjúka-
virkjun, álbræðslan í Reyðarfirði
og línulagnir þar á milli flokkist
undir að verða „sjálfbærar“!
Trúverðugleiki
Landsvirkjunar
Sveinn Aðalsteinsson fjallar
um Landsvirkjun og virkjunar-
framkvæmdir fyrir austan ’Nýjasta útspil Lands-virkjunar og Alcoa er að
lýsa því yfir að Kára-
hnjúkavirkjun, ál-
bræðslan í Reyðarfirði
og línulagnir þar á milli
flokkist undir að verða
„sjálfbærar“! ‘
Sveinn Aðalsteinsson
Höfundur er viðskiptafræðingur.
ÍSLENSKAR konur berjast fyrir
bættri stöðu sinni. Þær hafa tekið
slaginn og þær ætlast ekki til þess
að þær njóti neinna forréttinda. En
þær krefjast þess að þær njóti
jafns réttar á við karla. Þær biðja
ekki um að hlutur kvenna verði alls
staðar hnífjafn hlut karla, heldur
hafa þær áratugum
saman miðað við að
jafnrétti næðist með
því að hlutur annars
hvors kynsins væri
ekki minni en 40%
sem víðast, ekki síst í
æðstu embættum.
Þegar Framsókn-
arflokkurinn valdi
hvaða ráðherra yrði
felldur úr ríkisstjórn
urðu viðbrögðin hörð
vegna þess að Siv
Friðleifsdóttir var
felld með fullt hús
stiga. Hún uppfyllti
öll skilyrði sem hing-
að til hefur verið
miðað við þegar
(karl)ráðherra er
valinn. Hún er úr
stóru, ráðherralausu
kjördæmi, hafði mik-
ið kjörfylgi í síðustu
kosningum, gegnir
háttsettu trúnaðarembætti fyrir
flokkinn sem ritari og hefur reynslu
sem þingmaður og ráðherra – þótt
vissulega hafi hún verið umdeild
sem slík – en það er önnur saga.
Þegar kom að henni var karlaklíkan
skyndilega búin að breyta forsend-
unum. En ungur karlmaður, sem
ekki uppfyllti nein af fyrrgreindum
skilyrðum, hélt ráðherraembætti
sínu.
Og enn einu sinni hljóta íslenskar
konur að mótmæla skipun dómara
við Hæstarétt Íslands þar sem ráð-
herra gætti ekki lögbundinna jafn-
réttissjónarmiða. Í dag sitja tvær
konur í Hæstarétti af alls níu dóm-
urum og hefði ráðherra því borið að
skipa konu dómara að þessu sinni,
hefði hann viljað fara að jafnrétt-
islögum, enda var í hópi umsækj-
enda kona sem var talin að minnsta
kosti jafn hæf og aðrir umsækj-
endur. En þar breytast forsendur
líka eftir hentugleikum hverju
sinni. Síðast, þegar
skipa átti náfrænda
forsætisráðherrans
dómara, þá þurfti
skyndilega (karl)mann
með reynslu af Evr-
ópurétti, af því frænd-
inn hafði eitthvað stúd-
erað hann. Núna
vantaði skyndilega
(karl)mann með
reynslu af lögmanns-
störfum. Í bæði skiptin
voru þessar „hæfn-
isforsendur“ ákveðnar
eftir að umsókn-
arfrestur var liðinn.
Jafnrétti verður
ekki náð nema konur
eigi raunverulega
möguleika á að fá
áhrifastöður sem losna
þar sem karlar eru í
miklum meirihluta fyr-
ir. Jafnréttislög eru
virt að vettugi þegar
ekki er fylgt þeirri reglu.
Konur eru helmingur þessarar
þjóðar og þær eru ekki vanhæfari
helmingurinn, eins og oft mætti
ætla af umræðu (karl)manna. Hve-
nær skyldi koma að því að (karl)
menn telji þörf fyrir sjónarmið hæf-
ustu kvenna og þeir hætti að skipta
um skrár þegar kemur að kon-
unum?
Skipt um skrár
Margrét Sverrisdóttir skrifar
um jafnrétti kynjanna
Margrét
Sverrisdóttir
’Jafnrétti verð-ur ekki náð
nema konur eigi
raunverulega
möguleika.‘
Höfundur er framkvæmdastjóri
Frjálslynda flokksins og varaform.
Kvenréttindafélags Íslands.
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali
MIRALE
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 5171020
Opið:
mán. - föstud.11-18
laugard.11-15
Spennandi
gjafavörur og húsgögn