Morgunblaðið - 04.10.2004, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 04.10.2004, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 17 UMRÆÐAN EKKI ER til heildarstefna í geð- heilbrigðismálum hér á landi. Það þarf að gera heildstæða stefnu fyrir geðheilbrigðisþjónustu sem allra fyrst. Ótal mörgu er ábótavant í þessum efnum og mun ég nefna nokkur atriði þar um. Tiltæk þarf að vera geðheilbrigðisþjónusta fyrir alla aldurshópa alls staðar á landinu. Greining, meðferð, ráðgjöf, eft- irfylgd og stuðningur við sjúkling og aðstandendur þarf að vera aðgengi- leg. Koma þarf á fót lokaðri geðdeild fyrir mjög alvarlega veika ein- staklinga sem nú ráfa um götur án úrræða. Veita þarf þeim sem öðrum geðsjúkum markvissa meðferð við hæfi. Efla þarf þjónustu inni á geð- deildum eins og sálfræðiþjónustu og sjúkraþjálfun líkt og veitt er á Reykjalundi þar sem ríflega 300 manns bíða eftir meðferð. Efla þarf stórlega meðferðarúrræði utan spít- ala. Góð viðleitni í þá átt væri að koma á laggirnar geðteymum á öll- um helstu heilsugæslustöðvum á landinu, sem sæti ættu í geðlæknir, geðhjúkrunarfræðingur, fé- lagsráðgjafi, sálfræðingur og iðju- þjálfi. Slíkt teymi gæti fylgt eftir fólki sem hefur átt við bágt geð að etja og heimsótt fólk reglulega til að veita því stuðning og ráðgjöf. Þetta getur fyrirbyggt spítalainnlagnir og verið endurhæfingar- og langtíma- meðferðarúrræði. Allveg fáránlegt er að Trygg- ingastofnun skuli greiða niður geð- læknisþjónustu en ekki sál- fræðiþjónustu þegar sýnt þykir að hin síðarnefnda skilar oft jafn góðum eða betri árangri en lyfjameðferð sem er áherslumeðferð hjá flestum geðlæknum. Þannig er verið að ýta fólki út í lyfjaneyslu sem stundum væri vel hægt að komast hjá og ófáir vilja ekki þiggja geðlyf. Ég eggja heilbrigðisráðuneytið að hefja sem fyrst formlegar og alvarlegar við- ræður við Sálfræðingafélagið og sýna sérstaka lipurð í samninga- viðræðum svo ganga megi frá samn- ingum sem allra fyrst. Þetta sparar lyfjakostnað, eykur langvarandi ár- angur meðferðar og minnkar ómæld- ar þjáningar og vinnutap þeirra er eiga við dapurt eða óstöðugt geð að etja. Geðheilbrigði þjóðarinnar fer dvínandi almennt séð og við því þarf að sporna með aðferðum eins og góðu aðgengi að sálfræðiþjónustu. Fólk á að geta valið milli lyfja- meðferðar eða markvissrar og kerf- isbundinnar sálfræðimeðferðar til að ná heilbrigði. Allir þjóðfélagshópar eiga að hafa jafnan rétt til náms, líka geðsjúkir. Hjálpa þarf geðsjúkum að auka við menntun sína. Of margir flosna úr námi vegna geðsjúkdóma t.d. vegna mikils kvíða eða félagsfælni. Frá- bært menntunartilboð hefur verið búið til fyrir geðsjúka sem stjórnvöld hafa klikkað á að styðja sem skyldi. Þetta er Fjölmennt, samstarfsverk- efni Geðhjálpar og Fjölmenntar, sem á annað hundrað nýta sér í dag þrátt fyrir krappan fjárhag Fjölmenntar. Þetta nám býður upp á meiri sveigj- anleika en almenna skólakerfið auk þess sem nemendur eru alltaf í smáum hópum. Sérhæfð menntun eykur sjálfstraust og möguleika á vinnumarkaði auk þess að koma í veg fyrir niðurbrjótandi aðgerðarleysi Gera þarf geðrækt á Íslandi miklu hærra undir höfði. Geðrækt er for- varnarstarf líkt og Umferðarstofa og Tóbaksvarnaráð sinna á öðrum svið- um. Berjast þarf af krafti gegn þekktum áhættuþáttum geð- sjúkdóma t.d. atvinnuleysi, fátækt, ofneyslu áfengis og annarra vímu- efna, ofbeldi, einelti, kúgun, van- rækslu barna og misnotkun. Geð- ræktin hér á landi hefur einn starfsmann og einn starfsmaður er í samstarfsverkefninu Þjóð gegn þunglyndi. Þetta þýðir að op- inberlega sinna tveir starfsmenn geðræktarfræðslu hér á landi. Þetta sér hver maður að er allt of lítið. Með fræðslu ber fólk fyrr kennsl á ein- kenni þegar geðheilsan lætur undan og leitar sér fyrr hjálpar og þannig má minnka eða koma í veg fyrir lang- varandi veikindi. Við manneskjur erum félagsverur sem þýðir að við þrífumst best sem hluti af hópi, getum sýnt samhygð og hjálpsemi og að við berum okkur ótt og títt saman við aðra. Algengt er að geðsjúkir upplifi sig eina með sinn geðsjúkdóm og loki sig af vegna upp- lifunar á skömm og skorti á skilningi. Þetta leiðir af sér að fólk dregur í lengstu lög að leita sér aðstoðar. Fordómar gera erfiðan geðsjúkdóm enn erfiðari. Fólk á ekki að dæma sig sjálft fyrir að vera geðsjúkt og aðrir skyldu ekki dæma geðsjúka eða gera þeim erfitt líf enn erfiðara. Sleppum fordómum í garð geðraskaðra í anda dagsins. Ég hef sjálfur þurft að kljást við félagsfælni og þunglyndi og skamm- ast mín ekkert fyrir það. Þessi reynsla hefur aukið þroska minn; umburðarlyndi og víðsýni. Ég stofn- aði sjálfshjálparhóp fyrir fé- lagsfælna og tel hann vera einn að lyklunum að mínum bata. Um þessar mundir eru starfandi eftirfarandi hópar hjá Geðhjálp ( www.gedhjalp.is): félagsfælni- hópur, kvíðaröskunarhópur, einelt- ishópur, geðhvarfahópur, þunglynd- ishópur, borderlinehópur og félagshópur ungs fólks. Ég hvet geð- sjúka til að finna sér sjálfshjálparhóp við hæfi eða íhuga að stofna slíkan hóp til að fá stuðning. Í svona hópi finnur maður að maður er ekki einn með sitt vandamál og heyrir hvernig aðrir takast á við það sama. Gagnger tiltekt í geðheil- brigðismálum er brýn Elís V. Árnason fjallar um geðhjálp ’Ég hef sjálfur þurft aðkljást við félagsfælni og þunglyndi og skammast mín ekkert fyrir það. ‘ Elís Vilberg Árnason Höfundur er í stefnumótunarnefnd Geðhjálpar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.